Morgunblaðið - 02.04.1996, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nýting segnlómsjár
hefur snarminnkað
þui-ft að bíða í fjórar vikur eftir
Skeiðarárhlaup
Hámark á
páskadag
STERKAR líkur eru á að Skeiðarár-
hlaup nái hámarki á páskadag, að
sögn Odds Sigurðssonar, jarðfræð-
ings á Orkustofnun. Nýjar mælingar
verða gerðar á rennsli í ánni í dag.
Oddur segir að áin fari vaxandi
með reglulegum hætti og einu til-
brigði er að talsvert mikið vatn sé
komið í kvíslar á Skeiðarársandi vest-
anverðum, þ.e. Gígjukvísl og Sælu-
húskvísl en þar er næsta brú fyrir
vestan Skeiðará.
„í síðarnefndu kvíslinni er komið
meira vatn en vanalegt er í hlaupum,
að minnsta kosti svo snemma. Þessu
þurfa menn að velta fyrir sér, því
sá möguleiki er fyrir hendi að vatnið
valdi skemmdum," segir hann. „Á
sandinum eru fjórar brýr sem eru
vart í hættu, en vatnið gæti náð
framhjá varnargörðum og það þarf
að vakta til að hægt sé að grípa inn
í nægjanlega snemma."
SÚ niðurstaða að gera ekki ráð
fyrir greiðslum vegna rannsókna
í segulómsjá Læknisfræðilegrar
Myndgreiningar hf. í Domus
Medica í nýgerðum samningi sér-
fræðinga og Tryggingastofnunar
hefur valdið því að aðsókn í seg-
ulómsjána hefur dottið niður úr
fullri nýtir.gu í innan við 10% nýt-
ingu.
Þorkell Bjarnason, hjá Læknis-
fræðilegri myndgreiningu, trúir
því að úrskurður gerðardóms verði
Læknisfræðilegri myndgreiningu í
hag. Úrskurðar gerðardóms er að
vænta síðari hluta aprílmánaðar.
Þorkell sagði að í kjölfar samn-
ingsgerðarinnar hefði verið tekin
ákvörðun um að rukka sjúklinga
með bókaða tíma aðeins um sjúkl-
ingagjaldið, eða 1.000 kr. fyrir
hveija rannsókn. Eftir 18. mars
hefði svo verið farið að innheimta
fullt gjald, eða 22. 935 kr. fyrir
hverja rannsókn. Afleiðingin varð
sú að nýtingin á tækinu féll úr
100% í innan við 10%. í stað 10
til 11 rannsókna á hveijum degi
voru t.d. aðeins gerðar 8 rann-
sóknir í segulómsjánni í síðustu
viku.
Enginn biðlisti
Biðlisti er nú enginn en Þorkell
sagði að bráðasjúklingur, sem
komið hefði í tækið hjá Læknis-
fræðilegri myndgreiningu, hefði
að komast í samsvarandi rannsókn
á Landspítalanum.
Þorkell sagði eðlilegt að sjúkl-
ingar settu verðmismuninn fyrir
sig og tók fram að margir biðu
því eftir niðurstöðu gerðardóms.
Þrír, Árni Vilhjálmsson, Jón Stein-
ar Gunnlaugsson og Helgi I. Jóns-
son frá héraðsdómi, sitja í gerðar-
dómi og er niðurstöðu hans að
vænta síðari hluta aprílmánaðar.
Þorkell sagðist ekki trúa öðru
en Læknisfræðileg myndgreining
ynni málið og Tryggingastofnun
tæki þátt í kostnaðinum vegna
rannsóknanna. Hér væri um þróun
að ræða og ekki væri hægt að
snúa hjóli tímans til baka.
Með rýt-
ingá
kránni
TIL ryskinga kom á Hafn-
arkránni í miðbæ Reykjavík-
ur um miðjan dag á sunnudag
eftir að maður hafði sveiflað
í kringum sig rýtingi inni á
veitingastaðnum og ógnað
gestum.
