Morgunblaðið - 30.05.1996, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sérfræðingar á sviði stefnumótunar í vísindarannsóknum
Fullgild þátttaka mikilvæg
fyrir fámennar þjóðir
Mikilvægt er fyrir fámennar þjóðir eins og
íslendinga að vera fullgildir þátttakendur
í vísindastarfí þjóðanna. Aðeins með því
móti geta þeir notið ávaxta rannsóknar-
starfsins að því er fram kemur í samtali
við dr. Thomas G. Whiston og Ben R.
Martin prófessor sérfræðinga á sviði stefnu-
mótunar í vísindarannsóknum.
BEN R. Martin og dr. Thomas G. Whiston.
HÁSKÓLINN í Sussex fæst alfarið
við rannsóknir á vísinda- og tækni-
málefnum og starfa þeir Whiston og
Martin þar. Samvinna hefur verið í
nokur ár milli skólans og íslendinga.
Thomas Whiston kom hingað fyrir
sex árum og segir að markmið fyrri
heimsóknarinnar hafi verið að mynda
tengsl á milli Háskóla íslands og
háskólans í Sussex.
„Árangurinn af því varð sá að
ákveðið var að veita sérstaka ferða-
styrki til að greiða fyrir samstarfi
háskólanna. Eg er kominn hingað
aftur og núna í tvennum tilgangi.
Annars vegar til að tala um hvemig
hægt sé að meta vísindarannsóknir
og hins vegar hvernig hægt sé að
haga forgangsröðun í vísindarann-
sóknum. Eg skoða rannsóknirnar frá
víðum sjónarhóli, geri grein fyrir
ýmsum styrkleikum og veikleikum
þeirra,“ segir hann.
Ben tekur fram að tilgangur ferð-
ar hans sé hinn sami um leið og
hann segir frá því að áhugi hans á
íslandi hafi aukist töluvert eftir að
hann tók að leiðbeina íslenskum
doktorsnema í Sussex. Nemandinn
er Oddfríður Halla Þorsteinsdóttir
og felur doktorsverkefni hennar í sér
samanburð á alþjóðlegu rannsóknar-
starfi íslenskra vísindamanna annars
vegar og vísindamanna á Nýfundna-
landi hins vegar.
Þegar Ben er spurður að því hvaða
ráðleggingar hann geti gefið litlum
þjóðum eins og íslendingum viður-
kennir hann að hafa ekki sérþekk-
ingu á því sviði. „Hingað til hefur
töluverðum tíma verið varið í að
skoða vísindarannsóknir og samstarf
mikilla vísindaþjóða, eins og Banda-
ríkjamanna, Breta, Þjóðveija og Jap-
ana, í vísindalegum rannsóknum. Við
höfum því aflað töluverðrar þekking-
ar á því sviði. Hvort hið sama gildir
fyrir fámennari þjóðir erum við fá-
fróðari um. Einn liður í rannsókn
Höllu snýr einmitt að því að kanna
hvort þarna komi upp sama mynstur."
Sóst eftir samvinnu við
íslendinga á ýmsum sviðum
Við mótun á vísindastefnu er að
ýmsu að gæta. „Fyrsta skrefið er
að átta sig á því á hvaða sviðum
þjóðin hafi forskot á aðrar þjóðir,
t.d. vegna sögulegra eða landfræði-
legra forsendna. Síðan er að huga
að því hvar þörfin er og leggja með
því grunninn að skipulagðri vísinda-
stefnu. Að ætla sér að vera með á
öllum sviðum er ekki eftirsóknar-
vert,“ segir Ben.
Thomas vekur athygli á því að ef
til vill sé árangursríkara að þjóð
noti útilokunaraðferðina og velti því
fyrir sér að hvaða sviðum hún ætti
ekki að einbeita sér, t.d. vegna getu-
leysis, áhugaleysis eða annarra ann-
marka. Hann minnir svo á að mikil-
vægt sé að líta á heildarmyndina,
hvetja ekki aðeins til vísindarann-
sókna í æðri menntun heldur komi
þær til viðbótar rækt við tengsl við
markaðinn o.fl.
Áætlanir til lengri tíma
mikilvægar
Ben segir mikilvægt, í sambandi
við vísindastarfið, að reynt sé að
horfa til lengri tíma og velja tiltekin
svið þar sem hægt sé að ná góðum
árangri. Þetta eigi bæði við í grunn-
rannsóknum og hagnýtum rannsókn-
um. Hann leggur áherslu á mikil-
vægi þess að aðilar sem komi úr ólík-
um áttum, þ.e. háskólasamfélaginu,
atvinnulífinu og stjórnsýslu ræði
saman og reyni að samhæfa aðgerð-
ir sínar. Þannig viti þeir sem fáist
við grunnrannsóknir meira um hvað
atvinnurekendur séu að hugsa. Á
sama hátt læri atvinnurekendur
meira um hvað vísindamenn séu að
fást við. Það sé því ekki síður verið
að hvetja til umræðu en að leita að
endanlegum niðurstöðum. Menn
greinir hins vegar á um hvaða leiðir
eigi að fara í vísindastarfinu. Dr.
Thomas leggur mikla áherslu á að
fijálst rannsóknarstarf sé undirstaða
allra rannsókna og við því megi ekki
hreyfa.
Ben telur að framlag fámennari
þjóða geti haft mikla þýðingu í al-
þjóðlegum rannsóknum. „Halla hefur
einmitt verið að velta þessu fyrir sér
í sínu verkefni og komist að því að
á ýmsum sviðum er sóst eftir sam-
vinnu við íslendinga. Ég get nefnt
jarðfræðirannsóknir og vísindarann-
sóknir á ýmsum sviðum læknavís-
inda. Af því má ráða að framlag jafn
lítilla þjóða og íslendinga er talið
afar mikilvægt á ýmsum sviðum."
Thomas rifjar upp í því sambandi
að hann hafi stýrt mikilli könnun á
sviði vísindarannsókna fyrir fjórum
árum. „Rannsóknin var kölluð Global
perspective 2010 og var mjög um-
fangsmikil. í henni var sérstaklega
litið til samstarfs ríkra og fátækra
þjóða. Niðurstaðan varð sú að ríku
þjóðirnar hefðu ekki efni á því að
hinar fátæku væru aðeins þiggjend-
ur. Báðir aðilar yrðu að vera virkir
í samstarfinu," sagði hann og tók
fram að sú staðreynd breytti því
ekki að þjóðir yrðu að velja sér rann-
sóknarsvið. Innan sviðanna yrðu
þjóðirnar hins vegar að tryggja sér
virka aðild. Öðruvísi væri ágóði þjóð-
arinnar ekki tryggður. Ben minnti á
að hið sama gilti um fyrirtæki enda
væru fyrirtæki sífellt virkari í rann-
sóknum.
100 þúsund kr. gjafabréf frá Samvinnuferðum-Landsýn
Þórður Karlsson, Dvergabakka 36, 109 Reykjavík
Panasonic samstæða frá Japis, að verðmæti 53.400 kr.
Gunnar Aðalbjömsson, Sognstúni 2, 620Dalvík
Gönguskór frá Skátabúðinni að verðmæti 14.990 kr.
Auðar Guðbjömsdóttir, Krossholti 7,230 Keflavík •
Gyða Úlfarsdóttir, Klukkubergi 23,220 Hafnarfirði
Samviiiiiiilerðir-I.aiidsýii
Nöfn íslendinga, bók frá Máii og menningu
að verðmæti 3.990 kr.
Ásólfur Pálsson, Ásólfsstöðum lb, 801 Selfossi
Bjöm Jónsson, Víðigmnd 16,550 Sauðárkróki
Friðrik Ragnarsson, Tunguvegi 8,108 Reykjavík
Geirmundur Sigurðsson, Nesvegi 68, 107 Reykjavík
Kristján Bjamason, Heiðvangi 10, 220 Hafnarfirði
Magnús Þorkelsson, Stekkjarhvammi 7, 200 Hafnarfirði
Ragnar Birkir Jónsson, Bjamarvöllum 20,230 Keflavík
Stefán Viðar Finnsson, Kjalarsíðu lOe, 603 Akureyri
Svavar Guðmundsson, Eskihlíð 6, 105 Reykjavík
Vignir Sigurþórsson, Borgarvík 20, 310 Borgamesi
ViAskipti vinningshafa áttu sér statí á eftirtöldum stöðum:
Á bensínafgreiðslunum við Fellsmúla og Ægisíöu í Reykjavík,
Reykjavíkurveg og Lækjargötu í Hafnarfírði, Aðalstöðinni
JAPISS
í Keflavík, Tryggvabraut á Akureyri, Ábæ á Sauðárkróki,
Árborg í Ámesi, Hymunni Borgamesi og Dröfn á Dalvík.
