Morgunblaðið - 30.05.1996, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1996 27
Helen TOMAS Marainen
Halldórsdóttir frá Sameland, m.a.
verða kynnt ljóð
eftir hann.
Samísk menning
o g bókmenntir í
Norræna húsinu
DAGSKRÁ um menningu og bók-
menntir Sama í umsjá Helenar
Halldórsdóttur verður á dagskrá í
Norræna húsinu í kvöld kl. 20.30.
Helen les upp úr ljóðum Sama og
Svía, leikin verður tónlist og sýndar
myndir frá Lapplandi.
Helen Halldórsdóttir er búsett í
Lundi í Svíþjóð þar sem hún er að
ljúka námi í mannfræði við Lundar-
háskóla. Sl. haust fékk Helen ferða-
styrk frá norrænu ráðherranefnd-
inni til að fara til Lapplands og
kynna sér samíska menningu og
bókmenntir og koma síðan til ís-
lands og kynna samískar og sænsk-
ar bókmenntir hér á landi. Hún fór
til Lapplands í byrjun febrúar og
tók þátt í hinum árlega vetrarmark-
aði sem þar hefur verið haldinn all-
ar götur síðan 1605. Hún hefur
þýdd ljóð samískra ljóðskálda á ís-
lensku, en einnig ljóð ungra skán-
skra Ijóðskálda.
Helen hefur starfað mikið að
menningarstörfum og er í ritstjórn
ljóðatímaritsins Marusia sem er
gefið út bæði á sænsku og spænsku.
Birtar hafa verið eftir hana smásög-
ur og Ijóð bæði í íslenskum og
sæpskum tímaritum og ljóðasöfnun.
í janúar sl. gaf hún út sína fyrstu
ljóðabók „Fjöreggið/Livets tunna
skal“ á sænsku og á íslensku.
Allir eru velkomnir og aðgangur
er ókeypis.
LISTIR
Sá fyrsti af fjórum
TONLIST
Dómkirkjan
ORGELTÓNLEIKAR
Flytjandi Gerhard Dickel.
Þriðjudagur 28. niaí 1996.
Á VEGUM söngmálastjóra þjóð-
kirkjunnar og organistanámskeiðs
embættisins lék prófessor Dickel frá
Hamborg sinn fyrsta konsert af
fjórum í Reykjavík á orgel D.óm-
kirkjunnar. Það eitt að halda ferna
tónleika, dag eftir dag á ólík orgel
og alltaf með nýja efnisskrá, er
afrek út af fyrir sig. Ekki er ég
viss um að allir átti sig á hversu
óþægilegt getur verið að fara frá
einu orgeli til annars, og jafnvel
þó sama efnisskrá væri leikin á
bæði orgelin þarf orgelleikarinn
margra klukkutíma vinnu við hvort
hljóðfærið fyrir sig, bara til að velja
raddir, fyrir svo utan það að venj-
ast hljóðfærinu. Píanóleikarinn hef-
ur það heldur náðugra, getur geng-
ið að píanóinu sest og bytjað sína
tónleika, en hann missir líka af
ánægjunni við að leita uppi alla þá
litadýrð sem gott orgel býður upp á.
Ekki kom á óvart að efnisskrá
fyrstu tónleikanna var eftir þýska
höfunda, að Mozart undansfcildum,
og ekki kom heldur á óvart að allir
skyldu þeir löngu látnir. Buxtehude
var fyrstur á mælendaskrá með
Passakalíu sína í d-moll. Kannske
er maður enn svo mótaður af með-
ferð Páls ísólfssonar á þessu verki
að erfitt sé að gera manni til hæfis
á þeim nótum. Prófessorinn fór
nokkuð fijálslega með form Passak-
alíunnar, leyfði sér að hæga á, taka
sér tíma þar sem honum hentaði,
gera stundum mikinn og skyndileg-
an mun á veiku og sterku og fannst
mér hann ganga nokkuð langt í
þessu frelsi sínu svo að heildarsvip-
ur verksins leið fyrir. Leikur Dick-
els er eigi að síður mjög ryþmískur
og sýndi það t.d. í næsta verki,
Partítunni „Sei gegrusset" eftir
Bach. Dickel spilaði Partituna í
mjög ströngum takti, og virtist
hafa svo fastmótaðar skoðanir um
flutninginn að við lá að um vísinda-
legan flutning væri að ræða. Fyrir
áheyrandann var flutningurinn lær-
dómsríkur, en miklu lengra í alvör-
unnar átt mátti fiutningurinn ekki
ganga. Bach þolir strangryþmiskt
spil þar sem hvergi haggar um
minnstu gráðu, Mozart aftur á
móti er auðvelt að kaffæra með
ryþma sem hvergi haggast og það
fannst mér gerast í Fantasíu Moz-
arts í f-moll, hér fengu línurnar
einhvern veginn ekki að syngja,
Mozart varð að Bach, sem á ein-
hvern hátt gekk ekki upp.
