Morgunblaðið - 28.04.1996, Page 34
34 SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,-
amma og langamma,
MÁLFRÍÐUR GUÐNÝ GÍSLADÓTTIR,
Droplaugarstöðum,
áðurtil heimilis
á Hagamel 38,
sem lést mánudaginn 22. apríl, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudag-
inn 30. apríl kl. 15.00.
Gísli Gunnarsson, Sigríður Sigurbjörnsdóttir,
Vilborg Gunnarsdóttir, Hilmar Þór Sigurðsson,
Guðfinna Gunnarsdóttir, Torfi Gunnlaugsson,
Skarphéðinn Gunnarsson, Kolbrún Sigurðardóttir,
Guðbjörg Gunnarsdóttir, Guðmundur Vilhjálmsson,
Jóhannes Gunnarsson, Sigþrúður Sigurðardóttir,
Þóra Guðný Gunnarsdóttir, Jónbjörn Pálsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓN ÁSTVALDUR HELGASON,
Ásbraut 9,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Breiðabólstaðar-
kirkju, Fljótshlíð, þriðjudaginn 30. april
kl. 14.00
Kristfn Ingimundardóttir,
Óli Þór Ástvaldar, Guðfinna Nývarðsdóttir,
Sóley Ástvaldar, Ágúst Ingi Ólafsson,
Ragnar Ástvaldar, Guðrún Bergmann,
Viðar Þór Ástvaldar, Jóhanna Ósk Pálsdóttir,
Finnbogi Arnar Ástvaldar,
Sigurður Rúnar Ástvaldar,
Inga Arnórsdóttir,
afabörn og langafabörn.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
JÓNLÍNA jVARSDÓTTIR
frá Reyðarfirði,
síðasttil heimilis á Hrafnistu,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðar-
kirkju þriðjudaginn 30. apríl kl. 13.30.
Bjarni Þórarinsson,
Þóranna Þórarinsdóttir,
Ásdfs Þórarinsdóttir,
Óskar Þórarinsson,
ívar I. Þórarinsson,
Þórir Þórarinsson,
Valur Þórarinsson,
barnabörn, barnabarnabörn
Svanhildur Jónsdóttir,
Bjarni Björgvinsson,
Gunna S. Kristjánsdóttir,
Marfa H. Jónsdóttir,
Kristín Elfdóttir,
Ólaffa Andrésdóttir,
og barnabarnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okk-
ur samúð og vináttu við andlát eigin-
manns míns,
KJARTANS BENJAMÍNSSONAR,
Ásgarði 109,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til Jóns Hrafnkelsson-
ar, læknis, hjúkrunarþjónustu KARITAS
og starfsfólki 11-E, Landspítalanum fyr-
ir góða umönnun og hlýhug.
Lilja H. Guðnadóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okk-
ur samúð og vináttu við andlát og útför
elskulegs sonar míns, bróður okkar,
barnabarns, barnabarnabarns og
frænda,
ÓLAFS BERGMANNS ÓMARSSONAR,
Hólmgarði 7,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Aðalbjörg Ólafsdóttir,
Sara Dögg Ómarsdóttir,
Hörður Freyr Harðarson,
Arinbjörn Harðarson,
Ólafur Bergmann Ásmundsson, Málfríður Ó. Viggósdóttir,
Helga Ósk Kúld, Stefán Brynjólfsson,
Sverrir Svavarsson, Sigrún Halldórsdóttir,
Sigurlfn Ester Magnúsdóttir,
Rósinkrans Kristjánsson
Arinbjörn Kúld, Ásmundur Bjarnason,
Magnea Sigurðardóttir
og aðrir aðstandendur.
GUÐJÓN
STEINGRÍMSSON
+ Guðjón Steingrímsson, raf-
virkjameistari, var fæddur
á Eyrarbakka 2. desember
1917. Hann lést á sjúkrahúsi í
Kaupmannahöfn 12. apríl síð-
astliðinn og fór útför hans
fram frá Fossvogskirkju 26.
apríl.
„Hvem vildir þú eiga fyrir
pabba, ef okkar pabbi væri dáinn?“
spurði Jón Sverrir bróðir minn. Við
vorum 5 og 6 ára, hann eldri og
vitrari. Við veltum þessu nokkra
stund fyrir okkur, það var um
ýmsa að velja að okkar mati, þeir
voru margir kallarnir í Soginu, sem
við höfðum dálæti á og virtust
hafa dálæti á okkur krökkunum,
allavega fengum við að reyna
ýmislegt sem líklega væri bannað
í dag, svosem að sitja undir stýri
á „dumptor" eða stórum trukk,
auðvitað á hnjánum á viðkomandi
ökumanni, eða á sama hátt aka
einhverri drossíunni, og þá var það
sem við systkinin urðum sammála
um staðgengil pabba, ef út í þá
sálma færi: Guðjón. Hann átti
flottustu drossíuna, hann var alltaf
svo góður og skemmtilegur og svo
var hann líka langfallegastur af
þeim öllum! Jón Sverrir bróðir minn
naut því miður ekki gæsku Guð-
jóns nema u.þ.b. eitt ár eftir þess-
ar heimspekilegu umræður, því
hann fórst í umferðarslysi aðeins
7 ára gamall, en ég hef átt því
láni að fagna að eiga hann að vini
það sem sem af er minni ævi. Ég
kom seinast til hans í endaðan
febrúar sl. í notalega húsið hans á
Folemarksvej í Brondby við Kaup-
mannahöfn. Mér varð þá ljóst að
hann kæmi ekki aftur heim í þessu
lífi, eins og við höfðum vonað, en
hann var sáttur við lífið og tilbúinn
að kanna nýjar slóðir. Við áttum
saman ómetanlegan tíma, töluðum
um gömlu dagana og skoðuðum
myndir, hringdum heim til íslands
og spjölluðum við þá sem hann
taldi sig hafa vanrækt, því skamm-
tímaminnið var farið að hrella hann
ofurlítið. Eins var hann áfjáður í
að heyra álit mitt á framhaldslífi
og öðrum andlegum málefnum, og
við bundumst því heiti, að hvort
okkar sem á undan færi, léti hitt
vita. Ég þarf varla að taka fram
að hann gaf mér vísbendingar
strax, og hefur sýnt mér á ótvíræð-
an hátt síðan, að það er leikur einn,
því hann hafði hvað mestar
áhyggjur af því að hann myndi
ekki geta lært þá kúnst strax.
