Morgunblaðið - 02.04.1996, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996 15
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
SAMEIGINLEGT átak Byggðastofnunar og Sunnlendinga í atvinnuþróun innsiglað að lokinni
undirskrift. Hafsteinn Jóhannesson úr stjórn Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands, Egill Jónsson,
formaður Byggðastofnunar, Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, og Guðmundur
I. Gunnlaugsson, formaður SASS.
Samningur um atvinnuþróun
Nýir eigendur
Aðalbúðarinnar
Siglufirði - Nýir eigendur, Júlíus
H. Kristjánsson og Svava Fr. Guð-
munsdóttir, hafa tekið við rekstri
Aðalbúðarinnar á Siglufirði. Eig-
endurnir hyggjast reka verslunina
með svipuðu sniði og verið hefur
en víkka út starfsemina og bjóða
upp á Ijósritunarþjónustu og filmu-
framköllun. Á myndinni eru Svava
Fr. Guðmunsdóttir og Júlíus H.
Kristjánsson.
V atnsley sustrandar-
hreppur
Starfsfólki
fjölgar
Vogum - Starfsfólki hjá Vatnsleysu-
strandarhreppi hefur verið að fjölga
að undanförnu. Jóhanna Reynisdótt-
ir, sveitarstjóri, segir fjölgunina vera
á skrifstofu, við gangavörslu í grunn-
skólanum og nýtt starf æskulýðs-
og íþróttafulltrúa. Starfsfólk sveitar-
félagsins er allS'Uffi þijátíu en flestir
eru í hlutastarfi.
Um áramót var fjölgað um eitt
starf hjá hreppsskrifstofu vegna auk-
inna verkefna. Hreppsskrifstofan tók
við innheimtu fasteignagjalda eftir
að Gjaldheimta Suðurnesja var lögð
niður en hún annast innheimtuna í
nokkur ár. Þá er reiknað með aukn-
um verkefnum þegar sveitarfélögin
yfirtaka rekstur grunnskóla.
Við Stóru-Vogaskóla hefur verið
fjölgað við gangavörslu um eitt starf.
Nýtt starf íþrótta- og æskulýðsfull-
trúa hefur verið ákveðið til reynslu
út árið. Hlutverk fulltrúans verður
að skipuleggja og móta æskulýðs-
starf og til samræmingar við íþrótta-
félagið. íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
er ráðinn í fullt starf.
Selfossi - Sveitarfélög á Suðurlandi
og Byggðastofnun hafa undirritað
samning sín á milli um atvinnuþró-
un á Suðurlandi og í Vestmannaeyj-
um.Samningurinn tekur til næstu
þriggja ára og felur í sér 8,6 millj-
óna framlag frá Byggðastofnun til
Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands,
sem er í eigu sveitarfélaganna
nema Vestmannaeyja. Gert er ráð
fyrir að fénu verði varið til að kosta
atvinnu- og markaðsráðgjöf í kjör-
dæminu. Meðal þeirra verkefna er
Suðurland 2000 en hluti þess verk-
efnis er nú þegar kominn til fram-
kvæmda með undirbúningsvinnu
að því að kortleggja svæðið með
tilliti til jarðskjálftavár með það að
markmiði að gefa eigendum mann-
virkja hagnýtar upplýsingar um
aukið öryggi.
Kjörbók Landsbanka íslands hefur í 12 ár verið hagstæðasta og vinsælasta
óbundna bankabók landsins.
Þann tíma hefur innstæða yfir 80.000 þúsund íslendinga vaxið og dafnað
- rétt eins og Vala Flosadóttir 18 ára Evrópumeistari í stangarstökki.
Báðar eru fremstar á sínu sviði hér á landi
og þótt víðar væri leitað.
KJÖRBÓK
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna