Morgunblaðið - 02.04.1996, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hlé á hækkunum á
hlutabréfamarkaði
EFTIR samfelldar hækkanir undan-
genginna vikna virðist hlutabréfa-
markaðurinn loks hafa tekið sér hlé
til að anda. Hlutabréfavísitala náði
hámarki á mánudag í síðustu viku
og hafði hún þá hækkað um rúmlega
26% frá áramótum. Síðan hefur vísi-
talan verið að síga niður á við og
hefur hún nú lækkað um tæp 2%
síðastliðna viku.
Viðmælendur Morgunblaðsins á
hlutabréfamarkaði í gær töldu nokk-
uð erfitt að segja til um framhaldið
en virtust þó sammála um að ekkert
tilefni væri til lækkana. Flest benti
til þess að afkoma fyrirtækja á yfír-
standandi ári yrði enn betri en á síð-
asta ári, og því mætti búast við enn
betra milliuppgjöri hjá fyrirtækjum
í júní. Líklega væri því hér um eitt-
hvert millibilsástand að ræða á með-
an markaðurinn íhugaði sitt mál, en
að því loknu myndu hækkanirnar lík-
ast til halda áfram, þótt þær yrðu
eflaust nokkuð hægari.
Hins vegar virðast menn nokkuð
sammála um að vænlegum kostum
hafi fækkað nokkuð á markaðnum
að undanförnu eftir þessar hækkan-
ir, en þó virðast nokkrar vonir bundn-
ar við Flugleiðir í þeim efnum. Þá
benti einn viðmælenda á sjávarút-
vegsfyrirtækin og sagði að þar væri
enn talsvert svigrúm til hagræðingar
auk væntinga um aukinn afla og því
ekki útséð með frekari hækkanir.
Fjölmörg hlutabréfaútboð
Þær hækkanir sem orðið hafa á
gengi hlutabréfa hafa að mati verð-
bréfamiðlara að stórum hluta til orð-
ið vegna verulegs ójafnvægis milli
framboðs og eftirspurnar. Þrátt fyrir
miklar hækkanir hafa eigendur bréfa
ekki virst fúsir til að selja. Nú er
hins vegar búist við ögn meira jafn-
vægi þarna á milli, sér í lagi vegna
fjölda hlutaljárútboða.
Meðal annars liggur fyrir að Flug-
leiðir munu auka hlutafé um 250
milljónir að nafnvirði, auk fjölda
annarra fyrirtækja.
SR-mjöl hf. í: Úr ársreikningi 1995 Jplltli j MtSSF*~*~
Rekstrarreikningur Mnijónir króna 19S »5 1994 Breyt.
Rekstrartekjur 2.887,4 2.897,9 -0,4%
Rekstrarqjöld 2.542.1 2.473.7 +2.8%
Rekstraragnaður fyrir afskriftir 345,2 424,2 -18,6%
Afskriftir 218,3 230,5 -5,3%
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (32.1) (55.1) -41.8%
Hagnaður fyrir reiknaða skatta 94,8 138,6 -31,6%
Hagnaður ársins 75,4 135.9 -44.5%
Efnahagsreikningur 31. des.: 1995 1994
I Eignir: | Milljónir króna
Veltufjármunir 828,5 712,6 +16,3%
Fastafjármunir 1.803,4 1.786,1 +1,0%
Eignir samtals 2.631,9 2.498,7 +5,3%
| Skulílir 0(1 eigið íé: Milljónir króna
Skammtímaskuldir
Langtímaskuldir
Eigiöfé
Skuldir og eigið fé samtals
263,7
612,2
1.756,0
2,631,9
376.1
715.1
1.407,5
2.498,7
-29,9%
-14,4%
+24,8%
+5,3%
Sjódstreymi_________________________1995 1994
Veltufé trá rekstri 283,4 374,5 -24,4%
SR-mjöl með 75 milljóna hagnað á sl. ári
Afkoma versnaði um
61 milljón á milli ára
Hæsta gengi
dollars í
26 mánuði
London. Reuter.
GENGI dollars gegn jeni hafði ekki
verið hærra í 26 mánuði í gær vegna
uggs um veíkleika í bankakerfinu í
Japan eftir gjaldþrot Taiheiyo
banka.
