Morgunblaðið - 21.04.1996, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 21. APRÍL 1996 9
FRÉTTIR
Formanns-
skipti í Neyt-
endasam-
tökunum
• DRÍFA Sigfúsdóttir, bæjarfull-
trúi í Reykjanesbæ, tekur við for-
mennsku í Neytendasamtökunum
í byrjun maí. Jóhannes Gunnars-
son, núverandi
formaður og
framkvæmda-
stjóri, gegnir
áfram stöðu
framkvæmda-
stjóra.
Jóhannes sagð-
ist í samtali við
Morgunblaðið
hafa gegnt for-
mennsku í tólf ár
og framkvæmda-
stjórn samhliða
formennskunni
seinni sex árin.
„Eg hef nokkuð
lengi talið eðlilegt
að þarna væri
skilið á milli.“
Jóhannes sagði
að fyrir lægi ósk
Drífu og núver-
andi fram-
kvæmdastjórnar samtakanna um að
hann gegndi áfram framkvæmda-
stjórastarfinu. „Með breytingunni tel
ég að Neytendasamtökin breikki
sína framvarðasveit og staða neyt-
enda styrkist," bætti hann við.
„Ég get nú einbeitt mér að ýmsum
öðrum hlutum betur en ég hef gert.
Auk framkvæmdastjórastarfsins rit-
stýri ég Neytendablaðinu og sé um
kynningarmál og hina neytendapól-
itísku hlið,“ sagði hann. Um 20.000
manns eru í Neytendasamtökunum.
Friðrik
Karlsson
og Carrer-
as á BBC
FRIÐRIK Karlsson gítarleikari
í Mezzoforte þáði boð bresku
sjónvarpsstöðvarinnar BBC um
að leika undir hjá óperusöngv-
aranum heimskunna Jose
Carreras í sjónvarpsþætti sem
var á dagskrá í gærkvöldi. Að
sögn Jónatans Garðarssonar
hjá Spori hf., útgáfufyrirtæki
Mezzoforte, er hér um mikla
viðurkenningu að ræða fyrir
Friðrik og kynningu.
Verkið sem fytja átti í þætt-
inum er útsetning á gítarkon-
serti Joaquin Rodrigo, Conci-
erto de Aranjuez, fyrir strengi
og söngvara.
Ráðinn í Jesus Christ
Superstar
Friðrik er búsettur í London
og vinnur þar sem lausráðinn
tónlistarmaður. Hann hefur
mikið unnið fyrir Nigel Wright,
sem hefur útsett bæði fyrir
Mezzoforte og Friðrik og verið
upptökustjóri hljómsveitarinn-
ar Shakatak. Friðrik hefur ein-
mitt leikið á gítar með Shaka-
tak undanfarin ár en gítarleik-
ari hljómsveitarinnar er ófær
um að leika vegna hrörnunar-
sjúkdóms.
Friðrik ákvað að láta á það
reyna hvort hann gæti fengið
fleiri verkefni í kjölfar þess að
hann lék inn á hljóðrás kvik-
myndarinnar Evitu og kom
fram með Madonnu í þættinum
Top of the pops. Verið er að
færa upp söngleikinn Jesus
Christ Superstar í London og
hefur Friðrik verið ráðinn gítar-
leikari í sýningunni næstu þrjá
mánuði.
Drífa
Sigfúsdóttir.
Jóhannes
Gunnarsson.
Enginn Rússi mætti við sjóprófin
Akureyri. Morgunblaðið.
SKIPSTJÓRNARMENN á frystitogaranum
Baldvini Þorsteinssyni EA-10 telja að rússneski
togarinn Uhle Semyon Lapshenkof MB-0014
hafi brotið alþjóðleg siglingalög þegar hann
keyrði Baldvin uppi með trollið í sjó og dró eig-
ið troll þvert yfir troll Baldvins, og klippt það
aftan úr honum. Þetta kom fram við sjópróf í
Hérðasdómi Norðurlands eystra á föstudaginn.
Enginn rúsneskur fulltrúi var við sjóprófin, en
boði þar um hafði verið komið til rússneska sendi-
ráðsins.
Fram kom í máli Þorsteins Vilhelmssonar
útgerðarstjóra Samheija við sjóprófið að beint
ijárhagslegt tjón fyrirtækisins vegna þessa er
rúmar 2,5 milljónir króna. Aflatjón sem varð
vegna þessa atburðar er ekki tekið með.
Hálfdán Guðmundsson 1. stýrimaður og Guð-
Morgunblaðið/Kristján
ASGEIR Pétur Ásgeirsson dómari skoðar
dagbók Baldvins Þorsteinssonar EA við
sjóprófin í gær. Til hliðar við silja meðdóm-
endur hans, Ólafur Aðalbjörnsson og
Gunnar Arason, skipsljórar. Guðmundur
Þ. Jónsson skipstjóri á Baldvin fylgist með.
mundur Þ. Jónsson skipstjóri báru vitni við sjó-
prófið og töldu þeir að siglingareglur hefðu ver-
ið brotnar, m.a. vegna þess að skipstjórnendur
á rússneska togaranum hefðu ekki sýnt næga
aðgæslu og ekki heldur svarað á neyðarrásinni
16 þegar til þeirra var kallað. Venjan sé sú á
þessu svæði að kalla togara upp á þessari rás
og færa sig svo yfir á aðra bylgju þegar sam-
bandi hefur verið náð.
Þeir Hálfdán og Guðmundur töldu að ekki
hefði verið hætta á ferðinni, en litlu hefði mátt
muna. Fjarlægðin milli skipanna hefði skemmst
verið 0,3 sjómílur og með engu móti verið unnt
að afstýra þessu afviki, um 45 mínútur hefði
tekið að hífa troll Baldvins úr sjó, en fjarlægð
milli togaranna var of lítil til að það hefði verið
hægt.
S-uifkna
námðfia
Utan á stúlkunni hanga samtals
8 kg af matvöru. Eftir 8 vikna
fitubrennslunámskeið er
algengt að konur losni við sama
magn af fitu um leið og þær
byggja upp vöðva og auka þol.
Láttu skrá þig strax í síma
533-3355.
m lituÚ'iemió
(teið:
Hefst 29. apríl
íu-
• Þjálfun 3-5x í viku
• Fræðslu- og kynningarfundur
• Fitumælingar og vigtun
• Matardagbók
• Uppskriftabókin “Léttir réttir,,
150 frábærar uppskriftir
• Mappa m. fróðleik og
upplýsingum
• Mjög mikið aðhald
• Vinningar dregnir út
í hverri viku
• Frítt 3ja mán. kort fyrir
5 heppnar og samviskusamar
Kvöldhópar
Daghópur
Morgunhópur
Framhaldshópur
-fyrir allar þær sem hafa verið
áður á námskeiðunum okkar.
Nýtt fræðsluefni. Mikið aðhald.
Barnagæsla
AGUSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVÍK S. 533-3355