Morgunblaðið - 07.08.1996, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 07.08.1996, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLDÓRA Ó. ZOÉGA, andaðist á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Seljahlíð föstudaginn 2. ágúst. Fyj-ir hönd aðstandenda hinnar látnu, Geir Zoega, Sigríður E. Zoéga, Helga Zoéga, Ingimar K. Sveinbjörnsson. t Eiginmaður minn og faðir okkar, GUNNARGUÐMUNDSSON frá Hóli á Langanesi, Nökkvavogi 42, lést í Landspítalanum að morgni 5. ágúst. Sólveig Krístjánsdóttir og synir. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir og systir, BÁRA BALDURSDÓTTIR, Jörfabakka 10, Reykjavik, lést á heimili sínu þann 1. ágúst sl. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju, föstudaginn 9. ágúst kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á að láta Krabbameinsfefagið njóta þess. Gunnar K. Valsson, Karl Róbert Gunnarsson, Einar Valur Gunnarsson, Baldur Jónas Gunnarsson, Guðlaug Sigurðardóttir, Baldur Ingvarsson, Sigurður Baldursson, Inga S. Baldursdóttir. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA SÓLVEIG MAGNÚSDÓTTIR, Hólmgarði 54, er látin. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð og vináttu. Elínborg Jónsdóttir, Ólafur Björnsson, Þorleifur Óli Jónsson, Sigrún Arsælsdóttir, Inga Marfa og Jón Arnar Ólafsbörn, Hákon og Arsæll Þorleifssynir og barnabarnabörn. r t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, MAGNÚSHÁKONARSON rafvirkjameistari, Vallholti 24, Selfossi, andaðist föstudaginn 2. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju þann 17. ágúst kl. 13.30. Tove Öder Hákonarson, Karen Öder Magnúsdóttir, Kristinn S. Jósepsson, Einar Öder Magnússon, Svanhvít Kristjánsdóttir, Óli Öder Magnússon, Helga Björnsdóttir, Magnús Árni, Dagbjört, Hildur Öder og Björn Öder. t ÁSTA MARSIBIL ÓLAFSDÓTTIR, Lindargötu 42a, áðurtil heimilis á Njálsgötu 32b, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 8. ágúst kl. 15.00. Ingibjörg Sigurðardóttir Kolbeins, Kristjón Kolbeins og aðrir aðstandendur. ARNI GUÐMUNDSSON + Árni Guð- mundsson fæddist á Núpi und- ir Vestur-Eyjafjöll- um 23. september 1929. Hann lést í Landspítalanum fimmtudaginn 25. júli síðastiiðinn. Foreldrar hans voru Guðmundur Árnason, bóndi á Núpi, fæddur 6. september 1892, d. 5. desember 1957, og kona hans Sig- ríður Sigurðardótt- ir húsfreyja, fædd 7. september 1898, d. 7. júlí 1981. Arni var úr stórum systkinahópi sem ólst upp á Núpi. Eftirlifandi systk- ini eru Guðmundur, Kristinn, Guðrún, Sigríður, Svanhvít og Gísli, en fallin eru frá Sigurð- ur, Ragnar og María. Arni fór ungur að vinna fyrir sér eins og tíðkaðist í þá daga. Til Reykjavíkur flutti hann og stofnaði heimili átján ára gamall með unnustu sinni og skólasystur Laufeyju Ólafsdótt- ur frá Skálakoti, V-Eyjafjöll- um, f. 17. mars 1927. I hjóna- band gengu þau 5. júní árið 1954. Árni og Laufey eignuðust fimm syni, þeir eru: 1) Ólafur Rúnar, f. 1948, kvæntur Guð- rúnu Ásu Ásgrímsdóttur, þau eiga þijú börn, Þröst, sem kvæntur er Ingu Björk Gunn- arsdóttur og eiga þau tvær dætur, Ólöfu Karitas og Rakel Ósk; Kolbrúnu og Irisi, sambýlismað- ur hennar er Hall- dór Gunnar Vil- helmsson. 2) Guð- mundur, f. 1953, kvæntur Guðrúnu Samúelsdóttur, eiga þau tvo syni, Árna og Steinarr. 3) Sigurður, f. 1956, kvæntur Guðbjörgu Skjaldardóttur, þau eiga þrjú börn, Þór- hildi Laufeyju, Margréti og Matthí- as Skjöld. 4) Þrá- inn, f. 1961, sambýliskona Unn- ur Vilhjálmsdóttir, þau eiga tvær dætur, Guðrúnu ísabellu og Hildi Ýr. 5) Már, f. 1965, sambýliskona Valdís Snorra- dóttir og ejga þau tvö börn, Ragnar og Önnu Báru. Fyrstu búskaparárin vann Árni hjá Blikksmiðju J.B. Pét- urssonar. í Áburðarverksmiðj- unni í Gufunesi vann hann í tvö ár en hóf þá störf hjá Steypu- stöðinni hf. og starfaði þar nokkur ár, en árið 1960 flutti hann sig um set og hóf störf hjá B.M. Vallá hf. þar sem hann starfaði óslitið yfir tutt- ugu ár eða þar til hann stofn- aði fyrirtækið Dælutækni með syni sinum Sigurði árið 1982, en þar starfaði hann til dauða- dags. Utför Árna fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Með örfáum orðum vil ég minn- ast tengdaföður mins Árna Guð- mundssonar sem fallinn er frá af völdum þess illvíga vágests sem engu eirir. Á stundum sem þessari streyma fram minningar frá lið_num árum, allt frá því er ég hitti Árna fyrsta sinni er ég stóð andspænis honum komung. Ekki var laust við að ég hefði beyg af honum, svo stór og sterklegur sem hann var, en ekki þurfti löng kynni