Morgunblaðið - 09.03.1996, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. MARZ 1996 45
FRETTIR
Stjórn Sjúkrahúss Reykjavíkur ákveður enn meiri sparnað
Sparnaðaraðgerðir skili
alls um 150 milljónum
STJÓRN Sjúkrahúss Reykjavíkur
hefur tekið ákvörðun um 41 millj-
ón króna sparnað á sjúkrahúsinu
á árinu til viðbótar við áður ákveð-
inn 110 milljóna króna sparnað á
sama tímabili. Mestur sparnaður,
um 20 milljónir, felst í því að
sameina tvær deildir í eina deild
á Landakoti. Með sameiningu
deildanna fækkar stöðugildum
um 15. Alls er gert ráð fyrir að
stöðugildum fækki um 26 við síð-
ari sparnaðaráformin. Jóhannes
Pálmason forstjóri segist vona að
ekki þurfi að segja upp starfs-
fólki.
Fyrri sparnaðaraðgerðirnar
voru ákveðnar á stjórnarfundi 30.
janúar sl. Sparnaðaraðgerðirnar
eru í átta liðum og er gert ráð
fyrir að mestum sparnaði, 70 millj-
ónum á ári, verði náð með því
taka ekki í notkun lyfjadeildarrúm
frá Landakoti í Fossvogi. Af öðr-
um sparnaðaraðgerðum má nefna
breytingar á innheimtu vegna
gæsludeildarsjúklinga, sértekjur
vegna afgreiðsluapóteks á slysa-
deild og hagræðingu vegna sam-
einingar ýmissa rekstrardeilda.
Eins og áður segir er gert ráð
fyrir að sparnaðaráformin skili um
110 milljónum á árinu 1996. Ár-
legur sparnaður verði hins vegar
150 milljónir. Dagdeildarrúmum
er fjölgað um 20, legurúmum
Ráðstefna
um útvarp
og sjónvarp
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ efnir
laugardaginn 9. mars til ráðstefnu
undir yfirskriftinni Útvarp og sjón-
varp á samkeppnismarkaði - Hlut-
verk, skyldur og framtíðarhorfur á
tímum niðurskurðar og aukins
fjölmiðlaframboðs. Ráðstefnan
verður í Átthagasal Hótel Sögu og
hefst kl. 10.
Dagskrá ráðstefnunnar er sem
hér segir: Kl. 10 setur Guðrún
Helgadóttir, rithöfundur, ráðstefn-
una, Njörður P. Njarðvík, prófess-
or, flytur erindið: Þáttur útvarps
og sjónvarps í menningu þjóðar,
Stefán Jón Hafstein, dagskrárgerð-
armaður Stöð 2: Eiga stjórnvöld að
hafa stefnu varðandi rekstur út-
varps og sjónvarps? Ævar Kjartans-
son, ritstjóri menningarmála RÚV:
Hver á að stjórna RÚV? Páll Magn-
ússon, sjónvarpsstjóri Sýnar:
Einkarekstur - ríkisrekstur: Er op-
inbert eftirlit nauðsynlegt? Jóhanna
Vigdís Hjaltadóttir, fréttamaður
Sjónvarps: Hlutverk og ábyrgð
fréttamanna, Hörður Vilhjálmsson,
fjármálastjóri RÚV: Fjármál RÚV,
og að lokum flytur Markús Örn
Antonsson, framkvæmdastjóri
RÚV erindið Framtíð RÚV.
Kl. 13 hefjast almennar umræður
og gert er ráð fyrir að ráðstefnunni
ljúki kl. 16. Ráðstefnan er öllum
opin og ekkert þátttökugjald.
-----------» » .»----
■ FORELDRAFÉLÖG lelk-
skólabanm í Grafarvogi hafa sent
íslenska sjónvarpsfélaginu, ís-
lenska útvarpsfélaginu, Ríkisút-
varpinu og Umboðsmanni barna
bréf þar sem beint er eindregnum
tilmælum til sjónvarpsstöðvanna að
draga úr ofbeldisfullum auglýsing-
um á þeim tíma sem gera má ráð
fyrir að ung börn gætu verið áhorf-
endur.
fækkað um 33 og stöðugildum um
13. v
Annar áfangi
Annar áfangi sparnaðaraðgerð-
anna var ákveðinn í lok febrúar.
Hann er í 11 liðum og er gert ráð
fyrir að mestur sparnaður, um 20
milljónir, verði við sameiningu
deilda 2B og 1B í eina 7 daga
deild á deild 2B á Landakoti í
apríl nk. Af öðrum aðgerðum má
nefna að augndeild verður flutt frá
Landakoti í Fossvog og dagdeild-
arstarfsemi augndeildarinnar
verður aukin.
Með flutningi speglunardeildar
í Fossvogi og á Landakoti á A4 á
Landakoti er gert ráð fyrir að
spara 2 milljónir á árinu og gert
er ráð fyrir að ákveðið hagræði
fylgi því að flytja gæsludeild slysa-
og sjúkravaktar nær gjörgæslu í
Fossvogi.
