Morgunblaðið - 18.02.1996, Page 14
14 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
IPPHAF Geirfinnsmálsins
má rekja til þriðjudags-
ins 19. nóvember 1974.
Það kvöld um klukkan
22.30 fór Geirfinnur Einarsson 32ja
ára, kvæntur tveggja barna faðir,
frá heimili sínu, Brekkubraut 15 í
Keflavík. Ekkert hefur spurst til
hans síðan. Samkvæmt lýsingu lög-
reglu var Geirfinnur 175 sm á
hæð, skolhærður með liðað nokkuð
sítt hár. Hann var klæddur blárri
mittisúlpu með skinnfóðraðri hettu,
grænum flauelsbuxum, grænkö-
flóttri skyrtu og í brúnum skóm.
Dularfullt stefnumót
Þetta örlagaríka kvöld kom
vinnufélagi Geirfinns heim til hans
rétt fyrir klukkan níu og ætlaði að
fá hann með sér í bíó. Geirfinnur
kvaðst ekki geta það, hann ætti
stefnumót við mann við Hafnarbúð-
ina um klukkan 22. Ekki sagðist
Geirfinnur vita hver þetta væri en
hann ætti að koma einn og fótgang-
andi. Að sögn vinnufélagans hafði
greinilega verið hringt í Geirfinn á
bilinu kl. 18-21 og hann boðaður
á þetta stefnumót. Geirfinni fannst
málið greinilega dularfullt og var í
vafa hvort hann ætti að fara. Spurði
hann vinnufélaga sinn hvort hann
vildi koma með sér. Það varð úr
að vinnufélaginn ók Geirfinni á
stefnumótið og fór hann úr bílnum
á mótum Vatnsnesvegar og
Bryggjuvegar. Vinnufélaginn
kvaðst ekki hafa merkt neitt óeðli-
legt í fari Geirfinns þennan dag,
en þeir unnu saman við vinnu- <mþ
vélar.
Það næsta sem vitað er um
ferðir Geirfínns er að hann kom
inn í Hafnarbúðina um kl. 22.
Þar dvaldi hann skamma stund
en gekk síðan heim á leið og kom
þangað um klukkan 22.15.
Skömmu síðar var hringt heim
til Geirfinns og svaraði hann
sjálfur í símann. Geirfinnur
Ekkert sakamál íslandssögunnar hefur veríð
jafn umtalað og Geirfínnsmálið. Það spann-
aði seinni hluta áttunda áratugarins og jafn-
vel stórfréttir eins og landhelgisstríð við
Breta féllu í skuggann af þessu máli. Kast-
ljósinu var á ný beint að málinu nú í vik-
unni, þegar Guðjón Skarphéðinsson dró til
baka nær tveggja áratuga gamlar játningar
sínar. Sigtryggnr Sigtryggsson fylgdist
með Geirfínnsmálinu fyrir Morgunblaðið á
sínum tíma. Hann rifjar það hér upp.
heyrðist svara í símann „ég er bú-
inn að koma“ og litlu seinna „ég
kem“. Síðan yfirgaf Geirfínnur
heimili sitt á rauðri Cortinu-bifreið
sem hann átti og hefur ekki sést
síðan. Bifreiðin fannst daginn eftir
þar sem hún stóð við Víkurbraut,
skammt frá Hafnarbúðinni.
Daginn eftir hvarfíð var lögregl-
unni í Keflavík gert viðvart. Var
iW. rannsókn strax
. hafin og var hún
f undir stjórn
Hauks Guðmundssonar rannsókn-
arlögreglumanns og Valtýs Sig-
urðssonar aðalafulltrúa sýslu-
mannsins í Keflavík. Við yfirheyrsl-
ur yfír eiginkonu og vinnufélögum
Geirfínns kom í ljós að ekki var
allt með felldu varðandi hvarf hans
og málið var enn dularfyllra fyrir
þá sök að Geirfinnur var sómakær
fjölskyldufaðir sem ekkert misjafnt
var vitað um. Hófst nú rannsókn
sem stóð mánuðum saman og vakti
þjóðarathygli. Er þetta vafalaust
umfangsmesta rann-
sókn sem fram hefur
farið á mannshvarfi
hérlendis. Var henni
stjómað frá Keflavík
en starfsmenn rann-
sóknarlögreglunnar í
Reykjavík aðstoðuðu
eftir föngum.
Mikil leit aó
Leirlinni
Við yfírheyrslur yfír
starfsfólki Hafnarbúð-
arinnar kom í ljós að
maður nokkur hafði
komið inn í búðina fyrir
kl. 22.30 kvöldið sem
Geirfínnur hvarf. Hann
beið þar í smástund og fékk síðan
lánaðan síma. Eftir símtalið greiddi
hann fyrir það og fór þvínæst úr
verzluninni. Lögreglan lagði ofur-
kapp á að hafa upp á þessum manni.
Samkvæmt lýsingu stúlknanna í
Hafnarbúðinni var maðurinn rúm-
lega meðalmaður á hæð, ljós yfírlit-
um með skollitað hár. Hann var
klæddur síðum leðuijakka, ljós-
brúnum. Leirmynd var mótuð af
andliti mannsins og birt í blöðum
og sjónvarpi, svonefndur Leirfinn-
ur. Og viðbrögðin létu ekki á sér
standa. Lögréglu um allt land bár-
ust mörg hundruð ábendingar og
nöfn 80 manna voru skráð niður
og könnuð. Um fátt var meira rætt
Geirfinnur
Einarsson
GUDMUHDAR- OG GEIRFINNSMAL
27. janúar 1974: Guð-
mundur Einarsson hverfur
eftir dansleik í Hafnarfirði.
