Morgunblaðið - 18.02.1996, Side 1
88 SÍÐUR B/C/D
41.TBL.84.ÁRG. SUNNUDAGUR18. FEBRÚAR1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Ásdís
MÚKKINN FAGNAR LOÐNUNNI
Deiluaðilar í Bosníu
krafðir um svör í Róm
Róm. Reuter.
Unaðsferð
til heljar
HÓPUR 115 breskra ferðamanna hefur
höfðað mál gegn ferðaskrifstofunni First
Choice vegna slæms aðbúnaðar á hóteli á
karabísku eyjunni San Andreas við strönd
Kóiumbíu. I ferðabæklingum var eyjunni
lýst sem „stað sem tíminn hefur gleymt“.
Leiðtogi hópsins, Brenda Wall, lýsti ferð-
inni. „Þegar við komum á staðinn fleygðu
ferðamenn á heimleið klósettrúllum til okk-
ar og hrópuðu: „Þið munuð þurfa á þeim
að halda - velkomin til heljar!“ Wall sagði
að bak við hótelið hefði verið fen og þang-
að verið beint skolplögnum en skammt frá
hefði maturinn verið búinn til. Hann hefði
verið óætur, oft hálfsoðinn og flugur hefðu
alls staðar verið á kreiki. Margir ferðalang-
anna hefðu orðið fárveikir.
Vill að fólk
fari sér hægt
LETINGJAR sem eyða kvöldunum liggj-
andi uppi í sófa geta nú svarað ásökunum
heilsupostulanna fullum hálsi; hreyfingar-
leysið bætir heilsufarið. Könnun lækna við
Sheffield-háskóla í Bretlandi bendir til
þess að líkamsþjálfun auki ekki hreysti
fólks undir 45 ára aldri svo að mælanlegt
sé. Iþróttaslys hjá ungu fólki, sem æfí af
miklu kappi, geti kostað heilbrigðisþjón-
ustuna fimm sinnum meira fé en það sem
sparast vegna bættrar heilsu að öðru leyti.
Jon Nicholl, prófessor í Sheffield, segir að
reglubundin líkamsþjálfun sé aðeins skyn-
samleg fyrir þá sem komnir séu á miðjan
aidur; roskið fólk gæti sín betur en ung-
mennin og slasist síður.
Kasparov
sigraði
Philadelphia. Reuter.
HEIMSMEISTARINN í skák, Garrí Kasp-
arov, sigraði í fimmtu og næstsíðustu skák-
inni í einvígi sínu við IBM-tölvuna Djúpblá
aðfaranótt laugardags í borginni Philadelp-
hia í Bandaríkjunum. Tefla átti síðustu
skákina í gær, laugardag, og hafði Kasp-
arov hvítt.
Kasparov hafði einn vinning yfir fyrir
síðustu skákina og nægði jafntefli til að
hreppa allt vinningsféð, rúmlega 26 millj-
ónir króna, er samtök tölvuframleiðenda
lögðu fram. Ef einvígið endaði með jafn-
tefli yrði fénu skipt jafnt.
Að loknum 30 leikjum í 5. skákinni var
Djúpblá komin í vörn og lék nú marga leiki
í röð er virtust marklausir. Heimsmeistar-
inn lenti í nokkrum vanda eftir uppskipti
en tölvan gafst loks upp eftir 47 leiki.
Skákin stóð í fjórar stundir og 15 mínútur.
FORSETAR Bosníu, Króatíu og Serbíu, þeir
Alija Izetbegovic, Franjo Tudjman og Slobod-
an Milosevic, héldu til Rómar í gær til að
ræða framgang Dayton-friðarsamkomulags-
ins við fulltrúa Vesturveldanna og Rússa.
Richard Holbrooke, aðstoðarutanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði að til umræðu
yrðu mörg mál sem stefndu samningunum
í hættu. Ónefndur stjórnarerindreki sagði
að forsetarnir mættu búast við skamma-
dembu vegna samningsbrota.
„Það er margt sem veldur því að við kom-
um saman hér. Við munum ítreka þær skuld-
bindingar sem samið var um í Dayton," sagði
Holbrooke í gær. „Við munum fara vandlega
yfir málin, ekki aðeins eitt eða tvö atriði."
Á fundinum var einnig Carl Bildt, sem stjórn-
ar uppbyggingarstarfinu í Bosníu. Fundar-
stjóri var Susanna Agnelli, utanríkisráðherra
Ítalíu, sem er í forsvari fyrir Evrópusam-
bandið þetta misserið.
Samskipti Atlantshafsbandalagsins,
NATO, við her Bosníu-Serba hafa að undan-
förnu verið í uppnámi vegna þess að múslim-
ar handtóku nokkra Serba sem grunaðir
voru um stríðsglæpi. Voru tveir mannanna
sendir til Haag þar sem stríðsglæpadómstóll
Sameinuðu þjóðanna mun fjalla um mál
YFIRVOLD í Montgomery-sýslu í Maryland
sögðu í gær að 12 manns, að minnsta kosti,
hefðu farist og 23 slasast á föstudag er
Amtrak-járnbrautarlest ók á fullri ferð fram-
an á kyrrstæða farþegalest er fer um út-
hverfi Washington-borgar.
Nokkrum sekúndum fyrir áreksturinn
hlupu lestarverðir um síðarnefndu lestina og
vöruðu fólkið við, sögðu því að fleygja sér á
gólfið. Mikil eldur gaus upp í vögnunum, hríð
geisaði á svæðinu og olli erfiðleikum við hjálp-
arstörf.
þeirra. Bosníu-Serbar telja að með þessum
aðgerðum hafi múslimar brotið ákvæði Day-
ton-samningsins um ferðafrelsi. Allir þrir
deiluaðilar halda enn stríðsföngum í trássi
við ákvæði um fangaskipti.
Hinir látnu voru allir í úthverfalestinni, að
sögn slökkviliðsmanna á staðnum. Lestin
hafði numið staðar vegna stöðvunarmerkis.
Óljóst er hvað olli slysinu en Amtrak-lestin,
sem flutti 175 farþega frá Washington til
Chicago, var langt á eftir áætlun er hún ók
á hina. Mortimer Downey aðstoðarsamgöngu-
ráðherra sagði að rannsakað yrði ástand spor-
anna, ýmiss tæknibúnaðar og merkjakerfisins
en einnig hvort starfsmenn hefðu verið alls-
gáðir.
Tólf fórust í lestarslysi
Silver Spring í Maryland. Reuter.
RAUNARÓDUR *®
RÍKISÚTVARPSINS
VIÐSIQPn JQVINNULÍF
Á SUNNUDEGI
ÞJÓNUSTAN NÆR
VIÐSKIPTA VINUM
LOÐNIR
(AjM' ^
LOFANA
B