Morgunblaðið - 07.08.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.08.1996, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Þorkell FORSETAHJÓNIN Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir slá á létta strengi. Bindindismótið í Galtalækjarskógi Forsetahjónin voru meðal gesta Á SJÖTTA þúsund manns sóttu bindindismótið í Galtalækjarskógi um verslunarmannahelgina, sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Forsetahjónin heimsóttu móts- svæðið á laugardagskvöld og gengu um meðal gestanna og fylgdust með skemmtiatriðum. Að sögn mótshaldara tóku fyrstu gestimir að streyma í Galtalækjarskóg á miðvikudags- kvöld, og verslanir á svæðinu opnuðu strax á fimmtudag, en ekki á föstudag eins og staðið hafði til. Aðfararnótt laugardags versnaði veður, og nokkur Ijöld fuku upp. Rigning og rok urðu mótsgestum til ama fram á sunnu- dagsmorgun. Unglingarnir virt- ust þó ekki láta veðrið á sig fá, en hlutfall þeirra hefur aldrei verið jafn hátt á bindindishátíð- inni. Forseti íslands, herra Ólafur Ragnar Grimsson, og eiginkona hans, frú Guðrún Katrín Þorbergs- dóttir, komu á mótssvæðið kl. 20 á laugardagskvöld, og var þeim vel fagnað að sögn mótshaldara. Forsetahjónin kusu frekar að ganga um svæðið meðal mótsgesta en að silja í heiðursstúku sem þeim var ætluð, og fylgdust þau með kvöldskemmtun í rigningunni. Hjónunum voru færðar gjafir og blóm, og yfirgáfu þau mótssvæðið um miðnætti. Mótshaldarar sögðu bindindis- mótið hafa farið vel fram, og engin alvarleg óhöpp áttu sér stað. Aðeins bar á ölvun í Galta- læk að þessu sinni, en ekki voru unglingar þar á ferð, heldur fyrst og fremst fámennur hópur full- orðinna. A Alyktun bæjarráðs Vesturbyggðar Hugmyndum um þjónustuskerð- ingu hafnað BÆJARRAÐ Vesturbyggðar hafnar alfarið framkomnum hugmyndum um þjónustuskerð- ingu á starfsemi heilsugæslu og sjúkrahúss í V-Barðastrandar- sýslu. Jafnframt beinir bæjarráðið þeim tilmælum til heilbrigðisráðu- neytisins og forsvarsmanna heil- sugæslustöðvar og sjúkrahúss að fram fari úttekt á raunverulegri rekstrarfjárþörf stofnananna miðað við þá starfsemi sem þær veita nú, svo leitt verði í ljós hvort sá fjárhagsgrundvöllur sem þær starfa á sé raunhæfur. Þjónustustig ekki skert frekar Bæjarráð Vesturbyggðar samþykkti ályktun á fundi sínum 31. júlí sl. þar sem fram kemur að ráðið telji ekki unnt að fara eftir nema hluta af þeim tillögum sem því voru kynntar um úrbæt- ur á rekstrarvanda heilsugæslu og sjúkrahúss. í ályktuninni seg- ir að bæjarráðið telji eðlilegt að hagræða í rekstri þar sem því verði við komið, svo fremi sem það skerði ekki þjónustustig stofnananna frá því sem nú er, enda verði ekki séð að gengið verði lengra í þá átt en gert hef- ur verið á undanförnum árum. Þörf auka- fjárveitingar Gísli Ólafsson bæjarstjóri Vesturbyggðar segir að bæjar- ráðið ætli ekki að skorast undan því að taka á fjárhagsvanda sjúkrahússins og heilsugæslunn- ar. „Við horfum til þess að málið verði leyst með svipuðum hætti og ráðherra og varaformaður fjárveitinganefndar ætla að beita sér fyrir í Stykkishólmi. Sjúkra- hússstjórnin þar skar t.d. niður launakostnað, fyrst og fremst hvað varðar yfirmenn stofnunar- innar, auk annarra þátta. Það sem á vantar í Stykkishólmi ætlar ráðherra áð leysa með aukafjárveitingu og við ætlumst til að það verði líka gert hér.