Morgunblaðið - 30.05.1996, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 30.05.1996, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 30. MAÍ1996 41 MARIA SIG URBJORG JÓHANNSDÓTTIR + María Sigur- björg Jóhanns- dóttir fæddist í Reykjavík 20. maí 1902. Hún lést á Hrafnistu 18. maí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Guðrún Sigurðar- dóttir, f. 1868 á Valbjarnarvöllum í Borgarhreppi, d. 1945, og Jóhann Teitur Egilsson tré- smiður í Reykjavík, f. 1863 í Vöðlakoti í Flóa, d. 1938. Mar- ía var þriðja í röð fimm systk- ina. Þau voru Egill Ágúst, f. 1899, d. 1942, maki Katrín Helgadóttir, f. 1905, d. 1982; Guðrún, f. 1900, d. 1976, maki Jón Þorsteinsson bifreiðastjóri, f. 1892, d. 1994; ína f. 1905, maki Emil Gunnar Pétursson vélsljóri, f. 1904, d. 1990; Sab- ína Unnur, f. 1911, fyrri maki Magnús Halldórsson, járnsmið- ur, f. 1912, d. 1942, seinni maki Gísli Jóhannesson, múrara- meistari, f. 1900, d. 1979. María giftist Eyjólfi Runólfs- syni múrara 1925, en hann lést 1949. Foreldrar Eyjólfs voru Guðrún Guðmundsdóttir, f. 1874 í Auðsholti í Biskupstung- um, d. 1939, og Runólfur Magn- ússon fiskimatsmaður, f. 1866, að Lykkju á Kjalarnesi, d. 1955. Systkini Eyjólfs voru: Magða- lena Helga, d. 1965, maki Guð- mundur H. Guðmundsson Misskipt er mönnum lífshlaup- ið, en því fékk Maja að kynnast í raun. Þrjátíu og þriggja ára missti hún yndislegan son sinn sem varð fyrir bíl á Nýlendugöt- unni aðeins fjögurra og hálfs árs gamall. Fjórtán árum síðar lést eiginmaður hennar Eyjólfur, öð- lingsmaður, rúmlega 46 ára, eftir ástríkt hjónaband. María lifði einnig eldri dóttur sína Dúnu sem lést fyrir ári, 68 ára gömul. Maja fæddist í Bergstaðastræti en fjölskylda hennar fluttist að Bergstaðastræti 45 en síðar á nr. 40. Þessi hús standa enn. Jóhann Teitur faðir Maju vann í Slippnum í Vesturbænum og færði sig nær sínum vinnustað með því að kaupa bakhús á Nýlendugötu 19c en byggði slðar tveggja hæða stein- hús að Nýlendugötu 17 en þar réðust á hálfri ævi Maju örlög hennar. Á unglingsárum og fram til stofnunar heimilis á Nýlendugöt- unni vann Maja í sveit m.a hjá venslafólki á Refsstöðum hjá Helgu frá Valbjarnarvöllum og í Bræðratungu. Á fermingaraldri var Maja í vist á Nýlendugötu 19, í Daníelshúsi og víðar. í þá daga var lífið saltfiskur og réð Maja sig í vinnu við vöskun á fiski í saltfiskverkun hjá Duus en þar var verkstjóri Runólfur Magnús- son fiskimatsmaður og þar vann sonur hans Eyjólfur. Runólfur og Guðrún bjuggu þá með fjölskyldu sinni á myndarheimili á Bræðra- borgarstíg 21B. Nótt eina dreymdi Maju að hún væri stödd á basar í Bárunni að máta allskyns höfuðföt, sjóhatt o.fl. Þá finnst henni Runólfur koma og segja: „Ætli það sé ekki best að ég sjái þér fyrir höfuð- fati, María litla.“ Draumurinn rættist og þau Eyfi og Maja giftu sig árið 1925 og stofnuðu heimili á Nýlendugötu 19c en fluttu síðan á Nýlendugötu 17 og þar bjuggu ungu hjónin ásamt foreldrum Maju, ínu systur hennar sem þá var nýgift Emil Gunnari Péturs- syni vélstjóra og Sabínu systur hennar, sem sá þar síðar á eftir tveim eiginmönnum á besta aldri húsgagnasmíða- meistari, stofnandi Húsgagnaverslunar Reykjavíkur, d. 1983, Magnús skip- stjóri d. 1988, eftir- lifandi kona hans er Laufey Björnsdótt- ir, Hrafnistu; Guð- mundur