Dagdeild lokað
í Hafnarbúðum
Sparnaðaráformin gera ráð
fyrir að dagdeild í Hafnarbúðum
verði lokað í núverandi mynd.
Starfsemin haldi hins vegar
áfram í formi sjúkratengdrar
heimaaðhlynningar, ef rekstrarfé
fæst, í október. Stefnt er að því
að starfsemin í Arnarholti flytjist
í Hafnarbúðir og á Hvítabandið
SENDIHERRA Islands í Banda-
ríkjunum Einar Benediktsson átti
viðræður við ráðamenn Flórída
fyrir skömmu og í spjalli við frétta-
ritara Morgunblaðsins sagði hann,
að rauður þráður í þessum viðræð-
um verið tengsl íslands og Flórída,
en viðskiptin fara vaxandi.
Sendiherrann sagði tengslin
mest áberandi í fluginu og flutning
Flugleiða á ferðamönnum þangað
í tugþúsundatali frá V-Evrópu og
íslandi.
Fjöldi íslenskra námsmanna
hefur einnig stundað nám í ýmsum
háskólum Flórída og nokkrir lokið
þar doktorsnámi og öðrum æðstu
stigum menntunar.
Borgaryfirvöld í Tallahassee eru
mjög ánægð með góð samskipti
lögreglumanna í Tallahassee og
Reykjavík, en komið heur verið á
skiptiheimsóknum þeirra þar sem
lögð er áhersla á meðferð og af-
greiðslu fíkniefnamála.
Flórída er fjórða fjölmennasta
ríki Bandaríkjanna og Einar kvað
það orðið mikilvægan þátt í ís-
lenzkum efnahagsmálum hvernig
fiskmarkaðir þar hefðu þróast.
Þau viðskipti kvað sendiherrann
gott dæmi um hvernig opin við-
skipti geta þróast milli landa þó
stærðarmunur þeirra sé mikill, ef
stöðugleiki ríkir í efnahagsmálum.
Einar kvað ráðamenn Flórida
hafa spuil um ýmsa þætti mála á
Islandi og svör hans hefðu verið
að þar ríki stöðugleiki í efnahags-
málum og þar séu góðir möguleik-
ar fyrir fjárfesta.
um næstu áramót. Dagdeild í
Templarahöll verði til bráða-
birgða flutt á 2. hæð í Hafnarbúð-
um og síðar á 1. hæð. Með flutn-
ingnum í Hafnarbúðir er gert ráð
fyrir 2 milljón króna sparnaði á
árinu en 39 milljón króna árlegum
sparnaði.
Hins vegar er gert ráð fyrir 20
milljón króna stofnkostnaði vegna
flutnings öldrunardeildar Hvíta-
bandsins í Landakot í upphafi
næsta árs.
Leikskólar og
meðferðarheimili
Stjórnin telur að rekstur með-
ferðarheimilis fyrir börn á Kleifar-
vegi heyri fremur undir félags-
málayfirvöld og er gert ráð fyrir
að 10 milljóna króna sparnaður
náist með því að hætta rekstrinum.
í yfirliti yfir sparnaðaraðgerðirnar
er lagt til að borgaryfirvöld óski
eftir viðræðum við heilbrigðisráðu-
neytið og félagsmálaráðuneytið
um hvernig þau hyggist leysa
vanda þeirra barna sem þurfa á
þessari þjónustu að halda. Þegar
hefur verið óskað eftir þeim við-
ræðum.
Fulltrúum stjórnar er gert að
skila tillögum um breytingar á
rekstri leikskóla sjúkrahússins fyr-
ir 20. mars. Viðræður fara fram
við starfsfólk og foreldra og kann-
Vaxandi viðskipti ríkjanna
Tilefnið ferðar sendiherrans til
Flórída var beiðni samtakanna
World Trade Center Orlando um
að hann héldi fyrirlestur um við-
skiptamál á hádégisverðarfundi
þeirra í Orlando daginn sem Sin-
fóníuhljómsveit íslands lék þar.
í fyrirlestri sínum ræddi Einar
Benediktsson nokkuð almennt um
möguleika á íslandi og þá þróun
sem þar hefur orðið í virkjun ódýrr-
að verður hvort foreldrar hafi
áhuga á að sinna rekstrinum.
Að lokum er gert ráð fyrir að
með sameiningu bakvakta náist 6
milljóna króna sparnaður á árinu
og 12 milljóna króna árlegur
sparnaður. Arlegur sparnaður á
að vera 86 milljónir, sparnaður í
ár 41 milljón og stofnkostnaður
70 milljónir, t.d. vegna flutnings
augndeildar.
