Morgunblaðið - 28.04.1996, Page 2
2 SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skráningargjöld í Háskóla íslands ekki innheimt við skráningu
Menntamálaráðuneytið bíð-
ur afgreiðslu frumvarps
SKRÁNING stúdenta sem lokið hafa árs námi
við HÍ eða lengra stendur nú yfir, en öfugt við
venju er skráningargjald eða ásetningargjald
ekki innheimt við innritun. Þórður Kristinsson
kennslustjóri HÍ segir ástæðu þessa vera þá að
ekki liggur fvrir staðfesting menntamálaráðu-
neytis á því hversu há upphæðin verður, en sam-
kvæmt reglugerð og lögum skólans þarf ráðu-
neytið að staðfesta ákvörðun háskólaráðs um
upphæðina sem innheimt er.
„Skýringin á þessu er einföld, því að nú ligg-
ur fyrir Alþingi frumvarp þar sem verið er að
breyta lögum HÍ og setja þessa upphæð inn í
þau og væntanlega bíður ráðuneytið eftir ákvörð-
un þingsins," segir hann.
Ekki næg stoð til innheimtu
Frá 1992 var fjárveiting til skólans lækkuð
sem nam þeirri upphæð sem síðan átti að inn-
heimta með skrásetningargjöldum.
„Gjaldið hefur verið innheimt síðan, en í lögum
skólans er ekki talin nægjanlega stoð til inn-
heímtunnar. Innheimtan er að vísu lögleg að
okkar mati eins og hún birtist nú, þótt deila
megi um hvort að allir þeir liðir sem eru inni í
gjaldinu megi það og einnig að hluta gjaldsins
er ráðstafað til Stúdentaráðs HÍ. Það er ekki
skýrt að það sé heimilt samkvæmt gildandi lög-
um,“ segir Þórður.
Skráningargjaldið er 24 þúsund krónur sam-
kvæmt ákvörðun háskólaráðs, og renna um 10%
þeirrar upphæðar til Stúdentaráðs. í áliti um-
boðsmanns Alþingis frá maí í fyrra kemur fram
að innheimtuna til Stúdentaráðs skorti lagastoð,
og segir Þórður menn ekki draga það álit í efa.
Reiknað sé með samkvæmt frumvarpinu að
breyting verði gerð á greiðslufyrirkomulagi,
þannig að HÍ myndi géra samning við Stúdenta-
ráð um að sinna ákveðnum verkefnum gegn
greiðslu. Ákveðið hámark verði á þeirri upphæð.
Vont fyrir fjárhag HÍ
„Við getum hins vegar ekki beðið með skrán-
inguna, enda er hún auglýst með árs fyrirvara
og hluti af mikilli skipulagningu innan skólans.
Við innheimtum gjöldin strax og við fáum fýrir-
mæli ráðuneytis um að okkur sé það heimilt.
Þetta kemur sér illa hvað varðar fjárhag skól-
ans, því að þetta eru tekjur sem honum er ætl-
að að afla í þessari mynd og auðvitað versnar
lausafjárstaðan á meðan,“ segir hann.
Þórður kveðst ekki óttast að torveldara verði
að innheimta skráningargjaldið eftir á, sendir
verði út greiðsluseðlar og menn muni þurfa að
greiða meira ef þeir greiða ekki á gjalddaga.
Þrír stúdentar við HÍ neituðu að greiða félags-
gjöld til Stúdentaráðs um áramótin 1993-94, á
þeim forsendum að Háskólann skorti lagastoð
til að innheimta þessi gjöld. Skólinn hafnaði hins
vegar þessari röksemdafærslun nemanna og
greiddu þeir gjöldin að lokum, þar sem þeir töldu
námi sínu stefnt í tvísýnu að öðrum kosti. Glúm-
ur Jón Bjömsson, einn nemanna þriggja, kveðst
líta svo á að háskólayfirvöld hafi fallist á ábend-
ingar þeirra með því að fresta innheimtu innrit-
unargjalda í ár.
SUS á móti frumvarpi
„Yfirvöld HÍ hafa í raun viðurkennt að meint
brottrekstrarsök stúdentanna var á misskilningi
byggð. Háskólayfirvöld hafa hins vegar hvorki
beðið stúdentana afsökunar né boðist til að end-
urgreiða þeim ranglega tekin félagsgjöld til
Stúdentaráðs," segir Glúmur Jón.
Sjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna hef-
ur sent frá sér ályktun þar sem alþingismenn
eru hvattir til að endurskoða ákvæði í frum-
varpi til breytingar á lögum um HÍ. Ungir sjálf-
stæðismenn telja að með því sé skylduaðild að
Stúdentaráði í raun fest í sessi í lögum.
„Með frumvarpinu eru hagsmunir Stúdenta-
ráðs metnir þyngra en þau sjálfsögðu réttindi
fólks að fá að standa utan félaga. Það kemur
ungu sjálfstæðisfólki mjög á óvart ef fjárhags-
legir hagsmunir Stúdentaráðs eru teknir fram
yfír félagafrelsi þeirra sem stunda nám við Há-
skóla íslands,“ segir í ályktun SUS.
Morgunblaðið/Pétur ísleifsson
FJÖLMENNI tók á móti Sunnuberginu í Vopnafjarðarhöfn.
Vopnfírðingar
eignast nótaveiðiskip
Vopnafirði. Morgunblaðið.
Steinsnar milli
tveggja íkveikja
SUNNUBERGIÐ GK 199 sigldi
fánum skreytt í höfn á Vopna-
firði að morgpii sumardagsins
fyrsta. Þar með hafa Vopnfirð-
ingar eignast sitt fyrsta nótaskip
í yfir 20 ár og hyggjast róa á
ný mið á síldar- og loðnuveiðar.
Utgerðarfélagið Bjarnarey
ehf., dótturfyrirtæki Tanga hf. á
Vopnafirði, keypti skipið af út-
gerðarfélaginu Siglubergi hf. í
Grindavík.
Sunnubergið er austur-þýskt
og smíðað árið 1966 en mikið
endurbætt. Skipið hefur verið
fengsælt en sami skipstjóri hefur
siglt skipinu í 18 ár, Magnús
Þorvaldsson. Magnús mun verða
skipstjóri Sunnuberginu og hluti
áhafnar hans fylgir honum í
vopnfirska höfn.
Fjöldi fólks var við athöfnina
þegar skipið var boðið velkomið
til Vopnafjarðar.
ELDUR kom upp í einbýlishúsi í
byggingu í Hafnarfirði í fyrrinótt og
í Mercedes Benz fólksbíl steinsnar
þar frá nokkrum klukkustundum síð-
ar. Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er talið að um íkveikju
hafi verið að ræða í bæði skiptin.
Ungur maður var handtekinn á þeim
stað þar sem eldurinn kom síðar upp
og var í haldi í fyrrinótt en hafði
ekki verið yfírheyrður þegar blaðið
fór í prentun í gær.
Skömmu eftir klukkan 1 í fyrri-
nótt var slökkviliði í Hafnarfírði gert
viðvart um eld í nýbyggingu við
Vesturholt. Að sögn slökkviliðs hafði
greinilega verið kveikt í rusli fyrir
utan húsið. Eldurinn hafði náð að
svíða útveggjagrind og sperrur en
var slökktur á skammri stundu án
þess að stórvægilegt tjón hlytist af,
að mati slökkviliðs.
Skömmu fyrir kl. sex um morgun-
inn sáu lögreglumenn á eftirlitsferð
hvar M. Benz fólksbíll stóð í björtu
KÓPAVOGSLÖGREGLAN handtók
í fyrrinótt tvo menn um fimmtugt
grunaða um innbrot í bíl og reiðhjóla-
þjófnað.
Mennimir, sem eru 51 og 47 ára
gamlir, voru handteknir á Sæbóls-
báli á bílastæði við golfskálann á
Hvaleyrarholti, steinsnar frá götunni
Vesturholti. Að sögn slökkviliðs er
bíllinn, sem er árgerð 1988, mikið
bmnninn og talinn ónýtur.
Handtekinn við staðinn
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er eigandi bifreiðarinnar
búsettur við götuna Vesturholt en
hafði lagt bílnum við golfskálann þar
sem hann komst ekki að húsi sínu
vegna slökkvistarfsins í götunni fyrr
um nóttina.
Við staðinn var ungur maður
handtekinn og færður í fangageymsl-
ur lögreglunnar í Hafnarfírði.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar var maðurinn mjög ölvaður
og voru yfírheyrslur yfir honum ekki
hafnar í gær. Rannsóknarlögregla
ríkisins hefur málið til meðferðar en
vildi ekki staðfesta upplýsingar
Morgunblaðsins um að talið væri að
kveikt hefði verið í á báðum stöðum.
braut um klukkan þijú í fyrrinótt
með fjallareiðhjól sem talið er stolið.
