Morgunblaðið - 09.03.1996, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 9. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLMIÐLUN
Newsweek og auðugur
Rússi gefa út tímarit
Moskvu. Reuter.
New York Times á vefnum
BANDARÍSKA vikuritið Newsweek
og rússneska fyrirtækjasamsteypan
Most hafa skýrt frá samvinnu um
útgáfu á tímariti, sem vonað er að
nái yfirburðum á rússneskum blaða-
markaði.
Richard Smith, stjómarformaður
Newswek-fyrirtækisins, sagði á
blaðamannafundi að það hefði alla
burði til að tryggja nýja tímaritinu
bjarta framtíð.
Sergei Parkhomenko, aðalritstjóri
nýja ritsins sem nefnist Itogi, tók í
sama streng og kvaðst vilja gefa út
„tímarit á heimsmælikvarða."
Parkhomenko sagði að tímaritið
hefði tryggt sér einkarétt á birtingu
greina úr Newsweek og að þær yrðu
um 15% efnisins í ritinu, sem yrði
80 blaðsíður.
„En þetta er rússneskt tímarit,"
sagði hann, „skrifað af rússneskum
blaðamönnum fyrir rússneska les-
endur.“
Markaður fyrir vikublöð er
ótryggur í Rússlandi. Útgáfu svipaðs
rits — Ponedelnik — var hætt vegna
fjárskorts fýrr í þessum mánuði þeg-
ar aðeins þrjú tölublöð höfðu komið
út.
Stofnendur Itogi eru þó bjartsýn-
ir. Blaðið verður prentað í Finnlandi
og Newsweek mun afla auglýsenda
í Bandaríkjunum.
Fyrsta tölublað kemur út í næsta
mánuði og ritið verður prentað í
50.000 eintökum, en stefnt verður
að því að upplagið verði 100.000
eintök fyrir árslok.
Efnið verður aðallega pólitískt og
haft verður samstarf við aðra fjöl-
miðla, sem Most á hlut í, þar á
meðal NTV-sjónvarpið, fréttablaðið
Sevodnja og Ekho Moskvíj útvarpið.
Tortryggni í Kreml
Að sögn Parkhomenkos verður
tímaritið óhlutdrægt, en talið er að
valdamenn í Kreml verði varkárir í
afstöðu sinni til þess fram að forseta-
kosningunum 16. júní.
Herskár yfirmaður Borísar Jelts-
íns forseta, Alexander Korzjakov
hershöfðingi, hefur opinberlega
gagnrýnt Vladímír Gusinskíj, stjórn-
arformann Most, og menn Korzj-
akovs réðust eitt sinn inn í byggingu
fýrirtækisins.
Rússneskir embættismenn hafa
einnig látið í ljós óánægju með frét-
taflutning NTV af átökunum í
Tsjetsjeníu.
NEW YORK Times hóf fyrir
nokkur daglega útgáfu á verald-
arvefnum, þar sem lesendunum
er boðið upp á aðgang að mestum
hluta efnis daglega blaðsins um
leið og það er til orðið auk rað-
auglýsinga og nokkurra frétta
um upplýsingaiðnaðinn sem ekki
birtist í prentuðu útgáfunni. Art-
hur Sulzberger Jr. útgefandi
NYT hefur sagt að litið sé hlut-
verk útgáfunnar á vefnum á svip-
aðan hátt og í hefðbundnu útgáf-
unni — að vera íhugul og óhlut-
dræg efnissía og veita viðskipta-
vinunum upplýsingar sem þeir
þarfnist og viti að þeir geti treyst.
Rafrænu útgáfuna af NYT er að
finna á http://www.nytimes.com.
Notendur þurfa að skrá sig hjá
útgáfunni og fá ókeypis reynsluá-
skrift til að byrja með en síðan
þarf að greiða mánaðarlega
áskrift.
Fox býður forsetaefnum sjónvarpstuna
Washington. Reuter.
RUPERT Murdoch, hinn kunni
fjölmiðlajöfur, hefur sagt að Fox
sjónvarpsnetið muni bjóða helztu
forsetaframbjóðendunum í Banda-
ríkjunum í haust að koma fram
ókeypis á bezta útsendingartíma á
lokadögum kosningabaráttunnar.
