Morgunblaðið - 07.08.1996, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Ljósmynda-
maraþon
í fimmta
sínn
LJ ÓSMYNDAM ARAÞON
verður haldið í fimmta sinn á
Akureyri næstkomandi laug-
ardag, 10. ágúst. Það er
Áhugaljósmyndaraklúbbur
Akureyrar, ÁLKA sem heldur
keppnina í samvinnu við Kod-
ak umboðið, Hans Petersen og
Pedromyndir, en auk þeirra
styrkja fleiri fyrirtæki keppn-
ina með ýmsum hætti.
Keppnin felst í að taka ljós-
myndir af fyrirfram ákveðnum
verkefnum eða myndefnum
eftir tiltekinni röð á ákveðnum
tíma. Keppendur fá í hendur
12 mynda litfilmu kl. 10 um
morguninn og þijú fyrstu
verkefnin, en þurfa síðan á
þriggja klukkustunda fresti að
mæta á ákveðinn stað til að
fá næstu úrlausnarefni. Kepp-
endur koma síðan í mark kl.
22 um kvöldið og skila fíl-
munni. Aðeins má taka eina
mynd af hveiju myndefni.
Verðiaunaafhending og sýn-
ing á öllum myndunum verður
sunnudaginn 11. ágúst og hefst
kl. 15. Verðlaun verða veitt
fyrir bestu fílmu keppninnar,
bestu mynd og einnig verða
veitt verðlaun fyrir bestu mynd
hvers einstaks verkefnis.
Keppnin er öllum opin, en
keppendur þurfa einungis að
hafa meðferðis myndavél fýrir
35 mm filmu.
Þátttökugjald er 1.000
krónur og innifalið í því er litf-
ilma, framköllun, grillveisla á
einum áfangastaðanna, tæki-
færi til að koma myndum sín-
um á framfæri sem og mögu-
leiki á að vinna til verðlauna.
Skráning fer fram í Pedro-
myndum við Skipagötu og þar
fást einnig nánari upplýsingar.
(§#° Hótel
Harpa
Akureyri
Gisting við allra
hæíi.
Pú velur:
Fjörið í miðbænum.
Friðsældina í
Kjarnaskógi
eða lága verðið á
gistiheimilinu
Gulu villunni
gegnt
sundlauginni.
Sími 461 1400.
! ' ,
í
Morgunblaðið/Kristján
HJÁ Slippstöðinni er unnið við að setja vinnslubúnað um borð í Eyborgu EA en skipið kom til lands-
ins fyrir skömmu frá Noregi, þar sem það var lengt um heila 19 metra.
Góð verkefnastaða Slippstöðvarinnar
Mikil vinna
og bjart
framundan
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Flaggstöngin
fær nýjan lit
H ANN var töluvert hátt uppi við
vinnu sína þessi knái og eflaust
langt í frá lofthræddi málari, en
hann var í óða önn að mála fána-
stöngina á Menntaskólanum á
Akureyri í gærdag.
VERKEFNASTAÐA Slippstöðvar-
innar á Akureyri er mjög góð um
þessar mundir og er útlit fyrir að
svo verði áfram fram að áramótum
í það minnsta. Slippstöðin auglýsti
eftir járniðnaðarmönnum núverið til
tímabundinna starfa og segir Krist-
ján Þ. Kristinsson verkstjóri að við-
brögðin við auglýsingunni hafi ekki
verið mikil en þó merkjanleg.
„Það er mikið að gera hér og
verkefnum alltaf að fjölga og því
ljóst að okkur vantar mannskap í
vinnu. Verkefnastaðan hefur verið
góð allt árið og mikil vinna hjá
starfsmönnum. Þeir hafa því getað
leyft sér frekar að fara í sumarfrí
og það hefur líka sín áhrif,“ segir
Kristján.
