Morgunblaðið - 08.05.1996, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 1996 17
ERLENT
Reuter
Verkfall boðað í Finnlandi vegna sparnaðaraðgerða
Deila stj órnvalda og
launþega maguast
Helsinki. Morgunblaðið.
ALÞÝÐUSAMBANDIÐ í Finnlandi
(SAK) boðaði á mánudag til verk-
falls um óákveðinn tíma í helstu
útflutningsfyrirtækjum fatlist
stjómvöld ekki á að afturkalla
frumvarp um niðurskurð og sparn-
að í ríkisrekstri.
Verkfallið mun hefjast á mið-
vikudag í næstu viku hafi ríkis-
stjórnin þá ekki tekið til baka frum-
varpið sem kveður á um lækkun
atvinnuleysisbóta. Auk útflutnings-
iðnaðarins mun verkfallið einnig
stöðva flugferðir og siglingar til
útlanda.
Ekkert um að semja
Leiðtogar helstu stjórnarflokk-
anna, þeir Paavo Lipponen forsætis-
ráðherra (jafn.) og Sauii Niinistö
fjármálaráðherra, endurtóku að rík-
isstjórnin gæti ekki orðið við þess-
ari kröfu, ekkert væri til að semja
um. Sparnaðaraðgerðirnar væru á
hendi ríkisstjórnarinnar og ekki
mætti láta undan þrýstingi frá
hagsmunasamtökum.
Framlag hinna
atvinnulausu
Deilan hefur nú magnast að mun
frá því um helgina. Þá boðuðu stétt-
arfélög til allsherjarverkfalls sem
verður á föstudag. Þá er reiknað
með að rúmlega ein milljón manna
leggi niður vinnu í 24 klukkutíma.
Er talið að tap þjóðarbúsins vegna
þessa muni nokkurn veginn jafn-
gilda þeirra upphæð sem ríkis-
stjórnin hyggst spara. Stöðvist hins
vegar útflutningsiðnaðurinn verður
tapið margfalt.
Ríkisstjórnin hyggst ná fram
sparnaði sem nemur um 800 millj-
ónum fmnskra marka á ári, um
7.200 milljónum íslenskra króna.
Felur þessi upphæð í sér minni
framlög til hinna atvinnulausu auk
þess sem bótatíminn verður styttur.
Rökstuddi ríkisstjórnin þessa
ákvörðun m.a. með því að vísa til
þess að 20 milljarða sparnaður sem
samið var um í stjórnarsáttmálan-
um hefði þegar bitnað á öllum þjóð-
félagshópum og nú væri komið að
hinum atvinnulausu að leggja sitt
af mörkum.
Martti Ahtisaari forseti ætlar að
hitta formenn stærstu launþega-
samtakanna að máli vegna verk-
fallshótunarinnar en sagðist þó ekki
ætla að taka að sér málamiðlun í
deilunni.
Pjöldamorð-
ingi fluttur
vegna morð-
hótana
MARTIN Bryant, 28 ára Ástrali
sem myrti 35 manns um fyrri
helgi I Tasmaníu, hefur verið
fluttur af sjúkrahúsi í rammgert
öryggisfangelsi, að sögn lög-
reglu. Gert hafði verið ráð fyrir
að Bryant yrði á sjúkrahúsinu í
nokkrar vikur meðan hann jafn-
aði sig af brunasárum en vegna
áframhaldandi símahótana til
starfsfólks sjúkrahússins var
þeirri ákvörðun breytt.
Frá handtöku Bryants hefur
verið hringt oft á dag í sjúkra-
húsið í Hobart, höfuðstað Tasm-
aníu, og því hótað að ráða Bry-
ant af dögum. Tvisvar hefur ver-
ið tilkynnt um að sprengjum hafi
verið komið þar fyrir en í bæði
skiptin reyndist um gabb að
ræða. Þá var vígorðið „auga fyr-
ir auga“ krotað á veggi sjúkra-
hússins í síðustu viku.