Merkilegt er að Mendelssohn
skyldi kalla sónötu sína nr. 6 í d-
moll, sónötu, verk sem er hreint
tilbrigði við gamlan þýskan sálm
og ekkert annað en tilbrigði. Haydn
og Mozart búnir að semja allar sín-
ar sónötur, þróa sónötuformið og
Beethoven meira að segja búinn að
skrifa sumar sínar sónötur. Ekki
skai farið nánar út í þær vangavelt-
ur nú, en Dickel lék verkið mjög
sannfærandi og af innlifun. For-
vitnilegt verður að heyra næstu
tónleika Dickels, því þótt hann sé
kannske ekki einn af stóru orgel-
virtúósunum þá flytur hann okkur
sínar persónulegu skoðanir og nýjar
skoðanir hljóta að vera leitandi fólki
áhugaverðar.
Ragnar Björnsson
Morgunblaðið/Kristinn
GRADUALEKÓR Langholtskirkju.
Gradualekór
Langholts-
kirkju í
tónleikaferð
GRADUALEKÓR Langholts-
kirkju byrjar söngferð um Island,
Danmörku og Færeyjar með tón-
leikum í Langholtskirkju á sunnu-
dagskvöld kl.20.30 og á þriðjudag
verða tónleikar í Skjólbrekku í
Mýyatnssveit kl. 21.
Á miðvikudag verða tónleikar
í Egilsstaðakirkju kl. 20.30. Á
fimmtudag verður síðan haldið
með Norrænu frá Seyðisfirði og
komið til Danmerkur á laugar-
degi. Kórinn sygnur við messu í
Treeninghedskirken í Esbjerg á
sunnudagsmorgun og í Legoland
Billund kl. 13. A mánudagskvöld
verða tónleikar í Ellevang-kirkju
í Árósum. Þar munu kórfélagar
dvelja á heimilum hjá jafnöldrum
sínum sem syngja í barnarkór
við kirkjuna. Á þriðjudegi eru
tónleikar í Kirkju heilags Hans
í Óðinsvéum. Gist verður í Faa-
borg-skóla 40 km sunnan Óð-
insvéa og haldnir stuttir tónleik-
ar fyrir nemendur skólans á mið-
vikudagsmorgni áður en la.gt
verður af stað til Hróarskeldu
þar sem tónleikar eru í kirkju
heilags Jörgens, en það er næst-
elsta kirkja Danmerkur. Sú
kirkja fékk fyrir 40 árum altaris-
klæði að gjöf frá íslandi eftir lis-
takonuna Unni Ólafsdóttur og
verður klæðið uppi til heiðurs
Gradualekórnum á tónleikunum.
Á fimmtudegi fær kórinn frí í
Kaupmannahöfn en seinustu tón-
leikar í Danmörku verða föstu-
daginn 14. júní í Tivoli á „Plæn-
en“ kl. 17. Að launum fær kórinn
frían aðgang í öll tæki skemmti-
garðsins.
Á heimleiðinni verður stansað í
Færeyjum í tvo og liálfan sólar-
hring og verða tónleikar á þjóðhá-
tíðardaginn, 17. júní, í Norður-
landahúsinu kl. 19.30 ogdaginn
eftir í Fuglafjarðarkirkju í Fugla-
firði. Fimmtudaginn 20. júní kem-
ur kórinn aftur með Norrænu til
landsins.
Á efnisskrá kórsins eru íslensk
og norræn verk auk verka eftir
Zoltán Kodaly og negrasálma.
Stjórnandi Gradualekórsins er
Jón Stefánsson en einsöngvarar
og undirleikarar úr hópi kór-
félaga koma fram.
Orgeltón-
leikar
ÞRIÐJU orgeltónleikar þýska
organleikarans og prófessorsons
Gerhard Dickel verða í Digranes-
kirkju í dag, fimmtudag, kl. 18.
Þar leikur Gerhard á orgel sem
stníðað er af íslenskum orgelsmið,
Björgvin Tómassyni, og er þetta
orgel hans það stærsta sem hann
hefur smíðað hingað til. Verkin
sem Gerhard flytur á tónleikunum
eru eftir Bach, Hándel, Buxte-
hude, Max Reger, Mozart, Mend-
elsohn, Liszt, Dupré, César
Franck og Flor Peters.
Fjórðu tónleikarnir verða í
Fella- og Hólakirkju á föstudag
kl. 18 og fimmtu og síðustu tón-
leikarnir verða í Hallgrímskirkju
á sunnudag kl. 17. Þeir verða
helgaðir minningu Karls J. Sig-
hvatssonar en hann lést fyrir
fimm árum. Stofnaður var sjóður
til minningar um hann og úr þeim
sjóði hafa margir ungir efnilegir
organleikarar fengið styrk. Sjóð-
urinn er fimm ára um þessar
mundir.
Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, mun minnast
Karls J. Sighvatssonar í lok tón-
leikanna í Hallgrímskirkju en á
þeim árum sem Vigdís var leik-
hússtjóri í Iðnó og söngleikurinn
„Jesus Christ Superstar“ var upp-
færður hafði Karl umsjón með
tónlistarflutningnum.
Húso-
Hvítt
Grátt
Fílabein
Klæðningin
sem þolir
islenska
veðráttu
LeitiS) tilboða
ÁVALLT TIL Á LAGER
ÞÞ
&co
►». ÞORGRIMSSON &CÖI
ARMULA 29 • 108 REYKJAVIK
SÍMAR 553 8640/568 6100,fax 588 8755.