Tveir gestir krárinnar
komu manninum út af veit-
ingastaðnum og þar otaði
maðurinn hnífnum að öðrum
þeirra og hótaði að beita hon-
um. Upphófust þá slagsmál
sem enduðu með því að sá
sem hnífinn bar féll í götuna
og fékk högg á hnakkann.
Hann var fluttur á slysadeild
til aðhlynningar en mun ekki
hafa slasast alvarlega. Hann
var síðan vistaður í fanga-
geymslum.
Morgunblaðið/gg.
ÞAU voru ánægð með lífið á bökkum Varmár í gærmorgun, f.v. Gunnlaugur J. Rósarsson, Gunn-
ar O. Rósarsson, Sigrún H. Gunnarsdóttir og Rósar Eggertsson, með hiuta af morgunaflanum.
Sj óbirtings veiðin
byrjaði vel
GÓÐ VEIÐI var í Varmá við
Hveragerði í gærmorgun, en þá
hófst stangaveiðivertíðin formlega
með sjóbirtingsveiðum í nokkrum
ám á Suðurlandi.
Fréttist einnig af einhveijum
aflabrögðum í Geirlandsá og
Vatnamótum Skaftár, Fossála og
Geirlandsár. Þá var dálítill veiði-
skapur á neðsta svæði Ytri Rangár
sem liður í merkingarverkefni
Veiðimálastofnunar og veiðirétt-
areigenda. Horfur eru góðar með
vorveiði á sjóbirtingi, ár löngu ís-
lausar og sjóbirtingur í sókn.
Menn stóðu vaktina í blíðviðri á
bökkum Varmár í gærmorgun og
Rósar Eggertsson tannlæknir, sem
opnað hefur Varmá um langt ára-
bil sagði ástandið nokkuð annað
en í fyrra, er menn sáu ekki út
úr bílunum í stórhríðinni og allt
að auki á kafi í snjó.
Svona á þetta að vera
„Svona á þetta að vera, þetta
er búið að vera frábært og það er
mikiil fiskur í ánni, bæði sjóbirting-
ur og staðbundinn urriði. Sá stað-
bundni er reyndar smár, en við
fengum nokkra góða fiska,“ sagði
Rósar í samtali við Morgunblaðið
á bökkum Varmár. Hann sagði og
þá sögu af Paul O’Keefe, að hann
hefði fengið særsta fisk dagsins,
4 punda urriða, á flugu og sleppt
honum. Nokkrar stangir voru að
veiðum neðar í ánni og alls staðar
var fisk að hafa.
Rósar og synir hans veiddu fiska
sína bæði á flugu og spón. Flugan
sem gaf best heitir Lotus og minnir
í fljótu bragði á þá skæðu laxa-
flugu Frances. En hún er bleik og
hnýtt úr teygjum en ekki ull og
fiðri. Þeir höfðu hirt fimm físka
allt að tæpum 3 pundum, en sleppt
nokkrum smærri fiskum.
Horfur eru á góðri vorveiði í
sunnlensku ánum, en Jóhannes
Sturlaugsson fiskifræðingur á
Veiðimálastofnun, sem hefur
GUNNLAUGUR Jón
Rósarsson með nokkra
væna úr Varmá.
ásamt kollega sínum Magnúsi Jó-
hannssyni staðið að rannsóknum á
sjóbirtingi síðustu árin, segir sjó-
birtinginn í góðri sókn og mikill
fiskur hafí verið á helsta athugun-
arsvæðinu, í Grenlæk, síðastliðið
haust.
Óvenjumikið um
j ökulsprungur
ÓVENJUMIKIÐ er um sprungur í
jöklum landsins um þessar mundir
og vill Slysavarnafélag íslands
minna þá ferðalanga, sem hyggja
á jöklaferðir yfir páskahátíðina, að
jöklarnir geta verið varhugaverðir.
Félagið hvetur jöklafara til að sýna
fyllstu aðgát, en jökulsprungur geta
verið allt frá 15-35 metra djúpar
og þær eru sumar hveijar það breið-
ar að þær gleypa auðveldlega vél-
sleða eða bíl.
