Morgunblaðið - 30.05.1996, Síða 24

Morgunblaðið - 30.05.1996, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Búist við að þingkosningar í Tékklandi muni undirstrika sérstöðu landsins Talið að sljórn Klaus haldi velli Þriggja flokka stjóm Vaclavs Klaus er spáð sigri í þingkosningum í Tékklandi á föstudag og laugardag. Asgeir Sverrisson er í Prag o g hefur fylgst með kosningabaráttunni. Hann segir að gangi spár eftir hafi Tékkar enn einu sinni ítrekað sérstöðu sína í stjóm- málum Mið- og Austur-Evrópu. Reuter VACLAV Klaus, forsætisráðherra Tékklands, ásamt Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, í heimsókn hennar til Prag fyrir skömmu. Klaus, sem stundaði nám við bresk- an háskóla, hefur lýst Thatcher sem „æðsta presti íhaldsstefnunn- ar“ og hún segir hann vera „eftirlætis forsætisráðherrann" sinn. Er kommúnisminn hrundi var Klaus lítt þekktur hagfræðingur, mjög andvígur sósíalisma. Hann varð fljótlega fjármálaráðherra og síðar forsætisráðherra í landi sínu. Vantraust í Tyrklandi FORSETI tyrkneska þingsins boðaði í gær til bráðafundar þingsins 3. júní til að fjalla um vantrauststillögu flokks mú- hameðstrúarmanna, Velferð- arflokksins, á hendur Mesut Yilmas forsætisráðherra. Velferðarflokkurinn reynir nú af krafti að fella stjórn Yilmas. Sennilega verður kosið um tillöguna 7. júní. Fleiri deyja en fæðast í Svíþjóð FLEIRI deyja nú en fæðast í Svíþjóð og er það fyrsta sinni sem það hefur gerst af nátt- úrulegum sökum þar í landi frá stríði Svía við Rússa 1808 til 1809. Hagstofa Svíþjóðar sagði í tilkynningu um fólksfjöldatöl- ur fyrsta fjórðungs þessa árs að íbúum Svíþjóðar muni fækka á næstu árum þótt fjöldi innflytjenda haldist sá sami. Gagnrýnir Hizbollah ÁGREININGUR milli Rafiks al-Hariris, forsætisráðherra Líbanons, og Hizbollkah- hreyfingarinnar kom upp á yfirbörðið með hvelli í gær. Al-Hariri gagnrýndi Hiz- bollah harkalega og sagði samtökin grafa undan lí- banska ríkinu. Heimili Weah brennt KNATTSPYRNUMAÐURINN George Weah frá Líberíu sagði í gær að skæruliðar hefðu rænt og brennt heimili sitt í höfuðborginni Monróvíu vegna þess að hann hvatti til þess í viðtali 20. maí að hið stríðs- hijáða land yrði sérstakt verndarsvæði Sameinuðu þjóð- anna. FULLVÍST er talið að samsteypu- stjórn hægriflokkanna haldi völdum í þingkosningunum, sem fram fara í Tékklandi á föstudag og laugar- dag. Þetta eru þriðju kosningarnar sem fram fara í landinu frá því að veldi kommúnista leið undir lok og er Tékkland eina landið af kommún- istaríkjunum fyrrverandi í Mið- og Austur-Evrópu, þar sem að hægri- menn hafa haldið völdum. Kannanir gefa til kynna að þriggja flokka stjórn Vaclavs Klaus forsætisráðherra haldi meirihluta sínum á þingi þótt hann verði ekki jafnafgerandi og áður. Stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn, Jafnað- armenn, hefur verið að sækja í sig veðrið að undanförnu en nýjustu. kannanir benda til að hámarkinu sé náð og tekið sé að halla undan fæti. Flokkurinn mælist nú með um 17% fylgi en hefur tapað 3% frá síðustu könnun. Stærsti stjórnarflokkurinn, Lýðræðislegi borgaraflokkurinn, (ODS), sem Vaclav Klaus stýrir hef- ur fengið 21-26% fylgi í síðustu könnunum og er staða forsætisráð- herrans talin traust. Tveir aðrir borgaralegir