járnsmiður, d. 1956, einn eig- enda vélsmiðjunnar Bjargs, maki Sessel- ía Friðriksdóttir Runólfsson, d. 1981, og fóstursystir Eyj- ólfs var Guðrún Kristinsdóttir, eða Gauja eins og hún er kölluð, ein systk- inanna á lífi en fyrri eiginmaður hennar var Halldór (Halli) Þór- arins og síðari maki Björn Jóns- son, kaupmenn, báðir látnir. Börn Maríu og Eyjólfs voru Guðrún (Dúna), f. 1926, d. 1995, maki Sigurður Jóhann Helgason forstjóri, þeirra börn eru María bókari, Helga húsmóðir og Jó- hann Þór byggingatæknifræð- ingur; Jóhann Runólfur (Haddi), f. 1930, d. í bílslysi 1935; Hrafn- hildur, f. 1935, fyrri maki Rós- mundur Guðmundsson múrari, börn þeirra: Eyjólfur rafverk- taki, Elísabet sjúkraliði og Unn- ur húsmóðir, seinni maki Hrafn- hildar Sigurður Vilhelm Halls- son efnaverkfræðingur. Barna- barnaböm Maríu era 15. Útför Maríu Sigurbjargar Jóhannsdóttur fór fram frá Dómkirkjunni 28. maí. frá ungum börnum en Sabína hefir búið þar síðan. Árið 1947 stofnuðu svo heimili sitt á Ný- lendugötu 17 eldri dóttir Maju, Guðrún, eða Dúna eins og hún var kölluð, og maður hennar Sig- urður Jóhann Helgason múrara- meistari og síðar stofnandi Stein- smiðju S. Helgasonar hf. Sjö árum síðar giftist yngri dóttir Maju, Hrafnhildur, Rósmundi Guð- mundssyni og áttu sitt fyrsta heimili á Nýlendugötu 17. Þannig byggðu Jóhann Teitur og Guðrún börnum og barnabörnum sínum skjól á meðan heimili þeirra var að mótast og styrkjast. Þetta var aðalsmerki fólksins á Nýlendu- götu 17 og báru þær systur Gauja, Maja, ína og Sabína merkið áfram til sinna barna og barnabarna. Fimm ára gömul fór Maja í barnaskóla og var. skólagangan stutt en Maja bætti sér það með miklum bókalestri og á langri ævi las Maja ógrynni bóka. Sem ekkja vann María af ein- stakri samviskusemi í rúma þijá áratugi við hreingerningar hjá Búnaðarbanka íslands, þar sem hún ávann sér ævilanga vináttu starfsfólksins. Þann tíma bjuggu þau Dúna og eiginmaður hennar Sigurður henni yndislegt heimili þar sem hún naut samvista við barnabörn sín þau Maríu, Helgu og Jóhann Þór sem og börn yngri dóttur sinnar Hrafnhildar og Rós- mundar, Eyjólf, Elísabetu og Unni. Er Maja fluttist á Hrafnistu á níræðis aldri voru heimsóknir barnabarnabarna henni til mikill- ar gleði. Samheldni Maju og systra hennar og áræði kom skýrt í ljós þegar þær drifu sig allar saman með farþegaskipi í Evrópuferð á sextugs- og sjötugsaldri. María þekkti þannig muninn á fámenn- inu í sveit og bæ á Fróni og ys og þys Parísar og Rómar. Maja hefði orðið 94 ára 20. maí sl. og líklega langlífust ætt- fólks síns frá Valbjarnarvöllum og Snjallsteinshöfða. Maja var ekki mannblendin, hlédræg en skjót til svara og hnyttin mjög í svörum og athugasemdum sem báru vitni skýrri hugsun, sem hún beitti snjallt við spil og tafl eink- um með ínu systur sinni fram á níræðisaldurinn. Maja hafði mikla ánægju af því að spila og tefla við barnabörnin og barnabarna- börnin og kenndi sumum þeirra að spila og tefla. Þess má geta að móðursystir Maju var amma eins af okkar bestu skákmönnum. Barnabörnin og barnabarnabörn- in voru mjög hænd að Maju til æviloka hennar. Æðruleysi Maju kom skýrt í ljós ef eitthvað gerðist sem henni líkaði ekki allskostar vel. Eftir rólega íhugun sagði hún þá með hægð: „Þetta er allt í lagi,“ og þar með var málið