Morgunblaðið - 06.02.1996, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1996 17
VIÐSKIPTI
ÚRVERINU
AOL og
NetScape í
viðræðum?
AOL neitar frétt
um samruna
San Francisco. Reuter.
SAMHERJI America Online,
stærstu tölvuþjónustunnar í Banda-
ríkjunum, segir að fyrirtækið eigi
í viðræðum um samvinnu við
Netscape Communications, en AOL
flýtti sér að neita því að viðræður
færu fram um samruna.
Thomas Middelhoff úr stjórn
fjölmiðlarisans Bertelsmann AG
sagði á ráðstefnu í Bonn að ákvörð-
un kynni að verða tekin um banda-
lag America Online og Netscape
innan eins mánaðar. „Bandalag
gæti leitt til samruna," sagði hann.
Bertelsmann AG hefur stofnað evr-
ópskt sameignarfyrirtæki ásamt
inu.
America Online sagði hins vegar
í tilkynningu: „Engar viðræður fara
fram við Netscape eða nokkurt
annað fyrirtæki um hugsanlegan
samruna." Talsmaður AOL vildi þó
ekkert um það segja hvort America
Online og Netscape hefðu átt við-
ræður um einhvers konar bandalag.
Stefnt gegn Microsoft
Middelhoff sagði að tilgangur
viðræðnanna væri að efla Netscape
og AOL í viðureign við Microsoft
um yfirráð yfir þjónustu í alnetinu.
Sérfræðingar segja að slíkt
bandalag geti reynzt Microsoft
skeinuhætt, enda hafi Bill Gates
forstjóri beinlínis kallað AOL og
Netscape skæðustu keppinauta fyr-
irtækisins.
Áður hefur verið hermt að farið
hafi fram viðræður um að America
Online fái leyfi til að nota Navigat-
or hugbúnað Netscapes sem er beitt
til að ferðast um veraldarvefinn.
Bæði fyrirtækin hafa neitað að að
staðfesta fréttir um nokkurs konar
bandalag.
------» ♦ ♦
Spindler
rekinn frá
Apple
New York. Reuter.
APPLE tölvufyrirtækið hefur rekið
Michael Spindler forstjóra og ráðið
í hans stað Gilbert Amelio, sem á
sæti í
stjórn App-
les og er
forstjóri
hálfleiðara-
fyrirtæk-
isins
National
Semi-
conductor
að sögn
blaðsins Wall Street Journal.
Jafnframt hermir New York Tim-
es að Apple og Sun Microsystems
séu að því komin að semja um sam-
runa er kveði um á um hærra verð
en 23 dollara á hlutabréf sem upp-
runalegt tilboð Sun hljóðaði upp á.
Journal hefur þó eftir góðum
heimildum að brottvikning Spindl-
ers bendi til að Apple hafni samr-
unahugmyndum Sun. Blaðið segir
tilboð Sun í óvissu.
i SKIPAPLOTUR- INNRETTINGAR
PLÖTURÍLESTAR
SERVANT PLÖTUR
SALERNISHÓLF
BAÐÞIUUR
ELDHÚS-BORÐPLÖTUR
' A LAGER -NORSK HÁGÆÐA VARA
t>. ÞORGRÍMSSON &CO
ÁRMÚLA 29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVlK
SÍMI 553 8640/568 6100
Deilan um eftirlitsmenn í rækjuskipum á Flæmska hattinum
Kærur sendar til RLR
og sýslumanns á Akureyri
FISKISTOFA sendi í gær kæru til
Rannsóknarlögreglu ríkisins á tvö
skip, Kan og Erik, og til sýslu-
mannsins á Akureyri á skipið Dal-
borgina. „Við kærum fyrir meint
brot á reglugerð um veiðar ís-
lenskra skipa á Flæmska hattinum,
þar sem segir að eftirlitsmenn eigi
að vera um borð í þessum skipum,"
segir Þórður Ásgeirsson fiskistofu-
stjóri.
„Við óskum eftir því að sýslu-
menn taki málin til rannsóknar og
mun rannsóknin beinast bæði að
skipstjórum og útgerðum skip-
anna.“ Hann segir að Fiskistofa
hafi sent menn til þess að fara um
borð, en skipstjórar á þessum skip-
um, að höfðu samráði við útgerðir,
hafi neitað að taka við mönnunum,
þannig að þeir hafi þurft frá að
hverfa.
Þórður segist ekki telja nokkurn
vafa leika á lögmæti reglugerðar-
innar og ákvæðisins um eftirlits-
menn: „Ég vona að málsmeðferðin
muni taka sem stystan tíma. Við
leggjum áherslu á að málinu sé
hraðað og við höfum séð þess mörg
dæmi upp síðkastið að kærur sem
frá okkur hafa farið hafi fengið
fljóta meðferð. Það hefur breyst til
batnaðar frá því sem áður var.“
Hann segir að þegar málsmeðferð
verði lokið verði það sent til sak-
sóknara sem muni taka ákvörðun
um hvort lögð verði fram kæra.
„Það má gjarnan koma fram að
þótt sá háttur hafi verið hafður á
að senda eftirlitsmenn á Flæmska
hattinn til þess að fara um borð
þar var það eingöngu vegna þess
að skipin sem um ræðir voru lögð
af stað þegar reglugerðin kom út,“
segir Þórður.
„Hér eftir eiga þeir sem ætla sér
á veiðar að vita að þær eru óheimil-
ar nema eftirlitsmaður sé um borð.
