Morgunblaðið - 23.03.1996, Síða 48
48 LAUGARDAGUR 23. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Hin hliðin
á lýtalækninga-
deildinni
Grettir
Tommi og Jenni
I2-Z?
Ljóska
Ferdinand
Frá Sveini Péturssyni:
ÞAÐ HLÝTUR að vera mjög erfitt
fyrir lækna á lýtalækningadeild
Landspítalans að beijast fyrir bætt-
um starfsskilyrðum. Ég er ekki sér-
fræðingur um meðferð brunasjúkl-
inga en samt hef ég öðlast tals-
verða reynslu sem brunasjúklingur
- ég er sem sagt hin hliðin á málinu.
1993 brenndist ég og var fluttur
á brunadeild Landspítalans, 13A.
Þar hlaut ég mjög góða umönnun
hjá sérþjálfuðu fólki, maður finnur
fyrir mikilli öryggistilfinningu þeg-
ar maður er hjálparvana og er
meðhöndlaður af sérþjálfuðu fólki
sem veit nákvæmlega hvað það er
að gera. Brunadeildin 13A var mjög
góður starfsvangur fyrir það sér-
hæfa fólk sem þar vann, það flýtir
fyrir bata að vera meðhöndlaður
rétt á réttum tíma af nákvæmni
og öryggi. Það styttir sjúkrahús-
vistina.
1995 brenndist ég öðru sinni og
var nú fluttur á Landspítalann til
meðferðar. Nú var ég á deild 13D
sem er mjög góð deild fyrir það sem
henni er ætlað. Ég fann strax að
þetta var öðruvísi en í fyrra sinnið
bæði hvað varðar aðstöðu starfs-
fólksins og þekkingu þess á með-
höndlun brunasjúklinga. Starfsfólk
13D er mjög gott og duglegt, ekk-
ert við það að sakast nema síður
sé, brunasjúklingar eru bara ekki
þeirra fag. Ég hugsa til þess með
hryllingi þegar næst verður stórt
brunaslys þar sem starfsfólk með
reynslu og þekkingu er ekki lengur
til staðar á þeirri deild sem er ekki
lengur til.
SVEINN PÉTURSSON,
Ásgarði 2, 210 Garðabæ.
Þegar eitt egg verður
að mörgum hænum
Frá Guðrúnu Jacobsen:
LESENDUR góðir, sem eruð á leið-
inni upp metorðastigann. Varið ykk-
ur, ekki aðeins á „hrollvekjum" fort-
íðarinnar, sem geta komið aftan að
yður eins og hver annar uppvakn-
ingur þegar síst skyldi, heldur verð-
ið þér líka að vera hvíþveginn af
allri „synd“. Hafið þér einhvern tím-
ann á yngri árum slett úr klauf-
unum, boðið hinu kyninu upp í til
yðar, mótparturinn sagt nei, takk,
enda sjálfráða, er ekki að vita hver
skollinn getur skeð, þegar þér eruð
orðinn þriggja stjömu persóna.
Væntanleg hjásvæfa, sem á sínum
tíma sagði nei, og nei þýðir jú nei,
getur í samfloti við slægan lögfræð-
ing eða lögfræðinga, samanber nú-
verandi Bandaríkjaforseta, ekki að-
eins reytt af yður aleiguna, heldur
líka æruna.
Þetta kynferðisáreitniskjaftæði
er gengið út í öfgar, tíkt og hver
annar hvimleiður áróður eða múg-
seijun.
Samkvæmt frétt í Tímanum síð-
astliðinn laugardag ku íslendingar
hafa bætt á sig 10 kílóum undanfar-
inn áratug. Hvað skyldi púkinn á
fjósbitanum vera orðinn þungur á
vigtinni umrætt tímabil í sögu lands-
ins, þegar athyglissjúkt fólk nærist
aðallega á illmælgi um náungann?
GUÐRÚNJACOBSEN,
Bergstaðastræti 34, Rvík.
Fáein orð um áreitni
Frá Ásmundi U. Guðmundssyni:
ÞAÐ HEFUR ekki framhjá neinum
farið hver óskapalæti og gaura-
gangur geisað hafa í deilu þeirri
sem herjað hefur í Langholtskirkju-
sókn. Það byijaði að því er virðist
með hnútukasti á milli sóknar-
prestsins og organjstans sem magn-
aðist með ótrúlegum hraða þeirra
sagna, sem ekkert upphaf hafa en
þeytast staflaust milli manna með
andardrætti þeirrar persónu sem
Gróa heitir, og hafa afrekað það
að útvíkka ávirðingarnar umhverfis
æðsta embættismann íslensku þjóð-
arinnar og það af slíkum ofsa og
ofríki að galdraofsóknir hér fyrr á
arum virðast hjóm eitt í saman-
burði við þetta. Aftaka biskupsins
er svo afgerandi og hrottafengin
að siðfágun finnst engin þó vel sé
leitað. í öllum þessum látum er eitt
æði undarlegt. Um leið og deilurnar
og heiftin magnast í Langholts-
kirkju rísa þijár konur upp við dogg
úr híði sínu, sem þær hafa sofið í
um 17 ára skeið, og taka til við að
æpa af lífs og sálar kröftum um
kynferðislega áreitni á hendur bisk-
upi, sem nú er en var þá venjulegur
prestur. Bergmálið nær eyrum
þeirra sem tileinka sér aðferðir Gróu
á Leiti. Þar með hefst síbyljukór-
söngur um áreitni af öllu tagi í
garð núverandi og þjónandi biskups
yfir þjóðkirkju íslands. Með sama
áframhaldi er hægt og leikur einn
að mannorðs- og ærudrepa hvern
einasta mann, hversu frambærileg-
ur sem hann er í starfi, sérstaklega
ef hann hefur stórt embættisheiti
við nafnið sitt.
ÁSMUNDÚR U. GUÐMUNDSSON
Akranesi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.