Morgunblaðið - 23.03.1996, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. MARZ 1996 27
FJÖLMIÐLUIM
Lífræn
tölvugrafík
Tölvugrafík skiptir miklu máli í sjósetningu
sjónvarpsstöðvar. Breski hönnuðurinn
Peter Bishop, sem unnið hefur meðal annars
fyrir Stöð 3, sagði Árna Matthíassyni
að yfírþyrmandi tölvugrafík væri oft
til að fela hugmyndaskort. -
ÚR UPPHAFSKYNNINGU Stöðvar 3, sem gerð er með aðstoð
tölvu, gúmmístimpils og sýrubaðs.
KYNNINGARMYND fyrir barnatíma Stöðvar 3, en mikið er lagt
uppúr þrenningum í kynningarefni stöðvarinnar sem vonlegt er.
ÞAÐ ER meira en að segja það að
koma sjónvarpsstöð á koppinn; ekki
er nóg að setja í samband því stöð-
inni verður að skapa ímynd og svip,
helst svo rækilega að sá sem á
horfir finnur að hún er verulega
frábrugðin öðrum
stöðvum, aukinheldur
sem ímynd og útlit
verður að vera sveigj-
anlegt, þróast smám
saman, ekki svo hratt
að það valdi ruglingi
en nógu hratt til að
áhorfendur fái ekki leið
á útlitinu. Leið að þessu
marki er að hanna
myndskeið fyrir upphaf
dagskrár og lok, fyrir
upphaf auglýsingatíma
og fastaþátta og svo
eitthvað til að skjóta
inn á milli þegar eitt-
hvað bjátar á. Fyrir
nokkrum árum var als-
iða að sjá yfirþyrmandi glansandi
tölvugrafík og fljúgandi stálmerki
sem helsta skraut sjónvarpsstöðva,
eins og menn hafi gleymt sér yfir
möguleikum tölvunnar, en á síðustu
mánuðum hefur æ meira borið á
afturhvarfi til mannlegrar hönnun-
ar, þó tölvuvinna sé enn snar þáttur
í sjálfri úrvinnslunni. Stöð 3, sem
hóf útsendingar fyrir áramót, fékk
til liðs við sig breskan hönnuð, Pet-
er Bishop, áður en stöðin fór af
stað, og hann nýtti sér meðal ann-
ars nýjustu tölvutækni og fléttaði
saman við gamaldags handverk
með þeim afleiðingum að upphaf-
skynning stöðvarinnar hefur vakið
athygli út fyrir landsteinana; fékk
þannig viðurkenningu í helsta fag-
tímariti sjónvarpsheimsins, Tele-
visual.
Úr lögfræði í grafíkina
Peter Bishop lærði lögfræði en
sneri sér snemma að því að fást
við grafíska hönnun, auglýsinga-
gerð og hreyfimyndir og hefur unn-
ið við hana í tæpa tvo áratugi.
Undanfarið hefur hann meðal ann-
ars unnið auglýsingar fyrir Cheeri-
os, Nesquick og Skittles en af ís-
lenskum verkefnum minnast eflaust
margir Jóa-auglýsinga íslenskra
rafveitna fyrir nokkrum árum. Fyr-
ir sjónvarp hefur hann t.d. unnið
að kynningarmynd-
skeiðum, þáttakynn-
ingum og auglýsinga-
skeiðum fyrir Cartoon
Network og MTV-
stöðvarnar í Evrópu,
Bandaríkjunum og
Asíu, en þær eru rekn-
ar sem sjálfstæðar
heildir. Myndskeið
hans við Awake on the
Wild Side í MTV
Europe vann gullverð-
laun á kvikmyndahátíð
New York 1994 sem
besta kynningarmynd-
skeið í sjónvarpi. Frá
1994 hefur hann unnið
kynningarmyndskeið
fyrir tónlistarsjónvarpsrásina [V]
sem er á Star TV og vann verðlaun
sem besta nýja rásin á Promax
hátíðinni í Bandaríkjunum á síðasta
ári. Sem stendur er Peter Bishop
meðal annars að vinna að myndefni
í vinsældalista Coca Cola og auglýs-
ingum fyrir svissnesku póstþjón-
ustuna.
Peter Bishop hefur oft komið til
íslands, á íslenska konu, Gyðu Jóns-
dóttur, og hefur meðal annars hald-
ið hér sýningar á verkum sínum og
kennt á námskeiðum í Myndlista-
og handíðaskólanum og víðar. Hann
segir að þar sem hann hafi kennt
hér á landi hafi stjórn Stöðvar 3
vitað af honum og því leitað til
hans til Bretlands. „Til að byija
með setti ég saman áætlun sem
mér fannst þeir þurfa að hafa und-
ir höndum, hvað væri nauðsynlegt
að mínu mati og hvert þeir gætu
leitað með verkefnið, en það lá alls
ekki fyrir að ég myndi taka það
að mér á þeim tíma. Það má segja
að þeir hafi upphaflega leitað til
mín sem ráðgjafa, en ég bjóst við
því að þeir myndu vilja láta vinna
alla vinnu heima á íslandi, sem er
mun auðveldari leið og einfaldari.
