Morgunblaðið - 28.04.1996, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
I
LISTIR
TONLIST
F c 11 a - « g llólakirkja
KÓRSÖNGUR
Rarik-kórinn og Lögreglukórinn í
Reykjavík fluttu íslensk og erlend
söngverk. Stjórnendur voru Violeta
Smid og Guðlaugur Viktorsson en
undirleik annaðist Pavel Smid. Síð-
asti vetrardagur, miðvikudagurinn
24. aprfl, 1996.
SONG-
GLEÐI
TÓNLEIKARNIR hófust á því
að Lögrelukórinn söng Þakkarbæn
(höfundur ekki tilgreindur í efnis-
skrá), er kórinn söng við undirleik
Pavel Smid á orgel kirkjunnar. Lag-
ið hefst á veikum einrödduðum söng
og við hvert erindi óx hljómur kórs-
ins en aðeins undir það síðasta, í
niðurlaginu var sungið raddað. Það
kemur á óvart hversu kórinn er vel
samæfður og kom það einkar vel
fram í lögum eins Hver á sér fegra
föðurland eftir Emil Thoroddsen og
í meistaraverki Þórarins Jónasson-
ar, Ár var alda, sem var sérlega
vel sungið. Lífið hún sá í ljóma
þeim eftir Inga T. Lárusson var vel
sungið en það vantaði nokkuð á
festu í Veiðimannakórinn, úr Töfra-
skyttunum eftir Weber, sérstaklega
í viðlaginu. Lögreglukórinn hyggur
á ferð til Norðurlanda og söng því
nokkur skandinavísk lög eftir
Weise, Ring, Gustav Svíaprins,
Söngkveðjuna eftir Grieg og þjóð-
söng Norðmanna. Auk þessa voru
sungin tvö lög úr bandarískum
söngleikjum Don’t fence me in, eft-
ir Porter og There’s no business
like show business, eftir Berlin.
Lögreglukórinn söng skandinavísku
lögin af þokka og amerísku lögin
hressilega og með töluverðri hryn-
skerpu. Það er auðheyrt að Guð-
laugur Viktorsson er laginn kór-
stjóri og bar söngur kórsins þess
glögg merki, að vel hafði verið æft.
Rarik-kórinn er einn af þessum
starfsmannakórum, sem hafa á
Siemens
SIEMENS
Þvottavél
Við bjóðum nú þessa annáluðu
gæðavél (WM 21) á hreint ótrú-
legu verði. Þetta tilboð verður
vart slegið út í bráð.
Vélin hefur mörg þvottakeríi,
stiglaust val á hitastigi að 95° C
og stiglausa stillingu á þeyti-
vindu frá 500-800 sn./mín.
Sérstök kerfi fyrir ull og
viðkvæmt tau.
Staðgreiðsluverð:
49.900 kr.
Frystiskápar
GS 21B04:169 I nettó.
Staðgreiðsluverð:
54.900 kr.
GS 26B04: 210 I nettó.
Staðgreiðsluverð:
59.900 kr.
GS 30B04EU: 250 I nettó.
Staðgreiðsluverð:
64.900 kr.
Umboðsmenn okkar á landsbyggðinni eru:
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs • Borgarnes: Glitnir • Borgarfjörður:
Rafstofan Hvítárskálct • Snæfellsbær: Blómstun/ellir • Grundarfjörður:
Guðni Hallgrímsson • Stykkishólmur: Skipavík • Búðardalur: Asubúð
• ísafjörður: Póllinn • Hvammstangi: Skjanni • Sauðárkrókur: Rafsjá
• Siglufjörður: Torgið • Akureyri: Ljósgjafinn • Húsavík: Öryggi
• Þórshöfn: Norðurraf • Vopnafjörður: Rafmagnsv. Árna M.
• Neskaupstaöur: Rafalda • Reyðarfjöröur: Rafmagnsv. Áma E.
