Morgunblaðið - 25.07.1996, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1996 41
MINNINGAR
+ Óskar Benjamín
Benediktsson
var fæddur í
Reykjavík, 17. októ-
ber 1918. Hann lést
í Landspítalanum
hinn 17. júlí síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru hjónin
Guðlaug Steinunn
Guðbrandsdóttir, f.
2. júní 1880, d. 2.
janúar 1956, og
Benedikt Halldórs-
son, f. 24. júní 1890,
d. 16. nóvember
1941, skósmiður í
Reykjavík. Systir Óskars er
Guðbjörg M. Benediktsdóttir, f.
24. des. 1922 í Reykjavík. Óskar
ólst upp í Reykjavík hjá foreldr-
um sínum.
Óskar kvæntist 12. júní 1942
Tengdafaðir minn Óskar Bene-
diktsson er látinn eftir langvinn veik-
indi en hann átti við mikið og marg-
háttað heilsuleysi að stríða um árabil.
Dagur er runninn, kvöld er komið
og kær er honum nú hvíldin eftir
langan dag. Ég kynntist Óskari á
Bifreiðastöð Steindórs fyrir rúmum
þijátíu árum. Hann var einn af þess-
um viðmótsgóðu mönnum sem ekki
Magneu Þóru Guð-
jónsdóttur, frá
Skorhaga í
Brynjudal í Kjós.
Þau hófu búskap á
Seltjarnarnesi og
síðar í Reykjavík.
Þau slitu samvist-
um.
Börn þeirra eru:
1) Eygló Bryndal, f.
28. júní 1940, gift
Kristni Th. Holm,
hún á þijú börn og
átta barnabörn. 2)
Birna Guðlaug, f.
13. maí 1942, gift
Ingvari Elíassyni, hún átti einn
son, sem er látinn. Þau eiga eina
dóttur og þrjú barnabörn. 3)
Ingvar Júlíus, f. 13. september
1943, í sambúð með Birnu
Björnsdóttur, hann á þijú börn
fór mikið fyrir en var alitaf tilbúinn
að rétta hjálparhönd. Hann sýndi
öllum, jafnt samstarfsfólki og far-
þegum, sömu prúðmennskuna, var
ákaflega vel liðinn og í hópi fárra
manna sem yfirmenn stöðvarinnar
treystu fyrir nýjustu bílunum.
Nokkrum árum seinna lágu leiðir
okkar aftur saman er ég varð tengda-
dóttir hans. Þá var hans þátttöku í
og átta barnabörn. 4) Eyrún
Sigurbjörg, f. 5. október 1944,
gift Guðmundi Haraldssyni, hún
á tvær dætur og eina dótturdótt-
ur. 5) Már Óskar, f. 21. nóvem-
ber 1945, kvæntur Ingunni
Ragnarsdóttur, þau eiga 2 börn,
fyrir átti Már eina dóttur og
Ingunn eina dóttur og barna-
börnin eru 6. 6) Sigurður Bald-
vin, f. 4. maí 1947, kvæntur
Guðrúnu Leifsdóttur, þau eiga
þijú börn. 7) Birgir, f. 15. mars
1951, kvæntur Guðrúnu Þ.
Kristjánsdóttur, þau eiga einn
son, fyrir átti Birgir tvo syni.
8) Kornína Björg, f. 10. júní
1956, í sambúð með Hlöðveri
Pétri Hlöðverssyni, þau eiga
þrjár dætur. 9) Erla Þóra, f. 13.
mars 1959, í sambúð með Karli
Valdemarssyni, þau eiga þijú
börn.
Þau hjón eignuðust eina
stúlku er lést í fæðingu.
Óskar eignaðist eina dóttur
fyrir hjónaband, Helgu, f. 1940.