„Heiðarlegt tækifæri"
Murdoch hvatti önnur sjónvarp-
skerfi að gera slíkt hið sama og
deildi á svokallaðar árásarauglýsing-
ar frambjóðenda, sem standa í hálfa
mínútu og ganga út á að níða mót-
heijana. Hann gagnrýndi einnig að
framjóðendur yrðu að veija miklum
tíma til að safna milljónum dollara
í kosningasjóði til að geta boðið sig
fram.
Samkvæmt boði Fox fá forseta-
frambjóðendur demókrata og repú-
blikana hálftíma hvor til að kynna
skoðanir sínar á bezta sjónvarps-
tíma. „Engin ritskoðun af okkar
hálfu, ekkert viðtal einhvers alviturs
fréttamanns,“ sagði Murdoch í ræðu
í National Press Club. „Frambjóð-
endur fá aðeins heiðarlegt tækifæri
að ávarpa bandarísku þjóðina."
Fox hyggst einnig bjóða forseta-
efnunum að semja einnar mínútu
langar yfirlýsingar um stefnu sína
í 10 mikilvægum máium og að þær
verði fluttar í stöðvum Fox á bezta
sjónvarpstíma á síðustu þremur til
§órum vikunum fyrir kosningarnar.
Murdoch lýsti sig líka reiðubúinn
að leyfa að ávörpum fordetaefnanna
yrði sjónvarpað ókeypis á öðrum tím-
um, ef önnur sjónvarpsnetkerfi sam-
þykktu einnig að bjóða slíka sjón-
varpstíma. En hann kvaðst ekki trú-
aður á að samkomulag næðist um
slíkt.
Jákvæðar undirtektar
Sérfræðingar minnast þess ekki
að slíkt tilboð hafi verið sett fram
áður. Flokksstarfsmenn kváðust
opnir fyrir hugmyndinni og baráttu-
menn umbóta á tilhögun kosninga í
Bandaríkjunum voru himinlifandi.
Einn þeirra var Paul Taylor, fyrr-
verandi fréttamaður Washington
Post, sem hefur nýlega rætt við full-
trúa sjónvarpskerfa og spáir því að
það muni taka tillögur Murdochs til
alvarlegrar athugunar.
Vitað er að ABC, CBS og NBC
hafa að minnsta kosti hiugleitt
ókeypis sjónvarpstíma handa for-
setaefnum. Embættismenn repúblik-
ana og demókrata hafa tekið hug-
myndinni með gát.
Granada eykur hlut
sinn í öðru sjónvarpi
London. Reuter.
GRANADA keypti og yfírtók í síð-
asta mánuði hlutabréf í öðru sjón-
varpsfýrirtæki ITV á Norður-Eng-
landi, Yorkshire-Tyne Tees.
Granada, sem auk þess rekur
London Weekend Television, mun
hafa boðið 10 pund á hlutabréf í
Yorkshire. Granada, sem komst
yfír hótelfyrirtækið Forte í síðasta
mánuði fyrir 3.9 milljarða punda,
átti fyrir um 14% í Yorkshire og
með því að kaupa 2.6 milljónir
hlutabréfa — að því er hermt er —
eykst hluturinn í um 19-20%.
Aðrir aðilar munu hafa keypt 1.8
milljónir hlutabréfa eða 3,5% hlut
í Yorkshire.
sérfræðingar sögðu að samruninn
kynni að veita því bolmagn til að
reyna að ná yfírráðum yfír Yorks-
hire.
Yorkshire er eftirsóknarvert í
augum Granada, sem sér fyrir sér
að verða eina einkasjónvarpið á
Norður-Englandi, frá Liverpool í
vestri til Newcastle í austri.
Sérfræðingar segja að Carlton —
umsvifamesta ITV-fýrirtækið —
kunni að neyðast til að koma fram
með gagntilboð í MAI til að verða
ekki útundan í næsta fjölmiðlaslag.
Beðið eftir lagabreytingai
Samkvæmt gildandi lögum má
Granada ekki eiga meira en 20% í
þriðju ITV-stöðinni. Búizt er við að
þingið breyti reglunum síðar á
þessu ári og þá verður ekki lengur
krafízt að eitt fyrirtæki fái aðeins
tvö ITV-sérleyfi til sjónvarpsrekstr-
ar. í staðinn verður miðað við 15%
áhorf.