Bryant gekk berserksgang um
fyrri helgi á vinsælum ferða-
mannastað í Port Arthur, 50 km
suðaustur af Hobart, og myrti
35 manns. Myndin var tekin við
útför 15 ára stúlku, sem var á
meðal fórnarlambanna, og verið
er að hughreysta móður hennar,
er særðist þegar hún reyndi án
árangurs að skýla henni.
Peres segir
Likud ógna
friðarferlinu
Jerúsalem. Reuter.
SHIMON Peres, forsætisráðherra
ísrael, sagði í gær að friðarferlið í
Mið-Austurlöndum væri í hættu ef
Likud-bandalagið ynni sigur í kosn-
ingum í lok mánaðarins. Munurinn
á flokkunum væri sá að Verka-
mannaflokkurinn liti á sjálfstjórn
Palestínumanna sem lið í ferli en
Likud sem endalega lausn. Hann
benti einnig á að yrði landnema-
stefna tekin upp að nýju á Vestur-
bakkanum gæti það ógnað friðar-
samningunum.
í fyrrakvöld voru sýnd viðtöl við
helstu stjórnmálaleiðtoga ísraels þar
sem þeir notuðu tækifærið til að
koma skilaboðum áleiðis til kjós-
enda. Samkvæmt ísraelskum lögum
má ekki birta myndir af leiðtogum
stjórnmálaflokka síðustu þijár vik-
urnar fýrir kjördag en kosningarnar
fara fram 29. maí.
„Það fyrsta sem ég myndi gera
væri að hefja viðræður við Sýrlend-
inga á ný,“ sagði Peres í viðtali við
ísraelska sjónvarpsstöð á mánudags-
kvöld. Peres, sem hefur fimm pró-
sentustiga forskot á keppinaut sinn,
Benjamin Netanyahu, leiðtoga
Likud-bandalagsins, sagði jafnframt
að hann myndi sjá til þess að áin
Jórdan yrði öryggislandamæri ísra-
els og að Jerúsalem áfram sameinuð
höfuðborg landsins. Þá gagnrýndi
Peres mótsagnir í málflutningi
Likud í friðarmálum.
Mótsagnir Likud
Netayahu lýsti því yfir að hann
myndi fallast á friðarsamkomulag
ísraela og Palestínumanna, en einn
af helstu leiðtogum flokksins, Ariel
Sharon, fyrrverandi herforingi,
sagðist ekki geta fallist á það.
Netanyahu sagði i sjónvarpsvið-
tali að hann myndi leyfa Palestínu-
mönnum að sjá um sín mál á sjálf-
stjórnarsvæðunum að öryggismál-
um undanskildum. „Það er munur-
inn. Ef Verkamannaflokkurinn
verður kjörinn, Guð forði okkur frá
því, þá mun hann stofna palestínskt
ríki ... Við erum ekki hlynntir pal-
estínsku ríki, við erum hlynntir
sjálfstjórn. Það er munurinn," sagði
formaður Likud.
HJólsagir
Ása Einarsdóttir
Kristján Pálsson
Bresk vika hjá Samskipum
Dagana 6.-10. maí næstkomandi verða fulltrúar
okkar á Bretlandseyjum staddir hér á landi í tilefni
breskrar viku hjá Samskipum.
Asa Einarsdóttir framkvæmdastjóri Samskip Ltd.
sem staðsett er í Hull, mun verða hjá okkur þessa
daga, ásamt þeim Kristjáni Pálssyni sölustjóra og
Lynn Scott fulltrúa.
Phil Hall starfsmaður frá Hull Economic Society
kemur í heimsókn föstudaginn 10. maí. Þeir sem
vilja íhuga viðskipti við fyrirtæki í Hull og Humberside
svæðinu ættu að koma og hitta Phil til pess að fá hjá
honum upplýsingar.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í söludeild
Samskipa í síma 569 8300
SAMSKIP
Holtabakka v/Holtaveg, 104 Reykjavík
Slmi: 569 8300 - Fax: 569 8349
Hittu okkar^fólk frá
Bretlandi á íslandi í
þessari yiku