Morgunblaðið - 23.03.1996, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 23.03.1996, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 23. MARZ 1996 43 JORUNDUR JÓHANNESSON inni. Fáa þekki ég sem fylgdust svo grannt með því sem gerðist í veröld- inni, oft þannig að mér fannst sem ég væri „sú gamla“ en hún væri „sú unga“. Aldur er afstæður, þeg- ar talað er um Laugu. Hún var ein af þessum aldurslausu konum sem álltaf var eins og innan um jafn- aldra. Fátt var til dæmis skemmtilegra en að vera í veislu með henni og syngja með henni öll gömlu lögin úr Svörtum fjöðrum eða það sem nýjast var. Allt kunni Lauga og söng af hjartans innlifun með okkur. Fjór- ar kynslóðir sameinuðust í söng. Þó að hún sjálf væri ógift og barnlaus átti hún stóra fjölskyldu, svo vel ræktaði hún fjölskyldubönd við alla sína ættingja. Það var þakkarvert að fá að eiga samleið með konu eins og henni. Margt má af henni læra. Mikið get ég vel unnt henni þess að vera far- in frá okkur yfir í betri heiminn, þó að fylgi henni sár söknuður. Elsku Anna mín, megi Guð gefa þér styrk þessa saknaðardaga. Öll- um ættingjum hennar sendi ég sam- úðarkveðjur. Hólmfríður Árnadóttir. Það var mikið ævintýrahús, Ak- braut. í minningunni var það næst- um á heimsenda. Að minnsta kosti var það á enda Eyrarbakka. Þegar stuttir fætur höfðu tifað alla leið frá Einarshúsi að Akbraut var kom- ið að enda tilverunnar. En í Ak- braut bjuggu þær systur Anna og Lauga og þangað var ótrúlega gott að koma. Þeim snáða sem tölt hafði Eyrarbakka endilangan var tekið eins og heiðursgesti. Þar voru kleinur í potti á merki- legri olíuvél og þar var spenvolg mjólk í könnu því þar á bæ voru á þessum tíma kýr í fjósi. Og hann afi, sem raunar var langafi, sat hýrlegur í horninu við eldhúsborðið með glæsilegan skalla og tóbak í skegginu eins og alvöru afar voru hér fyrrum. En fyrir utan gluggann stóð hann Akbrautar- Moldi sem hafði óendanlega þolin- mæði fram yfir alla heimsins gæð- inga. Seinna fékk ég að sækja kýrnar upp á stykki. Þær dóluðu sér rólega niður engjaveginn og rötuðu fyrir- hafnarlaust í Akbrautarfjósið og gáfu lítið fyrir þann kúrektor sem rölti á eftir og danglaði í þær með njólalegg annað veifið í embættis- nafni. Og það var alltaf sól. Það var heyjað á engjum; gist í tjaldi og þær Anna og Lauga elduðu á prímus og maður stalst frá skyldu- verkum, veiddi homsíli og bmnn- klukkur og óð mýrarrauðann upp á miðja leggi og alltaf skein sólin. Og baðaðar í allri þessari sól eru minningar mínar um hana Laugu frænku. Síðan ég lék mér í Akbraut- arhlöðunni og tíndi skeljar fyrir neðan sjóvarnargarðinn er nú liðin u.þ.b. hálf öld og allan þann tíma hafa þær systur, Anna og Lauga, tekið þátt í gleði og sorgum fjöl- skyldunnar. Til útlanda rataði örugglega jóla- kortið frá þeim. Gleðilegum atburð- um, barnsfæðingum og afmælum var innilega fagnað af Laugu frænku og við dauðsföll og slys syrgði hún einlægast. Hún var alla tíð ógift en hún átti þó ótrúlega stóra fjölskyldu. Þótt komin væri fast að níræðu henti hún reiður á öllum þeim sæg systkinabarna, barna þeirra og barnabarna sem árin höfðu fært henni. Vildi maður frétta af fjarlæg- um frænda eða hálfgleymdri frænku mátti ganga að því vísu að Lauga hafði þann fróðleik allan á hreinu. Nú þegar ég sé á bak henni Laugu frænku og minnist hennar í ótal merkisafmælum, fermingum og skírnum þar sem hún var ævin- lega glöðust allra finn ég live fátæk- leg orð eru lítils megnug til að þakka þann hlýhug sem hún sýndi okkur alla tíð. Önnu systur hennar og öðrum þeim sem næst henni stóðu votta