Ari Trausti Guðmundsson jarð-
eðlisfræðingur segir að ástæðu
þessa megi rekja til tíðra fram-
hlaupa í nokkrum helstu jöklum
landsins á allra síðustu árum. Margt
bendir til þess að framhlaup sé að
fara af stað í Langjökli. Framhlaup
er nú nýhafið í nokkrum skriðjökl-
um Drangajökuls og sömuleiðis er
allur vesturhluti Vatnajökuls illa
farinn eftir framhlaup undanfar-
inna þriggja ára, en þau eru nú öll
um garð gengin að þessu sinni.
„Það má segja að það sé
skemmtileg tilviljun að öll þessi
framhlaup raðist á nokkur ár, en
vegna þessa eru þeir mjög hættu-
legir nú. Kunnugir jöklamenn vita
hvar óhætt er að fara, en minna
kunnugir menn gætu lent í vand-
ræðum vegna þess að þessi
sprungusvæði eru mjög lúmsk. Eft-
ir því sem ofar dregur á jökulinn
er oft lengra bil á milli sprungna
og þær færri. Margir gætu ímyndað
sér að þeir væru þar með komnir
á auðan sjó. Svo er þó alls ekki.
Hvað Vatnajökli viðvíkur, ná
sprungusvæðin alveg upp undir
Grímsvötn að sunnan og vestan.
Það þarf því að koma að Grímsvötn-
um að norðan eða austan til þess
að vera öruggur."
Jöklar að stækka
Að sögn Ara Trausta er ekki vit-
að með vissu hvað veldur fram-
hlaupum í jöklum. Þau verði hins-
vegar með nokkuð reglulegu milli-
bili. Algengt er að á milli hlaupa
líði 30-40 ár.
Að auki má geta þess að nokkrir
jöklar eru að stækka af veðurfars-
legum völdum og má þar t.d. nefna
Eyjaljallajökul og Snæfellsjökul,
sem notið hafa vaxandi vinsælda á
liðnum árum. Þar ættu ferðamenn
að sýna sérstaka gát.
Andlát
HJÖRTUR ELDJÁRN
ÞORARIN S SON
HJÓRTUR Eldjárn Þór-
arinsson bóndi á Tjörn
í Svarfaðardal lést að-
faranótt síðastliðins
mánudags, 76 ára að
aldri.
Hjörtur fæddist 24.
febrúar árið 1920, son-
ur Þórarins Kr. Eldjárns
bónda og barnakennara
og Sigrúnar Sigurhjart-
ardóttur. Hjörtur var
stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri
aárið 1940 og búfræði-
kandidat frá Edinborg-
arháskóla árið 1944.
Hann starfaði sem
ráðunautur hjá Búnað-
arfélagi íslands og var
ráðunautur Sambands nautgripa-
ræktenda í Eyjarfirði 1946-1949,
kennari við Menntaskólann á Akur-
eyri 1948-1949 og bóndi á Tjörn frá
1950.
Hjörtur var kennari, oddviti og
hreppstjóri, í Svarfaðardalshreppi.
Hann var varamaður á
Alþingi 1963-1967 og
sat í stjórn Búnaðar-
félags íslands frá árinu
1971. Hann var fulltrúi
á búnaðarþingi og for-
maður Búnaðarfélags
íslands. Hann sat í
N áttúruverndarráði
1972-1979 og í stjórn
KEA og formaður árin
1972-1988.
Iljörtur ritaði meðal
annars greinar í Árbók
Ferðafélags íslands,
Afmælisrit Sparisjóðs
Svarfdæla og hann var
útgefandi og ritstjóri
mánaðarritsins Norður-
slóðar, sem komið hefur
út frá árinu 1977. Þá ritaði hann
Afmælisrit Kaupfélags Eyfírðinga
og sögu sýslunefnda Eyjafjarðar-
sýslu, sem kom út í tveimur bindum
árið 1994.
Eftirlifandi eiginkona Hjartar er
Sigríður Hafstað og eiga þau sjö börn.
Hjörtur E,
Þórarinsson