Morgunblaðið - 07.08.1996, Blaðsíða 36
MINNINGAR
36 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
okkur fyrir hendur hvort sem það
var píanónám, ballettnám, fótbolti
eða framtíðaráætlanir okkar. Þú
talaðir við okkur eins og jafningja
og þannig leið okkur vel í návist
þinni. En núna líður þér loksins
vel, hvar sem þú ert þá vitum við
að þér líður vel og að þú ert á góð-
um stað og horfir brosmildur niður
til okkar sem söknum þín svo sárt.
Æ, hverf þú ei af auga mér,
þú ástarblíða tár,
er sorgir heims í burtu ber,
þótt blæði hjartans sár.
Mér himneskt ljós í hjarta skín
í hvert sinn, er ég græt,
því drottinn telur tárin mín -
ég trúi’ og huggast læt.
(Kristján Jónsson)
t
Innilegar þakkir til allra, sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
ELÍSABETAR HALLDÓRSDÓTTUR,
Leifsgötu 3,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til Ásgeirs Böðvarssonar læknis og alls starfs-
fólks deildar A6 f Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Jóhann Jónsson,
Guðrún Jóhannsdóttir, Ragnar M. Amazeen,
Margrét Jóhannsdóttir, Björn B. Jónsson,
Jón Jóhannsson, Súsanna Steinþórsdóttir,
Halldór Jóhannsson,
Kristín Jóhannsdóttir, Hörður Ó. Guðmundsson
og barnabörn.
Elsku afi, takk fyrir góðar minn-
ingar og megi Guð styrkja ömmu
á þessum erfiðu tímamótum.
Þórhildur Laufey, Margrét og
Matthías Skjöldur.
Elsku afi.
Okkur systurnar langar til þess
að minnast þín í fáeinum orðum.
Fimmtudagurinn 25. júlí var
ósköp venjulegur dagur, þar til við
fengum þær sorglegu fréttir að afi
okkar hefði yfirgefið þennan heim.
Þú varst búinn að vera mikið veikur
og síðast þegar við hittumst varst
þú á spítala. En alltaf trúðum við
því að þú kæmir heim til ömmu.
Mikið var nú gott að koma i heim-
sókn til afa og ömmu í Skriðustekk
og skríða upp í hlýja fangið hans
afa. Afi átti alltaf eitthvað gott i
skápnum að gauka að okkur. Afi
var mjög kátur maður og hafði
gaman af því að gantast við okkur
systurnar.
Þökkum við þér allar samveru-
stundirnar og það er trú okkar að
þér líði vel hjá Guði.
Við vitum að missir ömmu er
mikill á þessari stundu og biðjum
við góðan Guð að veita henni styrk.
Guðrún ísabella og Hildur Ýr.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför systur
okkar,
AÐALBJARGAR JÓHANIMSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 1-A, Landakoti.
Fanney Jóhannsdóttir,
Helga Jóhannsdóttir
og aðstandendur.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför föður okkar, tengdaföð-
ur, afa og langafa,
GUÐJÓIMS V. ÞORSTEINSSONAR
fyrrv. deildarstjóra.
Helgi H. Guðjónsson, Guðlaug D. Jónsdóttir,
Sverrir Guðjónsson, Erna A. Guðjónsdóttir,
Valsteinn V. Guðjónsson, Kristín Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn,
SVEINN ÓLAFSSON
fyrrv. deildarstjóri,
Furugrund 70,
Kópavogi,
andaðist á gjörgæsludeild Landspítal-
ans laugardaginn 3. ágúst.
Aðalheiður P. Guðmundsdóttir.
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda vináttu
og hlýhug vegna andláts ástkærrar
fósturmóður minnar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
GUÐBJARGAR KRISTINSDÓTTUR,
Seljahlíð,
áður Hofteigi 8.
Guð veri með ykkur.
Bergljót Guðbj. Einarsdóttir, Rútur Kjartan Eggertsson,
Gunnar Þór Guðmundsson, Inga Heiða Heimisdóttir,
Eggert Sæmundur Rútsson, Birkir Rútsson,
Kjartan Berg Rútsson, Kristján Rútur Gunnarsson.
t
Einlægar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur hlýhug og heiðruðu
minningu ástkærs eiginmanns, föður okkar, tengdaföður og afa,
JÓNS JÚLÍUSAR FERDINANDSSONAR,
Álfhólsvegi 153.