ég mína innilegustu samúð. Ásgeir. -I- Jörundur Jóhannesson, * fæddist í Hrísey 5. október 1919. Hann andaðist 10. mars sl. Jörundur var sonur hjón- anna Jóhannesar Guðmunds- sonar og Valgerðar Jónsdótt- ur. I Hrísey stundaði Jörundur sjómennsku alla tíð þar til hann flutti til Akureyrar árið 1957 og hóf þar sambúð með Sigríði Björnsdóttur. Á Akur- eyri bjuggu þau að Laxagötu 2 lengst af, eða allt þar til þau fóru á elliheimilið að Skjaldar- vík árið 1994. Jörundur starf- aði lengst af hjá Akureyrarbæ. Jörundur var jarðsettur í kyrr- þey á Akureyri 15. mars. Er Jörundur kom til Akureyrar keypti hann lítinn bát sem hann notaði í flestum sínum frístundum. Hann hafði mikinn áhuga á sil- ungsveiðum og einnig hafði hann mikinn áhuga á knattspyrnu og var einlægur aðdáandi KA, og lét sig ekki vanta á völlinn meðan honum entist heilsa til þegar KA var að spila. Ég kynntist móður- bróður mínum er ég fluttist til BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsfélag Hafnarfjarðar MÁNUDAGINN 18. mars var fyrsta kvöldið af 3 í Hraðsveitakeppni félags- ins spilað. 9 sveitir spiluðu 8 umferðir með 4 spilum á milli sveita. Efstu sveitirnar eru: Sveit Olafs Ingimundarsonar 674 sveit Halldórs Einarssonar 630 sveit Drafnar Guðmundsdóttur 574 sveit Þorsteins Kristmundssonar 572 sveit Huldu Hjálmarsdóttur 570 Bridsfélag Hafnarfjarðar spilar öll mánudagskvöld í félagsálmu Hauka- hússins, með innkeyrslu frá Flata- hrauni. Spilamennska byijar kl. 19.30. Bridsfélag SÁÁ Spilaður var einskvölds tölvureikn- aður Mitchell-tvímenningur með þátt- töku 22 para, þriðjudaginn 19. mars. Þau spiluðu 9 umferðir með 3 spilum á milli para. Meðalskor var 216 og bestum árangri náðu: NS-riðill Sturla Snæbjömsson - Cecil Haraldsson 258 Júlíus Júlíusson - Ólafur Oddsson 245 Jón H. Hilmarsson - Jón Baldvinsson 244 AV-riðill MagnúsTorfason-HlynurMagnússon 258 HörðurHaraldsson-OlafurHand 247 YngviSighvatsson-OrnGíslason 243 Bridsfélag SAA spilar öll þriðju- dagskvöld í Úlfaldanum að Ármúla 17a. Spilaðir eru einskvölds tölvu- reiknaðir tvímenningar, Spilamennska byijar kl. 19.30 og eru allir spilarar velkomnir. Keppnisstjóri er Sveinn R. Eiríksson. Bridsfélag Reykjavíkur Miðvikudaginn 20. mars var spilað 2. kvöldið af 3 í Monrad Barómeter- keppni félagsins. Spilaðar voru 7 umferðir og besta árangri kvöldsins náðu: Pétur Sigurðsson - Guðlaugur Sveinsson 190 Akureyrar árið 1972 og þótti mér strax vænt um þennan hógværa og rólega mann. Ég fann fyrir því hversu mikill friður og ró var á heimili þeirra Jörundar og Sigríð- ar og alltaf þegar maður kom í Laxagötu 2 var manni tekið með opnum örmum. Samskiptum okk- ar Jörundar fækkaði því miður nokkuð eftir að hann flutti að Skjaldarvík en alltaf voru áhuga- málin þau sömu, veiðin og knatt- spyrnan. Jörund hitti ég síðast daginn áður en hann kvaddi þenn- an heim og þá var hann enn að spyija um nýja leikmenn hjá KA o.s.frv. Sigríður, sem lifir Jörund, var honum stoð og stytta í lífinu og þau studdu hvort annað í blíðu og stríðu. Með þessum fátæklegu orðum vil ég þakka Jörundi frænda mín- um þau ár sem mér auðnaðist að eiga með honum. Þau_ samskipti voru mér mikils virði. Ég og fjöl- skylda mín sendum Sigríði og eftir- lifandi systkinum hans okkar ein- lægu samúðarkveðjur og biðjum þeim blessunar Guðs. Gunnar Blöndal. Aðalsteinn Jörgensen - Ásmundur Pálsson 165 Símon Símonarson - Bjöm Theódórsson 113 Sverrir Ármannsson - Sævar Þorbjömsson 112 Hjalti Elíasson — Eirikur Hjaltason 99 Gísli Hafliðason - Ágúst Helgason 98 Að loknum 14 umferðum af 21 eru efstu pör: Guðmundur