til að komast að hvílíkur gæðamaður þar fór. Hann var mikill dugnaðarfork- ur og einstakur heimilisfaðir. Þó vinnudagurinn væri alla tíð langur átti hann alltaf stund aflögu til að sinna heimili sínu og var þá sama hvað þurfti að gera, Árni var jafn- vígur á matseld og þrif og var oft gaman að fylgjast með þessum stóra manni skipta á og annast ungbarn, en yngsta son sinn eign- uðust tengdaforeldrar mínir um leið og ég og elsti sonur hans færðum þeim fyrsta bamabarnið. Árni var mikill húmoristi og var alla tíð stutt í grínið og stríðnina og sóttu barna- börnin öll mikið til afa, sem gantað- ist óspart við þau og lék, en kom þó alltaf fram við þau sem jafn- ingja og með virðingu. Ég vil þakka Erfidrykkjur Glæsileg káffi- hlaðborð, fallegir salir og mjiig góð þjónusta Upplýsingar ísíma 5050 925 og 562 7575 FLUGLEfÐIR iiÓTUi LOFTLEIIiili forsjóninni fyrir að hafa fengið að njóta þess að eiga_ svo yndislegan tengdaföður sem Árni var og bið algóðan guð að styrkja tengdamóð- ur mína og okkur öll á þessum erf- iðu tímum. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ása Ásgrímsdóttir. Mig langar með nokkrum orðum að kveðja tengdaföður minn, Áma Guðmundsson, og þakka allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Það var ekki bara að hann væri tengdafaðir minn heldur vinnufélagi og vinur. Alltaf var hægt að leita til hans ef maður var í vandræðum. Ii Krossar "" || áleiði I viðarlit og málaSir. Mismunandi mynsn.'r, vönduð vinna. Simi SSS S98S og SS3 S738 Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 19090 Hann lést á Landspítalanum 25. júlí síðastliðinn tæplega 67 ára að aldri eftir hetjulega baráttu við ill- kynja sjúkdóm. Mikið á ég eftir að sakna hans. Hann var minn besti ráðgjafi um garðrækt, enda garður- inn hans og konu hans Laufeyjar mesta augnayndi og með fallegustu görðum sem ég hef komið í. Hann og Laufey eignuðust fímm syni. Barnabörnin orðin tólf og tvö langafabörn. Hann var mikill barnakarl og fylgdist vel með sínu fólki. Glettni hans og prakkara- skapur var með eindæmum. Ég kveð þig með miklum söknuði og þakka þér allar samverustundirnar. Elsku Laufey mín, megi Guð styrkja þig á erfiðum stundum. Þín tengdadóttir, Guðbjörg Skjaldardóttir. Fái ég ekki að faðma þig fögnuð þann ég missi frelsarinn Jesú fyrir mig faðmi þig og kyssi. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vom grætir þá líður sem leiftur af skýjum ijósgeisli af minningum hlýjum. Elsku afi. Okkur langar að rita þér nokkur kveðjuorð. Þótt dauðinn sé eitt það fáa í lífinu sem við mennirnir göngum að sem vísu er alltaf jafn sárt að kveðja. Það eina sem getur linað sársaukann sem söknuðurinn vekur upp er sú vissa að við munum hittast aftur. Þú varst stór hluti af lífi okkar systkinanna. Alveg frá fyrstu minningarbrot- unum úr bernsku okkar stendur þú stór og traustur, klettur sem alltaf var hægt að leita til þegar eitthvað bjátaði á og aldrei brást það að þú, hlýr og yndislegur, gerðir allt sem þú gast til að hjálpa okkur og studd- ir okkur með ráðum og dáð. Það var alltaf veisla þegar við komum í Skriðustekkinn, tekið var á móti okkur með kostum og kynj- um, fram bornar kræsingar og ekk- ert var til sparað hvorki í veitingum né í umræðum, því oftast spunnust heitar umræður um dægurmálin og þótt sitt sýndist hveijum fengu all- ir að koma sínum skoðunum að. Þú hafðir ákveðnar skoðanir á mörgum hlutum, okkur systkinun- um fannst skrýtið þegar þú varst að útskýra að ekki vildir þú ferðast til útlanda, frekar notuðuð þið amma sumarleyfin til þess að ferð- ast um landið og kynnast því. Þú varst okkar ímynd að heilbrigði og hreysti því aldrei heyrðist þú kveinka þér þótt þú værir veikur eða slasaður, þú bara brostir og harkaðir af þér. Dugnaður var þitt aðalsmerki, aldrei féll þér verk úr hendi, hvort sem var í stóra og fallega garðinum við gróðursetningu, við matseld eða við tiltekt, það má segja að þú haf- ir verið það sem kallast nútímakarl- maður á undan þinni samtíð. Alltaf var mikið tilhlökkunarefni þegar fjölskyldan hittist við hátíðleg tæki- færi heima hjá þér og ömmu, vel var veitt í mat og drykk og ekki Listrænar höggmyndir fyrir leiði. Minnismerki og hefðbundnir legsteinar úr martnara, graníti og kalksteini Við bjóðum sérstakt tilboðsverð á öllum granitsteinum i þessum mánuði. Verkin eru öll hönnuð af myndhöggvaranum Þóri Barðdal. SÓLSTEINAR Nýbýlavegi 30 (Dalbrekkumegin), 200 Kópavogi. Sími: 564 3555. Fax: 564 3556

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.