Morgunblaðið - 18.02.1996, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1996 31
Þá komst ég að því að þessi hógláti
og prúði starfsmaður var góður
drengur og ýmsum kostum búinn
sem sjaldgæft er. Hann gat sett sig
í spor annarra í ýmsum orðræðum
og álitamálum sem upp komu á
vinnustaðnum. Hann gerði aldrei lít-
ið úr skoðunum annarra þótt hann
væri þeim ekki sammála. Hann var
vinsæll og virtur af öllum sem með
honum störfuðu.
Mér fannst Bjarni alltof hógvær
maður, stundum svo lítillátur að mér
þótti alveg nóg urn þótt ég væri al-
veg viss um að hann hefði metnað
góðs og samviskusams starfsmanns,
því að ég varð ekki var við annað
en allt það sem hann vann í fyrirtæk-
inu væri afskaplega vel gert. Utan
fyrirtækisins þekktumst við lítið.
Ég þykist þess fullviss að Bjami
hefði kunnað mér enga þökk fyrir
að hlaða á hann látinn lofi. Og það
ætla ég mér ekki að gera. En ég
get ekki stillt mig um að kveðja
þennan nána samstarfsmann um
margra ára bil hinstu kveðju með
þakklæti fyrir viðkynninguna á lífs-
ins leið. Hún var mér mikils virði.
Góu, Valgerði og afastúlkunni
litlu er vottuð dýpsta samúð, sem
og öðrum vandamönnum, því þeir
hafa mikið misst.
Blessuð sé minning hans.
Eiríkur Eiríksson.
Okkur langar til að kveðja góðan
dreng og einstakan samstarfsmann
með örfáum orðum.
Þrátt fyrir vitneskjuna um erfið
veikindi Bjarna síðustu vikur kom
fregnin um andlát hans eins og reið-
arslag. í andliti fyrrum samstarfs-
fólks mátti lesa djúpa sorg.
011 söknum við sárlega góðs
drengs og frábærs samstarfsmanns.
Minningin um hann er hlý og notaleg
og þar ber engan skugga á. Senni-
lega er það vegna þess hve einstak-
lega gott var að vinna með honum
og leita til hans með hin ýmsu mál.
Það sem einkenndi viðmót Bjarna
var jákvæðni. Hann tók öllu vel,
hvort sem viðfangsefnið var erfítt
eða auðvelt, skemmtilegt eða leiðin-
legt.
Bjarni var prentsmiðjustjóri POB
til flölda ára. Það var erfitt og krefj-
andi starf og mikill fjöldi viðskipta-
manna á eftir að sakna Bjarna vegna
hjálpfýsi hans og áreiðanleika. Þótt
menn kæmu til hans með lítt mótað-
ar hugmyndir hafði hann einstakt lag
á því að laða fram kjarna' málsins
og ráðleggja síðan sjálfur af smekk-
vísi og fagmennsku þannig að út-
koman yrði sú sem að var stefnt.
Bjarni reyndist okkur nýgræðing-
unum í prentiðnaðinum frábær kenn-
ari og hjálparhella þegar við komum
til samstarfs við hann í POB á sínum
tíma. Hann miðlaði okkur ótæpilega
af reynslu sinni og þekkingu og
umgekkst okkur sem jafningja. Fyrir
það erum við honum afar þakklátir.
I Bjarni fylgdist vel með tækninýj-
ungum og þróun í prentiðnaði, m.a.
með lestri erlendra fagtímarita og
samtölum við kollega. Hann var fag-
maður fram í fingurgóma og naut
sem slíkur virðingar starfsbræðra
sinna um land allt. Þetta kom ber-
lega í ljós á ráðstefnu um prentiðnað-
inn sem haldin var í Reykjavík fyrir
nokkrum árum. Þótt við samstarfs-
’ menn Bjarna vissum að hann væri
i vel kynntur og virtur kom það okkur
I á óvart að bókstaflega allir þekktu
' hann og heilsuðu honum með virkt-
um.
Bjarni var fróður maður og víðles-
inn og víðsýnn eftir því. Hann var
líka mikill mannvinur og náttúruunn-
andi í bestu merkingu þeirra orða.
Flestar frístundir notaði hann með
Góu sinni austur í Sellandi. Þar áttu
þau hjónin sumarhús sem segja má
að hafí verið þeirra annað heimili.
) Til baka kom Bjarni ávallt hress og
I endurnærður, tilbúinn til að takast á
' við verkefnin sem biðu.
Að leiðarlokum kveðjum við mann-
kostamanninn Bjama Sigurðsson.
Veröldin er snauðari við fráfall hans.
Elsku Góa, Valgerðúr og Sunna.