flokkar eru í ríkis- stjóminni, . Lýðræðislega borgara- bandalagið (ODA) og Bandalag kristilegra demókrata og Þjóðar- flokksins (KDU-CSL). Samstaða um efnahagsstefnuna Staða forsætisráðherrans og ríkis- stjórnar hans er ekki síst sterk sök- um þess mikla árangurs, sem um- bóta og einkavæðingarstefna hans hefur skilað. I nýlegri könnun lýsti heimingur þátttakenda yfir stuðn- ingi við þessa stefnu og ánægju með árangurinn. Samt er það svo að kaupmáttur meðalfjölskyldunnar hér í Tékklandi hefur minnkað frá árinu 1989. Allar hagtölur benda þó til þess að vænta megi verulegra umskipta í þeim efn- um á næstunni og sjálfur hefur Vaclav Klaus lýst yfir því að laun manna geti tvöfaldast á næstu fjór- um árum verði sömu efnahagsstefnu áfram fylgt. Hagfræðingar virðast almennt telja að hér gæti óskhyggju hjá forsætisráðherranum en kveða þó flestir rétt að lífskjör alþýðu manna muni batna í nánustu fram- tíð. Auk efnahagsstefnunnar eru helstu kosningamálin glæpatíðnin, spilling, heilbrigðismái og kjör aldr- aðra og bótaþega. Þá eru húsnæðis- mál nokkuð fyrirferðarmikil. Stjórn- völd hafa stýrt verði á leigumarkaði við litla hrifningu húsnæðiseigenda. Jafnaðarmenn og kommúnistar vilja hins vegar auka framlag ríkisvalds- ins á þessu sviði á ný og hefja aftur byggingu félagslegra íbúða. Stjórnin á nokkuð undir högg að sækja í heilbrigðismálunum. Á síð- ustu íjórum árum hafa tveir heil- brigðisráðherrar neyðst til að segja af sér. Starfsfólk í heilbrigðiskerfinu hefur í vaxandi mæli látið óánægju sína í ljós og hótað er frekari aðgerð- um. Klaus hefur viðurkennt þennan vanda en skýrt hann með því hversu gríðarlega flókíð það sé að hverfa frá miðstýrðu heilbrigðiskerfi til einkavæðingar og markaðshyggju. Hann segir að framlög til þessa málaflokks hafi aukist úr fimm.pró- sentum af þjóðarframleiðslu upp í átta prósent á síðustu fjórum árum og að almennt hafi ástandið batnað. Klaus vill hraða einkavæðingu sjúkrahúsa, auka eftirlit með trygg- ingafyrirtækjum og einfalda það kerfi til muna. Þótt samsteypustjórnin hafi fylgt afdráttarlausri frjálshyggjustefnu hafa kjör þeirra sem minna mega sín í samfélaginu heldur farið batn- andi. Eftirlaun hafa haldist í hendur við verðbólgu og rúmlega það, heilsugæsla er ódýr og bætur til öryrkja og annarra bótaþega þykja nokkuð rausnarlegar. Þótt glæpatíðnin hafi minnkað á síðustu tveimur árum sýna kannanir að þessi málaflokkur er ofarlega í hugum kjósenda. Tékkneskir, rúss- neskir og kínverskir glæpahópar hafa skipst á að myrða félaga í þeim að hætti mafíunnar á Ítalíu. Eiturly- íjaneysla fer vaxandi og er nú svo komið að sprautufíklar eru aðeins fleiri í Rómaborg og Ósló en hér í Prag. Bifreiðastuldur er orðinn há- þróuð atvinnugrein og skotvopnum í umferð virðist fara fjölgandi. Flokkarnir viljá allir bregðast hart við þessari þróun en greinir á um leiðirnar. Rætt er um nauðsyn þess að fjölga í lögregluliðinu og herða mjög á refsilöggjöfinni. Lengst vill einn stjórnarandstöðuflokkurinn, repúblikanar, ganga, en þeir telja að innleiða beri dauðarefsingar og vilja að þrengt verði að „minnihluta- hópum, sem vilja ekki aðlagast samfélaginu, til dæmis sígaunum“ eins og segir í stefnuskrá flokksins. Kosningabaráttan hófst lögum samkvæmt þann 