Dollarinn komst í 107,70 jen, en
lækkaði síðan í 107,57. Vikan byrj-
aði vel í kauphöllum í Evrópu og
hefur gengi frankans ekki verið
hærra í 19 mánuði. í Amsterdam
hækkað hækkaði AEX vísitalan í
536,89 og hefur aldrei verið hærri
Gengi franska frankans hefur
ekki verið hærra síðan í júní 1994,
þar sem þeirri skoðun vex fylgi að
að einhvers konar myntbandalagi
verði komið á fót 1999 þrátt fyrir
ugg sumra Þjóðveija um að evrópsk-
ur gjaldmiðill geti veikt markið.
HAGNAÐUR SR-mjöls hf. nam
alls um um 75 milljónum króna á
sl. ári samanborið við 136 milljón-
ir árið áður. Versnaði því afkoman
um 61 milljón á milli ára
Lakari afkoma á síðasta ári
stafar fyrst og fremst af hækkun
hráefniskostnaðar, að sögn Hlyns
Jónssonar Arndals, framkvæmda-
stjóra fjármálasviðs. Nam hráefn-
iskostnaður 55% af cif-verði af-
urða á árinu samanborið við 48%
á árinu á undan.
Á móti hækkun á hráefnis-
kostnaði vóg umtalsverð lækkun
á fjármagnskostnaði vegna hag-
stæðari vaxtakjara, hagstæðrar
gengisþróunar, stöðugs gengis og
lækkunar á skuldum. Þannig
HUNDRUÐ banka I Bandaríkiun-
um hafa sameinazt til að auka hag-
kvæmni í rekstri og fjárfesta í nýrri
tækni og nú hefur dregið til mestu
tíðindanna á þessum vettvangi.
Á sunnudag sameinuðust Chase
Manhattan Corp. og Chemical
Banking Córp. í stærsta banka
Bandaríkjanna miðað við eignir og
í gær átti að ljúka samruna bank-
anna Wells Fargo & Co. og First
Interstate Bancorp í Kaliforníu.
Citicorp, sem hefur verið stærsti
banki Bandaríkjanna með eignir
upp á 257 milljarða dollara, fellur
í annað sæti, næst á eftir hinum
„nýja Chase Manhattan banka sem
námu fjármagnsgjöld að frádregn-
um fjármagnstekjum um 32 millj-
ónum á árinu samanborið við 55
milljónir árið áður.
Unnin voru 180 þúsund tonn
af loðnu á árinu en veiðar úr
norsk-íslenska síldarstofninum
breyttu stöðunni verulega. Unnið
var úr 94 þúsund tonnum af síld
að meðtalinni sumargotssíldinni.
Heildarmagn loðnu, síldar og fr.á-
kasts frá loðnufrystingu var því
um 274 þúsund tonn.
Lán tekin fyrir nýrri
loðnuverksmiðju
Framkvæmdir við nýja verk-
smiðju SR-mjöls í Helguvík er
hafin. Afkastageta hennar verður
á eignir upp á 305 milljarða dollara.
Chemical tekur upp nafn Chase
Manhattan og merki þegar samrun-
anum lýkur, væntanlega eftir
nokkra mánuði. Nýju merki var
komið fyrir í aðalstöðvum Chemical
á Park Avenue í New York í gær.
í gær átti jafnframt að ljúka
samruna Wells Fargo & Co. og First
Interstate Bancorp í Kaliforníu og
verður eigið fé nýja bankans 108
milljarðar dollara.
Starfsmenn Chemical og Chase
Manhattan voru 75.000 fyrir sam-
runann, en þeim fækkar í 63.000
með uppsögnum eða starfsloka-
samningum.
um 800 tonn á sólarhring og er
ætlunin að hún verði tilbúin fyrir
næstu vetrarvertíð. Hlutafé fé-
lagsins var aukið um 25% í októ-
ber til að ijármagna að hluta þess-
ar framkvæmdir. Til að mæta því
sem á vantar hefur verið gengið
frá nýjum lántökum að fjárhæð
450 milljónir króna hjá Norræna
fjárfestingarbankanum og A/S
Eksportfinans í Noregi. Láns-
tíminn er allt til ársins 2011 og
eru með ábyrgð Landsbanka Is-
lands. Þau eru afborgunarlaus
fyrstu tvö árin.
