Morgunblaðið - 15.12.1995, Page 39

Morgunblaðið - 15.12.1995, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1995 39 . slensku bókmenntaverðlaunanna ulag verð- i umdeilt Morgunblaðið/Kristinn iverðlaunin, ekki villandi þar sem valið stendur ekki um allar bækur heldur aðeins hluta þeirra? Væri ekki réttara að kenna verðlaunin tendur fyrir þeim og kalla þau Utgefendaverðlaunin? Reynir Björn Þorsteinn íhannsson Eiríksson Thorarensen ihann Páll ldimarsson Ólafur Ragnarsson Jón Karlsson forlagið veldi sjálft úr þeim bókum sem það gæfi út væri það að gera upp á milli höfunda og það viil eng- inn útgefandi gera. Það er líka út í hött að fresturinn til að leggja fram bók renni út í lok október, á þeim tíma eru ekki allar bækur komnar út. Eins og framkvæmd þessara verðlauna er nú sé ég ekki betur en þau þjóni fyrst og fremst markaðs- legum tilgangi, útgefendur líta um- fram allt á þau sem auglýsingu fyr- ir jólin. Auk þess er ég á móti því að fámenn nefnd sé látin útnefna verðlaunabókina; réttast væri að láta almenning dæma um það hver væri besta bók ársins þegar árið er liðið, það væri til dæmis hægt að gera með skoðanakönnun." Björn sagðist aldrei hafa lagt fram verk til verðlaunanna og myndi ekki gera það á meðan fyrirkomulag þeirra væri eins og það er nú. Þorsteinn Thorarensen, fram- kvæmdastjóri Fjölva, sagðjst hafa ætlað að leggja fram bók Ágústínu Jónsdóttur, Sónötu, en hún hefði ekki verið tilbúin áður en skilafrest- ur rann út. Þorsteinn sagði sig óa við öllum þeim skarkala sem væri í kringum bókaútgáfuna fyrir hver jól. „Bókaútgáfan snýst ekki lengur um bókmenntirnar sem slíkar heldur umgjörðina um þær, markaðssetn- inguna og kynninguna. Og mér finnst íslensku bókmenntaverðiaun- in vera einn þátturinn í þessu kapp- hlaupi. Ég rek litla útgáfu og vil helst fá að sinna mínum bókum í friði, vera laus við þessi læti sem alls ekki eiga við bókmenntirnar; þessi markaðsmál eru hreinlega and- bókmenntaleg. Auk þess myndi lítið forlag eins og mitt aldrei hafa mann- skap í að sinna þeim málum jafn vel og stóru forlögin.“ Bragi Þórðarson, framkvæmda- stjóri Hörpuútgáfunnar, sagðist ánægður með íslensku bókmennta- verðlaunin. „Það má ef til vill deila um fyrirkomulagið en mér finnst þau þjóna sínum tilgangi vel. Þau vekja athygli á bókmenntum, kveikja um- ræðu og eru auk þess rithöfundum hvatning til betri verka. Ég ber að öllu leyti mjög jákvæðan hug til þessara verðlauna." Bragi sagði það hafa orðið sér mikil vonbrigði að fá ekki að leggja fram bók Matthíasar Johannessens, Hvíldarlaus ferð inn ídrauminn. „Ég segi vonbrigði og vonbrigði ekki því ég vissi álltaf að hveiju ég gekk. Matthías sagði mér frá þessu skil- yrði af sinni hálfu þegar í upphafi okkar samstarfs, þannig að ég get ekki verið að sýta það.“ Verðlaunin þjóna sínum tilgangi vel Þeir útgefend ur sem blaðamaður ræddi við og höfðu lagt fram verk til verðlaunanna eru hins vegar mjög ánægðir með fyrirkomulag verð- launanna og telja þau kynna og efla bókmenntirnar. Jóhann Páll Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri Forlagsins, sagði að gagnrýni á framkvæmd verðlaun- anna væri yfirleitt ekki á rökum reist. „Þeir vankantar sem fundist hafa á verðlaununum hafa verið sniðnir af jafnóðum.“ Jóhann nefndi til dæmis að verðlaununum hefði verið skipt upp i tvo flokka sem ekki var í upphafi. Hann sagði einn- ig æskilegt að ekki þyrfti að greiða neitt tilnefningargjald til þess að tryggja að allar bækur, sem verðug- ar kunna að vera, yrðu lagðar fram. „Að mínu mati er þetta það eina sem mætti vera öðruvísi í framkvæmd verðlaunanna en á það ber auðvitað að líta að það þarf að fjármagna verðlaunin. Auk þess er það stefna Félags íslenskra útgefenda og hefur alltaf verið að ef einhver bók, sem við teljum að ætti erindi í samkeppn- ina um verðlaunin, er ekki lögð fram vegna þess að útgefandi hefur ekki tök á því að greiða þátttökugjaldið þá hefur félagið boðið viðkomandi að leggja fram bókina án þess að greiða gjaldið. Við leggjum mikið kapp á að engin bók verði útundan sem verðug getur talist og hefur það verið rætt á stjórnarfundum að gæta að því.