Um 7,2% brezkra sjónvarpsá-
horfenda horfa á Granada, en 5,9%
á Yorkshire & Tyne Tees.
Vegna fýrirhugaðrar lagabreyt-
ingar ríkir umrót í brezka fjölmiðla-
geiranum. Það hófst þegar blaða-
samsteypan United News & Media
og ITV-fyrirtækið MAI skýrðu frá
fyrirætlunum um þriggja milljarða
punda samruna 8. febrúar.
MAI-fyrirtækið, sem sjónvarpar
í umboði ITV á Suður- og Austur-
Englandi, á 14% í Yorkshire og
Skozka
sjónvarpið
sækir sig
London. Reuter.
SKOZKA sjónvarpið, Scottish
Television Plc, segir að
hagnaður þess fyrir skatta
1995 hefði aukizt í 20.2 millj-
ónir punda úr tveimur milljón-
um 1994.
Tilkynnt var að gerður hefði
verið samningur upp á 10
milljónir punda við Hallmark
Entertainment um gerð sex
90 mínútna fjölskyldukvik-
mynda, sem teknar yrðu í
Skotlandi á þessu ári.
Hallmark er systurfyrirtæki
Flaxtech PLC, sem keypti 20%
hlut í Scottish Television í
fyrra.
Á vefvaktinni
MEÐ ODD DE PRESNO
GAGNABANKINN The Electric Library — http://www.elibrary. com er
safn greina frá yfír 1000 útgáfum. Notendur geta slegið inn á ensku
einfalda spurningu til að leita í öllum texta yfír 900 tímarit, yfír 150 dag-
blaða, í texta yfír 2000 bókmenntaverka, um 18.000 ljósmynda, handritum
fréttaskeyta og fréttaútsendinga sjónvarps- og útvarpsstöðva, svo og í bóka-,
kvikmynda- og hugbúnaðarumsögnum auk Compton’s Encylopedia alfræði-
bókarinnar. Þama má einnig finna orðabók, samanburðarorðabók (thesaur-
us), dagatal, uppflettirit og fleira.
Efnisuppsprettur bankans eru m.a. frá Reuters-fréttastofunni, Gannett-
blaðahringnum, World Alamac, Times Mirror, Compton’s New Media, Art
Joumal, Inc, The Economist, World Press Review, Monarch Notes, The
Complete Works of Shakespeare, Worlds Best Poetry, Compton’s Encyclope-
dia, King James Bible, Thematic Dictionary, Similes Dictionary, Webster’s
Dictionary. Jemsalem Post, La Prensa og News India.
Allt efnið er selt, en notendum gefst kostur á áð nálgast það ókeypis í
byijun til reynslu.
Rússneskur banki
Andrigal Internet Library Sevice (ILS) í Rússlandi, tekur einnig gjald
fyrir notkunina. Þar fæst aðgangur að upplýsingum á ensku um vísindaleg-
ar og tæknilegar útgáfur, rannsóknarstofnanir og bókasöfn í Rússlandi.
Greinaafhendingar á netfang um afmörkuð málefni bjóðast einnig.
í gagnabankanum má finna bókasafnslega lýsingu á yfir 1400 tímaritum
sem komið hafa út í Rússlandi og öðram ríkjum fyrram Sovétríkjanna allt
frá 1986. Hálfsmánaðarlegar þýðingar á ensku á efnisinnihaldi um 300 tíma-
rita á rússnesku frá 1991. Skrá yfir stofnanir fyrrum Sovétríkjanna, svo
og skrá yfír bókasöfn í þessum sömu ríkjum. Upplýsingar fást á netfangi
andng-a/@andrigal.msk.su eða
http://www.ReHs/ANDRIGAL/Hs.html. Ókeypis sýnishorn.
Sérhæfðir gagnagrunnar
Ef menn leita sérhæfðra gagnagranna má benda á The Intemet Sleuth á
http://www.intbc.com/sleuth.
Þar er að fínna tengla við meira en 900 leitanlega gagnagranna á alnet-
inu um hin margvíslegustu málefni.