Við vottum ykkur okkar dýpstu sam-
úð og biðjum almættið að styrkja
ykkur og styðja í sorginni.
I Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
i (V. Briera.)
Daníel, Eyþór og Jóhann.
JÓN KRISTJÁN
GUÐMUNDSSON
+ Jón Kristján
Guðmundsson
fæddist 31. október
1906 í Þórunnarseli
í Kelduhverfi í
Norður-Þingeyjar-
sýslu. Hann andað-
ist á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri 12. febrúar
sl. Foreldrar hans
voru Guðmundur
Björn Arnason,
bóndi og hrepp-
stjóri í Þórunnar-
seli og síðar póstur
á Akureyri, f. 15.
október 1873, d. 22.
mars 1968, og kona hans Svava
Daníelsdóttir, húsfreyja f. 13.
júní 1875, d. 29. apríl 1947.
Systkin Jóns eru Arni læknir,
f. 3. desember 1899, d. 10. októ-
ber 1971, og Sigurveig, f. 3.
maí 1909. Eiginkona Jóns var
Sigurlína Guðlaug Gísladóttir,
f. 17. ágúst 1906 á Tjörnum í
Sléttuhlíð í Skagafirði, d. 20.
JÓN Guðmundsson forstjóri á Ak-
ureyri verður til moldar borinn á
morgun og var nær níræður þegar
hann lést. Hann var Keldhverfíngur
að ætt og uppruna og var faðir
hans bróðir Kristjáns Árnasonar
kaupmanns í Versluninni Eyjafjörð-
ur. Jón braust ungur til mennta og
var í hópi sexmenninganna, sem
fyrstir brautskráðust stúdentar frá
Akureyri. Hinir voru Bárður ísleifs-
son arkitekt, Brynjólfur Sveinsson
menntaskólakennari, Eyjólfur Ey-
jólfsson, síðast fulltrúi Loftleiða í
Ósló, Jóhann Skaptason sýslumaður
og Þórarinn Björnsson skólameist-
ari. Jón var mikill námsmaður og
náði næstbestum árangri á stúd-
entsprófi á eftir sveitunga sínum
Þórarni skólameistara. Hann var
jafnvígur á allar námsgreinar, mik-
ill tungumálamaður, frönskumaður
góður og latínuhestur. Það átti þó
ekki fyrir honum að liggja að fara
í langskólanám, en var eitt ár í
verslunarskóla í Danmörku.
Jón gerði verslunar- og skrif-
stofustörf að ævistarfi, einkum á
sviði tryggingamála. Það segir sína
sögu, að hann var forstjóri Vélbáta-
tryggingar Eyjafjarðar í nær 50 ár
frá 1941 til 1988 og annar umboðs-
manna Sjóvátryggingafélags ís-
lands í aldarþriðjung. Hann naut
trausts í. starfi, strangheiðarlegur
og talnaglöggur svo að af bar. Þá
hafði hann umboð fyrir Happdrætti
Háskóla íslands frá 1958 til 1992
og ráku þau það af myndarbrag,
Sigurveig systir hans og hann, sam-
hent og samrýnd.
Jón átti gott bókasafn, sem hann
maí 1990. Jón og
Sigurlína áttu dótt-
ur, Svövu Ástu, f.
8. apríl 1949. Eigin-
maður hennar er
Guðjón B. Stein-
þórsson, f. 6. sept-
ember 1947. Þau
eiga tvö börn. Jón
var í fyrsta stúd-
entahópi MA 1927.
Einnig stundaði
Jón nám í Dan-
mörku í einn vetur.
Hann stundaði ýmis
verslunar- og skrif-
stofustörf og var
umboðsmaður Olíu-
félagsins Skeljungs, Sjóvá-
tryggingaf élags Islands og
Ilappdrættis Háskólans. Einnig
var hann forsljóri Vélbáta-
tryggingar Eyjafjarðar.
Útför Jóns fer fram frá Akur-
eyrarkirkju mánudaginn 19.
febrúar og hefst athöfnin kl.
13.30.
lét sér annt um, sílesandi og marg-
fróður, vel að sér í sögu og íslensk-
um bókmenntum. Hann var mikill
íslenskumaður og ég ætla að hann
hafi verið einhver mesti Sturlungu-
maður um sína daga og hafði gam-
an af því að sækja þangað tilvitnan-
ir og svör. Hann var áhugasamur
um íþróttir og lagði rækt við golf.