Ég kom síðan til íslands og lagði
þeim lið við frumvinnuna, en þegar
kom að því að búa til kynningar-
myndir, fimm myndir alls, fyrir
barnatíma, upphafsmyndskeið,
íþróttakynningu, auglýsingamynd,
bilana- og hlémyndir spurðu þeir
mig hvað ég myndi gera fengi ég
vinnuna. Ég setti því saman frum-
hugmynd, sem byggðist meðal ann-
ars á nýrri tölvutækni, svokallaðri
Flame-myndvinnslutölvu, sem vinn-
ur úr myndum eftir birtustigi þeirra
og breytir í þrívídd. Þeim leist það
vel á þá hugmynd að ég var beðinn
að taka verkefnið að mér.“
Lífræn tölvugrafík
Peter Bishop segir að hann hafi
þegar einsett sér að reyna að nota
tölvutækni til að búa til eitthvað
sem virtist lífrænt eða manngert,
en ekki eins sviplaust og fullkomið
og tölvugrafík gjarnan verður. Til
að það mætti Verða notaði hann
nýjustu tölvutækni, teiknaðar
hreyfimyndir og ljósmyndatækni.
Markmiðið var að gefa stöðinni
auðþekkjanlegt og ákveðið útlit sem
hægur leikur yrði að aðlaga og
breyta eftir því sem verkast vildi.
„Tölvan er af gerðinni Flame en
forritið heitir Displacement F/X og
vinnur úr mynd eftir birtustigi
hennar. Til að mynda yrðu svartir
deplar á hvítum grunni þrívíðar
hvítar keilur eða hnúðar eftir vinnu
í tölvunni. Myndin sem tölvan vann
úr var aftur á móti unnin með
gúmmíkubbum sem ættir voru með
sýru og málaðir og niðurstaðan var
mjög sérstök. Sjálf vinnslan tók
marga tíma og við vissum í raun
ekkert hver niðurstaðan yrði, enda
gerðist margt sem við höfðum ekki
séð fyrir."
Peter Bishop segist ekki vilja
hanna það sem hann kallar fljúg-
andi táknmyndir, tölvugrafík og
stáltákn. „Ég hef unnið við stöðvar-
mark, þ.e. að setja saman mynd-
skeið sem sjónvarpsstöðvar nota til
að skapa sér ímynd og vekja á sér
athygli, fyrir MTV, Channel [V] og
fleiri stöðvar, en hef ekki viljað
vinna fyrir stöðvar sem vilja bara
fljúgandi tákn til að merkja sig.
Ég vil leggja áherslu á skýrt mark-
aða hugmynd og helst ekki byggða
á vélrænni töivugrafík. Sú skoðun
mín hlaut hljómgrunn hjá stjórn-
endum Stöðvar 3 og því fékk ég
verkefnið."
Dagskráin er aðalatriðið
Skiptar skoðanir eru um hve
miklu púðri á að eyða í myndskreyt-
ingar í sjónvarpsstöð og Peter Bish-
op leggur áherslu á að mestu máli
skipti hvernig fénu sé varið. „Það
gefur augaleið að aðalatriði sjón-
varpsstöðvar er sú dagskrá sem hún
sendir út,“ segir hann, „en fólk
ætlast samt til þess að jafnvægi sé
á milli dagskrárgerðar og útlits
stöðvarinnar. Auðvitað er hægt að
nota sem kynningar- og upphafs-
skeið pappírsblað með ápáruðum
texta, en það félli ekki vel að vand-
aðri dagskrárgerð.
Undanfarin ár hafa sjónvarps-
stöðvar eytt sífellt meiri peningum
í flókna og íburðarmikla tölvúgrafík
en nú orðið eru flestir að draga úr
grafík, því yfirhleðslan missir
marks og fælir frekar frá auk þess
sem mikil grafík er oft yfirklór yfir
hugmyndaskort. Þetta má til að
mynda sjá í MTV, en þar er mikið
um grafík sem er til bara vegna
þess að tæknin gefur möguleikann
til að búa hana til. Að mínu mati
verður hönnuðurinn að hafa hreina
ákveðna hugmynd til að vinna eft-
ir. Ég hef gaman af tilraunastarf-
semi, en þegar selja á hugmynd
verður hún að vera úthugsuð og
skipulögð."
Enginn tími og
engir peningar
Peter Bishop segir að miklu skipti
að áhorfandinn viti á hvaða stöð
hann sé að horfa hveiju sinni, að
stöðin hafi persónuleika og það er
það sem hann vinni við til að mynda
við MTV í Asíu. „Stöð 3 er enn að
vinna að því að móta persónuleika,
táknin eru komin en hitt tekur
lengri tíma að þróa. Ég skipti mér
ekki af því hvert stöðin stefnir, en
geri aftur á móti tillögur eftir því
sem stjórnin biður mig um,“ segir
hann.
Peter Bishop segir að íslenskir
sjónvarpsáhorfendur megi vel við
una um grafík í sjónvarpsstöðvun-
um og þannig þykir honum mikið
af grafík Ríkissjónvarpsins og
Stöðvar 2 mjög vel heppnað. „Þar
þurfa hönnuðir þó að glíma við
sama vandamál og hönnuðir við
sjónvarpsstöðvar um allan heim,
það er enginn tími og engir pening-
ar. Maður fær kannski upp í hend-
urnar skemmtilegt og viðamikið
verkefni, sem þarf að klára á tveim-
ur dögum, en það á eftir að blasa
við manni í heilt ár í sjónvarpinu.“
Peter Bishop
Ríflegur afsláttur og bónuspakki að verðmæti
25.000,- með hverjum vélsleða. Tryggið ykkur sleða
fyrir páska.
Opið laugardag frá kl. 10-16
Skútuvogi 12A, sími 581 2530.