Morgunblaðið - 07.08.1996, Síða 20

Morgunblaðið - 07.08.1996, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Myndir af ís LJÓSMYNDASÝNING er nú á 4. hæð í Perlunni, þar sem sýnd- ar eru myndir af ísjökum og ljós- myndir af jökulís. Um er að ræða níu stórar ljósmyndir á stálplöt- um og sjö minni myndir í venju- legum römmum. „Myndirnar eru teknar á Jökulsárlóni á Breiða- merkursandi á árunum 1993 til 1996. Sýningin leiðir áhorfand- ann frá yfirlitsmyndum yfir svæðið og myndum af stökum ísjökum til nærmynda af jökulís sem vart má greina sem slíkan," segir í kynningu. Þjóðverjinn Klaus Kretzer fluttist til Islands 1992 og hefur starfað sem fararsljóri á Jökuls- árlóni á árunum 1993 til 1995. Eftir hann hafa birst póstkort með myndum af Jökulsárlóninu, en þetta er fyrsta einkasýning hans. Sýningin stendur til 24. ágúst og er opin á opnunartímum Perlunnar. Ljósmynd eftir Klaus Kretzer. Með forn-nýjum trúariegum blæ TÓNLIST Skálholtskirkja Söngmessa Messan Tibi laus, eftir Jónas Tómasson frumflutt af Margréti Bóasdóttur, Voces Tules og Bach-sveitinni í Skálaholti undir stjóm Gunnsteins Ólafssonar. Líiugardagurinn 3. ágúst, 1996. Á SUMARTÓNLEIKUM í Skál- holti sl. laugardag var frumflutt messa eftir Jónas Tómasson. Að efni til styðst Jónas við hina fimm föstu þætti messunnar, nefnilega Kyrie, Gloria, Credo, Sanctus og Agnus Dei og eru þessir þættir sungnir af fimm karlaröddum. Þrír þættir, Spiritus Domini, Offertor- ium-Confírma og Tibi laus, valdir af Kristjáni Val Ingólfssyni, eru viðbót við hina hefðbundnu messu og voru þeir fluttir af sópran ein- söngvara við undirleik blokkflautu og sembals. Tónmál messunnar er hugsað í heild sem tónræn þróun frá hinu einfalda, einum tóni, til sífellt þétt- ari skipunar á ómstríðri samskipan tónanna. Fyrsti þátturinn Spiritus Domini hefst á tóninum a og er smám saman vikið frá honum þar sem ferundarhjjómar (4-7-10) eru mikið notaðir. I lokakafla verksins, Agnus Dei, sem er mjög áhrifamik- ill, myndar samskipan ómstreitunn- ar þétta hljómklasa í vaxandi styrk og hefði þar mátt hafa tiltækan fjölmennari og þar með hljómmeiri kór. í rauninni er Agnus Dei þáttur að innri gerð, efni fyrir stóran kór og mun stærri hljómsveit en var til staðar í Skálaholti. Raddferli karla- kórsins minnir mjög á svo nefndan fijálsan organum, er gefur verkinu fornlegan blæ. Fagurfræði er sveimandi hugtak en Offertorium þátturinn (Confirma hoc Deus) er einn fallegasti kafli verksins og var hann sérlega vel fluttur af Margréti Bóasdóttur og blokkflautuleikara Bach-sveitarinn- ar, Þórunni Bjömsdóttur. Kontra- punktur er mikið galdraverk og í tvíröddun máttu raddir nær aldrei mætast á sama tóni, nema í upp- hafí og á endatóni lags. Þetta vanda- mál mátti heyra í Tibi laus kaflan- um, en þar mætast á stundum flautu- og söngröddin í einum tóni og þá rofnar tónferli flautunnar. Þetta gæti verið stílbragð hjá Jónasi en traflaði undirritaðan, en þess ber að geta, að tónn blokkflautunnar myndaði að öðru leyti fallegan sam- hljóm við söng Margrétar. í Gloria þættinum, sem skipt er á milli hljóðfæraþáttar og kór- söngs, náði semballinn ekki að halda sínu fram í styrk á móti tré- blásurunum