Þess vegna ber þeim að láta vita
áður en þeir fara héðan og beinlín-
is óska eftir þvi áð við setjum eftir-
litsmann um borð hjá þeim. Við
eigum ekki að þurfa að frétta það
eftir á og senda menn með flugi
og kanadískum skipum. Það flokk-
ast undir brot á reglugerðinni."
Kemur í ljós fyrir dómstólum
hver hefur rétt fyrir sér“
„ÉG HEYRI ekki betur en að þetta
sé hótun um kærumál,“ segir Snorri
Snorrason, formaður Félags úthafs-
veiðiútgerða. „Þeir hafa samt ekki
haft fyrir því að senda mér álit
þessa algjörlega óháða embættis-
manns, ríkislögmanns. Ég hafði les-
ið það í Tímanum að það ætti að
vísa þessu til óháðra umsagnaraðila
og fagnaði því.
Síðan kom það í fréttum ríkisút-
varpsins á föstudagskvöld að álitið
hefði komið frá ríkislögmanni. Fyr-
ir mér er það alveg nýtt að ríkislög-
maður sé óháður. Ég veit ekki bet-
ur en hann sé embættismaður ríkis-
ins til þess skipaður að veija emb-
ættismenn ríkisins þegar þeir gera
eitthvað af sér.“
Finnst sem sérstaklega hafi
verið beðið um refsiþáttinn
Snorri segist hafa aflað sér álits-
ins eftir öðrum leiðum. „í álitinu
stendur að þetta sé minnisblað,"
segir hann. „Ég er nú ekki lögfróð-
ur maður, en mér sýnist að ef hægt
sé að tala um sullumbull sé það
þarrta. Það er t.d. rangt farið með
nafn Félag úthafsveiðiútgerða og
það kallað Félag úthafstogara. Þá
er talað um að í því áliti sem unnið
var fyrir okkur sé ítrekað talað um
löggæslu þegar í öllum tilvikum er
talað um löggæslu og eftirlit."
Aldrei óskað eftir því að
eftirlitsmenn komi um borð
Snorri segir að sér hafi fundist
sem sérstaklega hafi verið beðið
um refsiþáttinn: „Það er í þessum
minnispunktum að varðandi brot á
umræddri reglugerð geti það varðað
sektum og upptöku afla og veiðar-
færa. Til viðbótar segir að líklegra
sé þó að slíkt brot, hvar sem það
sé framið, skírskoti beint til al-
mennra hegningarlaga. Þar segi að
það geti varðað sektum, varðhaldi
eða fangelsi allt að tveimur árum
að gera opinberum starfsmanni
tálmanir í því að gegna skyldu-
starfí sínu.“ Snorri segir að þetta
sýni að kastað hafi verið höndunum
til álitsgerðarinnar. „Það hefur aldr-
ei verið óskað eftir því við okkur
að eftirlitsmenn komi um borð. Við
höfnuðum því að taka við eftirlits-
mönnum án þess að eftir því væri
óskað og höfum því ekki haft af
þeim nein afskipti. Hinsvegar mót-
mæltum við reglugerðinni þar sem
við töldum hana ekki standast lög.“
Hann segir að í framhaldi af
þessu hafi hann séð í fréttum í
fyrradag að fiskistofustjóri myndi
gefa út kærur í vikunni: „Ég vona
að ríkislögmaður reynist honum
ráðhollari í þetta skipti en hann
reyndist i máli Ottos Wathnes og
Fiskistofu. Þá lögðu þeir ákveðnar
kvaðir á Otto Wathne, en töpuðu
málinu og þurftu að endurgreiða
honum um 15 milljónir. Þessu er
nefnilega ekki þannig farið að þeir
geti farið öllu sínu fram.“
Snorri segir að sér hefði fundist
kurteislegra af Fiskistofu að veifa
ekki vendinum. „í fréttunum í
fyrradag var þetta klár hótun. Það
verður einfaldlega til þess að þetta
fer fyrir dómstóla og þá kemur í
ljós hvað er rétt og hvað er ekki
rétt. Fiskistofu vantar auðvitað
aura til að borga þetta eftirlit. Mér
vitanlega eru þeir ekki til.“
HOFUÐIÐ HATT AN
AÐ VERA SKÝJAGLÓPUR
HAFÐU BÁÐA FÆTURÁ JÖRÐINNIÁN
ÞESS AÐ VERA BUNDINN í BÁÐA SKÓ
Spennandi námstefna með dr. Jagdish Parikh
á Scandic Hótel Loftleiðum, þriðjudaginn 13. febrúar 1996, frá kl. 9 til 16:
STJÓRNUN,SAMKVjqMT
FRAMTIÐARSYN
Námsteffna ffyrir stjórnendur ffyrirtækja, félagasamtaka,
ráðuneyta og stofnana í eigu ríkis eða sveitarfélaga sem
gerir þeim kleift að bæta stórlega sköpun og samskipti á
sviði steffnumótunar.
Takmarkaður fjöldi þátttakenda - skráðu þig I dag
3+1 Ef 3 eru skráðir frá sama fyrirtæki eða
stofnun fær 4. þátttakandinn FRÍTT.
7+3 Ef 7 eru skráðir frá sama fyrirtæki eða
stofnun fá 3 til viðbótar FRÍTT.
Dr. Jagdish Parikh
Skráning er hafin
562 1066
Almennt verð: Kr. 29.900.
Félagsverð SFÍ: Kr. 25.415 (15% afsl.).
Innifalið: Bækurnar: Managing Your Self,
Intuition og Beyond Leadership. Einnig
er innifalið morgunkaffi, hádegisverður
og síðdegiskaffi.
Stjórnunarfélag
íslands
i SAMSTARFI VIÐ