Morgunblaðið - 07.08.1996, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 11
FRETTIR
Endurfjármögnun skulda Leifsstöðvar
Um 150 míllj. árlegur
halli á að þurrkast út
MEÐ ákvörðun ríkisstjómarinnar
um endurfjármögnun langtíma-
skulda flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
á að takast að leysa úr áralöngum
fjárhagsvanda flugstöðvarinnar.
Um er að ræða endurfjármögnun
auk framkvæmda að upphæð fimm
milljarðar kr. til 20 ára sem mun
leiða til þess að árlegur 150 millj-
óna kr. rekstrarhalli flugstöðvar-
innar á að þurrkast út, að sögn
Þórðar Ingva Guðmundssonar,
deildarsérfræðings á varnarmála-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Gera ráð fyrir 3 ‘/2%
farþegaaukningu á ári
Áekstur flugstöðvarinnar hefur
aidrei í tíu ára sögu hennar getað
staðið undir afborgunum af lánum
sem nema í dag 4.200 millj. kr. og
hefur ekki heldur náð að standa
undir öllum vaxtagreiðslum. Eftir
aðgerðir ríkisstjórnarinnar á rekst-
urinn að verða í jafnvægi.
Áætlanir um tekjur flugstöðvar-
innar á næstu árum, sem ákvörðun
ríkisstjómarinnar byggist á, gera
ráð fyrir talsverðri aukningu farþega
um flugstöðina. Á síðustu 25 árum
hefur farþegaaukning á Keflavíkur-
flugvelli verið um 3% á ári. Á tíma-
bilinu 1989 til 1995 var árleg aukn-
ingin 5%. Útreikningar sem ákvörð-
un ríkisstjómarinnar byggist á gera
ráð fyrir 3 '/2% árlegri fjölgun far-
þega á næstu ámm og er það nokk-
uð varlegri áætlun en mat Flugleiða
sem gera ráð fyrir 5 '/2% aukningu
farþega um völlinn á næstu ámm.
Staðið verður með nokkuð öðrum
hætti að framkvæmdum við stækk-
un og endurbætur í flugstöðvar-
byggingunni nú en gert var þegar
hún var byggð á sínum tíma. Að
sögn Þórðar Ingva verður t.d. hönn-
un verksins boðin út í mun meira
mæli og allir verkþættir verða boðn-
ir út. Framkvæmdasýsla ríkisins
hefur yfirumsjón með verkefninu.
Viðbótarbyggingin verður hönn-
uð með það fyrir augum að auð-
velt verði að stækka hana með til-
tölulega litlum tilkostnaði ef þörf
krefur. Flugvélastæðunum verður
fjölgað úr sex í tíu og einnig verð-
ur unnt að fjölga þeim með auð-
veldum hætti eftir þvi sem þarfirn-
ar krefjast i áföngum upp í alls
20 stæði.
Fyrsta
ísbúðin með
gæðavottun
ÍSBÚÐIN Álfheimum 4 hefur
fyrst ísbúða á landinu fengið
gæðavottun GÁMES sem öllum
matvælaframleiðendum og inn-
flyljendum verður skylt að hafa
frá og með næstu áramótum.
Gæðavottunin tryggir það að
þrif í fyrirtækinu séu eftir
ákveðnum EES-staðli. Ætlast er
til þess að framleiðendur mat-
væla eða innflytjendur verði sér
úti um aðstoð hjá fagmönnum til
þess að koma GÁMES-kerfinu í
kring. Það var Matvælatækni hf.
sem aðstoðaði eigendur ísbúðar-
innar við að koma gæðavottunar-
kerfinu á.
Hilmir Sigurðsson, eigandi Is-
búðarinnar Álfheimum 4, segir
að gæðavottunin þýði það fyrir
fyrirtækið aðfólk geti treyst því
á þessu sviði. Isbúðin verður níu
ára 12. desember nk. Starfsemin
hófst í Álfheimum 2 í 29 fermetra
húsnæði en fluttist í Álfheima 4
15. júní sl. í 65 fermetra húsnæði.
Bréf í The Times um laxaverndun
Tekiðundir
hugmyndir Orra
BRESKA dagblaðið The Times hef-
ur birt bréf frá forystumönnum
samtaka breskra stangveiðimanna
þar sem þeir lýsa yfir stuðningi við
hugmyndir Orra Vigfússonar, for-
manns Norður-Atlantshafslaxa-
sjóðsins (NASF), um aðgerðir til
að vernda Atlantshafslaxinn.