Meðal flokka sem þar bjóðast eru landbúnaður, hagfræði, alnetið (Inter-
net), byggðamál, lögfræði, menntun, vísindi, stjamfræði, atvinnumál, bók-
menntir, verslun, flugmál, verkfræði, stærðfræði, félagsvísindi, líffræði, eðlis-
fræði, skemmtun, læknisfræði, hugbúnað, líftækni, umhverfísmál, Listir,
tónlist, tækni, íþróttir, viðskipti, fjármál, fréttir, viðskiptaskrár, matur og
drykkur, fólk, kaupsýsla og iðnaður, efnafræði, erfðafræði, ferðamál, stjóm-
sýsla, stjómmál, spjallrásafréttir, fyrirtæki, heilsu, tölvutengt efni, hugvís-
indi, tómstundir og afþreying, dýralækningar, handbækur, vefleitartól og
margt fleira.
Rússneskur
ljósmynd-
ari myrtur
í Moskvu
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKUR ljósmyndari
hefur verið myrtur í miðri
Moskvu að sögn rússneska
innanríkisráðuneytisins.
Ljósmyndarinn, • Felix
Soloyjov, lézt af sáram eftir
árás ókunnra launmorðingja.
Lögregla fann tvær skamm-
byssur á staðnum, en ókunnugt
er um ástæður verknaðarins.
Nokkrir blaðamenn, þing-
menn, bankastjórar og kaup-
sýslumenn hafa fallið fyrir
kúlum launmorðingjar á síðari
árum, en enginn morðingi hef-
ur verið dæmdur.
í janúar var Oleg Slabýnko,
stjórnandi vinsæls rabbþáttar
í sjónvarpi, drepinn í íbúð sinni
í Moskvu.
í marz í fyrra var annar
vinsæll rabbþáttarstjóri, Vla-
díslav Listév skotinn til bana
í fyölbýlishúsi.
Dmítríj Kholodov, blaða-
maður Moskovsky Komsomo-
lets beið bana þegar sprengja
sprakk í skjalatösku, sem hann
sótti á jámbrautarstöð sam-
kvæmt ábendingu í október
1994 þegar hann var að rann-
saka spillingu í heraflanum.
Óttast ægivald
Capital Radio
London. Reuter.
BREZKIR útvarpsauglýsend-
ur og auglýsingastofur þeirra
telja sig hafa komizt að raun
um að öldur ljósvakans séu í
vaxandi mæli á valdi eins
fjölmiðlafyrirtækis og því hafa
ýmsir hvatt til þess að eftirlits-
stofnanir skerist í leikinn til
að tryggja heiðarlega sam-
keppni að sögn kunnugra.
Það sem veldur áhyggjum
era yfírgnæfandi áhrif Capital
Radio Plc á útvarpsauglýs-
ingasölu einkastöðva, ekki sízt
vegna yfirburða sölu- og
markaðdeildarinnar MS&M
(Media Sales and Marketing).
Auglýsingafólk óttast að of
lítil samkeppni muni valda
hærra auglýsingaverði og
skaða orðstír þessa litla en
vaxandi 300 milljóna punda
markaðar.
Derek Morris, talsmaður
samtaka auglýsingastofa,
(IPA), segir að þessa dagana
sé verið að kanna viðhorf allra
aðila samtakanna til aðstöðu
Capitals.
Sparað hjá
BBC World
Service
London. Reuter.
BREZKA ríkishljóðvarpið
BBC hefur tilkynnt að fyrir-
hugað sé að minnka rekstrar-
kostnað heimsútvarpsins BBC
World Service um 10 af hund-
raði.
BBC World Service útvarp-
ar á 42 tungumálum og hlust-
endur útvarpsins eru 140 millj-
ónir. Enn hefur ekki verið
ákveðið hvort hætt verður að
útvarpa á einhveijum tungu-
málum að sögn Sam Youn-
gers, forstjóra útvarpsarms
BBC. Ráðgert er að spara 13
milljónir punda.
Stjórnvöld tilkynntu í nóv-
ember að framlög til BBC
World Service yrðu skert um
20 milljónir punda fyrir árslok
1998. Tilkynningin mætti
harðri andstöðu þingmanna úr
öllum flokkumn.