Morgunblaðið - 23.03.1996, Page 20
20 LAUGARDAGUR 23. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Mjög mis-
munandi
hvað kostar
að fá sér
kaffibolla og
kökusneið
ÞAÐ kostar vel á áttunda hundrað
króna að fá sér cappuccino kaffi
og ostakökusneið á einum veit-
ingastað í miðbænum á meðan það
kostar á fimmta hundrað krónur
á öðrum. í Ikea kostar það síðan
350 krónur. Ekkert tillit er tekið
til umhverfis kaffihússins, né
gæða kaffisopans og ekki athugað
sérstaklega hvort kakan er heima-
bökuð eða ekki.
Þegar haft var samband við
ýmsa staði sem selja kaffi og með
því og forvitnast um verð kom í
ljós að það er afskaplega misjafnt
hvað felst í verði á kaffi eða köku-
sneið. Sumir eru með kaffi í
pressukönnum, aðrir hella uppá
að gömlum sið á meðan enn aðrir
eru með sjálfvirkar kaffikönnur.
Þá er líka aliur gangur á því hvort
ótakmarkað kaffi er innifalið í
verði kaffibollans eða hvort ein-
ungis er um að ræða einn eða tvo
kaffibolla. Það virðist líka allur
gangur á því hvernig kaffi au lait
og cappuccino er búið til. í Ikea
er kaffið til dæmis úr sjálfsaf-
greiðsluvél á meðan önnur kaffi-
hús leggja töluvert uppúr kaffi-
tegundinni og uppáhellingunni
sjálfri.
í þessari verðkönnun er þetta
ekki skilgreint svo fólk verður að
spyija þegar á kaffihúsið er kom-
ið. Hugmyndin var eingöngu að
sýna fólki fram á hvað það kost-
aði á hveijum stað að koma inn
af götunni til að fá sér kaffibolla
og kökusneið eða rúnnstykki.
Það kom einnig í ljós að súkku-
laðitertuuppskriftir eru ótrúlega
margar og viðskiptavinirnir eru
að fá ólíkar tertur á hinum mis-
munandi kaffihúsum. Sachertert-
ur, franskar súkkulaðitertur,
venjulegar skúffutertur og
djöflatertfir eru meðal
þeirra kökusneiða
sem flokkast
undir
súkku-
laði-
ter-
Kaffihús
Hvernig væni að fá sér kaffi og köku?
1 bolli 1 bolli 1 bolli Osta- Rúnstykki Súkkulaði- eitt
kaffi Cappuccino kaffi au lait kökusneið m/osti kökusneið gosglas
Kaffi París Krónur Austurstræti 14, Rvk. 180 210 210 360 190 330 150
Solon Islandus Bankastræti 7a, Rvk. 170 190 180 390 280 390 150
Kaffi Reykjavík Vesturgata 2, Rvk. 150 200 200 350 150 400 150
Kaffi Mílanó Faxafen 11, Rvk. 170 210 210 390 230 390 150
Tíu dropar Laugavegur 27, Rvk. 150 180 180 300 200 300 150
Kaffi Ole Hafnarstræti 11, Rvk. 150 180 180 , ekki til 200 . 300 150
Svarta kaffið Laugavegur 54, Rvk. 150 170 . 200 ekki til 200 300 150
Kaffiterian Kjarvalsstaðir v/ Miklatún, Rvk. 120 185 185 390 170 390 130
Kaffi Borg - Hafnarborg Strandgáta 34, Hafnarfj. 120 180 ekki til 350 ekki til 350 150
Hótel Borg Pósthússfræti 11, Rvk. 195 225 hWíTí; 225 540 350 490 190
Mokka Expresso kaffi Skólavörðustíg 3a, Rvk. 200 200 200 ekki til 160 270 160
Kaffi Oliver Hverfisgata 12, Rvk. 150 200 200 300 langloka 320 300 150
Kaffihúsið Kringlan, Rvk. 170 205 205 390 235 390 170
Listacafe - Listhúsið Laugardal, Rvk. 150 180 180 350 150 350 150
Kaffistofa - Listasafn íslands Fríkirkjuvegur 7, Rvk. 160 190 170 J ekki til ekki til 370 150
Kaffistofan Lóuhreiður Laugavegur 59, Rvk. 110 ekki til ekki til 200 170 150 125
Kaffistofa - Norrænahúsið v/Hringbraut, Rvk. 125 ekki til ekki til 250 140 250 150
Veitingastaður IKEA Holtagörðum, Rvk. 80 80 80 270 100 180 80
Súfistinn Strandqata 9, Hafnarfi. 150 210 160 360 200 360 100
Ráðhúskaffi Ráðhús Reykjavíkur 160 180 180 370 190 250 160
Kaffi Karólína Kaupvangsstr. 23, Akureyri 150 200 200 400 180 380 150
Kaffi Olsen Ráðhústorg 7, Akureyri 150 190 190 ekki til ekki til 350 150
Kaffi María Skólavegur 1, Vestmannaeyjar 150 190 190 280 ekki til 280 150
Kafft Lefolii Búðarstíg 12, Eyrarbakki 150 180 180 350 ekki til 250 150
Kaffi krús Austurvequr 7, Selfoss 130 170 170 380 ekki til 250 150
Hreiðrið Brákabraut 3, Borgarnes 110 ekki til ekki til ekki til ekki til 195 130 • I
neimutgui
barna sem
slasast í bíl
er án viðeig-
andi öryggis-
búnaðar
Á SÍÐASTA ári slösuðust 128
börn í bifreiðum hér á landi sam-
kvæmt slysaskráningu Umferðar-
ráðs sem byggð er á lögreglu-
skýrslum. Hefur tíðni slysa á börn-
um í bílum ekki verið hærri und-
anfarin fimm ár.