The Times hafði áður birt bréf frá
Orra sem hann skrifaði í tilefni af
ársfundi Laxavemdunarstofnunar
Norður-Atlantshafsríkja (NASCO) í
Svíþjóð nýlega. Hann segir þar að
þrátt fyrir viðamiklar rannsóknir
Alþjóðahafrannsóknaráðsins,
skýrslur frá fy'ölda sérfræðinga og
nokkurra daga umræður á ársfund-
inum hafi ekki náðst samkomulag
um iaxveiðikvóta fyrir Vestur-
Grænland. Allt þetta „árangurslausa
starf“ hljóti að hafa kostað gífurleg-
ar fjárhæðir og ef hluti fjármagnsins
hefði verið notaður í aðgerðir til að
stöðva úthafsveiðar á laxi hefðu þær
strax borið árangur.
Bótagreiðslur
nauðsynlegar
„Hvernig er hægt að ætlast til
þess að Grænlendingar hætti að
veiða lax í landhelgi sinni á meðan
Skotar, Englendingar, írar og
Kanadamenn halda áfram netaveið-
um úr sama stofni?“ skrifar Orri.
„Samtök okkar telja að aðeins með
því að greiða handhöfum netveiði-
réttinda rausnarlegar bætur verði
hægt að tryggja framtíð Atlants-
hafslaxins."
Orri segir tímabært að nota hluta
af því fjármagni, sem fer í slíkar
rannsóknir og fundi, í raunhæfar
aðgerðir. „Gerist þetta ekki, meðan
stjórnvöld og vísindamenn halda
áfram erfiðum viðræðum sínum,
mun Atlantshafslaxinn hverfa.“
Tíu forystumenn samtaka stang-
veiðimanna taka undir sjónarmið
Orra í bréfi sem birt var í The Tim-
es 30. júlí. „Það var vegna einstaks
eldmóðs og samningahæfileika
Orra Vigfússonar að Færeyingar
hafa ekki stundað laxveiðar í at-
vinnuskyni frá árinu 1991 og Græn-
lendingar fengust til að hætta veið-
um sínum á árunum 1993 og 1994.
Hann aflaði fjár til að greiða sjó-
mönnunum bætur, aðallega frá ein-
staklingum og samtökum en með
stuðningi nokkurra upplýstra ríkis-
stjórna (okkar stjórn hefur ekki
verið þeirra á meðal) og Norður-Atl-
antshafslaxasjóðurinn hefur haft
frumkvæði að nýjum veiðiverkefn-
um fyrir sjómenn sem stunda ekki
lengur laxveiðar," segir í bréfí sam-
takanna og þau segja þetta starf
mikilvægara nú en nokkru sinni
fyrr.
Meðal þeirra sem undirrituðu
bréfið eru Ted Hughes og Tom Barn-
es fyrir hönd Sambands evrópskra
stangveiðimanna (EAA), Bill
Bewsher f.h. Atlantshafslaxasjóðs-
ins (AST), Jack Charlton, Max Hast-
ings og Jean Howman f.h. Laxa-
og silungasambandsins (STA).
NASCO andmælir
The Times birti einnig bréf frá
Malcolm Windsor, ritara NASCO,
sem telur Orra hafa gert of lítið
úr árangri stofnunarinnar. Hann
bendir á að NASCO hafi aðeins
úthlutað Grænlendingum 77 tonna
kvóta í fyrra og verið sé að ræða
svipaðan kvóta fyrir þetta ár. 2.500
tonn hafi hins vegar verið veidd við
strendur Vestur-Grænlands áður en
NASCO var stofnað árið 1984.
Vandamálin, sem stofni Atlants-
hafslaxinum í hættu, séu flóknari
en ráða megi af skrifum Orra.
Ákvörðun um
áfrýjun tekin
í vikunni
ÁKVÖRÐUN um það hvort
dómi í máli ákæruvaldsins
gegn Jóhanni G. Bergþórs-
syni, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Hagvirkis-
Kletts hf., verður áfrýjað til
Hæstaréttar verður væntan-
lega tekin í þessari viku.
Að sögn Bjarna Þórs Osk-
arssonar, lögmanns Jóhanns,
stóð til að ákvörðunin yrði tek-
in nú fyrir helgi, en ýmislegt
hefði valdið því að það dróst.