útkljáð. Þetta róaði alla viðstadda og þeir tóku gleði sína aftur. Er við kveðjum Maju, í vorblíðu maímánaðar, þessa fíngerðu, skarpgreindu konu, sem barst lít- ið á, en hugsaði vel um sitt fólk, er það huggun harmi gegn að afkomendur hennar muni bera merki mannkosta hennar sem kyndil úr fortíð til framtíðar. Víst er að Maja trúði á líf eftir dauðann. Við leiði manns síns sem hún var að huga að benti hún dótturdóttur sinni á þar sem hún myndi hvíla við hlið mannsins síns og ljómaði andlit hennar þá af gleði. Maja kvaddi þennan heim umvafin hlýju ástvina sinna. Þakka ber hjúkrunarfólkinu á Hrafnistu alúð þess og einlæga umönnun sem var til fyrirmyndar. Systrum Maju, ínu og Sabínu, tengdasyni og fjölskyldu, barna- börnum og barnabarnabörnum Maju, vandamönnum og vinum hennar votta ég mína hjartanleg- ustu samúð. Blessuð sé minning góðrar konu. Sigurður V. Hallsson. JIIIIIIXIIL : Erfidrykkjur P E R L A N Sími 562 0200 JlIIIIIIIIf Minnismerki úr steini Steinn er kjörið efni í allskonar minnismerki. Veitum alla faglega ráðgjöf varðandi hverskonar minnismerki. Áralöng reynsla. ii S. HELGAS0N HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48 • SÍMI 557 6677 t Faðir okkar, FRIÐSTEINIM G. HELGASON, Dalbraut 27, Reykjavík, lést í Landspítalanum 27. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Börnin. t Eiginmaður minn og faðir okkar, GUÐMUNDUR THORODDSEN, andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á ísa- firði að kvöldi laugardagsins 25. maí. Minningarathöfn fer fram í sal sjúkra- hússins föstudaginn 31. maí kl. 15.00. Útför hans verður auglýst síðar. Elisabet Gunnarsdóttir, Jón Kolbeinn Guðmundsson, Einar Viðar Guðmundsson. t Móðir okkar og tengdamóðir, MAGNEA INGILEIF SÍMONARDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, andaðist í St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, að morgni 29. maí. Aslaug Sigurðardóttir, Guttormur Vigfússon, Kristján Sigurðsson, Ingey Arnkelsdóttir, Finnur Sigurðsson, Guðrún Júlíusdóttir, Finnbogi Sigurðsson, Edda Lýðsdóttir, Símon Sigurðsson, Erna Kristjánsdóttir, Ástráður Sigurðsson, Ragna Helgadóttir. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR S. BJÖRNSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Bessastaðakirkju föstudaginn 31. maí kl. 15.00. Guðríður Jónsdóttir, Benedikt Sveinsson, Gunnar Björn Jónsson, Sigríður Einvarðsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir okkar, tengdafaðir og afi, BENEDIKT ÞÓRARINSSON, Stóra-Skógi, verður jarðsunginn að Kvennabrekku, Miðdölum, laugardaginn 1. júní nk. kl. 14.00. Gunnar S. Benediktsson, Hlynur Þór Benediktsson, Halldóra Benediktsdóttir, Bryndis Gunnarsdóttir, Benedikt Gunnar Gunnarsson, Þórarinn Gunnarsson. Fjóla Benediktsdóttir, Gunnar Ásgrfmsson, Rannveig Heimisdóttir, + Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda- móðir, amma og langamma, BÁRA VILBERGS, Háaleitisbraut 97, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 31. maí kl. 13.30. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hnnar, látnu er bent á líknarfélög. Bjarni ísleifsson, Svanlaug Júlfana Bjarnadóttir, Gylfi Már Bjarnason, Kolbrún Lilja, Elsa Eiriksdóttir, Berglind, Petra Dfs, Bjarni ísleifur, Bára Líf, Andri Már.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.