19. nóvember 1974: Geir-
finnur Einarsson hverfur í
Keflavík eftir að hafa farið á
dularfullt stefnumót við Hafn-
arbúðina. Fyrsta rannsókn
árangurslaus og henni hætt
vorið 1975.
Desember 1975:
Fjórir menn
handteknir vegna hvarfs Guð-
mundar Einarssonar. Þrír
þeirra játa að vera valdir að
dauða Guðmundar.
Janúar 1976: Fjórir menn
handteknir vegna hvarfs
Geirfínns Einarssonar. Þeim
sleppt 9. maí. Þrír sakborn-
inga í Geirfinnsmálinu játa
síðar að hafa borið fjórmenn-
ingana röngum sökum.
Júlí 1976: Þýzki sakamála-
sérfræðingurinn Karl Schiitz
tekur við stjóm rannsóknar-
innar. 12 manna rannsóknar-
hópur settur á laggimar til
að rannsaka málið.
2. febrúar 1977: Karl
Schiitz tilkynnir á blaða-
mannafundi að Guðmund-
ar- og Geirfínnsmál séu
upplýst.
Október 1977: Mál-
flutningur í Guðmund-
ar- og Geirfinnsmál-
; um fer fram í saka-
dómi Reykjavíkur.
Dómur kveðinn upp
19. desember 1977.
Janúar 1980:
Málflutningur í
Guðmundar- og
Geirfinnsmálum
fer fram í
Hæstarétti.
; Dómur kveðinn
upp 22. febr-
úar 1980.
manna á meðal þessa
haustdaga 1974 en
hið dularfulla manns-
hvarf í Keflavík.
Landsmenn fylgdust
með hveiju nýju skrefi
í málinu og ekki var
laust við að óhug setti
að þjóðinni við þessa
atburði.
Víða var leitað upp-
lýsinga og m.a. voru
lögreglumenn sendir
til Sigöldu, en þar
stóðu yfir virkjunar-
framkvæmdir, sem
Geirfinnur vann við
um tíma og austur á
Hérað, þar sem hann
dvaldi í nokkur sumur. Miðvikudag-
inn 4. desember auglýsti lögreglan
eftir tveimur mönnum. Annar
þeirra hafði sést á tali við Geirfinn
í veitingahúsinu Klúbbnum við
Borgartún sunnudagskvöldið áður
en hann hvarf en hinn maðurinn
hafði komið á smurstöð á Akureyri
sama dag og leirstyttan var opin-
beruð. Hann ók Fiatbíl með G-núm-
eri og þótti maðurinn sláandi líkur
leirstyttunni og klæðnaðurinn sá
sami og mannsins sem kom í Hafn-
arbúðina. Laugardaginn 7. desem-
ber var enn auglýst eftir tveimur
mönnum vegna málsins. í fyrsta
lagi eftir manni sem farið hafði af
landi brott daginn eftir hvarf Geirf-
inns undir fölsku nafni og í öðru
lagi eftir manni sem komið hafði í
Hafnarbúðina kl. 18.30 daginn sem
Geirfinnur hvarf og fékk að hringja.
Ók hann ljósum Merecedes Benz
sendibíl. Þessum manni þótti svipa
mjög til mannsins sem kom í Hafn-
arbúðina síðar um kvöldið.
Sjáandinn sá tré og vatn
Er skemmst frá því að segja að
enginn mannanna sem auglýst var
eftir gaf sig fram né heldur kom
nokkuð það fram við rannsóknina
sem gat skýrt hvarf Geirfínns.
Stjórnendur rannsóknarinnar leit-
uðu nýrra leiða við vinnu sína, m.a.
var leitað til heimsþekkts hollensks
sjáanda, Gerard Croiset. Hann var
þekktur fyrir að geta séð atburði,
þótt hann væri víðsijarri. Croiset
þóttist sjá Geirfinn í tijám og vatni
og töldu menn líklegast að hann
sæi fyrir sér möstur skipa. Leituðu
kafarar í höfnum á Reykjanesi en
árangurslaust. Smá saman dró úr
krafti rannsóknarinnar og á vor-
dögum 1975 var henni hætt.
Hljótt var um Geirfinnsmálið
næstu mánuðina en þriðjudaginn
27. janúar 1976 var sprengju varp-
að í íslenzkt þjóðfélag þegar
Morgunblaðið birti 5 dálka baksíðu-
frétt með fyrirsögninni: „3 menn í
gæzluvarðhaldi vegna hvarfs Geirf-
inns“. Og undirfyrirsögnin var:
„Rannsókn á morði Guðmundar
Einarssonar leiddi til handtökunnar
- Játning á morði Guðmundar ligg-
ur fyrir“. Þar með var í fyrsta skipti
komin tenging milli hvarfs þessara
tveggja óskyldu manna, Guðmund-
ar Einarssonar og Geirfínns Einars-
sonar.
Saklausir bendiadir vió málió
Ungmenni, sem setið höfðu í
gæzluvarðhaldi síðan fyrir jól 1975
vegna hvarfs Guðmundar Einars-
sonar, bentu á mennina þrjá og