Sérstakar þakkir til deilda Landspítalans, sem önnuðust hann í
veikindum hans, og heimahlynningar Krabbameinsfélagsins.
Helga Óskarsdóttir,
Alfreð S. Jóhannsson, Magdalena Sigurðardóttir,
Ingibjörg Ósk Jónsdóttir, Ólafur Gunnarsson,
Eiríkur Jónsson, Oddný Sigurðardóttir,
Ferdinand Jónsson
og barnabörn.
ATVINIÍUAUGiyS/NGAR
Rafvirki óskast
Rafvirki óskast til starfa sem fyrst. mikil vinna
framundan. Framtíðarstarf í boði.
Nánari upplýsingar veittar í síma 892 4548.
Skriflegar umsóknir óskast sendar til Rás ehf.,
Selvogsbraut 4, 815 Þorlákshöfn.
íþróttakennarar
íþróttakennari óskast til afleysinga í heila
stöðu við Víðistaðaskóla í Hafnarfirði.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma
555 2911 eða 565 7246.
Skólafulltrúinn í Hafnarfirði.
Sölumaður
- bílasala
Óskum að ráða duglegan og áhugasaman
sölumann notaðra bifreiða.
Umsækjendur uppfylli eftirfarandi:
★ Hafi góða framkomu og séu samvisku-
samir.
★ Stundvísir og geti hafið störf strax.
★ Hafi vélritunar- og tölvukunnáttu.
★ Lágmarksaldur 23 ára.
★ Geta útvegað meðmæli.
Skriflegar umsóknir sendist til afgreiðslu
Mbl. fyrir 11. ágúst nk., merktar:
„Bílasala - 1063“.
Hárgreiðslufólk
Hárgreiðslusvein- og nema vantar á hár-
greiðslustofuna Cleó, Garðabæ.
Upplýsingar veitir Guðrún á stofunni milli
kl. 18.00 og 20.00.
Hárgreiðslustofan Cleó
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur
auglýsir lausa stöðu
skólastjóra
Vestu r h I íða rskóla
Vesturhlíðarskóli er skóli fyrir heyrnarlausa
og heyrnarskerta nemendur. Skólinn er tví-
tyngisskóli sem byggir á táknmáli og íslensku.
Umsækjandi þarf að hafa kennaramenntun.
Æskilegt er að hann hafi stjórnunarreynslu
og hafi kunnáttu og færni í táknmáli.
Umsækjandi þarf að vera lipur í mannlegum
samskiptum.
Næsti yfirmaður: Fræðslustjórinn í Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 23. ágúst nk.
Umsóknir sendist starfsmannadeild Fræðslu-
umiðstöðvar Reykjavíkur, Tjarnargötu 12,
101 Reykjavík.
Reykjavík, 2. ágúst 1996.
Fræðslustjórinn í Reykjavík.
Rafvirki - rafvélavirki
- rafiðnfræðingur
Við leitum að fjölhæfum starfsmanni til starfa
við sölu og þjónustu í Reykjavík.
Viðkomandi á að sjá um viðgerðir á heimilis-
tækjum, taka þátt í varahlutainnkaupum, sjá
um heimkeyrslu og tengja ný tæki, sé þess
óskað. Þá þarf viðkomandi að sýna frum-
kvæði í starfi, vera þjónustulipur og hafa
gaman af mannlegum samskiptum.
Starfsumsóknir, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, þurfa að berast til
afgreiðslu Mbl. í síðasta lagi 16. ágúst nk.,
merktar: „R - 18119".
Laust
embætti forstjóra
Landmælinga íslands
Laus er til umsóknar staða forstjóra Land-
mælinga íslandsskv. 2. gr. laga nr. 31/1985.
Staðan er veitt til 5 ára frá og með 1. septem-
ber nk.
Aðsetur stofnunan'nnar er nú í Reykjavík, en
frá og með 1. janúar 1999 mun aðsetur stofn-
unarinnar verða á Akranesi.
Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist ráðuneytinu
eigi síðar en 9. ágúst nk.
Nánari upplýsingar um stöðuna eru veittar
í ráðuneytinu.
Umhverfisráðuneytið,
12JÚIÍ1996.