í síðustu viku kom Sunna SI til
Akureyrar en togarinn fer í vélar-
upptekt, málningu og fleira hjá
Slippstöðinni. Verið er að vinna við
breytingar á millidekki í Árbaki EA
og einnig er verið að setja vinnslu-
búnað á millidekkið í Eyborgu EA.
Þá er Skutull ÍS í mikiili yfirhaln-
ingu hjá stöðinni.
Árni Björn Árnason, verkefna-
stjóri segir að það hafí verið vitað
mál að erfitt yrði að koma greininni
á fullt skrið á ný eftir þau áföll sem
hún varð fyrir á sínum tíma. Járniðn-
aðarmenn hafi snúið sér að öðrum
störfum og að ekki sé sjálfgefið að
þeir snúi allir aftur til fyrri starfa,
þótt ástandið í greininni fari batn-
andi.
Þriðja starfsár Menntasmiðju kvenna að hefjast
Hulda Biering
ráðin verkefnisstjóri
HULDA Biering hefur verið ráðin verkefnissljóri
Menntasmiðju kvenna á Akureyri. Hún tók við starf-
inu á fimmtudag og er ráðin til eins árs. Þá hefur
Sigríður Soffía Gunnarsdóttir verið ráðin 150% starf
sem rekstrarstjóri og leiðbeinandi og Guðrún Pálína
Guðmundsdóttir í 50% starf leiðbeinanda og eru þær
einnig ráðnar til eins árs.
Menntasmiðja kvenna er að hefja sitt þriðja starfs-
ár og hefst fimmta önn skólans 9. september nk.
Skólinn er dagskóli fyrir konur án atvinnu og er
þróunarverkefni sem unnið hefur verið að síðan um
mitt ár 1994 á vegum jafnréttisnefndar Akureyrar-
bæjar. Alls 20 konur geta stundað nám á hverri
önn. Um 80 konur hafaverið útskrifaðar frá skólan-
um frá upphafi.
Framtíð Menntasmiðju kvenna er í nokkurri
óvissu eftir starfsárið sem nú er að hefjast. Skólinn
hefur rekstrarstyrk fram á næsta sumar en eftir
það er óvíst með fjármögnun starfseminnar.
í vetur verða í boði kvöld- og helgarnámskeið
fyrir konur og karla og er það nýjung í starfsem-
Morgunblaðið/Kristján
GUÐRÚN Pálína Guðmundsdóttir, leiðbeinandi,
Ragnhildur Vigfúsdóttir, jafnréttisfulltrúi, og
Hulda Biering, verkefnissljóri.
inni. Einnig verður námskeið sem ber heitið Konur
og upplýsingatækni, þar sem alnetið kemur m.a. við
sögu, Um þá kennslu sér Lára Stefánsdóttir.
Guðrún Pálína hefur starfað hjá Menntasmiðjunni
frá upphafi og fyrsta árið sem verkefnissljóri og
Sigríður Soffía kenndi ensku eina önn á síðasta
starfsári. Hulda hefur ekki áður starfað við Mennta-
smiðjuna. Hún býr á Akureyri og hefur fylgst með
starfseminni úr fjarlægð og hún segist full tilhlök-
kunnar að takast á við þetta nýja starf. Hulda er
með masterspróf í fullorðinsfræðslu og námskeiðs-
haldi frá University of Minnesota í Bandaríkjunum.
DALVIK.URSK.au
DALVIKURBÆR
DALVIKURSKOLI
DALVÍKCIRSKÓLI
Kennara í 2/3 eða heila síöðu í kennslu
yngsíu nemenda vantar næsía vetur.
Til greina kemur að ráða leikskólakennara í starfið
ef ekki fæst grunnskólakennari.
llngri stúlku var
bjargað frá drukknun
Nánari upplýsingar gefa
Þórunn Bergsdóttir, skólastjóri, símar 466 1380 og 466 1162,
Sveinbjörn M. Njálsson, aöstoðarskólastjóri, sími 466 1812.