15. þessa mánaðar er flóðbylgja auglýsinga frá flestum flokkum reið yfir. Djasshljómsveitir á vegum flokkanna eru algeng sjón í miðborginni og laglegar ungar stúlkur dreifa áróðurspésum til veg- farenda. Lúðrasveitir æða um götur og Bandalag kristilegra demókrata og Þjóðarflokksins gaf viðstöddum ís og kökur í miðborginni á einum kosningafundinum. Vakti það mikla kátínu í röðum eldri borgara og námsmanna, sem kváðust hafa farið á fundinn að áeggjan kennara sinna. Auglýsingaspjöld biasa hvarvetna við en mest ber á myndum af Vaclav Klaus forsætisráðherra.' Roluráfa leiðir kommúnista Minna fer fyrir áróðri jafnaðar- manna og kommúnista enda er því haldið fram að leiðtogi síðarnefnda flokksins sé roluráfa og lítt spenn- andi. Fylgi flokksins mælist samt um 7% og er það einkum á lands- byggðinni, sem kommúnistar eru sterkir. Stjórnarflokkarnir njóta hins vegar miklu meira fylgis í borgum og stærri bæjum. Flokkar þurfa að hljóta minnst 5% atkvæða til að fá fulltrúa á þingi. Ljóst er að haldi stjórnin velli munu Tékkar enn á ný ítreka sér- stöðu sína í stjórnmálum gömlu kommúnistaríkjanna í Mið- og Aust- ur-Evrópu. Þrengingar þær sem umskiptin frá miðstýringu til mark- aðshagkerfis hafa haft í för með sér hafa alls staðar annars staðar leitt vinstrimenn, oftar en ekki arftaka kommúnista, til valda en Tékkar virðast ákveðnir að halda áfram á sömu braut og tryggja sess landsins í hinni nýju Evrópu. Amerísku heilsudýnurnar það allra besta leilsunnar vegna íslensku, Amerisku og Kanadísku ' iraktora-samtökin mæla með Springwall Chiropractic Hagstætt verb Úrval af rúmgöflum, svefnherbergishúsgögnum, heilsukoddum og fl. Frekari mótmæli undirbúin í Albaníu Stíórnin hvött til að forðast átök Tirana. Reuter. STJÓRNVÖLD á Vesturlöndum sögðust í gær hafa áhyggjur af meintu kosningamisferli og stjórn- málaólgu t Albaníu og hvöttu hægri- stjórn Sali Berisha, forseta landsins, til að forðast frekari átök. Eftirlitsnefnd á vegum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu birti í gær skýrslu um kosningarnar í Albaníu á sunnudag, þriðju þing- kosningarnar frá hruni kommúnis- mans í desember 1990. Sagði að í mörgum tilvikum hefðu lög verið brotin við framkvæmd kosninganna. Skýrslan styður ásakanir alban- skra stjórnarandstæðinga um að stjórnarflokkurinn, Lýðræðisflokk- urinn, hafi beitt kosningasvikum og lögregla hafi ráðist á stjórnarand- stæðinga og hótað kjósendum á kjör- stöðum. Úrslit höfðu ekki verið gerð opinber í gær en Sali Berisha for- seti sagði að stjórnarflokkurinn hefði fengið um 60% atkvæða. Stjórnarandstæðingar bjuggu sig í gær undir frekari mótmæli til að knýja fram nýjar kosningar þrátt fyrir viðvaranir stjórnarinnar um að þau kynnu að verða kveðin niður með valdi. Til átaka kom milli lög- reglu og stjórnarandstæðinga í fyrradag þegar óeirðalögreglumenn hindruðu mótmæli í miðborg Tirana. ffioxðum gxœnmeti ag áueati fíeit&iumcvt uegna i Hjartavernd, Krabbameinsfélagíð og Manneldisráð hvetja fólk á öllum aldri til að borða að minnsta kosti fímm skammta af grænmeti, ávöxtum eða kartöflum á dag. Einn skammtur getur verið einn meðalstór ávöxtur, 50 g af grænmeti, 2-3 kartöflur eða glas af hreinum ávaxtasafa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.