• Egilsstaöir: Sveinn Guðmundsson • Breiðdalsvík: Stefán N. Stefánsson
• Höfn í Hornafiröi: Króm og hvítt • Vík í Mýrdal. Klakkur
• Vestmannaeyjar: Tréverk • Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga
• Hella: Gilsá • Selfoss: Árvirkinn • Grindavík: Rafborg
• Garður: Raftækjav. Sig. Ingvarss. • Keflavík: Ljósboginn
• Hafnarfjörður: Rafbúö Skúla, Álfaskeiöi.
SMUH & NORLAND
Nóatúni 4 ■ Sími 511 3000
undanförnum árum látið æ meira
að sér kveða og er það án alls vafa,
að gæfan hefur fært þeim góðan
og laginn kórstjóra, sem er Violeta
Smid. Svo sem eins og í Lögreglu-
kórnum, þá er ekki hægt að veija
sér þjálfað söngfólk en það hefur
sýnt sig, að laginn kórstjóri getur
skapað góðan kór úr hópi lítt þjálf-
aðra söngvara. Rarik-kórinn hóf
söng sinn á vinsælum lögum, fyrst
tveimur lögum eftir Oddgeir Krist-
jánsson, Blítt og létt og Ágústnótt,
þá einu eftir Sigfús Halldórsson,
Þín hvíta mynd og eftir Friðrik
Jónsson, Við gengum tvö. Fyrir
utan það að raddsetningin á Blítt
og létt er ópassandi fyrir lagið og
var ekki reglulega vel sungin, voru
hin lögin sungin af þokka og lag
Sigfúsar reyndar best. Sönggleðin
réð ferðinni í rússneska þjóðlaginu
Kalinka og sama má segja um flutn-
inginn á Pilturinn og stúlkan en það
vantaði meiri þunga í söng Odi et
amo, (Hatur og ást) eftir Carl Orff.
Laudate domino, eftir Mozart er
falleg tónsmíð og var hún sungin
af þokka, séstaklega af einsöngvar-
anum Guðrúnu Lóu Jónsdóttur.
Hún söng einnig, ásamt Inga Ingi-
mundarsyni, einsöng í lagasyrpu
úr Sardasfurstynjunni, sem var
flutt í raddsetningú Magnúsar Ingi-
marssonar. En þar, og í lokaverk-
efni Rarik-kórsins, lagsyrpunni
Faðmlög og freyðandi vín, eftir
Winkler, var sönggleðin ráðandi.
Tónleikunum lauk með samsöng
kóranna í tveimur lögum, fyrst
Tröllaslag og síðan (höfundarlaus-
um) polka. Það er auðheyrt að söng-
stjórarnir hafa gott lag á að þjálfa
söngfólk og söngfólkið nýtur þess
að syngja, svo að tónleikarnir í
heild voru hin besta skemmtan.
Pavel Smid lék með af öryggi og
var sama hvort viðfangsefnið var
evrópsk skemmti- og óperutónlist
eða djössuð bandarísk söngleikja-
tónlist.
Jón Ásgeirsson
Listaklúbbur
Leikhúskjallarans
Leikhús-
tónlist
Hugleiks
í LISTAKLÚBBI Leikhúskjallar-
ans verður nk. mánudagskvöld,
29. apríl, flutt söngdagskrá sem
hefur hlotið nafnið „Ég held ég
sé að bresta í söng“.
Hérna eru á ferðinni félagar í
leikfélaginu Hugleik með söngva-
og tónlistardagskrá sem krydduð
er leikrænu ívafi. Hugleikur er
áhugaleikhópur og leiksmiðja sem
starfað hefur í Reykjavík í rúman
áratug. Á hans vegum hafa árlega
verið sviðsett eitt eða fleiri verk
sem samin eru innan leikhópsins.
Mörg þeirra hafa síðan verið sett
upp af öðrum leikfélögum um land
allt. Eitt af einkennum þessara
leikrita er að þar er jafnan mikið
um söng, dans og hjóðfæraslátt.