Jóhann var dæmdur í Hér-
aðsdómi Reykjaness í 12 mán-
aða skilorðsbundið fangelsi og
til greiðslu 4 milljóna króna
sektar fyrir brot á lögum um
v'rðisaukaskatt og lögum um
staðgreiðslu opinberra gjalda.
Hann hefur fjórar vikur frá
og með 1. ágúst til að gera
það upp við sig hvort hann
áfrýjar dómnum.
Fólk
HILMIR Sigurðsson og eiginkona hans, Erla Erlendsdóttir, eig-
endur ísbúðarinnar Álfheimum 4, taka við gæðaviðurkenningunni
úr hendi Ágústs Thorsteinsen hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
Varði doktorsritgerð
Rannsókn
á fóstur-
hreyfingum
BRYNJAR Karlsson varði í upphafi
ársins doktorsritgerð í eðlisfræði við
háskólann í Tours í Frakklandi.
Doktorsverk-
efnið vann Brynj-
ar á rannsóknar-
stofu frönsku
heilbrigðis- og
læknisfræði-
stofnunarinnar
(INSERM) í To-
urs í Frakklandi
undir stjóm prof.
Léandre Pource-
lot og dr. Marceau Berson. Til verks-
ins hlaut Brynjar styrk frá franska
ríkinu og héraðsstjóminni í „La régi-
on centre“ og stundaði jafnframt
kennslu við Háskólann í Tours.
Grunnforsenda verksins er að
hægt sé að lesa ýmislegt varðandi
heilsu og ástand fósturs í móður-
kviði úr hversu_ mikið og hvernig
það hreyfir sig. í ritgerðinni er sýnt
fram á að miklar ónýttar upplýs-
ingar um hreyfmgar fóstra em til
staðar í Dopplerviki sem verður í
úthljóðgeislum sem beint er að ann-
arsvegar hjarta og búk ófædds
barns og hinsvegar að útlimum þess.
Vonir standa til að hægt verði að
nýta mun betur upplýsingar þær
sem fást með venjulegri fósturritsjá
sem notuð er til rannsókna á svo
til öllum vanfærum konun og auka
þannig gæði mæðraeftirlits án þess
að auka kostnaðinn né umstangið
sem því fylgir.
Brynjar er sonur Karls heitins
Sigurðssonar leikara og Önnu Óskar
Sigurðardóttur. Hann iauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1984 og BS prófi í
kennilegri eðlisfræði frá Háskóla
íslands árið 1990. Síðan lá leið hans
til Parísar þar sem hann lauk Maitr-
ise de Physique fondamentale árið
1991 og D.E.A. d’Acoustiwue
Physique árið 1992. Brynjar hefur
nú hlotið rannsóknarstöðustyrk frá
Rannsóknaráði íslands til að vinna
áfram í rannsóknum á þessu sviði.
Brynjar hefur hafið störf á Land-
spítalanum.
TILKYNNING UM UTBOÐ MARKAÐS VERÐ B RE.F A
SNÆFELLINGUR HF.
Almennt lilutaíjárútboð
Heildarnafnverð nýs hlutafjár:
Sölugengi:
Sölutímabil:
Söluaðili:
Umsjón með útboði:
Forkaupsréttur:
Skráning:
75.000.000.- kr.
1,40 til forkaupsréttarhafa. Gengi hlutabréfanna
;etur breyst eftir að forkaupsréttartímabili
ýkur og almenn sala hefst.
Forkaupsréttartímabil er frá
7. ágúst 1996 - 28. ágúst 1996 og almennt
sölutímabil frá 30. ágúst 1996 - 31. desember 1996.
Askrift fer fram á skrifstofu Snæfellings hf. og hjá
Landsbréfum hf.
Landsbréf hf. eru söluaðili á almennu sölutímabili.
Landsbréf hf.
Núverandi hluthafar hafa forkaupsrétt að nýju
hlutafé í hlutfalli við eign sína.
Hlutabréf Snæfellings hf. eru skráð
á Opna tilboðsmarkaðnum.
Útboðs-og skráningarlýsing ofangreindra hlutabréfa mun liggja framrni
hjá Snæfellingi hf. og Landsbréfvim hf.
3MKFELUNfiW
íf
LANDSBREF HJ.
<i tn- - /t tH
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 588 9200, bréfasími 588 8598.
LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI, AÐILIAÐ VERÐBRÉFAÞINGIÍSLANDS.