Útför Óskars fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
atvinnulífínu senn að ljúka sökum
veikinda. Áhugamál hafði hann íjöl-
mörg og var fróður um margt og var
í raun alltaf að lesa sér til og auka
við þekkingu sina svo sem í tölvumál-
um og einnig átti hann það til að
grípa í harmonikkuna eða orgelið en
hann hafði verið við tónlistarnám hjá
Kristni Ingvarssyni, orgelleikara í
Hafnarfirði á yngri árum.
Það var alveg sama hvar okkur
bar niður í samræðum, hann var all-
staðar vel heima og fræðandi. Það
var sagan, heimsmálin, tölvutæknin
og þá sérstaklega tónlistin sem hon-
um var hugleikin og nú vildi ég gjarn-
an að tal okkar hefði hnigið oftar í
þá átt, bæði að hljóðfærum og tón-
snillingum enda fylgdist hann alla
tíð vel með á þeim vettvangi. Óskar
eignaðist sína fyrstu harmonikku
sem ungur maður og seinna einnig
orgel, en hann spilaði fyrir dansi hér
áður fyrr og var einn af stofnfélögum
í Félagi harmonikkuleikara í Reykja-
vík 1936.
Óskar bjó alla tíð í Reykjavík og
var sinn starfsaldur lengstum við bíla-
viðgerðir og í leigubílaakstri. Ók fyrst
hjá Litlu bílastöðinni og Hreyfli en
seinna hjá Bifreiðastöð Steindórs. Á
bifreiðaverkstæðum var hann, m.a.
hjá Agli Vilhjálmssyni og Heklu hf.
Síðustu árin bjó Óskar á dvalar-
heimilinu Felli í Reykjavík og var
honum mjög hlýtt til heimilisfólks
og starfsfólks þar.
Þrek þurfti og mikla karlmennsku
til að bera það heilsuleysi er hann
bjó við alla tíð en hann var alltaf
hress í anda, æðruleysi var hans
aðalsmerki og hann bar stöðugt í
bijósti von um betri tíð.
Laus er hann nú úr viðjum veik-
inda og vonin um bata, sem alltaf var
svo rík hjá honum orðin að veruleika,
hann er heill orðinn og kominn heim.
Af eilífðar ljósi bjarma ber,
sem brautina þunp greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en auga sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(E. Ben.)
Bæn mín er sú, að hann megi frið-
ar njóta, handan huliðstjalds í ljósinu
eilífa.
Ingunn Ragnarsdóttir.
Á fögru sumarkvöldi kvaddi góð-
vinur okkar þetta jarðlíf.
Okkur langar til að minnast hans
með fáum orðum. Það var ætíð gott
að vera í návist Óskars, hann var
bæði hjalplegur og einstakt prúð-
menni. Óskar var búinn að vera lengi
veikur en bar sig alltaf eins og hetja.
Við viturn líka að lífið var ekki alltaf
dans á rósum hjá honum, en aldrei
heyrði maður hann kvarta. Hann var
alltaf boðinn og búinn að rétta hjálp-
arhönd ef til hans var leitað. Hans
er sárt saknað hér á Dvalarheimilinu
Felli.
Elsku Óskar okkar, minning þín
er ljós í lífi okkar. Við sendum börn-
um þínum og ölliim aðstandendum
dýpstu samúð. Við minnumst þín
með virðingu og þökkum þér fyrir
allar góðu stundirnar. Guð blessi
sálu þína.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elín, Elva, Ingibjörg,
Oktavía, Sigríður.
OSKAR BENJAMIN
BENEDIKTSSON
RAÐAUGí ÝSINGAR
Rafsuðumaður
Vanur rafsuðumaður óskast.
Upplýsingar veitir Anna milli kl. 8 og 12,
fyrir hádegi, í síma 568 6844.
Lyfjakynnir
Óskum eftir að ráða lyfjakynni til starfa fyrir
erlent umboðsfyrirtæki okkar.