Guðjón var mikill vinur foreldra
minna og kom oft til þeirra í Hvera-
gerði, ýmist einn eða með strákana
sína. Éinhvemveginn urðu þessir
strákar, Hilmar, Magnús og Stein-
grímur, að „bræðrum“ okkar
systkina og litu gjarnan inn til
Öllu Möggu og Árna, án þess að
hafa pabba „gamla" í eftirdragi.
Tvö yngri systkini fæddust síðar,
Sigríður og Ingólfur Sverrir, en
yngsta soninn, Kjartan, eignaðist
hann í Danmörku. Mér er minnis-
stætt eitt atvik sem gerðist rétt
fyrir ferminguna mína. Guðjón
hafði eflaust grunað að efnahagur-
inn væri ekki allt of góður hjá for-
eldrum mínum, því hann keypti
handa mér fermingarskóna, og þá
ekki af lakara taginu í Danmörku.
Það var vitanlega stór stund fyrir
mig að fá splunkunýja skó, alla
leið frá útlöndum og svo voru þeir
miklu flöttari (fannst mér) en allir
aðrir skór. Svona stundir geymast
í minningunni.
Eftir að Guðjón flutti til Dan-
merkur höfum við haft mismikið
samband, en alltaf samband. Ég
hef komið alloft til hans, stundum
rétt litið inn og stundum dvalið
lengur, eftir ástæðum. Eftir að ég
sjálf flutti til Danmerkur náðum
við upp góðum „dampi“ í gegn um
símann og áttum oft langar sam-
ræður. Ekki vorum við nú alltaf
sammála um allt, og Guðjón hefur
eflaust talið sig hafa fullan rétt
sem „aukapabbi" að segja mér til
syndanna, þegar honum þótti það
eiga við, og mér fannst það hið
besta mál, enda skildum við ævin-
lega sem vinir, hvernig sem um-
ræðurnar á undan voru. Þegar for-
eldrar mínir svo fluttu til Dan-
merkur árið 1990, hófst nýtt og
skemmtilegt tímabil hjá þeim og
Guðjóni, þar sem þau gátu ræktað
gömlu vináttuna vel og dyggilega.
Við bjuggum á Norður-Jótlandi og
Guðjón var í Koben, svo það var
e.t.v. ekki svo auðvelt að skreppa
í heimsóknir, en þó urðu þau nokk-
ur skiptin sem mamma og pabbi
dvöldu hjá Guðjóni, og hann tók
t.d. síðustu myndina af þeim sam-
an, skömmu áður en pabbi féll frá
í ágúst 1993. Eftir lát pabba sýndi
Guðjón okkur sem eftir vorum,
fádæma alúð og ræktarsemi og var
mömmu mikill styrkur, sérstaklega
eftir að ég lenti í alvarlegu umferð-
arslysi, daginn eftir bálför pabba.
Það verður aldrei fullþakkað.
Nú er vinur niinn kominn heim.
Við systkinin og mamma vottum
öllum aðstandendum og fjölskyldu
Guðjóns Steingrímssonar okkar
dýpstu hluttekningu. Megi minn-
ing hans lifa.
Bergþóra Árnadóttir.
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík • Sími 553 1099
Opið öll kvöld
til kl. 22 - cinnig um helgar.
Skrcytingar fyrír öll tílcfni.
Gjafavörur.
t
TRYGGVI EMIL GUÐMUNDSSON
Hrafnistu,
Reykjavik,
lést þann 15. apríl.
Útförin hefur farið fram.
Aðstandendur.
t
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem
vottu.ju okkur samúð og minntust hinn-
ar látnu móður okkar,
KRISTÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Mánabraut 6a,
Akranesi.
Farsæld og friður fylgi ykkur.
Soffía Karlsdóttir,
Ólína Björnsdóttir,
Þórhallur Björnsson.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim,
sem auðsýndu okkur hlýhug og samúð
við fráfall og útför
ÓLAFS E. ÓLAFSSONAR
fyrrverandi kaupfélagsstjóra
frá Króksfjarðarnesi,
Dalalandi 10.
Sérstakar þakkir sendum við öllu því
góða starfsfólki á deild A-3, Borgarspít-
alanum fyrir mjög góða umönnun og
alúð í garð hins látna og fjölskyldu hans.
Friðrikka Bjarnadóttir,
Bjarni Ólafsson, Rannveig Guðmundsdóttir,
Bjarney Ólafsdóttir, Richard A. Hansen,
Ólafur Elías Ólafsson, Guðrún Gunnarsdóttir,
Jón Sigurður Ólafsson, Caroline Nicholson,
Dómhildur Ingibjörg Ólafsdóttir, Jón Hilmar Friðriksson,
Þóra Sigríður Ólafsdóttir, Páll Már Pálsson,
barnabörn og langafabarn.