Baldursson - Sævin Bjamason 307 Sigurður B. Þorsteinsson - Haukur Ingason 268 Aðalsteinn Jörgensen - Ásmundur Pálsson 247 Pétur Sigurðsson - Guðlaugur Sveinsson 190 Símon Sjmonarson - Bjöm Theodórsson 179 Sverrir Ármannsson - Sævar Þorbjömsson 170 Öm Amþórsson - Guðlaugur R. Jóhannsson 153 ValgarðBlöndal-RúnarMagnússon 138 Paraklúbburinn Paraklúbburinn var vakinn af vær- um blundi 10. mars sl. Spilaðir verða eins kvölds tvímenningur fram að ís- landsmótinu í paratvímenningi. Næst verður spilað næstkomandi sunnudag 24. mars í húsnæði BSÍ að Þönglabakka 1 og hefst spilamennska kl. 19. Bridsfélag Kópavogs Annað kvöldið í Catalínumótinu var fimmtudaginn 14. mars, butler- tvímenningur staðan eftir 12 um- ferðir: Sigurður Siguijónsson - Ragnar Bjömsson 92 Jón Steinar Ingólfsson - Murat Serdar 88 Helgi Viborg - Ólafur H. Ólafsson 71 Hæsta skor: Sigurður Siguijónsson - Ragnar Bjömsson 60 Helgi Viborg - Ólafur H. Ólafsson 51 JónSteinarlngólfsson-MuratSerdar 51 Fimmtudaginn 21. mars var spil- að þriðja kvöldið í Catalínumótinu, butler. Staðan eftir 18 umferðir: Jón Steinar Ingólfsson - Murat Serdar 109 Sigurður Siguijónsson - Ragnar Bjömsson 97 Jón Viðar Jónmundsson - Apar Kristinsson 84 ÞorsteinnBerg-JensJensson 76 Helgi Viborg — Ólafur H. Ólafsson 74 Skor kvöldsins: Árni Már Bjömsson - Heimir Tryggvason 37 Guðmundur Baldursson - Sævin Bjarnason 33 ÞorsteinnBerg-JensJensson 32 Síðasta kvöldið verður spilað næsta fimmtudag. t Ástkær sonur okkar og barnabarn, BJARKI ÞÓR BALDURSSON, lést í Barnaspítala Hringsins þann 21. mars. BaldurÖrn Baldursson, Baldur Þórðarson, Magnús Gunnarsson, Maria Edith Magnúsdóttir, Gabriella Horvath, Sigriður Eyjólfsdóttir. t Okkar ástkæra GUÐRÚN (Dúna) ÞÓRÐARDÓTTIR, áður til heimilis í Hvassaleiti 58, lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðviku- daginn 20. mars. Örn Scheving, Jakobína Guðmundsdóttir, Stella Björk Baldvinsdóttir, Magnús Guðmundsson, Birkir Baldvinsson, Guðfinna Guðnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR JÓHANNA ÁSGEIRSDÓTTIR áðurtil heimils í Fýlshólum 11, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir þann 21. mars. Haraldur Ingimarsson, Jensína Ingimarsdóttir, Guðrún Ingimarsdóttir, tengdabörn og barnabörn. t Útför bróður okkar, HRANNARS ERNIS SIGVALDASONAR, Malmö, Svíþjóð, fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudag- inn 26. mars kl. 15.00. Helgi Friðþjófsson, Hilmar Friðþjófsson, Logi Ernis Sigvaldason, Óðinn Ernis Sigvaldason, Fjölnir Ernis Sigvaldason. t Útför systur okkar, UNNAR JAKOBSDÓTTUR, sem andaðist 4. þ.m., hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Eirs fyrir kær- leiksríka umönnun. Klara J. Hall, Helga Jakobsdóttir, Margrét J. Fredreksen, Guðrún Jakobsdóttir. t Þökkum sýnda samúð, vinsemd og hlýhug við andlát og útför BJARGAR GUÐNADÓTTUR, Suðurgötu 51, Hafnarfirði. Eríkur Pálsson, Stefán Guðni Ásbjörnsson, Páll Eiriksson, Jóna Bjarkan, Sigurveig Hanna Eiríksdóttir, Anna Margrét Eiriksdóttir, Ólafur Eyjólfsson og barnabörn. Kæru vinir! Af aiúð þökkum við ykkur fyrir alla þá hjálp og samúð, er þið veitt- uð okkur við andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu, dóttur og stjúpdóttur, AGNESAR KRISTÍNAR EIRÍKSDÓTTUR, Sóivöllum 11, Selfossi. Sérstakar þakkir til allra, er önnuðust hana í hennar veikindum. Guðs blessun fylgi ykkur. Óli Jörundsson, Kristbjörg Óladóttir, Gestur Haraldsson, María Óladóttir, Svanur Ingvarsson, Eirikur Guðmundsson, Margrét Benediktsdóttir, barnabörn og aðrir aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.