Eigið fé SR-mjöls í lok sl. árs
nam alls 1.756 milljónum saman-
borið við 1.407 milljónir árið áður.
Sérfræðingar telja að störfum
verði fækkað um 9.000 þegar Wells
Fargo sameinast First Interstate.
Alls unnu 47.000 í bönkunum fyrir
sameininguna.
Walter Shipley, æðsti yfirmaður
Chemical Banking, mun gegna
æðstu embættum hjá hinum „nýja“
Chase Manhattan. Thomas
Labrecque, forstjóri gamla Chase,
heldur áfram störfum sem annar
æðsti maður, sem er óvenjulegt
þegar samið er um samruna.
Æðstu menn móðurfyrirtækis
First Interstate, þar á meðal Will-
iam Siart aðalbankastjóri, munu
ekki starfa hjá Wells Fargo.
Chase Manhattan og
Chemical Corp. sameinast
New York. Reuter.
Stöð 2
Fram-
kvæmda-
stjóri
fjármála
hættur
BJARNI Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri fjármála- og
rekstrarsviðs íslenska útvarps-
félagsins hf. hefur sagt upp
störfum hjá félaginu eftir fimm
ára starf.
Bjarni hefur lengst af starfað
sem íjármálastjóri en tók sæti í
fjögurra manna framkvæmda-
stjórn um sl. áramót þegar Jafet
Olafsson, fyrrum útvarpsstjóri,
sagði starfi sínu lausu. Fram-
kvæmdastjórnin hefur farið með
daglegan rekstur ásamt Jóni
Ólafssyni, stjórnarformanni.
I framkvæmdastjórn hafa
verið auk Bjarna þeir Hreggvið-
ur Jónsson, framkvæmdastjóri
þróunarsviðs, Magnús E. Krist-
jánsson, framkvæmdastjóri
markaðssviðs og Páll Baldvin
Baldvinsson, framkvæmdastjóri
dagskrársviðs. Bjarni vildi ekk-
ert tjá sig um ástæður fyrir
uppsögn sinni í samtali við
Morgunblaðið.
Hlutafjár-
útboði
Þormóðs
ramma lokið
HLUTAFJÁRÚTBOÐI Þormóðs
ramma er lokið og seldust öll
bréfin í forkaupsrétti. Alls var
um að ræða 100 milljónir króna
að nafnvirði og voru þær seldar
á genginu 3,75.
Núverandi hlutahafar voru til-
búnir til þess að kaupa um 20%
meira en í boði var, eða 119
milljónir króna. Sá hluthafahóp-
ur sem stóð að kaupunum á
Þormóði ramma á sínum tíma tók
ekki þátt í útboðinu og dróst
hlutfallsleg eign þeirra saman.
Annar banki
gjaldþrota
í Japan
Tókýó. Reuter.
JAPANSKUR banki varð gjald-
þrota um helgina og er það ann-
að bankagjaldþrotið í Japan frá
stríðslokum.
Gjaldþrotið vekur minni ugg
en ella vegna þess að um lítinn
banka er að ræða og að efnahag-
ur Japana virðist á batavegi.
Um er að ræða svæðisbanka í
Tókýó, Taiheiyobanka, sem fjár-
málaráðuneytið tilkynnti 29.
marz að lagður yrði niður. Nýr
banki verður stofnaður undir
verndarvæng 4 aðalbanka Jap-
ans. I ágúst sl. varð Hyogo banki
í Kobe gjaldþrota fyrstur jap-
anskra banka frá stríðslokum.
við hjálpum-------------
MEÐ ÞINNI
hjjálp
þú getur tekið þátt í að viðhalda lífsvon karla,
kvenna og barna í neyð með því að hringja
í síma 562 6722 og gerast styrktarfélagi
Hjálparsjóðs Rauða kross íslands.
Framlög þín renna óskipt til hjálparstarfs
Rauða kross íslands erlendis.
I ú færð reglulega upplýsingar um
hvernig við verjum fénu.
ú ákveður hve mikið, hve oft og hvenær þú greiðir.
RAUÐI KROSS ÍSLANDS