Við leitum eftir lyfjafræðingi, hjúkrunarfræð-
ingi eða starfskrafti með menntun og reynslu
á heilbrigðissviði. Um fullt starf er að ræða.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skal sehda til Pharmaco hf.,
Hörgatúni 2, 210 Garðabæ, og þurfa þær
að berast í síðasta lagi föstudaginn 2. ágúst
í umslagi, merktu: „Atvinnuumsókn - lyfja-
kynnir".
Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál.
VEIÐI
Laxveiðileyfi
Til sölu veiðileyfi í Brennu, Bprgarfirði (ármót
Þverár og Hvítár). Einnig í Álftá á Mýrum.
Upplýsingar í síma 557 7840 milli kl. 8.00
og 18.00 alla virka daga.
Langá á Mýrum
Vegna forfalla eru tvær stangir lausar á
neðsta svæði Langár í næstu viku (27. júlí-
3. ágúst).
Upplýsingar í síma 437 1826 (Runólfur eftir
kl. 21.00) eða 852 7531 (Árni).
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Þiljuvellir 21, miðhaeð, Neskaupstað, þingl. eig. Lúther Harðarson,
gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Lífeyrissjóöur Norður-
lands, 2. ágúst 1996 kl. 14.00
Þiljuvellir 27, neðri hæð, Neskaupstað, þingl. eig. Bára Guðmanns-
dóttir og Karl Ólafsson, gerðarbeiðendurLífeyrissjóður Austurlands,
Rafmagnsveitur ríkisins og Sparisjóður Norðfjarðar, 2. ágúst 1996
kl. 14.30.
Þiljuvellir 6, Neskaupstað, þingl. eig. Sigfús Guðmundsson, gerðar-
beiðandi Lífeyrissjóður Austurlands, 2. ágúst 1996 kl. 15.00.
Sýslumaðurínn i Neskaupstað,
24. júli 1996.
Uppboð
Uppboð á eftirfarandi eignum munu byrja á skrifstofu embættis-
ins íMiðstræti 18, Neskaupstað, föstudaginn 2. ágúst 1996 kl. 13.00:
Hafnarbraut 32, n.h. austur, Neskaupstað, þingl. eig. Bessi Bjarna-
son, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag íslands hf.
Hlíðargata 16, e.h., Neskaupstað, þingl. eig. Óla Steina Agnarsdótt-
ir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Hólsgata 8, 2.h. austur, Neskaupstað, þingl. eig. Jakobína S. Stefáns-
dóttir, gerðarbeiöendur Byggingarsjóður verkamanna og T refjar hf.
Nesgata 18, Neskaupstaö, þingl. eig. Sveinn Þór Gíslason, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Sjóhús, Strandgötu 11, Neskaupstað, þingl. eig. Sólheim h/f, gerðar-
beiðandi sýslumaðurinn í Neskaupstaö.
Strandgata 22, 1.h., Neskaupstað, þingl. eig. Hólmfríður Jónsdóttir,
gerðarbeiðendur Sparisjóður Norðfjarðar og Vátryggingafélag ís-
lands hf.
Sýslumaðurínn i Neskaupstað,
24. júlí 1996.
auglýsingar
TM-hug-
leiðsla (inn-
hverf íhugun)
Maharishi Mahesh
Yogi, frumkvööuli
TM-hugleiðslu.
Kynningarfyiirlestur um TM-
hugleiðslu verður haldin í Hótel
Lind, Rauðarárstíg, fimmtudags-
kvöld kl. 20.30.
Ókeypis aðgangur.
Upplýsingar í síma 562 8485.
TM-kennslumiðstöðin,
(slenska íhugunarfélagið.
FERÐAFÉIAG
# ÍSLANDS
MÖPKINNI 6 - SlMI 568-2533
Spennandi helgarferðir
næstu helgi 26. - 28. júlí
1. Landmannalaugar - Hraun-
vötn. Gist báðar nætur í Laug-
um. Á laugardeginum er ekið að
hinum fallegu Hraunvötnum,
norðaustan Veiðivatna og geng-
ið um svæðið. Farið á árbókar-
slóðir í Þjórsárdal á heimleið
2. Þórsmörk - Langidalur.
