Morgunblaðið - 07.08.1996, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
HELGIVERSLUN-
ARMANNA
VERSLUNARMANNAFÉLAG Reykjavíkurefndi á mánu-
dag til fjölskylduskemmtunar í Fjölskyldugarðinum í
Laugardal í tilefni af frídegi verslunarmanna. Þrátt fyrir
að veður hafí ekki verið hið ákjósanlegasta til útivistar lögðu
fjölmargir leið sína í garðinn til að eiga þar góða stund.
Frídagur verslunarmanna á sér langa hefð og líklega erti
fáar stéttir jafnvel að sérstökum frídegi komnar og starfs-
fólk verslana. Vinnudagur margra verslunarmanna er langur
og nútímasamfélag gerir sífellt meiri kröfur um lengri og
sveigjanlegri afgreiðslutíma verslana.
Verslunarmannahelgin hefur hins vegar þróast alllangt
frá uppruna sínum. í augum flestra tengist hún ekki lengur
verslunarfólki öðru fremur heldur miklu frekar ferðalögum
og útiveru, í einhverri mynd.
Þrátt fyrir að margir noti þessa helgi til heilbrigðrar úti-
vistar er þó helsta einkenni hennar „útihátíðirnar" er keppa
um hylli unglinga. Útihátíðir þessar eru eins konar sérís-
lenskt framlag til skemmtanamenningar heimsins og endur-
spegla margt af því undarlegasta og vérsta i fari lands-
manna. Helstu einkenni þeirra eru óhófleg neysla áfengis
og annarra vímugjafa með þeim ömurlegu afleiðingum sem
slíkt hefur í för með sér: tilgangslausu ofbeldi, skemmdar-
starfsemi og jafnvel nauðgunum.
Hvernig er hægt að búast við því að þjóðfélag okkar ein-
kennist af aga og festu, þegar óhófið og hömluleysið er lát-
ið viðgangast með þessum hætti og jafnvel stofnanabundið
með útihátíðum? Hvað segir það okkur um þjóðfélag okkar
þegar fólk undrast það að mótshaldarar skuli ekki vera reiðu-
búnir að greiða fyrir þjónustu Stígamótakvenna en ekki að
haldnar skuli vera samkomur þar sem brýn þörf þykir á slíkri
þjónustu?
Það þýðir ekki að hneykslast á þeim unglingum og ung-
mennum er sækja þessar samkomur. Þeir eru ekki vandamál-
ið heldur þau viðhorf sem þessi „skemmtanamenning" er
sprottin upp úr.
ÍSLENDINGAR Á
ÓLYMPÍULEIKUM
EINHVERJUM umfangsmestu og glæsilegustu Ólymp-
íuleikum sögunnar lauk í Atlanta aðfaranótt sunnu-
dags. Atlantaleikarnir mörkuðu 100 ára afmséli endur-
reisnar hinna fornu kappleika Grikkja, sem fóru fram í
Aþenu árið 1896. Þá tóku 13 þjóðir þátt í þeim og kepp-
endur voru alls 311. í Atlanta voru þátttökuþjóðirnar 197
og þær sendu yfir tíu þúsund íþróttamenn til keppninnar.
Margir þeirra náðu ótrúlega góðum árangri og metin, sem
sett voru í nokkrum greinum, eru söguleg.
í samanburði við umfang Ólympíuleikanna nú var hlut-
ur Islands örsmár. Hann hefur stundum áður verið meiri.
Að þessu sinni voru íslenzku keppendurnir níu talsins, en
voru 29 í Barcelona fyrir fjórum árum. Árangur tveggja
íslenzkra íþróttamanna var mjög góður og settu báðir
íslandsmet. Guðrún Arnardóttir náði tíunda bezta tíma
keppninnar í 400 m grindahlaupi og Jón Arnar Magnús-
son varð í tólfta sæti í mjög jafnri keppni í tugþraut með
8.274 stig. íslendingar geta verið stoltir af framgöngu
þeirra beggja.
íslendingar hafa áður náð lengra á Ólympíuleikum en
nú og komist á verðlaunapall. Vilhjálmur Einarsson hlaut
silfurverðlaunin í þrístökki í Melbourne árið 1956 og Bjarni
Friðriksson bronzverðlaunin í júdo í Los Angeles árið
1984. Þá náði íslenzka liðið í handbolta frábærum árangri
á leikunum í Barcelona fyrir fjórum árum, en það varð í
fjórða sæti.