Lög og textar eru öll úr smiðju
Hugleiks eins og annað sem hóp-
urinn færir upp.
Sýnishorn
Dagskráin sem flutt verður í
Leikhúskjallaranum er sýnishorn
af því sem bruggað hefur verið í
áranna rás. Þar verður boðið upp
á einsöng, tvísöng, tríó, kvartetta,
kóra og eina óperu. Söngvararnir
eru fleiri en upp verða taldir.
Hljómsveitina skipa Ármann Guð-
mundsson, Fríða B. Andersen,
Gísli Víkingsson og Þorgeir
Tryggvason. Árni Hjartarson ann-
ast undirbúning dagskrár en kynn-
ir er Sigrún Valbergsdóttir. Dag-
skráin hefst um kl. 20.30.
Sólarmegin í
Gerðarsafni
SÖNGHÓPURINN Sólarmegin
frá Akranesi heldur tónleika í
Gerðarsafni, Kópavogi, þriðju-
daginn 30. apríl nk. kl. 20.30.
A efnisskrá eru innlend og
erlend lög, m.a. íslensk þjóðlög,
dúettar og kvartettar. Sönghóp-
urinn hefur sungið saman í sex
ár og komið víða fram bæði inn-
anlands og utan. Þetta eru síð-
ustu tónleikar hópsins á þessu
vori en sönghópurinn vinnur nú
að upptöku á geisladiski. Söng-
stjóri er Guðmundur Jóhannsson
og undirleikari Anna Snæbjörns-
dóttir.
Danssýning í Is-
lensku óperunni
DANSSÝNING verður haldin í ís-
lensku óperunni í tilefni af alþjóða
dansdeginum mánudaginn 29. apríl
kl. 20.
Alþjóðlegi dansdagurinn er hald-
inn hátíðlegur um allan heim og af
því tilefni verður settur á svið dans-
fögnuður ungra dansara í íslensku
Óperunni. Þar verður sýndur ballett,
jazzdans, samkvæmisdansar, nú-
tímadans og fleira. Dans er stór hluti
af menningarlífi allra þjóða og því
mikilvægt að fagna þessum degi.
Stjórnandi sýningarinnar er David
Greenall listdansari. Allur ágóði
rennur í menntunarsjóð dansara.
Fram koma dansarar úr eftirtöld-
um skólum:
Listdansskóla íslands, Jazzballett-
skóla Báru, Dansskóla Sigurðar Hák-
onar, Danssmiðju Hermanns Ragn-
ars. Einnig koma fram dansarar úr
íslenska dansflokknum.
Miðasala er í öllum ofangreindum
skólum. Miðasala Óperunnar er op-
inn sunnudaginn 28. apríl og mánu-
daginn 29. apríl frá kl. 12 fram að
sýningu.
4&
hcui&iuiÁi
Þúsundir kvenna þekkja SL TPA krentið.
Nú bjóðum við þeim og nýjutn viðskiptavinum
einstakt tilboð. Með hverri SL TPA 50 ml
kremkrukku fylgir glœsilegur kaupauki:
i Augnskuggar, tveir saman
I Vcrrcilitur
i Nctglalakk
Verðmœti kaupaukans er ca. 2.950 kr. • Gildir nteðan birgðir endast.
Andorra, Hafnarfirði; Ársól, Grímsbæ; Bylgjan, Kópavogi; Brá, Laugavegi; Clara, Kringlunni; Snyrtivöruv. Glæsibæ; Hygea, Austurstræti;
Sara, Bankastræti; Spes, Háaleitisbraut; Amaró, Akureyri; Bjarg, Akranesi; Apótek Ólafsvíkur; Hllma, Húsavlk; Krisma, ísafirði;
Libia, Mjódd; Mosfellsapótek; Ninja, Vestmannaeyjum. , ____, ___________
l
I
\
l
I
I
I
t
.
I
.
r
I
|
«