Morgunblaðið - 28.04.1996, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 28.04.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1996 21 höfuðborginni Riga. Aðeins um 54% íbúa landsins eru Lettar. Meginþorrinn er af rússnesku bergi brotinn. Bragi segir að Eyst- rasaltsþjóðirnar hafi að sjálfsögðu verið mjög uggandi um nýfengið sjálfstæði sitt og viljað koma fyrr- um hermönnum frá Rússlandi í burtu hið snarasta. Þeir hafí hins- vegar hvergi viljað hreyfa sig, enda virtust þeir þó hafa _______ það skömminni skárra í Eystrasaltsríkjunum en heima hjá sér. Auk þess væru nú heilmikil tengsl orðin milli þjóða fyrrum Sovétríkjanna, við- skiptaleg jafnt sem per- sónuleg. „Það er ekkert að því að búa í Riga, ekki ósvipað og í hverri annarri vest- rænni stórborg. Það err nóg til af öllu og enginn skortur á neinu, að vísu ekki á verði, sem hinn venjulegi heimamaður ræður við,“ segir Bragi. „Þeir virðast samt ekki líða skort, en sætta sig við allt aðrar kröfur en við myndum gera. Til dæmis er heilmikill mat- annarkaður í höfuðborginni þar sem heimamenn versla mikið sínar nauðsynjavörur. Þar kostar kjötið lítið sem ekkert, en er að sama skapi ekkert sérlega lystugt á að líta. Sömuleiðis hef ég enga trú á því að glæpatíðni sé meiri þarna en gengur og gerist annars stað- ar. Það er brotist jafnt inn í hús í Riga og á íslandi." Efnahagur í molum Nýfijáls lýðveldi fyrrum Sovét- ríkjanna urðu að horfast í augu við geysilegan efnahagssamdrátt fyrstu árin, en eru nú, að sögn Braga, á uppleið, þó hægt miði. 2% aukningu í þjóðarframleiðslu er t.d. spáð í Lettlandi á árinu og mun það vera í fyrsta sinn sem spáð er aukningu. Þá hafa Lettar verið að kljást við óðaverðbólgu, sem að vísu hefur verið að potast eilítið niður á við. Hún var 24% í fyrra en er áætluð 18% í ár. Hins- vegar hafa Eystrasaltsþjóðirnar rígbundið sína gjaldmiðla við trausta gjaldmiðla annars staðar og ekki hvikað frá þeirri stefnu, á hveiju sem hefur gengið. Þannig hafa Lettar bundið sinn gjaldmiðil við dollar, Eistar við þýskt mark og Litháar við SDR. „Þetta hefur þótt nokkuð sérstakar aðgerðir, en þeir hanga á þessu einhvern veginn og eru mjög staðfastir í að ná tökum á verðbólgunni og forðast kollsteypur. Útflutningur landanna þriggja er mjög takmarkaður. Efnahagur þeirra er allur stílaður á innflutn- ing og því yrði gengisfelling mjög afdrifarík þó maður átti sig ekki í fljótu bragði á hvernig hægt er að halda útflutningnum gangandi við þessar aðstæður. Ríkisfjármál eru í molum og skattheimta hefur ekki verið merkileg, enda ekki af miklu að taka, hvorki af fólki né fyrirtækjum. Fjárlög Letta svara í ár til um 55 milljarða ísl. kr., sem er um helmingur af íslensku fjár- lögunum. Fjárlagagatið í fyrra var um 25% en spáð er minni halla í ár. Ólíku er hinsvegar saman að jafna í íbúatölu landanna, því í Lettlandi búa tífalt fleiri en á ís- landi. Þjóðin er ágætlega menntuð og vísir að velferðarkerfi er í Lett- landi, þar sem eftirlaun frá ríkinu nema 60 dollurum á mánuði, eða um fjórum þúsundum ísl. _________ kr., en ég sé ekki í hendi mér hvernig fólk lifir af því. Það þarf greinilega eitthvað annað að koma til.“ Oft lauk þessum verk- efnum með því að einhver stal öllum peningunum og hvarf Fjölbreyttur ferill Bragi, sem er fæddur og uppalinn Isfirðingur, útskrifaðist frá Samvinnuskólan- um árið 1962 og hóf sinn starfs- feril með því að vinna við innflutn- ing og heildsölu um nokkurra ára skeið. Hann tók að sér fram- kvæmdastjórastöðu hjá Sandfelli á ísafirði, gamalgróinni heild- verslun þar í bæ, og var síðan framkvæmdastjóri hjá Kristjáni Ó. Skagfjörð 1970-78, sem voru bæði viðburðarík og skemmtileg ár og starfsmannafjöldinn 60-70 manns. Á Skagfjörðs-árum, öllu heldur í kjölfar Vestmannaeyjagoss 1973, setti hann á fót flugfélagið BR ________ Útsýnisflug, sem hann rak að mestu í rassvas- anum, eins og hann orð- ar það, til að virkja túr- istana og var með fjölda leiguvéla í rekstri um sumarið. Bragi átti eina vél sjálfur, enda með átvinnuflugmannsrétt- indi. „Ég var með leigu- flug út um allar trissur og ég ímynda mér að þetta hafi verið upphafið að flugrekstri Sverris Þóroddssonar, sem tók upp þráðinn þegar ég hætti.