Beðið um sinn
Jóhannes sagði að sparnaðar-
áformin gerðu ráð fyrir að stöðu-
gildum yrði fækkað um 26. Hins
vegar sagðist hann vona að ekki
þyrfti að koma til uppsagna. Hann
sagði í því sambandi að af hátt í
2.000 starfsmönnum á launaskrá
væri alltaf eitthvað um að fólk
hætti og ekki væri ráðið í þær
stöður sem losnuðu. Ef starfsemi
væri lögð niður væri reynt að bjóða
starfsmönnum starf annars staðar
á sjúkrahúsinu.
Jóhannes sagði að gert væri ráð
fyrir að sparnaðaráform skiluðu
um 150 milljónum upp í 380 millj-
óna króna niðurskurð. Ekki væri
því ólíklegt að enn þyrfti að grípa
til sparnaðaraðgerða. Enn yrði
hins vegar beðið um sinni uns til-
lögur bærust frá ráðuneytinu og
ljóst væri hvaða viðbótarfjár-
magns væri að vænta þaðan.
ar orku og á ýmsum öðrum sviðum,
ekki hvað síst varðandi tölvutækni.
Hann vék einnig að viðskiptum
landanna og lagði þar meginá-
herslu á ferðamálin og sagði að
þar væru möguleikar til aukningar.
Viðskipti íslands og Flórída
hafa vaxið hratt á síðustu árum
ekki síst hvað fiskinn varðar. Hóp-
ur forráðamanna smærri fyrir-
tækja hefur líka farið til íslands
og ótal viðskiptasambönd hafa
verið stofnuð milli landanna.
Atkvöld
Taflfélags-
ins Hellis
TAFLFÉLAGIÐ Hellir stendur
fyrir atkvöldi sunnudaginn 11.
mars. Teflt verður í Menning-
armiðstöðinni í Gerðubergi
kl.20:00 og er mótið öllum
opið. Þáttökugjald er 200 kr.
fyrir félagsmenn, en 300 kr.
fyrir aðra þáttakendur.
Tefldar verða sex umferðir
eftir Monrad-kerfi. Fyrst eru
tefldar þijár hraðskákir og síð-
an þrjár atskákir en þannig
lýkur mótinu á einu kvöldi.
Teflt verður með hinum
nýju Fischér/FIDE klukkum,
en Hellir er eina skákfélag
landsins sem notar slíkar
klukkur.
Rit um
markmið og
leiðir í jafn-
réttismálum
ÚT ER komið á vegum fjár-
málaráðuneytisins ritið Jafn-
réttismál - Ábendingar um
leiðir til að ná fram jafnrétti
kynjanna.
I ritinu eru upplýsingar um
þau lög og reglur sem gilda
um jafnréttismál á vinnustöð-
um og stöðu kvenna á vinnu-
markaði. Þá er nokkrum al-
gengum fullyrðingum um
ástæður launamisréttis svar-
að. Loks eru ábendingar um
þau atriði sem vinnuveitendur
hjá ríkinu eiga að hafa í huga
til að gæta jafns réttar karla
og kvenna. I framhaldi af út-
gáfunni verður efnt til funda
með forstöðumönnum ríkis-
stofnana þar sem janfréttismál
verða sérstaklega rædd.
Fjármálaráðherra ákvað í
upphafi kjörtímabilsins að
vinna að nokkrum verkefnum
sem snerta jafnréttismál hjá
ríkinu.
Árshátíð
Heimdallar
ÁRSHÁTÍÐ Heimdallar er í
Leikhúskjallaranum í kvöld,
laugardagskvöldið 9. mars.
Heiðursgestir eru frú Rut Ing-
ólfsdóttir og Björn Bjarnason,
menntamálaráðherra.
Veislustjóri er Viktor B.
Kjartansson, varaþingmaður.
Einar Örn Einarsson syngur
einsöng og Árni Johnsen stýr-
ir fjöldasöng við undirleik
Carls Möllers. Árshátíðin hefst
með móttöku og fordrykk kl.
19. Hátíðarkvöldverður hefst
kl. 19.30. Miðar eru afgreiddir
við innganginn.
Kaffisala
í Óháða
söfnuðinum
KAFFISALA kvenfélags
Óháða safnaðarins verður að
lokinni fjölskyldumessu
sunnudaginn 10. mars kl. 14.
Kaffisalan er til styrktar
Bjargarsjóði, sem er líknar-
og mannúðarsjóður innan
safnaðarins.
í fjölskyldumessunni leika
fermingarbörnin Guðspjallið
og sunnudagaskólabörnin frá
fræðslu jafnhliða í messunni.
Samskipti íslands og Flórída
Vaxandi viðskipti
með fisk og ferðafólk
Flórída. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Atli Steinarsson
EINAR Benediktsson sendiherra með gullsleginn lykil Tallahassee,
höfuðborgar Flórída, sem þýðir að hann er nú heiðurssborgari
hennar. Til vinstri á myndinni er Scott Maddox boi-garstjóri og
til hægri Hilmar Skagfield, aðalræðismaður íslands á Flórída.