SJÖ ÁRA gamalli stúlku var bjargað
frá drukknun í sundlaug Dalvíkur
síðdegis á sunnudag.
Gestur í sundlauginni fann stúlk-
una þar sem hún lá á botni dýpri
enda laugarinnar. Dró hann stúlk-
una upp á bakkann og með aðstoð
annars sundlaugargests voru þegar
hafnar lífgunartilraunir. Sjúkrabif-
reið og læknir komu fljótlega á stað-
inni og var farið með stúlkuna á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri en
hún var á batavegi.
Bragi Stefánsson, heilsugæslu-
læknir á Dalvík, brá skjótt við þegar
til hans var leitað, en hann, eins og
margir aðrir heilsugæslulæknar, er
í verkfalli um þessar mundir. „Við
erum alltaf tilbúnir og förum vitan-
lega af stað þegar mannslíf eru í
hættu, sama hvert ástandið annars
er,“ sagði Bragi.
Talið er að stúlkan hafí stungið
sér til sunds af bakkanum, lent á
botninum og rotast.
Margt um
manninní
sundlauginni
GÍFURLEGUR mannfjöldi
sótti Sundlaug Akureyrar heim
um verslunarmannahelgina en
að sögn Sigurðar Guðmunds-
sonar, forstöðumanns komu um
8.400 gestir í laugina frá
fimmtudegi til mánudags.
„Hér var mikið að gera um
helgina en við vorum búin að
undirbúa okkur undir það og
því fór allt vel. Einstaka gestur
var nokkuð drukkinn en ekki
kom þó til neinna vandræða.
Eftir að salernin á tjaldsvæðinu
lokuðust þurftum við að taka
á móti mikið af fólki sem þurfti
að komast á salemi og það
gekk allt vel,“ segir Sigurður.
Hann sagði að á tímabili
hafi myndast ansi mikil biðröð
við innganginn og t.d. á laug-
ardeginum hafi verið biðröð
fólks I um 6 klukkustundir.
Sigurður, sem verið hefur
forstöðumaður Sundlaugarinn-
ar síðustu ár, lætur af störfum
innan skammms en hann hefur
verið ráðinn íþróttafulltrúi
Mosfellsbæjar.
Rólegt í
Vaglaskógi
RÓLEGT var í Vaglaskógi um
verslunarmannahelgina, að
sögn Sigurðar Skúlasonar,
skógavarðar en þegar mest var
gistu um 600 manns í skógin-
um. Fólk gekk vel um og
skemmti sér ágætlega þótt ekki
hafi verið boðið upp á sérstaka
dagskrá á svæðinu.
„Hér var eingöngu fjöl-
skyldufólk á ferð og ungmenni
yngri en 16 ára fengu ekki
aðgang nema í fylgd með full-
orðnum. Fólkið naut þess að
dvelja hér í ró og næði, ganga
um skóginn þegar veður leyfði
og taka lagið þess á milli.
Gæslan í skóginum var aukin
um helgina og þá var umferð
takmörkuð um skóginn að
nóttu til.“
Sigurður sagði að nýliðin
helgi hefði verið eins og góð
venjuleg helgi en þetta 4-600
manns hafa gist í skóginum
bestu helgarnar í sumar. „Það
er viss kjarni sem kemur hing-
að um verslunarmannahelgina
og hefur gert það síðustu ár.
Sumt af fólkinu kom þó aðeins
við í skóginum á ferðalagi sínu
og dvaldi eina nótt.“
Selló og
píanó
STEFÁN ÖRN Arnarson selló-
leikari og Jónas Sen píanóleik-
ari halda tónleika í Deiglunni,
Kaupvangsstræti á Akureyri í
kvöld, miðvikudagskvöldið 7.
ágúst kl. 20.30.
Á efnisskrá þeirra verða verk
eftir Hindermith, Shostako-
vitsj, Atla Heimi Sveinsson og
Hafliða Hallgrímsson.