Morgunblaðið - 22.06.1996, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 21
Sólhf. ogKjörís
Nýir frost-
pinnar með
Svala-
bræðrum
KJÖRÍS hf hefur gert samning við
Sól hf. um framleiðslu og sölu á
Svala-frostpinnum.
Kjörís mun framleiða og selja
Svalafrostpinna, sem innihalda 35%
hreinan ávaxtasafa í samræmi við
drykkinn Svala sem Sól hf. fram-
leiðir, og skreyta Svalabræður um-
búðirnar.
Núna eru komnar á markað tvær
bragðtegundir af frostpinnum, með
appelsínu og eplabragði, og verða
pinnarnir seldir í lausu í sumar, en
í fjölskyldupakkningu í haust.
Stjórnendur Sólar telja að miklir
möguleikar felist í samstarfi við
önnur íslensk framleiðslufyrirtæki
um nýtingu á Svalavörumerkinu
vegna harðnandi samkeppni við er-
lend fyrirtæki. Samningurinn við
Kjörís er fyrsta skrefið að þeirra
mati í slíku samstarfi.
Sól hf. og Kjörís hafa einnig
gert með sér samkomulag um
markaðssetningu vörunnar, sem
felst í sumarleik Svalabræðra og
byggist á safnleik um að eignast
raðspil og svifdiska. Kaupendur
safna flipum af ávaxtafernum og
umbúðum utan af frostpinnum.
Shell bensínstöðvar dreifa svo vinn-
ingum um allt land.
-----♦ ♦ ♦-----
Línuskautar
til leigu
LJÓSABEKKJALEIGAN Lúxus
mun í sumar leigja út línuskauta.
Sverrir E. Eiríksson, eigandi henn-
ar, segist keyra út skautana til
þeirra sem panta.
„Ég er með línuskauta í öllum
stærðum," segir hann, en símboða-
númerið er 896 8965. Sverrir leið-
beinir einnig um hvernig best sé
að rúlla áfram.
Hnjáhlífar fylgja með skautunum
og ef fólki líkar sportið vel er hægt
að kaupa skautana.
Morgunblaðið/Ásdís
Ný Húsavík-
urjógurt
TVÆR nýjar bragðtegundir af
Húsavíkuijógurt eru komnar í búð-
ir. Annars vegar léttjógurt með
peru- og vanillubragði og hins veg-
ar kákasusjógurt með blábeijum.
Jógurtin eru framleidd í 500 g
fernum eins og aðar tegundir frá
Húsavíkuijógurt, en jarðarbeijajóg-
urtin hafa verið sett í nýjan bún-
ing. Alls fást nú um 10 tegundir
af Húsavíkuijógurt. Framleiðandi
er Mjólkursamlag KÞ á Húsavík.
Heilsuvörur seld-
ar í heimahúsum
SÆNSKU heilsuvörurnar Nature’s
Own sem komu á markaðinn í Sví-
þjóð fyrir tveimur árum fást nú hér-
lendis. Umboðsmaður er Sigurður
Fannar, sem segir að vörurnar verði
einungis seldar i heimahúsum og
þegar sé hafin uppbygging sölunets.
Boðið er upp á ijórar framleiðslu-
tegundir: Nutrítion Pack, eða nær-
ingarpakkinn, sem sagður er góð
næring og fæðuviðbót fyrir alla og
einnig þá sem vilja grenna sig. I
framleiðslunni er prótín drykkjar-
blanda, fjölvítamíntöflur með jurtum
og steinefnum, andoxunartöflur og
trefjatöflur. Elite Sport Nutrition
System er ætlað sem orku- og fæðu-
bótaefni fyrir íþróttafólk, Sun Clinic
samanstendur af nokkrum gerðum
af sóláburði til notkunar utandyra
og í sólbekkjum. Einnig framleiðir
Nature’s Own þijár tegundir af and-
litskremum, sem nefnast einu nafni
Face Line, og ætlaðar eru til dag-
legrar umönnunar húðarinnar..
Aðrar framleiðsluvörur eru Kó-
ensín Q-10, Calsím D og Omega 3
lýsi.
Á veitingastofum McDonald's á íslandi er boðið upp á þrjár gerðir af McMjólkurhristingi;
súkkulaði, jarðarberja og vanillu. Mcís er hægt að fá i brauðformi eða bikar með heitri súkkulaði-
eða karamellusósu. Bragðefnin eru „ekta“ - aðeins er notað hreint súkkulaði, hrein karamella og
hrein jarðarber í þau. „Algjört bstlœtil", segja margir.
Alltaf gæði • Alltaf góður matur • Alltaf góð kaup
LYST ehf, er islenskt fjölskyldufyrirtceki. Ef frekari upplýsinga
er óskað, skrifið þá góðfúslega til: LYST ehf, pósthólf 52, 121 Reykjavík,
eða: Emmessís hfi, Bitruhálsi 1, 110 Reykjavtk.
LYST
VISSIR ÞU ÞETTA UM EMMESSÍS
OG McDONALD'S Á ÍSLANDI?
Það er Emmessís hf. sem framleiðir
ísinn fyrir McDonald’s samkvæmt
sérstakri uppskrift en Emmessís hefur
búið til ís fyrir íslendinga í 36 ár. Isinn
er búinn til í sérhannaðri byggingu
Emmessíss, en þar er öll framleiðslan
tölvustýrð og undir stöðugu eftirliti
samkvæmt GÁMES, alþjóðlegu kerfi
um öryggi og hreinlæti í matvæla-
fyrirtækjum. Magnús Ólafsson fram-
kvæmdastjóri Emmessís er stoltur af
samstarfinu við McDonald’s:
„McDonald's er einn stcersti seljattdi íss og
mjólkurhristings í heiminum og við höfum
lært margt af því að framleiða fyrír þá. Hin
öguðu vinnubrögð þeirra tryggja t.d. að ísinn
er eins, hvort sem er í Reykjavík eða í Tokýo.
Samkvæmt kröfum McDonald’s er ísblandan
sem ísinn er búinn til úr, alltaffersk. í henni er
m.a. rjómi og mjólk en það er rjóminn sem
gefur ísnum þeirra þettafina bragð."
„Fyrir gestina okkar“, segir Kjartan Örn
Kjartansson, hjá Lyst ehf., „ er það mikilvœgt
að þeir geti treyst hreinlæti okkar og gæðum.
Mannshöndin kemur hvergi nærri fram-
leiðslunni og ísvélamar á veitingastofunum
okkar eru sótthreinsaðar daglega. Hrein afurð
islenskrar náttúm - mjólkin - er uppistaðan i
ísnum, en hún þarf að uppfylla ákveðnar
kröfur, m.a. um fituhlutfall. Með hinni
sérstöku uppskrift okkar og þessum
vinnubrögðum verða til hágæða ís og mjólkur-
hristingur sem em fitu- og sykurminni en
gengur oggerist - létt ogfersk i munni."