Morgunblaðið - 30.05.1996, Side 36
36 FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Sól, sjór og
psoriasis
PSORIASIS er ætt-
gengur, langvinnur
(krónískur) og ólækn-
andi sjúkdómur, en
með réttri og stöðugri
meðferð geta þeir sem
eru með sjúkdóminn
fengið bata um
skemmri eða lengri
tima. Meðferð við psor-
iasis er einstaklings-
bundin ogjafnvel getur
meðferð sem eitt sinn
virkaði vel, virkað ver
síðar þegar hún er
reynd. Því er mikil-
vægt að allar meðferð-
ir sem vitað er að gefi
bata, séu til staðar.
Allir psoriasissjúklingar hafa reynt
að það er sama hvað smurt er á
sig af kremum og lyfjaáburðum og
oft farið í ljós, útbrotin hjaðna um
tíma en gjósa svo upp aftur án
þess að nokkuð sé við ráðið. Allir
psoriasissjúklingar þekkja þá vanl-
íðan sem fylgir þvi að hafa sjúk-
dóminn, bæði líkamlega og andlega;
sífelldur kláði, sprungin sár sem
blæðir úr, skert sjálfsmynd því í
raun upplifa þeir sig lítið aðlaðandi
þar sem þeir eru flekkóttir og
hreistraðir á áberandi stöðum sem
veldur því að þeir klæðast ekki
hverju sem er, (s.s. forðast flíkur
méð stuttum ermum, stuttum
skálmum eða stutt pils). Þeir fara
ekki í sund eða leikfimi þvi sífellt
er verið að glápa og spyija.
þessa, tvær sundlaugar
eru á staðnum (heit og
köld), aðstaða til leik-
fimiiðkunar utan dyra,
tækjasalur og aðstaða
til sólbaða mjög góð.
Stuttur gangur er á
ströndina. Ahersla er
lögð á lækningu með
sól og sjó. Engir lyfjaá-
burðir eru notaðir, ein-
ungis rakakrem. Allir
fara í nákvæma læknis-
skoðun fyrsta daginn
þar sem útbrotin eru
kortiögð og ráðlegging-
ar gefnar, t.d. er mis-
munandi hversu vel ein-
staklingar þola sólina.
Ætlast er til að allir nýti sólina sem
best og liggi í sólbaði í 6-8 klst. á
dag. Hver og einn er ábyrgur fyrir
Sólarljósið er, segir
Þórunn Jónsdóttir,
öfiugasta meðferðin
við psoriasis.
að skrá veru sína í sólinni í sérstaka
dagbók sem síðan er yfírfarin í
næstu læknisskoðun m.t.t. hvort
gera megi betur. AIls er farið fjórum
sinnum í læknisskoðun þessar þrjár
vikur sem meðferðin tekur.
Full vinna
Þórunn
Jónsdóttir
Sólin læknar
Engar töfralausnir eru til en það
hefur þó sýnt sig að sólarljósið er
og hefur verið öfiugasta meðferðin
við psoriasis. Sólargeislar hafa fært
fjölmörgum psoriasissjúklingum
góðan bata. Hefur þeim staðið til
boða, þar til nú, að fara á heilsustöð
á Kanaríeyjum til meðferðar. Ég fór
fyrsta skipti í slíka ferð í vor, en
ég hef haft psoriasis í 10 ár. Heilsu-
stöðin sem um ræðir er rekin af
Norðmönnum og þar dvelja psorias-
issjúklingar frá Noregi, Svíþjóð,
Finnlandi og íslandi. (Aðrar þjóðir
sem senda einnig psoriasissjúklinga
sína á samskonar heilsustöðvar,
t.a.m. fara Danir á heilsustöð við
Dauðahafíð.) Á stöðinni starfa þrír
hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfari
og húðsjúkdómalæknir. Heilsustöðin
er vel útbúin fyrir starfsemi sem
Heilsustöðin hefur sínar eigin
reglur sem ætlast er til að psoriasis-
sjúklingar fari eftir. Áður en haldið
er af stað undirritar viðkomandi
yfirlýsingu frá Tryggingastofnun
ríkisins þess efnis, að ef hann hlýt-
ur ekki reglum stöðvarinnar geti
það varðað brottrekstri og að við-
komandi þurfi að'endurgreiða ferð-
ina. Meðferð sem þessi er full vinna.
Dagurinn hefst kl. 7.45, þá er öllum
skylt að mæta saman á fund ásamt
hjúkrunarfræðingi og farið er yfir
dagskrá dagsins. Leikfimi er svo í
15 mínútur, góð alhliða leikfimi
fyrir alla aldurshópa. Þeim sem
þjást af psoriasisgigt stendur til
boða vatnsleikfimi í upphitaðri salt-
vatnslaug. Morgunmatur er frá kl.
8-10 og síðan fara allir í sólbað,
annaðhvort á ströndina eða liggja
á sundlaugarbakkanum. Einnig er
aðstaða til að sóla sig nakin(n), en
ÍSLENSKIR psoriasissjúklingar glaðir í bragði á heilsustöðinni Valle Marina á Kanaríeyjum,
I 'x4Éi
l . ' $ +* «Jj|g|2p :
t* .. fflm
það er mjög miikilvægt að hafa þess
konar séraðstöðu þar sem psoriasis
fer ekki síður á hina „viðkvæmu"
staði líkamans. Fólk er síðan í sól-
baði allan liðlangan daginn og
mætir svo í kvöldmatinn, sælt og
svangt eftir langan dag.