og trúlega hefði þurft að styrkja sembalröddina, t.d. með strengjum. Þetta er ávallt vanda- mál, þegar huga þarf að stykleika- jafnvægi hljóðfæra, en i kórþáttun- um var oftast gott jafnvægi á milli kórs og hljómsveitar. Þrátt fyrir að flutningurinn væri um margt mjög góður, undir stjórn Gunnsteins Olafssonar, þá hefði mátt skerpa kaflaskipan verksins með meiri andstæðum í hraða og er það svo með frumflutning verka, að hann er jafnmikil leit á vit hins ókunna og gerð verksins sjálfs, svo að end- Morgunblaðið/Ásdís FRÁ frumflutningi Tibi laus í Skálholtskirkju. urmat verksins kemur ekki til fyrr en að lokinni upplifun þess. Efni þessa verks mætti vel umrita fyrir stærri hljómsveit með fjölmennari kór, því innri gerð þess kallar á köflum á stórt hljómrými, eins t.d. í lengstu köflum verksins, Gloria og Credo og ekki síst, eins og fyrr er getið, í Agnus Dei kaflarium. Það sem er sérkennilegt við verk- ið, er hversu vel fer saman að skír- skota til hins gamla gregoríska söngs, raddfærsluaðferðar þeirrar sem er upphaf ijölröddunar, fijáls organum og nútímalegra viðhorfa til samhljómunar. Þetta gefur .verk- inu fom-nýjan trúarlegan blæ, er minnir samtímis á foman munka- söng og endurapplifun nútímans á hinum innri eilífu gildum trúarinnar. Jón Ásgeirsson Morgunblaðið/Þorkell MEÐ tónleikunum í Hallgrímskirkju lauk Ragnar Björnsson konsertferð um Evrópu. Frábær staðfesting TÖNIIST llallgrímskirkja ORGELTÓNLEIKAR Ragnar Bjömsson lék verk eftir Boellmann, J.S. Bach, Alain, Rubin- stein, Nystedt, Ragnar Bjömsson og Þorkel Sigurbjömsson. Sunnudagur- inn 4. ágúsL 1996 RAGNAR hóf tónleikana með got- nesku svítunni eftir franska orgelt- ónskáldið Léon Boéllmann og er þessi svita mjög skemmtileg og vinsæl af orgelleikurum. Ragnar lék verkið á glæsilegan máta, nokkuð nær hinum klassíska þýska orgelstíl en margir sem leikið hafa verkið á Klais orgel Hallgrímskirkju. Kóralinngangurinn var glæsilega fluttur og sama má segja um gotneska menúettinn. No- tre Dame bænin var fallega flutt og hin þrumandi toccata, lokakafli verksins, var vel flutt án þess að ofbjóða hlustendum í styrk, eins og oft hefur viljað brenna við. Sálmforleikur eftir Þorkel Sigur- björnsson, yfír sálmalagið Lofíð Guð eftir Pétur Guðjónsen, var vel fluttur og þar eftir kom Tokkata og fúga í d-moll, eftir J.S. Bach og var flutningur þessa ágæta verks hófstilltur en vel mótaður. Fantasía funebre eftir Ragnar Bjömsson er samin til minningar um Jóhannes Kjarval. Tónmál verksins er unnið úr misstígum tón- bilum en á þeim tíma þegar verkið er samið (1972) vora slíkir strúktúr- ar algengir í þánýrri tónlist. Verkið er skýrt og einfalt að formi, skemmtilegt áheyrnar en ekki sér- lega sorglegt, sem ef til vill á ekki frekar við, þegar snillingsins Kjar- vals er minnst. Bænaþulan (Litanies) eftir Jehan Alain er fallegt og vel gert verk og var vel Ieikið og sama má segja um Reve Angelique (himneskan draum), píanóverk eftir Anton Rub- instein, sem Ragnar hefur umritað fyrir orgel. Þetta rómantískta verk var registerað á þann máta, að það minnti í tónblæ oftlega á Lohengrin eftir Wagner. Fantasía trionfale (sigurfantas- ían) eftir Knut Nystedt er