“ Jóhann Páll sagði að einhver dæmi væru um að þetta hafi verið gert en gat ekki nefnt nein þeirra. Jón Karlsson, framkvæmdastjóri Iðunnar, sagðist heldur ekki geta nefnt einstök dæmi um að gjald hefði verið fellt niður með þessum hætti en það hefði þó aldrei þótt neitt tiltökumál. „Þetta gjald hefur vitanlega aldrei verið látið standa í vegi fyrir því að góð verk yrðu lögð fram. Ef vandamál af þessu tagi hafa komið upp hefur alltaf þótt sjálfsagt að leysa þau.“ Ólafur Ragnarsson, hjá Vöku- Helgafelli og formaður Félags ís- lenskra bókaútgefenda, sagðist að- spurður ekki kannast við þessa stefnu félagsins og taldi það full- komlega óeðlilegt að stjórn félagsins skipti sér af því hvaða verk væru lögð fram og hver ekki. „Það er al- gjörlega í höndunum á hverjum út- gefanda fyrir sig hvort hann leggur fram bók til verðlaunanna. Það myndi auk þess aldrei verða sam- þykkt af útgefendum sem borga gjaldið að aðrir fengju að taka þátt án þess að gera það.“ Vilborg Harðardóttir, fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda, sagðist heldur ekki kannast við að gjaldið hefði verið fellt niður í sinni tíð en hún hefur starfað hjá félaginu síðan árið 1992 og séð um framkvæmd fernra verð- launa. „Ég man eftir því að þetta var rætt lítillega og þótti mönnum þetta fráleit hugmynd." Jóhann og Ólafur sögðu að það hafi vissulega komið upp að útgef- endur hafi ekki verið tilbúnir með bækur sínar þegar frestur til að leggja þær fram hafi runnið út. Báðir sÖgðu að þá hafi verið hægt að leggja verkið fram í handriti, próförk eða í þeirri mynd sem það er þegar fresturinn rennur út. Jó- hann sagði að þannig hefði bók Hólmfríðar A. Sigurðardóttur, ís- lenska garðblómabókin, til dæmis borist dómnefnd í ár og hún hefði þrátt fyrir það verið tilnefnd. Ólafur vildi þó benda á að vissulega gætu verkin haft jákvæðari áhrif á dóm- nefndirnar fullbúin og það væri í sjálfu sér skiljanlegt að sumir útgef- endur hættu við ef bókin væri ekki tilbúin. Jóhann Páll sagði að það væri að vissu leyti þægilegra að biða með að fara af stað með verðlaunin fram yfir áramót en það væri líka afar eðlilegt að útgefendur vildu tilnefna bækur á mesta bóksölutíma ársins. „Tilnefningarnar vekja auðvitað at- hygli á bókunum og koma af stað umræðu um bókmenntir yfirleitt og það getur ekki skaðað“, sagði Jó- hann Páll. Ólafur sagði að hugmyndin að verðlaununum hefði alltaf verið sú að benda á athyglisverðar bækur á meðan aðalbókatíðin stæði yfir. Jón Karlsson sagðist almennt séð vera ánægður með verðlaunin og taldi að þau hefðu verið farsæl. „Ef fram koma einhveijir frekari gallar á framkvæmd verðlaunanna er sjálf- sagt að taka þá þætti til endurskoð- unar. Það er ljóst að það væri affara- sælast að ekkert gjald þyrfti að greiða en það er ekki víst að hin leiðin væri fær því það þarf að fjár- magna verðlaunin og framkvæmd þeirra. En í heildina tekið heid ég að þau hafi þjónað sínum tilgangi vel.“ Útgefendaverðlaunin? Ljóst má vera að skiptar skoðanir eru á íslensku bókmenntaverðlaun- unum á meðal bókaútgefenda. Svo virðist sem þeir skiptist í tvo flokka; annars vegar í umsvifaminni útgef- endur sem flestir telja á sig hallað með fyrirkomulagi verðlaunanna og hins vegar þá sem telja mætti um- svifameiri og eru ánægðir með verð- launin. Þess ber þó að gæta að hér hefur ekki verið gerð heildarúttekt á viðhorfum útgefenda. Einkum er deilt um tvennt; að byijað sé að leggja fram bækur og tilnefna áður en árið er liðið og að gjaldið sem greiða þarf með fram- lögðum bókum mismuni útgefend- um. Það eru í sjálfu sér góð og gild rök fyrir því að hefja tilnefningar- ferlið svo snemma