ogmenning
Safnkort ESSO - enginn kostnaður,
aðeins ávinningur Olíufélagið hf
~50dra —
ASÍ-þing bannaði skylduaðild í lögum félaga
Hefur ekki áhrif á
greiðsluskyldu vegna
samningsákvæða
„ÞARNA er verið að taka á þrem
þáttum. í fyrsta lagi á meintri skyldu-
aðild að stéttarfélögum, í öðru lagi á
búsetuskilyrðum í lögum aðildarfé-
laganna og loks á greiðsluskyldu til
félaga,“ segir Halldór Grönvold,
skrifstofustjóri Alþýðusambands ís:
lands, um þá breytingu-sem þing ASÍ
gerði á 13. gr. laga sambandsins, þar
sem lagt er bann við ákvæðum í sam-
þykktum aðildarfélaga um félags-
skyldu og um takmörkun á félagsað-
ild vegna búsetu og lögheimilisfesti.
Þrátt fyrir þessa breytingu er í
engu hróflað við forgangsréttar-
ákvæðum kjarasamninga, sem hefur
þá þýðingu að þótt menn kjósi að
standa utan stéttarfélaga þurfa þeir
engu að síður að greiða stéttarfélags-
iðgjald sitt ef þeir stunda vinnu hjá
atvinnurekanda sem stéttarfélag hef-
ur samið við um forgangsrétt og fé-
lagsgjöld. I reyndinni er forgangs-
réttarákvæði að ftnna í flestum kjara-
samningum í landinu, skv. upplýsing-
um Halldórs.
I lögum og samþykktum margra
stéttarfélaga er hins vegar að finna
ákvæði sem mæla beinlínis fyrir um
félagsskyldu og ber þeim nú að fella
slík ákvæði út úr lögum sínum. Eftir-
leiðis þarf einnig að leita sérstaklega
eftir umsóknum starfsmanna um inn-
göngu í stéttarfélag ef atvinnurek-
andi heldur eftir iðgjaldi til stéttarfé-
lags vegna starfsmanna sinna á
grundvelli forgangsréttarákvæða.
Lög og reglur uppfylli
skilyrði Evrópuráðsins
Halldór sagði að með þessum
breytingum ætti að taka af allan
vafa um að reglur og lög stéttarfé-
laga uppfylltu þau almennu skilyrði
sem gerð væru m.a. af hálfu Evrópu-
ráðsins um félagafrelsi.
„Þarna eru tekin af öll tvímæli um
það, að hér er ekki nauðung varð-
andi félagsaðild. Það eru tekin af öll
tvímæli um að ekki megi gera búsetu
að frágangssök varðandi atvinnurétt-
indi, sem er hvort tveggja almennt
mannréttindamál og tengist einnig
EES-samningnum, þar sem á þessu
er tekið.
Þarna er einnig tekið á því að
greiðsluskylda byg'gir á ákveðnu lög-
mæti sem felst í samningum aðila
vinnumarkaðarins, þar sem þetta er
orðið hluti af umsömdum ráðningar-
kjörum starfsmanna," sagði Halldór.
Bál í bílskúmum
Morgunblaðið/Júlíus
ELDUR kom upp í bílskúr við
Stóragerði á mánudag og er hann
rakinn til þess að verið var að hlaða
rafgeymi bíls, sem stóð þar inni.
Bifreiðin skemmdist talsvert og
bílskúrinn einnig en slökkviliði
tókst þó að ráða niðurlögum elds-
ins lljótt og örugglega.