glæsilegt og mikið orgelverk, sem Ragnar lék frábærlega. Með þessum tónleikum lýkur Ragnar Björnsson konsert- ferð um Evrópu en hann hefur fyr- ir . löngu öðlast alþjóðlega viður- kenningu og tónleikarnir í Hall- grímskirkju sl. sunnudagskvöld voru staðfesting á því, að Ragnar er frábær orgelleikari. Jón Ásgeirsson Nýjar bækur • BÓKASUMAR Vöku-Helgafells sem hófst um síðustu mán- aðamót með útgáfu 15 nýrra bóka til sum- arlesturs heldur nú áfram. í næsta áfanga hyggst forlagið höfða til erlendra ferða- manna hér á landi og áhugafólks erlendis _ um náttúru íslands. í því sambandi gefur Vaka-Helgafell út tvær myndskreyttar fræðslubækur á er- lendum málum, ann- ars vegar bók um jarð- fræði Islands á ensku og þýsku og hins vegar bók á ensku um eldvirkni á íslandi á umliðnum 10.000 árum. Höfundar fyrmefndu bókarinnar eru þeir Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur og Halldór Kjartansson j arðfræð- ingur, en hin síðari er eftir Ara Trausta. Bókin um jarðfræði íslands nefn- ist á ensku Earth in Action. The Essential Guide to the Geology of Icelanden á þýsku Land im Werden.Ein Abrifi der Geologie Islands. í útgáfum þessum er að fínna yfírlit yfir jarðfræði landsins. í kynningu frá útgefanda segir: „Earth in Action og Land im Werden eru einstæðar bækur, jafnt fyrir þá sem enga þekkingu hafa á jarðfræði íslands og fræðimenn sem vantar greinargott yfirlit yfir þetta efni. Bækurnar era sniðnar að þörf- um erlendra ferðamanna sem sækja ísland heim en henta einnig einkar vel til gjafa til vina og viðskipta- manna erlendis." Earth in Action ogLand im Werden eru hvor um sig 166 blað- síðurað lengd. Skráð verð bókanna er 3.975 kr. en þæreru boðnará sérstöku kynningarverði í sumar á 2.980 kr. 0 Bók Ara Trausta Guðmundson- ar um eldvirkni á íslandi nefnist Volcanoes in Iceland. 10.000 Years of Volc- anic History. í bókinni er ijallað um eldstöðvar á íslandi og sögu eld- virkni á undanfömum tíujiúsund áram. I kynningu frá útgef- anda segir: „Ari Trausti Guðmundsson byggir í bók sinni á nýjustu rannsóknum og kenningum í jarðfræði íslands. Hann skýrir í stuttu máli meginþætt- ina í jarðeldasögu landsins, gerir ljósa grein fyrir megineld- stöðvum hér á landi og setur efnið fram á aðgengilegan hátt þannig að leikir jafnt sem lærð- ir geta nýtt sér það. Volcanoes in Iceland er 136 blað- síður að lengd. Hún erseldákynn- ingarverði ísumar, 2.980 krónur, en fullt verð bókarinnar er 3.975 kr. ------»-♦ ♦---- Islenskt landslag INGIMAR Ólafsson Waage opnar í dag, miðvikudag klukkan 18, sýn- ingu á landslagsmálverkum í Gall- erí Greip, Hverfisgötu 82, Vita- stígsmegin. Sýningin verður opin frá 10. til 25. ágúst alla daga nema mánudaga kl. 14-18. „Eftir nám í MHÍ sótti Ingimar menntun sína til Frakklands. Á sýningunni era málverk unnin á þessu ári. Viðfangsefnið er landslag og hefur listamaðurinn velt upp þeirri spurningu hvort hið dæmi- gerða íslenska myndefni, landslag, sé með öllu úrelt eða hvort það á ennþá erindi við nútímamanninn,“ segir í kynningu. Þetta er önnur einkasýning Ingimars en hann hef- ur tekið þátt í nokkrum samsýning- um. Ari Trausti Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.