að þannig sé hægt að vekja athygli á bókum á mesta sölutímabilinu. En væri ekki jafnvel enn betra að hefja þetta ferli eftir áramót og lengja þar með bóka- vertíðina svokölluðu? Er hin stutta bóksölutíð ekki það sem helst stend- ur bókaútgáfunni fyrir þrifum? Umræðan um tilnefndar bækur myndi sennilega þar að auki verða fjölbreyttari og fijórri eftir áramót þar sem almenningur yrði þá búinn að lesa jólabækurnar. Ennfremur yrðu allar bækur komnar út og full- búnar. Eina leiðin til að fella niður margnefnt gjald væri líklega að fá inn utanaðkomandi fé til að fjár- magna verðlaunin og framkvæmd þeirra. Þrátt fyrir þessa galla á fyrir- komulagi verðlaunanna má þó ljóst vera að þau hafa oft lífgað upp á umræður um íslenskar bókmenntir og þannig vakið athygli á mörgum athyglisverðum verkum. Verðlaun sem þessi eru skemmtileg viðbót við bækurnar sjálfar en verða vitanlega aldrei neitt annað og meira en það. Að lokum mætti varpa fram þeirri spurningu hvort heitið, íslensku bókmenntaverðlaunin, sé ekki vill- andi þar sem valið stendur ekki um allar bækur sem gefnar eru út á hveiju ári, heldur aðeins hluta þeirra? Væri ekki réttara að kenna verðlaunin við félagið sem stendur fyrir þeim og kalla þau Útgefenda- verðlaunin? lögð fram til íslensku bókmenntaverðlaunanna Rithöfundasambandi íslands, Hag- þenki, félagi höfunda fræðirita og kennslugagna og Rannsóknarráði íslands. Lokadómnefnd mun síðan ve\ja eina bók úr hvorum flokki til verðlauna. Formaður hennar verð- ur Kristján Árnason, dósent, til- nefndur af forseta Islands og auk þess starfa í henni formenn hinna nefndanna tveggja. 1. Fagurbókmenntir Bjartur Bragi Ólafsson: Klink Sigfús Bjartmarsson: Speglabúð í bænum Forlagið Didda (Sigurlaug Jónsdóttir): Lasta- fans og lausar skrúfur Guðbergur Bergsson: Jólasögur úr samtímanum ísak Harðarson: Hvítur ísbjörn Rögnvaldur Finnbogason: Hvar er land drauma Sigurður Pálsson: Ljóðlínuskip Súsanna Svavarsdóttir: Skuggar vögguvísunnar Iðunn Egill Egilsson: Sendiboð úr djúpunum Kristján Kristjánsson: Ár bréfberans Nina Björk Árnadóttir: Þriðja ástin Þorsteinn frá Hamri: Það talar í trjánum Is-Ey útgáfan Lárus Hinriksson: Bergmál tímans - Brotið gler Mál og menning Björn Th. Björnsson: Hraunfólkið Böðvar Guðmundsson: Híbýli vind- anna Einar Már Guðmundsson: í auga óreið- unnar Finnur Torfi Hjörleifsson: í meðalland- inu Gyrðir Elísason: Kvöld í ljósturninum Hannes Sigfússon: Kyijálaeiði Helgi Ingólfsson: Letrað í vindinn - Þúsund kossar Ingibjörg Haraldsdóttir: Höfuð konunnar Kristín Maija Baldursdóttir: Mávahlátur Kristín Ómarsdóttir: Dyrnar þröngu Steinunn Sigurðardóttir: Hjarta- staður Thor Vilhjálmsson: Snöggfærðar sýnir Barna- og unglingabækur: Magnea frá Kleifum: Sossa litla skessa Olga Guðrún Árnadóttir: Peð á plán- etunni jörð Vaka - Helgafell Friðrik Erlingsson: Vetrareldur 2. Fræðibækur, handbækur o.fl. Bókaútgáfan Hólar Jón Hjaltason: Falsarinn og dómari hans Ferðafélag- Islands Árni Hjartarson: Á Hekluslóðum Forlagið Gylfi Gröndal: Ég skrifaði mig í tugt- húsið. Valdimar Jóhannsson bókaút- gefandi segir frá Hið íslenzka bókmenntafélag Böðvar Kvaran: Auðlegð íslendinga íslenska bókaútgáfan Hólmfriður A. Sigurðardóttir: ís- lenska garðblómabókin Mál og Menning Álfheiður Steinþórsdóttir og Guð- finna Eydal: Barnasálfræði Árni Siguijónsson: Bókmennta- kenningar síðari alda Guðmundur P. Ólafsson: Ströndin i náttúru Islands Námsgagnastofnun Höskuldur Þráinsson: Handbók um málfræði Vaka-Helgafell: Einar Laxness: íslandssaga A-Ö Ingólfur Margeirsson: María - Konan bak við goðsögnina Sigurbjörg Árnadóttir: Hin hljóðu tár, Ævisaga Ástu Sigurbrandsdóttur Þór Whitehead: Milli vonar og ótta Þjóðsaga Indriði Gíslason: Skógargerðisbók Orn og Orlygur Nokkrir höf., Þór Stefánsson og Dóra Hafsteinsdóttir ritstj.: Frönsk-íslensk orðabók

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.