Góð gisting i Skagfjörðsskála
Langadal eða tjöldum. Göngu-
leiðir við allra hæfi.
3. Yfir Fimmvörðuháls. Gist í
Þórsmörkinni. Gengið yfir háls-
inn á laugardeginum. Upplýs. og
pantanir á skrifst., Mörkinni 6.
Við minnum á sumardvöl í Þórs-
mörk. Tilvalið að dvelja milli
feröa, t.d. frá helgi til miðviku-
dags.
Tjaldstæði Ferðafélagsins f
Þórsmörk eru f Langadal, Litla-
enda og Stóraenda. Góð að-
staða.
Hekluganga laugardaginn 27/7
og Hveravallaferð sunnudaglnn
28/7. Brottför kl. 08.00 að
morgni í báðar ferðirnar.
Munið söguslóðir á Grænlandi
6.-13. ágúst. Örfá sæti í þessa
einu Grænlandsferö sumarsins.
hagstætt verð. Upplýsingablað
á skrifstofu.
Miðhálendisferð 3.-10. ágúst.
Sprengisandur - Kverkfjöll -
Askja o.fl.
Borgarfjörður eystri - Seyðis-
fjörður 6.-11/8. Uppselt í ferð-
ina.
Arnarfell hið mikla - Þjórsárver
- Kerlingarfjöll 9.-15/8.
Bakpokaferð.
Árbókarferð milli Hvftár og
Þjórsár 16.-18/8. Ökuferö með
göngu- og skoðunarferöum á
slóðir Árbókarinnar 1996. Farar-
stjóri: Ágúst Guðmundsson,
höfundur bókarinnar.
Ferðafélag (slands.
Sumarleyfisferðir
á næstunni
„Laugavegur" 28/7-1/8.
Farangur fluttur. Gist í skálum
F.I. Fjöldi „Laugavegsferða" fram-
undan.
Snæfell - Lónsöræfi, 7 daga
ferðir. Brottför3. og 10. ágúst.
Eyðibyggðir 26/7-1/8.
Uppselt í þessa ferð um skagann
milli Eyjafjarðar og Skjálfanda.
Með Djúpá og Hverfisfljóti
2.-7. ágúst: Bakpokaferð.
Fá sæti laus.
Dagsferð 28. júlí
kl. 10.30: Selvogsgatan. Forn
leið á milli Hafnarfjarðar og Sel-
vogs. Verð 800/900.
Helgarferð 26.-28. júlí
kl. 20.00: Básar. Fjölskyldu-
svæði í gróðurvin undir jöklum.
Verð 4.900/4.300.
Ath. að Útivist býður upp á
sex spennandi ferðir um
verslunarmannahelgina.
2.-5. ágúst Núpstaðarskógur.
2.-5. ágúst Landmannalaugar
- Básar, trússferð.
2.-5. ágúst Sveinstindur -
Skælingar - Gjátindur - Eldgjá.
2. -5. ágúst Frá Ólafsfirði i síld-
ina á Siglufirði.
3. -5. ágúst Fimmvörðuháls.
3.-5. ágúst Básar.
Netfang:
http://www.centrum.is/utivist
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Kl. 20.30: Lofgjörðarsamkoma í
umsjá Gils Guðmundssonar.
Miriam Óskarsdóttir talar. Allir
hjartanlega velkomnir.
Árbæjarsafn
Þvottalaugaganga í kvöld kl.
20.00. Lagt uppp frá Lækjatorgi
kl. 20.00. Ókeypis þáttaka.
Litaljósritun
Opiö frá kl. 13.30-18.00.
Ljósfell,
Laugavegi 168,
Brautarholtsmegin.