Um áratugi léku þeir saman vinim-
ir, Jón G. Sólnes og hann, svo að
hægt var að ganga að þeim vísum
uppi á golfvelli að loknum vinnu-
degi. Vitaskuld kappsfullir að fara
ekki halloka, en alltaf glaðir og
reifir. Þeir urðu samtímis heiðursfé-
lagar Golfklúbbs Akureyrar. Segja
má, að Jón hafi leikið golf til hinstu
stundar. Þannig var hann efra sl.
sumar með kylfurnar sínar og kúl-
urnar og naut sólskinsstundanna.
Jón var hamingjumaður í einka-
lífi. Sigurlína kona hans bjó honum
fallegt og gott heimili og voru þau
samhent í lífí og starfi. Það var
honum mikið áfall, þegar hún lést
fyrir sex árum, en hann naut ástrík-
is systur sinnar og dóttur og fjöl-
skyldu hennar.
Jón var eftirminnilegur maður,
hafði fastar skoðanir og vel grund-
aðar. Hann var drenglundaður og
vinur vina sinna, skemmtilegur í
orðræðu og gat verið spaugsamur.
Ég á engar minningar um hann
nema góðar.
„Er falls ván at fornu tré.“
Jón hélt starfsþreki sínu fram á
níræðisaldur og kalla ég það að
vera gæfumaður.
Guð blessi minningu hans.
Halldór Blöndal.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
KRISTBERGUR GUÐJÓNSSOIM
flugumsjónarmaður,
Móavegi 9,
Njarðvík,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðar-
kirkju þriðjudaginn 20. febrúar kl. 13.30.
Valgerður Ármannsdóttir,
Kristberg Kristbergsson, Guðrún Marteinsdóttir,
Guðjón Olafur Kristbergsson, Berglind Friðþjófsdóttir,
Ásta Kristbergsdóttir
og barnabörn.
Skrifstofa okkar í Ármúla verður
lokuð eftir hádegi mánudaginn 19. febrúar
vegna jarðarfarar Óskars Ingimarssonar
| Skjaldborg
t
Útför ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, stjúpföður, tengdaföður og afa,
ÓSKARS INGIMARSSONAR
þýðanda,
Asparfelli 12,
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn
19. febrúar kl. 13.30.
Áslaug Jónsdóttir,
Þórunn H. Óskarsdóttir, Michael Pantano,
Hrafnkell S. Óskarsson,
Margrét Lísa Óskarsdóttir, Árni J. Baldursson,
Ingimar Óskarsson Jonason,
Sigurjón Þ. Ásgeirsson, Sólrún H. Jónsdóttir,
Hlynur V. Ásgeirsson, Patricia M. Bono
og barnabörn.
t
Ástkær faðir minn, stjúpfaðir, tengda-
faðir og afi,
GUNNAR HALLDÓR JÓSEFSSON
fyrrv. bóndi,
Ólafsdal,
Bergþórugötu 15A,
Reykjavík,
sem lést 10. febrúar, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
21. febrúar kl. 15.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast
hans, er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna.
Ólafur J. Gunnarsson, Ingibjörg R. Guðjónsdóttir,
Ásdís Þórarinsdóttir,
Gunnar Jóhann Svavarsson,
Sóley Kr. Ólafsdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi, sonur og bróðir,
BJARNI SVEINBJARNARSON
framkvæmdastjóri,
Dalsbyggð 1,
Garðabæ,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 20. febrúar kl. 13.30.
María Tómasdóttir,
Tómas Bjarnason, Guðný Björk Eydal,
Bjarni Gautur Tómasson,
Sigurður Jökull Tómasson,
Arnar Orri Bjarnason,
Unnar Snær Bjarnason,
Sveinbjörn Jónsson, Elínborg Ólafsdóttir,
Haukur Sveinbjarnarson,
Sigriður Sveinbjarnardóttir,
Erna Sveinbjarnardóttir.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu, dóttur,
systur og mágkonu,
ÖNNU ERNU BJARNADÓTTUR,
Hraunbæ 25,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir flytjum við starfsfólki
á deild A-7 Borgarspítalanum.
Magnús Karlsson,
Kristín B. Magnúsdóttir, Páll G. Arnar,
Þröstur Magnússon,
Bjarni Bjarnason,
Jónína Bjarnadóttir,
Helga Bjarnadóttir, Hjalti Jóhannsson,
Einar Bjarnason, Ester Ólafsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elsku-
legrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
INGIBJARGAR OLGU
HJALTADÓTTUR,
Bröndukvísl 22,
Reykjavík.
Héðinn Emilsson,
Margrét Héðinsdóttir, Björn Guðmundsson,
María Solveig Héðinsdóttir, Þórarinn Benedikz,
Emil Björn Héðinsson, Margrét Björg Guðnadóttir,
Magnús Héðinsson, Margrét Þórarinsdóttir,
Davíð Héðinsson, Kristín Benný Grétarsdóttir
og barnabörn.