Nú hefur Tryggingaráð ákveðið
að þessum ferðum verði hætt og
rökstyður þá ákvörðun sína m.a.
með því að nú séu komin öflug lyf
og öflugar göngudeildir sem veita
ljósabaðs- og tjörumeðferðir. Þann-
ig sé hægt að veita fleirum lausn
fyrir sama fé en þeim örfáu sem
sendir voru utan til meðferðar.
Kremin eftir heima
Lyf eru oft nauðsynleg og við
psoriasissjúklingar vitum það vel,
enda fer mikill tími í það á hveijum
degi að smyija sig með ýmiss kon-
ar lyfjaáburðum og það með mis-
góðum árangri. Það er því mikill
léttir fyrir okkur að eiga kost á að
fara í loftslagsmeðferð, þar sem
eingöngu sólin og sjórinn sjá um
lækninguna og við getum skilið
kremtúpumar eftir heima og hvílt
okkur og húðina á lyfjum í stuttan
tíma og það sem mikilvægast er,
fengið bata. Sólargeislarnir gera
stórkostlegt gagn fyrir okkur psor-
iasissjúklingana og hvað sem orðum
yfirlæknis Tryggingastofnunar og
deildarstjóra sjúkratryggingadeild-
ar T.R. líður, þá er gervisól (þá er
átt við ljósameðferð í lömpum á
göngudeild) ekki eins góð og sólin.
Ljósameðferðir eru hinsvegar nauð-
synlegar því með þeim er hægt að
halda við bata og sem betur fer
dugar göngudeildarmeðferð sumum
einstaklingum.
í dagblaðinu Tímanum fyrir
nokkru ritaði tryggingayfirlæknir
grein þar sem hann talar um' að
ekki hafi verið sýnt fram á að sólar-
landaferðir fyrir psoriasissjúklinga
beri umtalsverðan eða Iangvarandi
árangur, enda ljóst að talsvert er
um sjúkdóminn hjá þeim sem búa
þar allt árið. Tryggingayfirlæknir
veit bara ekki að sólarlandaferð
eins og landinn þekkir og „sólar-
landaferð“ fyrir psoriasissjúklinga
er tvennt ólíkt. Viðveran í sólinni
er svo miklu meiri hjá okkur sem
förum til meðferðar í sólina - allt
upp í 8 klst. á dag í sólbaði - og
það er nokkuð sem ég tel að venju-
legur túristi myndi ekki nenna að
gera! Psoriasissjúklingar þurfa
þetta mikla viðveru í sólbaði, ekki
bara búa og vi aia í landi þar sem
sólin skín. Psoriasissjúkdómurinn
er jafnalgengur hjá öllum þjóðum
heims og áætlað að um 2-4% hverr-
ar þjóðar séu með psoriasis. Að
fara í loftslagsmeðferð, en svo kall-
ast sólarlandaferðir psoriasissjúkl-
inga, er full vinna.
Glaðir sjúklingar
Tilhugsunin að fara einn út og
dvelja í 3 vikur með ókunnugu fólki
er ekki ýkja spennandi. Þegar kom-
ið er á staðinn smitast maður af
andrúmsloftinu sem ríkir þarna. Þar
er samankominn fjöldi manns sem
á það sameiginlegt að vera með
psoriasis, hefur lengi liðið illa, eru
útklóraðir og hreistraðir en umfram
allt glaðir. Þarna hafa psoriasis-
sjúklingar 3 vikur til að láta sér
líða eins og manneskjum; allir í
sundfötum, enginn glápir, allir svo
glaðir því nú er batinn á næsta leiti.
Ánægja, gleði, samheldni og sam-
kennd einkenndi þessa ferð og eftir
að hafa reynt þetta sjálf veit ég
að jafngóðum bata get ég ekki náð
ein míns liðs, það hef ég marg-
reynt. Því eru þessar ferðir svo
mikilvægar fyrir okkur psoriasis-
sjúklingana. Hversu lengi batinn
varir er einstaklingsbundið, en það
tímabil sem hann varir er dásam-
legt.
Lúxus?
Til að meðferð skili árangri þarf
hún að vera stöðug og er hvíld
mikilvægur þáttur hennar. Það hef-
ur lítið upp á sig að vera í fullri
vinnu og geysast hingað og þangað
í meðferð, örþreyttur. Allar þjóðir
hafa viðurkennt gildi loftslagsmeð-
ferðar' fyrir psoriasissjúklinga og
þrátt fyrir að flestar þessar þjóðir
hafi betri sumur en við og allar þær
meðferðir sem við höfum líka, þá
senda þeir sína sjúklinga á sömu
eða samskonar heilsustöðvar og við
fórum á. Hvers vegna ætli það sé?
Örugglega vegna þess að þeir sjá
að þesskonar meðferð skilar ár-
angri. Peningunum er best varið í
meðferð sem skilar árangri. Það er
sannað og menn hafa vitað um
langt skeið að sólargeislarnir eru
besta lækningin við psoriasis. Hún
er auðveldasta leiðin og hefur engar
aukaverkanir. Mörgum sem ekki
eru með psoriasis finnast þessar
ferðir hreinn lúxus. Ef menn kjósa
að kalla þessar ferðir psoriasissjúkl-
inga lúxus, ættu hinir sömu að
íhuga málið aðeins betur og komast
þá vonandi að sömu niðurstöðu og
ág; það er ekki lúxus að fá að fara
í læknismeðferð til Kanarí, það er
lúxus að vera heilbrigður!
Höfundur er þjúkrunarfræðingur.
Símaskráin 1996
er komin út
föstudaainn 31. maí
Mýja símaskráin tekur gildi
Mundu eftir afhendingarmidanum
og nádu í nýju símaskrána
strax í dag
|Mýja
-útbreiddasta bók á íslandi
PÓSTUR OG SÍMI