Morgunblaðið - 30.05.1996, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1996 9
FRÉTTIR
Nýjar mælingar sýna að enn molnar úr Kolbeinsey
Maí 1996: Nánast hringlaga, 36 x 36 m,
skv. mælingum Landhelgisgæslunnar
Enðurgefð myndar eftir Arna Hlaftarson
Þvermál aðeins 3 6 metrar
KOLBEINSEY mældist 36 metrar
í þvermál, þegar skipverjar á varð-
skipinu Tý könnuðu hana fyrr í
mánuðinum. Eyjan heldur því enn
áfram að molna og minnka, en
árið 1985 var hún 39 metrar í þver-
mál. Þyrlupallur, sem var steyptur
upp í dálítilli lægð á eynni árið
1989, er nú hæsti punktur hennar.
Búist er við að Kolbeinsey, sem
er einn grunnlínupunkta fiskveiði-
lögsögunnar, hverfi á nokkrum
áratugum verði ekkert að gert.
Árið 1992 samþykkti Alþingi
þingsályktunartillögu, þar sem
ríkisstjórninni var falið að láta
gera, svo fljótt sem við yrði kom-
ið, áætlun um styrkingu Kolbeins-
eyjar. Ári síðar var giskað á, að
flutningur á grjóti til að styrkja
varnir eyjarinnar, borun í hana
og uppfylling með steypu myndi
jafnvel kosta 2-4 milljarða.
Munar 9.400 ferkílómetrum
íslendingar fengu lögsögu yfir
9.400 ferkílómetra svæði norðan
við grunnlínupunktinn Kolbeinsey
þegar fiskveiðilandhelgin var
færð í 200 mílur og þetta er það
svæði, sem talsmenn styrkingar
Kolbeinseyjar vilja halda í, því
molni hún enn verði Islendingar
með sanni á flæðiskeri staddir í
hafréttarmálum á svæðinu.
„Steypan í þyrlupallinum virðist
sterkari en bergið í kring og eyj-
an, sem er nú nánast hringlaga,
brotnar æ meira á hverju ári,“
sagði Helgi Hallvarðsson, skip-
herra hjá Landhelgisgæslunni, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Þegar hafís leggst að Kolbeinsey
sverfur hann hana bókstaflega
niður.“
Var 60 sinnum stæn-i
Kolbeinsey var mun myndar-
legri fyrr á öldum, eða um 60 sinn-
um stærri en nú. Þannig mældist
hún 750x110 metrar í byrjun 17.
aldar, eftir aldamótin 1900 var
hún sögð 300 metra löng og 30-60
metra breið, árið 1985 mældist
hún 39x39 metrar að stærð og nú
segja Landhelgisgæslumenn hana
aðeins 36x36 metra.
Embættismenn taki yfir
ópólitísk afgreiðsluverkefni
STJORNKERFISNEFND, sem skip-
uð er af borgarráði, hefur skilað
áfangaáliti yfir breytingar á stjórn-
kerfi Reykjavíkurborgar. Áhersla er
lögð á að flytja afgreiðsluverkefni sem
ekki eru pólitísk til embættismanna
og að nefndarmenn, sérstaklega for-
menn, geti sinnt pólitískum verkefn-
um í fullu eða hlutastarfi. Hlutverk
borgarráðs er einnig til skoðunar og
telur nefndin koma til greina að for-
menn nefnda skipi borgarráð.
í áliti stjórnkerfisnefndar segir að
meginmarkmiðið með endurskipu-
lagningu á nefndakerfi borgarinnar
sé að samræma pólitíska stefnu-
mörkun í stærri og heilsteyptari ein-
ingar/málaflokka. í núverandi kerfi
sé hætt við að pólitísku valdi sé dreift
óþarflega mikið og að pólitískt starf
í borgarmálum einkennist of mikið
af reiptogi milli talsmanna einstakra
nefnda. Sömu mál þurfi að fá umfjöll-
un á mörgum stöðum, verkaskipting
milli nefnda sé ekki alltaf ljós og
ekki ávallt ljós skipting verkefna og
ábyrgðar milli stjórnmálamanna og
embættismanna.
Kerfið verði einfaldað
Þá segir: „Endurskipulagning hins
pólitíska stjórnkerfis hlýtur að taka
mið af því að einfalda það en jafn-
framt styrkja það og gera það árang-
ursríkara og hraðvirkara. Áhersla er
lögð á að flytja afgreiðsluverkefni,
sem ekki eru pólitísks eðlis, til emb-
ættismanna með málskotsrétt til
nefndar, þannig að nefndir sinni í
ríkari mæli pólitískri stefnumótun
og samhæfingu skyldra verkefna.
Jafnframt er talið mikilvægt að
nefndarmenn, sérstaklega formenn,
geti sinnt hinum pólitísku verkefnum
í fullu eða hlutastarfi. Þá yrði sú
regla lögð til grundvallar að formenn
meginnefnda væru alltaf borgarfull-
trúar eða varaborgarfulltrúar."
Breytt skipan borgarráðs
Fram kemur að hlutverk borgar-
ráðs hafi einnig komið til skoðunar
og telur nefndin að til greina komi
að borgarráð verði skipað formönn-
urn meginnefnda sem verði 5-7 og
að borgarstjóri verði formaður.
Þannig kæmu 2-3 borgarráðsmenn
úr röðum minnihlutans en 3-4 úr
röðum meirihlutans auk borgar-
stjóra. Nefndin hefur rætt þennan
kost og telur hann fyllilega koma til
álita en telur jafnframt að ef svo
róttækar breytingar yrðu gerðar
þyrfti langan undirbúning og aðdrag-
anda og að eðlilegt sé að þær tækju
gildi í byijun kjörtímabils.
ÚRVAL AF
GALLAFATNAÐI OG
SUMARFRÖKKUM
LAUGAVEGI 32 » SÍMI 552 3636
SMIÐJUVEGUR 1 • KOPAVOGI
Cherokee
Ltd. órg. ‘93
Dodge Grand
Caravan órg.
’91 4x4,
7 manna.
Suzuki
Sport
órg. '9t
nýr bíll
EV BILAUMBOÐ
Egill Vilhjálmsson hf., Smiðjuvegi 1 - Kópavogi - sími 564
NÝR
ÐILL
OG
NSEÐILL