í fórum þeirra fannst tónjafnari og
tónsnælda sem talið er að hafi
skömmu áður verið stolið úr Range
Rover jeppa.
Stálu hjóli og brutust inn í bíl
Ok í veg
fyrir rútu
Laugarvatni. Morgunblaðið.
KARLMAÐUR á níræðisaldri
var fluttur á sjúkrahúsið á Sel-
fossi eftir að fólksbíll og rúta
lentu sanian rétt fyrir ofan
Laugarvatn uppúr kl. 13 í gær.
Hann var ekki talinn í lífshættu.
Slysið varð með þeim hætti
að maðurinn beygði út af hjól-
hýsasvæðinu innan við Laugar-
vatn og í veg fyrir rútuna. Báð-
ir ökumenn stefndu að Laugar-
vatni. Ökumaður fólksbílsins
skarst á andliti' og var fluttur
með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á-
Selfossi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Listahnefinn
mótaður
LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík, einn
helsti menningarviðburður hér-
lendis í ár, nálgast óðfluga og
innlendir sem erlendir lista-
menn eru nú þegar teknir til við
undirbúning fyrir hátíðina. Páll
Guðmundsson frá Húsafelli er
einn þeirra, en hann var önnum
kafinn við að klappa steinhnull-
ung mikinn í líki hnefa þegar
ljósmyndari Morgunblaðsins
sótti hann heim. Höggmynd
þessari á síðan að koma fyrir
hjá Listasafni Sigurjóns Olafs-
sonar.
►Skiptar skoðanir eru uppi um
hvort auka megi hagkvæmni í
mjólkurframleiðslu hér á landi með
því að fá annað kúakyn til fram-
leiðslu en það sem hér hefur verið
frá örófi alda. /10
Hvar var huldumaður-
inn „John Doe 2“?
►Ár liðið frá hryðjuverkinu í Okla-
homa City og enn þykir ýmsum
grundvallarspurningum ósvar-
að. /12
Hef ríka hreyfiþörf
► Bragi Ragnarsson hefur víða
komið við á starfsferli sínum og
ber nú ábyrgð á viðleitni Eimskipa-
félags íslands til að hasla sér völl
í Eystrasaltslöndum og Rússlandi
í harðri samkeppni við önnur al-
þjóðleg stórfyrirtæki. /20
Málning frá Hörpu
í sextíu ár
►í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Helga Magn-
ússon, forstjóra Hörpu. /24
B_________________________
► 1-32
Fuglarnir í fjörunni
►Á Þorvaldsstöðum í Bakkafírði
lærðu krakkamir snemma að
föndra við rekaviðinn. Þar er geymt
merkilegt safn fugla sem einn bróð-
irinn í röð fjórtán systkina tálgaði
úr einni rekaspýtu, en fleiri Þor-
valdsstaðasystkina hafa lagt fyrir
sigtréskurð. /1&15-16-17
Landsbankavíxill
og nautpeningur
►Þegar gefur á virtar stofnanir í
þjóðfélagsumræðunni, er oft holit
að horfa til fortíðar og skoða mál-
in í spéspegli hennar. /4
Synd að ég skyldi
ekki verða píanisti
►Ólafur Gaukur Þórhallsson hef-
ur verið lengi að í íslenskum dæg-
urlagaheimi og enn er hann kom-
inn í sviðsljósið með framlagi okk-
ar íslendinga til söngvakeppni evr-
ópskra úrvarpsstöðva. /8
FERÐALÖG
► U4
Boston
►Margt að sjá í menningar-
borg. /2
Á skíðum á vit
ævintýranna
►Þeir sem hafa gaman af því að
skíða í óhreyfðum snjó, missa af
miklu ef þeir reyna ekki fjallaskíð-
un. /4
D BÍLAR
► U4
Nýr Renault vörubíll
►Frönsku bílaverksmiðjurnar
hafa frumkynnt nýja gerð vöru-
bíla, sem kallast Premium. /1
Reynsluakstur
►Grand Cherokee með viljugri
dísilvél. /4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak Stjömuspá 42
Leiðari 28 Skák '42
Helgispjall 28 Fólk f fréttum 44
Reykjavíkurbréf 28 Bíó/dans 46
Skoðun 30 íþróttif 50
Minningar 33 Útvarp/sjónvarp 52
Myndasögur 40 Dagbók/veður 55
Bréf til blaðsins 40 Mannlífsstr. 6b
ídag 42 Kvikmyndir 12b
Brids 42 Dægurtónlist 14b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1&6