“ Árið 1978 tók Bragi til við eig- in rekstur ásamt eiginkonu sinni Jónínu Gissurardóttur. Fyrirtækið kölluðu þau Handíð, sem var til húsa á Laugavegi 26, í núverandi húsnæði Menningarstofnunar Bandaríkjanna. „Við vorum með innflutning, heildsölu, smásölu og kennslustarfsemi á tómstundavöru alls konar, fyrir karla, konur og börn. Þetta var ekki síður skemmtilegt og gekk vel.“ í árs- byijun 1981 ákvað fjölskyldan að söðla um svo um munaði, eftir að Bragi hafði rekið augun í auglýs- ingu í Mogganum um þróunarstörf í Afríku á vegum Þróunarsam- vinnustofnunar Dana, Danida, sem margir íslendingar hafa unnið fyrir. „Ég sótti um, en átti auðvitað aldrei von á því að fá starf þarna, en þegar okkur bauðst að fara til Tansaníu, ákváðum við að láta reyna á það hvort við gætum selt fyrirtækið. Settum á það ágætis verðmiða og í ljós kom að við seld- um það á verði, sem við gátum sætt okkur við, enda gekk fyrir- tækið mjög vel,“ segir Bragi og ekki er laust við að það örli á eilít- illi eftirsjá í augnaráðinu sem á eftir kemur, enda viðurkennir Bragi að sá rekstur, sem hann hafi staðið að sjálfur, standi upp úr á ferlinum hvað varði skemmti- legheit og reyndar blundi einka- framtakið ennþá í honum. Erfitt og skemmtilegt Hann segir Tansaníuárin, 1981-83, hafa verið skemmtileg, en erfið á vissan hátt og loftslagið þreytandi til lengdar. „Við fórum út með börnin okkar tvö, Finn Tjörva og Bryndísi Ástu, sem þá voru tveggja og þriggja ára. Bjuggum fyrra árið í fjallabænum Mbeya í 1.800 metra hæð yfir sjáv- armáli, þar sem loftslag var mjög ákjósanlegt, en það síðara niður við Indlandshaf í bæ, sem heitir Tanga. Þar var feikilegur hiti, 35 stig að jafnaði og rakt allan sólar- hringinn, lítil loftkæling í híbýlum og pestir og flugnabit daglegt brauð, þó ekkert alvarlegt hafi svo sem hent okkur. Ég hafði því starfi að gegna að vera ráðgjafí og átti að hjálpa heimamönnum við að koma á fót atvinnustarfsemi með samvinnu- sniði. Þetta var mjög frumstætt allt saman. Ungir menn, sem höfðu einhveija barnaskólamennt- un og þóttu efnilegir, voru gjarnan __________ teknir og þjálfaðir upp til að reka tiltekna starfsemi; þreski- myllu, vörubíl eða þorpsverslun, sem var mjög vinsælt viðfangs- efni. Oft lauk þessum verkefnum með því að einhver stal öllum pen- ingunum og hvarf. Sér Það er auð- vitað dálítið frumstætt að vinna við svona að- stæður í lagi kom þetta illa við þá banka- starfsemi, sem verið var að reyna að koma á fót, fá þorpsbúa til að spara og leggja inn. Það er auðvit- að erfltt að fá fólk til að trúa á þróun þegar .svona „óhöpp“ eiga sér stað án þess að nokkur fái rönd við reist. Það verður aðeins til þess að drepa niður allan vilja til að gera nokkuð." Uppbygging í Rotterdam Farangur Braga og fjölskyldu var vart kominn til landsins frá Tansaníu árið 1983 þegar honum bauðst á ný starf í útlöndum og þá kynntist hann fyrst skipa- rekstri. Hann minnist þess að hafa verið kallaður í símann þar sem hann var staddur í flugturn- inum á Akureyri að ganga frá flugáætlun, enda vann hann þetta sumar í leiguflugi. Á hinum end- anum var Björgúlfur Guðmunds- son, forstjóri Hafskips, og honum lá mikið á. „Spurði hvort ég gæti hitt sig í hvelli, því hann ætlaði að bjóða mér starf við að setja upp skrifstofu Hafskips í Rotterd- am.