Morgunblaðið - 17.02.1996, Page 1
72 SIÐUR LESBOK/C/D
40. TBL. 84. ÁRG.
Gómuðu
spell-
virkja
Sarajevo, Dusina. Reuter.
HERSVEITIR Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) fundu í
gær meintar þjálfunarbúðir
fyrir hryðjuverkamenn á veg-
um Bosníustjórnar i afskekkt-
um dai í miðhluta Bosníu.
Búðirnar voru í skíðaskála
upp til fjalla vestur af
Sarajevo. Þar fundust vopn og
áætlanir um mannrán.
Fulltrúar stjórnarinnar í
Sarajevo sögðu að um væri
að ræða njósnaskóla.
í áhlaupi NATO á húsið
voru átta Bosníumenn og þrír
íranskir borgarar handteknir.
Bosníu-Serbar imeinuðu eft-
irlitssveitum NATO að kanna
svæði þar sem grunur leikur
á að þeir geymi þungavopn.
Talið er að herstjórinn Ratko
Mladic haldi þar til að mestu.
NATO hótaði í gær að beita
hervaldi til að kanna svæðið
fyndist ekki önnur lausn.
Sljórnar-
andstöðu
vex fylgi
Bonn. Reuter.
ÞÝSKI jafnaðarmannaflokkurinn
og flokkur græningja njóta nú
meiri vinsælda meðal kjósenda en
stjórnarflokkarnir, samkvæmt
skoðanakönnun sem þýska sjón-
varpsstöðin ZDF birti í gærkvöldi.
Jafnaðarmannaflokkurinn nýtur
33% fylgis, græningjar 12% en
Kristilegir demókratar og Kristi-
lega sósíalsambandið, systurflokk-
urinn í Bæjaralandi, njóta fylgis
43%.
Bæði Frjálsir demókratar og
Flokkur lýðræðislegs sósíalimsa,
arftaki austurþýska kommúnista-
flokksins, njóta 4% fylgis hvor
flokkur en til þess að koma manni
á þing þarf 5% atkvæða.
.....♦ ♦ ♦
Þing rofið
á Italíu
Róm. Rcutcr.
OSCAR Luigi Scalfaro forseti ítal-
íu rauf í gær þing og boðaði til
þingkosninga 21. apríl nk., þremur
árum fyrr en lög gera ráð fyrir.
Scalfaro greip til þingrofs þegar
ljóst varð að ítölsku stjórnmála-
flokkarnir kæmu sér aldrei saman
um stjórnlagabreytingar.
Skoðanakönnun, sem birt var í
vikunni, bendir til þess að hvorug
blokkanna á þingi, blokk mið- og
hægriflokka annars vegar og mið-
og vinstriflokka hins vegar, færi
með afgerandi sigur af hólmi í
kosningum. Þriðjungur aðspurðra
hafði þó ekki tekið afstöðu.
STOFNAÐ 1913
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
(t.
i.
m
*ím * * fc * Sá' a,s * 1.«« 88 •nr *•». n - ik** t
W it H'f 041 i »»»•** f n ■, K »
m r ^ ® ^ « f® ^ 1* í*1 ® 1É VkH A PC UL. fL fjg D Wi 'At IH í* M, .... „ * K Bt. fi -
JMWSfcÍ ItÍKÍÍ!0{,
f V*.
• líí * 19
Reuter
Sjöundi
himinn sjón-
varpsáhuga-
mannsins
ÍMYNDA mætti sér að þannig
gæti heimur áhugamanna um
sjónvarp, sem vilja ekki missa
af neinu og verða sér úti um
áskrift að öllum mögulegum
stöðvum, litið út. Maðurinn á
myndinni situr fyrir framan 500
sjónvarpsviðtæki. Myndin hlaut
fyrstu verðlaun í vísinda- og
tækniflokki í árlegri samkeppni
blaðaljósmyndara um ljósmynd
ársins.
Jeltsín Rússlandsforseti hefur kosningabaráttu sína af krafti
Varar þjóðina við nýrri
byltingn kommúnista
Tsjeljabínsk. Reuter.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti heitir því að
bjarga þjóðinni frá nýrri bolsévikabyltingu og
binda enda á stríðið í Tsjetsjníu. Forsetinn býður
sig fram til endurkjörs í júní og segist hafa verið
í nokkrum vafa áður en hann lét slag standa.
„En þingið er eins og það er [kommúnistar og
þjóðernissinnar hafa samanlagt meirihluta],
nokkrir hættulegir forsetaframbjóðendur eru
reiðubúnir að stöðva umbæturnar og þetta olli
því að ég varð að taka þessa ákvörðun," sagði
forsetinn á fundi með stáliðnaðarmönnum í Síb-
eríuborginni Tsjeljabínsk í gær.
Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna sendi frá
sér yfirlýsingu á fimmtudag þar sem sagði að
ekki væri tekin afstaða með eða móti einstökum
frambjóðendum í Rússlandi en lýst var andstöðu
við stefnu kommúnista og frambjóðanda þeirra,
Gennadíjs Zjúganovs. Jafnframt var hvatt til
þess að frjálslyndir umbótasinnar sameinuðust
um einn forsetaframbjóðanda. Alain Juppé, for-
sætisráðherra Frakklands, er í opinberri heim-
sókn í Rússlandi og hefur látið í ljós óbeinan
stuðning við Jeltsín.
Jeltsín minnir
þjóðina á sovétskeiðið
Rússlandsforseti ræddi um Tsjetsjníu og sagði
að vel gæti verið að það hefðu verið mistök að
senda her til héraðsins. „Ég veit ekki hve marg-
ar andvökunætur ég hef átt, þá hef ég verið
að velta því fyrir mér hvort við hefðum átt að
bregðast við með öðrum hætti,“ sagði hann.
Jeltsín sagðist íhuga að draga herinn á brott í
áföngum. Ekki væri hægt að flytja liðið á brott
umsvifalaust, þá myndu uppreisnarmenn ráðast
á þá Tsjetsjena sem ekki styddu Dzhokar
Dúdajev, fyrrverandi forseta héraðsins.
Jeltsín fékk tvisvar hjartaáfall í fyrra en virt-
ist vel á sig kominn í gær og í baráttuhug.
Hann varaði sérstaklega við kommúnistum.
„Þeir leggja til að fólk verði rænt eigum sínum,
tekin verði af því húsin, einkafyrirtæki verði
þjóðnýtt. Þeir vilja endurtaka atburðina frá
1917. Enginn mun hagnast á því. Rússland
myndi ekki lifa af endurtekningu atburðanna
1917.“
Forsetinn sagðist myndu sjá til þess að kaup
yrði greitt á réttum tíma en fjölmargir Rússar
sem starfa hjá opinberum fyrirtækjum og
stofnunum verða oft að bíða vikum og mánuðum
saman eftir launagreiðslum.
Jeltsín minnti viðstadda á erfiðleikana á sov-
étskeiðinu, vöruskortinn og langar biðraðir við
áfengisverslanir. Forsetinn, sem hefur verið
sakaður um drykkjuskap, sagði ýmsa fullyrða
að vodka væri of ódýrt, hækka bæri verðið. „En
ég hef ekki haft hugrekki til þess ennþá“.
Reuter
Vigtin upplýst
AFGREISÐLU STÚLKUR í
matvöruverslun í bænum
Tsjerkassí í Úkraínu lesa af
vigtinni með vasaljósi. Þar í
borg og víðar í Úkraínu hafa
menn orðið fyrir barðinu á raf-
magnsskömmtun vegna viðvar-
andiorkukreppu.
Sljórnarmyndunarviðræður í Tyrklandi
Bjartsýni í röðum
flokks múslima
Ankara. Reuter.
NECMETTIN Erbakan, leiðtogi ísl- Tyrklands eftir kosningarnar 24.
amska Velferðarflokksins í Tyrk- desember en náði þó ekki meirihluta.
landi, kvaðst í gær vongóður um
að geta myndað stjórn með Föður-
landsflokknum og tryggt heittrúuð-
um múslimum meiri völd en nokkru
sinni fyrr í nútímasögu landsins.
Talsmaður Pöðurlandsflokksins,
sem er hægriflokkur, var einnig
fremur bjartsýnn og sagði að stjórn-
armyndunarviðræðurnar væru um
það bil hálfnaðar. Leiðtógar flokk-
anna koma saman í dag, eftir að
hafa ráðfært sig við þingmenn og
forseta landsins í gær.
Óvenju mikil leynd hefur hvílt
yfir viðræðunum og þrátt fyrir bjart-
sýnina í gær áttu leiðtogarnir enn
eftir að jafna ýmis ágreiningsmál
áður en langþráður draumur ísl-
amskra heittrúarmanna um að kom-
ast til valda gæti ræst. Velferð-
arflokkurinn er nú stærsti flokkur
Skosk
byrjun
Fíladelfíu. Reuter.
ÚRSLIT lágu ekki fyrir í fimmtu
einvígisskák Garríj Kasparovs
og Djúpblár, öflugustu skák-
tölvu heims, í gærkvöldi.
Leiknir höfðu verið 12 leikir
þegar blaðið fór í prentun. Upp
kom skosk byijun. Tölvan hafði
hvítt en Kasparov svart. Fyrir
skákina var staðan jöfn, tveir
vinningar gegn tveimur. Sjötta
og síðasta skákin verður tefld í
dag.