“ A Atta þúsund gestir á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum Slæmt veður setti strik í reikninginn GESTIR á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum voru um átta þúsund og gengu hátíðahöldin ágætlega fyrir sig, að sögn lögreglu. Slæmt veður setti strik í reikninginn,, en um 600 gestir þurftu að leita sér skjóls fyrir veðri og vindum aðfaranótt laugardags. Flug til lands lá að mestu niðri á mánu- dag vegna veðurs, og nokkrir komust ekki til síns heima fyrr en í gærdag. Að sögn Agnars Angantýssonar yfir- lögregluþjóns í Vest- mannaeyjum sóttu milli sjö og átta þús- und gestir þjóðhátíð- ina. „Fólk hagaði sér ágætlega og þetta var með betri þjóðhátíð- um“, sagði Agnar. „Slæmt veður var að- faranótt laugardags, en við vorum undir það búin og það gekk fljótt og vel að koma fólki í skjól. Ég reikna með að um 600 manns hafi þurft að leita skjóls í íþróttahúsum bæjar- ins um nóttina." Tvær nauðganir kærðar Lögreglan í Vest- mannaeyjum fékk tíu manna liðstyrk frá Reykjavík, þ.á m. menn úr fíkniefna- deild, og voru alls 20 lögreglumenn á vakt um helgina. Tvær kærur bárust vegna nauðgunar, en engin önnur stórmál komu til kasta lög- reglu. Sjö minniháttar fíkniefnamál komu upp, allt svokölluð neyslumál. Sigurður Sigurbjörnsson fram- kvæmdastjóri hátíðarnefndar Þórs ÞRÖNGT var á þingi í flugstöðinni í Vest- mannaeyjum á mánudag, en flug lá niðri vegna veðurs fram undir kvöld. segist ánægður með þjóðhátíðina í ár. „Að vísu gerði slæmt veður að- faranótt laugardags, en það tókst að koma öllum í hús sem voru blaut- ir og hraktir. Þetta var mjög góð Morgunblaðið/Sigurgeir MILLI SJÖ og átta þúsund gestir voru á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, og gengu hátíðarhöldin ágætlega fyrir sig, að sögn lögreglu. VINDHVIÐA feykti lítilli einshreyfils flugvél á hvolf á flugvell- inum í Vestmannaeyjum á mánudagsmorgun, en verið var að leggja vélinni eftir lendingu. Flugmaðurinn var einn í vélinni og slapp ómeiddur, en flugvélin skemmdist töluvert. þjóðhátíð og hegðun gestanna var almennt til fyrirmyndar." Sigurður sagði að umgengni hefði þó mátt vera betri. Tíu manns unnu í gær við að hreinsa hátíðarsvæðið og öll merki um hátíðahöldin verða vænt- anlega á bak og burt fyrir næstu helgi. 2000 strandaglópar Flug frá Vestmannaeyjum lá niðri vegna veðurs þar til laust fyr- ir kl. 19 á mánudagskvöld og leit- uðu strandaglópar skjóls í flugstöð- inni. Bragi Olafsson stöðvarstjóri segir að um 2000 manns hafi beðið eftir flugi á mánudeginum, en um 400 manns voru samankomnir inni í flugstöðinni þegar mest var. Um þúsund manns fengu þar að auki skjól fyrir veðri og vindum í félags- heimilum íþróttafélaganna Þórs og Týs. Bragi segir að fólk hafí vérið rólegt og tekið biðinni með jafnað- argeði. Flestir komust til síns heima eft- ir að veður lægði á mánudagskvöld- ið, en um 350 manns komust ekki frá Vestmannaeyjum fyrr en í gær- morgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.