“ Því boði tók Bragi, hélt utan á ný með fjölskylduna og stjórnaði svæðisskrifstofu Hafskips í Hol- landi allt til endaloka fyrirtækisins og var síðan ráðinn til að stýra svæðisskrifstofu samkeppnisaðil- ans, Eimskips, í sömu borg árið 1986. „Hafskipsmenn voru með ýmsar samsæriskenningar um að fjölmiðlar og vondir keppinautar hefðu stuðlað að falli þess. Ég hef hinsvegar aldrei trúað á þá kenn- ingu,“ segir Bragi aðspurður um skýringar hans á gjaldþroti skip- afélagsins. „Að mínu mati réðu menn stjórnunarlega séð ekki við þann öra vöxt, sem varð í félag- inu. Hafskip óx með öðrum orðum of hratt.“ Fjölskyldan ákvað að flytja heim árið 1988 svo að börnin, sem þá voru orðin 10 og 11 ára, fengju loks að kynnast heimalandinu og íslenska skólakerfinu. Sömuleiðis fannst eiginkonunni komin tími til að gera eitthvað að viti fyrir sig. Hún dreif sig í Háskólann eftir heimkomuna og lauk BA-prófi í félagsfræði árið 1993. Bragi tók við framkvæmdastjórn Hafnar- bakka hf., sem Eimskip stofnaði 1988 til að annast innflutning og dreifingu á salti, auk þess sem hann hefur tekið virkan þátt í uppbyggingu innlendra fiskmark- aða. Hringurinn á hjóli Hreyfiþörf Braga er hinsvegar ekki aðeins bundin við starfið. Hún á sér ekki síður rót í þeim tóm- stundum, sem hann velur sér. Þeirri þörf er fullnægt með hlaup- um, sundi og síðast en ekki síst hjólreiðum, en hjólið segist hann hafa uppgötvað á Hollandsárun- um. Síðan hefur Bragi vart getað látið ósnertan vegarspotta á ís- landi og á það ekki síst við um hálendisvegina, sem hann hefur mikla unun af að ferðast um einn síns liðs með útilegugræjurnar á hjóli úti í guðs grænni náttúrunni. Þessi ferðamáti er fremur ólíkur íslendingum, enda segist Bragi gjarnan vera ávarpaður á ensku af samlöndum sínum þar sem hann hafí viðcftöl á hjólaferðalögunum eins og hver annar snaróður út- lendingur. Bragi tók jafnframt upp á því fyrir fimm árum, skömmu fyrir fimmtugt, að hjóla hringinn í kringum landið. „Ég var svo sem ekkert að flýta mér, heilsaði upp á vini og kunningja á leiðinni og tjaldaði litla tjaldinu mínu um nætur þar sem ég sef éins og engill. Ætli ég hafi ekki verið eina ellefu daga á leiðinni, með stífa norðaustanátt í fanginu alla leiðina til Blönduóss, en skaplegra veður eftir það. Þetta var stór- skemmtilegt ævintýri.“ Hann seg- ir að í Riga sé aðstaða til hjól- reiða ekki góð. Aftur á móti hafi hann fundið sér ágætis. líkams- ræktarstöð ytra þar sem hann lyfti lóðum og stundi þolæfingar af kappi á meðan hann komist ekki á íslenska hálendið. Þannig sé líkamlegri hreyfiþörf svalað að sinni. Sýningargluggi til leigu við Laugaveg. Upplýsingar I síma 553 7680 kl. 10 —12. Ék IIII MIPII ABB ráðstefna á íslandi: Uppbygging raforkukerfa Þriðjudaginn 7. maí 1996 í Háskólabíói sal 4 Dagskrá: 14:00 ABB og alþjóðleg orkumál Per Hedvall aðst.forstj. ABB í Svíþjóð 14:30 Nútíma raforkukerfi (Panorama) Bertil Lundqvist & Jarmo Pöhö svœðisstjórar hjá ABB Network Partner 15:20 Hlé 15:35 Alútboðsverkefni Bengtáke Carlsson markaðsstjóri hjá ABB Substations 16:10 Fjármögnun stórra verkefna Carl Engelberth forstjóri ABB Project & Trade Finance 16:50 Pallborðsumræður 18:00 Léttar veitingar Erindin verða flutt á ensku. Þátttökugjald er kr. 7.000,- Innifalið: ráðstefnugögn, kaffi og lcttar veitingar. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 1. maí í síma 568 4000. ABB er alþjóðleg fyrirtcekfasamsteypa með 2.300 milljarða krótia ársveltu og 210.000 starfsmenn. Viðskiptavinir ABB er aðilar í raforkuframleiðslu, raforkuflutning og dreifingu, bitaveitum, iðtiaði og almenningssamgöngum. Umsjón með ráðstefnunni hefurfohan Rönning hf aðalumboðsaðili ABB á íslandi. JOHAN RÖNNING HF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.