Af þessum 128 börnum sem
slösuðust í bíl voru 67 þeirra með
viðeigandi öryggisbúnað, sem er
um helmingur þeirra.
Með góðum öryggisbúnaði sem
rétt er notaður er hægt að koma
í veg fyrir mörg þessara slysa og
draga úr alvariegum áverkum í
öðrum.
Viðurkenndur búnaður
nauðsynlegur
„Það er alveg nauðsynlegt að
börn séu í viðurkenndum bamabíl-
stólum sem hæfa stærð þeirra og
það er mikilvægt að búnaðurinn
sé notaður rétt,“ segja Margrét
Sæmundsdóttir og María Finns-
dóttir hjá Umferðarráði.
„Það er til mikið af öryggisbún-
aði fyrir börn í bílum sem stenst
lágmarks gæðakröfur og hann er
þá merktur með stafnum E sem
er inni f hring og er sú merking
samkvæmt alþjóðareglum ECE44.
Öryggisbúnaður sem stenst
strangari kröfur er samkvæmt
sænskum reglum merktur með T
sem þýðir að hann er hannaður
til að veita sérstaka vörn fyrir
höfuð. Þá þarf fólk að hafa hugf-
ast að alltaf á að láta T viður-
kennda stóla snúa með bak í akst-
ursstefnu. Umferðarráð hefur látið
gera bækling með leiðbeiningum
fyrir foreldra þar sem nákvæm-
lega er farið í öryggi barna í bílum.
tu-
sneiðar.
Það getur því
vel verið að stund-
um skili verðmunurinn
sér alveg þegar haft er
í huga að sumar tertur
eru að uppistöðu búnar
til úr smjöri og súkku-
laði á meðan það er
kakó, hveiti og smjörlíki
í þeirri næstu. Þá bjóða
ýmsir rjóma með tertu-
sneiðunum.
Þá má geta þess að
oft er boðið upp á
barnaskammta af
skúffuköku og sumir
bjóða bæði ekta súkku-
laðiköku og skúffu-
köku. Skúffukakan er
þá iðulega allt að helm-
ingi ódýrari.
Vert er að geta þess
að allur gangur er á því
hvort gosið er í flösk-
um, dósum, litlum eða stórum
glösum og slíkt er ekki tekið fram
í töflunni þar sem verðið á gos-
glasi er tilgreint.
í einhverjum tilfellum eru rúnn-
stykkin bökuð á staðnum og sum-
ir bjóða ekki rúnnstykki heldur
einungis heimabakað brauð.
Þessi upptalning á kaffi-, og
veitingahúsum er engan veginn
tæmandi listi yfir þá sem selja
kaffi og kökur.
AJR Titanium gleraugnaumgjarðirnar eru sagðar henta vel
undir hjálma og fyrir börn og íþróttafólk.
Fisléttar, skrúfulausar
gleraugnaumgj arðir
DÖNSKU gleraugnaumgjarðirnar
Air Titanium, sem komu á mark-
aðinn fyrir 15 árum, eru sagðar
þær léttustu í heimi. Að sögn
einkaumboðsmannsins á
íslandi, Kjartans
Kristjánssonar,
sjóntækjafræð-
ings, eru þær aðeins 2,8-3 g,
.skrúfulausar og án lóðninga. Umg-
jarðirnar eru úr títanmálmi, sem
er sveigður og beygður á allra
handa máta.
Kjartan segir umgjarðirnar níð-
sterkar og henta mjög vel undir
hjálma og fyrir börn, íþrótta-
fólk og þá sem nota sterk
og þykk gler, því
þá auki þær ná-
nast ekk- ert á
þungann.
Árið 1994 fengu
A/r Titanium umgjarð-
imar The Golden Trophy
verðlaunin á tísku- og
tæknisýningunni The Grand
Prix of Technology and Fashion
í París. Mánudaginn 25. mars verð-
ur einn af eigendum fyrirtækisins
Lindberg Optik með kynningu fyrir
augnlækna og sjóntækjafræðinga
í Gleraugnaversluninni í Mjódd.