Morgunblaðið - 30.05.1996, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ljóska
Smáfólk
WORRV ABOUT EVERVTMIN6
THAT'5 EVER. HAPPENEP
ANP EVERYTHIN6 YOU
THINK MI6HT HAPPEN..
I CAN T 5LEEP,
BIG BROTHER.
WHAT 5H0ULP
I PO?
DON T DO
ANYTHIN6..
JU5T UE THERE,
AND UIORRY.
THEN \
UUHAT? /
Ég get ekki
sofíð, stóri
bróðir...
hvað á ég að
gera?
Ekki
neitt... liggðu
bara þarna
og hafðu
áhyggjur...
Hafðu áhyggjur af öllu
sem nokkru sinni hefur
gerst og af öllu sem þú
hyggur að gæti gerst...
Hvað svo?
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 5691329
• Netfang: lauga@mbl.is
Þjáningar Krists
á krossinum
Frá Eggerti E. Laxdal:
ÞEGAR sálmaskáldið góða tók sér
fyrir hendur að yrkja um Jesú Krist,
frelsara sinn og Guð, þá vaknar
hugur hans til meðvitundar um þær
þjáningar, sem Jesú Kristur leið á
krossinum fyrir syndir mannanna.
Þið vitið hvaða skáld þetta var,
nafn hans er Hallgrímur Pétursson,
prestur á Saurbæ við Hvalfjarðar-
strönd. Hann var þá orðinn sjúkur
maður og það er enginn vafi á því,
að hann hefur sjálfur liðið bæði
andlega og líkamlega vegna þessa
sjúklega ástands síns. Hann gat
ekki verið innanum annað fólk og
hafðist við í útihúsi, þar sem honum
var borinn matur og annað sem
hann þurfti á að halda. Hann var
holdsveikur og engin lækning til,
sem gat sigrað þessa banvænu sótt.
Ljóðabálkurinn, sem Hallgrímur
Pétursson orti hlaut nafnið, „Pass-
íusálmar," og vil ég fara með fyrsta
sálminn, en hann er á þessa leið.
Upp upp mín sál/ og allt mitt
geð,/ upp mitt hjarta og rómur
með,/ hugur og tunga hjálpi til,/
Herrans pínu eg minnast vil.
Það er enginn vafi á því að Pass-
íusálmarnir eru innblásnir af Guðs
anda. Kristur sjálfur hefur haldið í
hönd skáldsins þegar hann skrifaði
hugsanir sínar niður, þjakaður bæði
á sál og líkama. Hans eigin þjáning-
ar hafa orðið til þess, að beina sjón-
um hans til þjáninga Drottins Jesú,
sem hann leið hans vegna og alls
heimsins. Hallgrímur Pétursson
finnur hjá sér köllun til þess að
játa Krist Jesú fyrir mönnunum og
það kemur fram í öðru versinu.
Sankti Páll skipar skyldu þá:
/skulum vér allir Jörðu á/ kunn-
gjöra þá kvöl og dapran deyð,/ sem
Drottinn fyrir oss auma leið.
Hann hvetur fólkið til þess að
kunngera fórnardauða Frelsarans,
enda er það skipun Drottins, að orð
hans skuli boðað öllu mannkyni.
Þessu boði eru trúaðir menn að
reyna að fullnægja með kristniboði,
bæði í ræðu og riti. Biblían hefur
verið þýdd á ótal tungumál og sala
hennar eykst, stöðugt jafnt og þétt.
Þeir sem trúa, hafa skyldum að
gegna við meðbræður sína og syst-
ur. Ef trúin er ekki boðuð, þá verða
engir hólpnir og allt mannkynið
myndi glatast, en það er ekki Guðs
vilji heldur hitt, að allir verði sálu-
hólpnir. Orð Guðs er ennþá lifandi
og kröftugt og eitt þess megnugt
að knýja syndara til iðrunar og til
þess að fá þá til þess að játa synd-
ir sínar og viðurkenna Jesú, sem
frelsara sinn og Guð. Gerum þetta
og trúum á fyrirgefninguna því að
Jesús sagði, „Þann sem til mín kem-
ur mun ég alls ekki burtu reka.“
Um þetta segir Hallgrímur Pét-
ursson einnig, á þessa leið. Ljúfan
Jesúm til lausnar mér,/ langaði víst
að deyja hér/ mig skyldi og lista
og minnast þess,/ mínum Drottni
til þakklætis.
Við gerum of lítið af því að þakka
og lofa Guðs son Jesú Krist og
þakka honum fyrir það sem hann
hefur gert fyrir okkur og allt mann-
kyn, og það er ekki séð ennþá,
hvílík náð hans er og hvað við
munum öðlast í eilífðinni, því að
Drottinn er góður og vill launa okk-
ur langt framyfir það, sem við höf-
um unnið til. Við eigum eilíft líf í
vonum, þegar jarðlífinu lýkur og
það er ekkert smávegis fyrirheiti.
Reynum því að sýna það í verki,
að við séum sannarlega kristin.
Auðvitað verður okkur ýmislegt á
eins og öllum öðrum, hjá því verður
ekki komist. Kristnir menn eru
breiskir eins og allir aðrir og kom-
ast ekki hjá því að syndga meira
eða minna, en náð Guðs mun knýja
þá til iðrunar og yfirbótar og fylla
hjörtu þeirra af kærleika Guðs
vegna hans miklu gæsku. í fjórðu
vísu fyrsta sálms segir Hallgrímur
Pétursson á þessa leið.
Innra mig loksins angrið sker,
æ hvað er lítil rækt í mér,
Jesús er kvalinn í minn stað,
of sjaldan hefí ég minnst á það.
Krossdauði Krists og hans heil-
aga blóð, hreinsar oss af allri synd,
það er vitnisburður Páls postula og
eg tek undir hann.
Gjörum Drottin dýrðarinnar, að
konungi lífs vors og leiðtoga og
höldum fast við það, hvernig sem
allt veltist. Þá fer allt vel að lokum.
EGGERT E. LAXDAL,
Hveragerði.
Rabarbari við
meltingartruflunum
Frá Einari Sveini Erlingssyni:
ÉG LAS grein um rabarbara í
Morgunblaðinu þann 18. maí. Þar
var fjallað um gagnsemi rótarinnar
við meltingartruflunum. Kínveijar
sem hafa mikla þekkingu á grösum
til lækninga nota rótina í þessum
tilgangi og hafa gert í þúsundir
ára, síðar tóku Evrópubúar þetta
upp. Faðir minn Erlingur Filippus-
son grasalæknir útbjó þessa mixt-
úru mikið fyrir fólk. Ég undirritað-
ur og Óli Filippus bróðir minn þrif-
um oft rætur í þessa suðu, en það
er talsverð vinna sé það vel gert.
Fyrir þá sem vilja útbúa sitt eigin
hægðameðal, er aðferðin þessi:
Ræturnar þvegnar vel úr volgu
vatni, þá ysta húðin skafín af, þá
þvegnar aftur og skornar í strimla,
síðan 300-400 grömm rætur soðn-
ar í lítra vatns í 40 mín. 50 grömm
af leginum tekin inn fyrir máltíð.
EINAR SVEINN
ERLINGSSON,
framkvæmdastjóri
Islenskra lyfjagrasa ehf.
Heiðarbrún 74, Hveragerði.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.500 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.