Mikilvægt er fyrir íslenzka afreksmenn i íþróttum að
geta reynt hæfni sína og krafta í keppni á alþjóðlegum
vettvangi og þá fyrst og fremst á Ólympíuleikunum, sem
eru sveipaðir sérstökum ljóma í hugum allra íþróttaunn-
enda. Til þess að ná markverðum árangri og komast á
verðlaunapall þarf mikla þjálfun, þrautseigju og ein-
beitni. Stuðningur við efnilegt íþróttafólk er frumskilyrði
þess að það nái að vera meðal þeirra beztu á Ólympíuleik-
um. Það þarf að vera markmið íslenzku Ólympíunefndar-
innar og íþróttahreyfingarinnar allrar að finna leið til að
tryggja þennan stuðning við afreksmenn okkar í íþróttum.
MORGUNBLAÐIÐ
''IIB’fJOU/' - GICI/.)Ht/:idhom
MORGUNBLAÐIÐ
aeer
>'V.I V- nVr
MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST Í996 27
Níu manns fórust er flugvél frá danska hernum hrapaði í Servágsfirði í Færeyjum
Gulfstream III
þotan brotlenti
utan í f jallshlíð
sunnan fjarðar
Fokker flugvél
Flugfélags ísl.
brotlenti 1970
á Mykinesi
Suðuroy
25Jkm
eðlileg aðllugsleið
-3bsEat. Ibíó Gnlíc
Erfitt aðflug
Aðflugið að flugvellinum í Vogum
þykir mjög erfitt. Aðkoman er í
gegnum þröngan fjörð þar sem er
vindasamt og allra veðra von.
Mikil ókyrrð er oft í lofti og skyggni slæmt.
Þá er flugbrautin sjálf mjög stutt.
forvagur
flugvöllur
Hættulegir sviptivindar
Hættulegir sviptivindar myndast oft
í Srvagsfirði í suðvestanátt.
Fjallið klýfur lofstrauminn og myndast
þá mikil ókyrrð og sviptivindar hlémegin
er geta valdið því að flugvélar veltast
um í vindhviðunum.
DANSKA stjómin ætlar að
beita sér fyrir úrbótum á
flugyellinum í Vogum í
Færeýjum eftir að Gulf-
stream Ill-flugvél frá danska flug-
hernum fórst þar sl. laugardag. Með
henni fórust níu menn, þar á meðal
Hans Jargen Garde aðmíráll og yfir-
maður danska hersins og eiginkona
hans. Ekki er vitað hvað slysinu olli
en haft er eftir vitnum, að þegar vél-
in kom inn tíl lendingar hafi hún
svipst til og hvolft í lofti áður en hún
skall utan í fjallshlíð.
Flugvélin var að koma frá opin-
berri heimsókn í Grænlandi með við-
komu á íslandi og voru lendingarskil-
yrði slæm, suðaustanátt og þoka.
Þykir flugvöllurinn í Vogum mjög
erfiður og oft mikil ókyrrð í lofti yfir
Sorvágsfirði þegar komið er inn til
lendingar. Er flugbrautin ekki nema
1.250 metrar, ein sú stysta í heimin-
um fyrir nútímaþotur, og af þessum
sökum er til jafnaðar fellt niður 10.
hvert flug til Voga.
Svarti kassinn fundinn
Danska stjórnin skipaði í fyrradag
10 manna rannsóknamefnd tii að
kanna ástæður flugslyssins en brakið
úr flugvélinni er dreift yfir stórt svæði
í sunnanverðum Sorvágsfirði. Er
svarti kassinn fundinn og er vonast
til, að hann geti veitt mikilvægar
upplýsingar.
Nokkur vitni voru að því er flugvél-
in kom inn til lendingar. Eitt þeirra,
íbúi í Sorvági, segir, að skyndilega
hafí hún kastast til nokkrum sinnum,
hvolft í lofti og hrapað beint inn í
fíallshlíðina í sunnanverðum firðinum.
Heitir þar Selvík sem hún kom niður
og splundraðist í miklu eldhafí og
sprengingu, sem heyrðist víða í eyjun-
um.
Aðrir segja, að rétt áður en vélin
hrapaði hafi vélaraflið verið aukið
eins og þegar gert er þegar hætt er
við lendingu og flugvél tekin upp aft-
ur. Einn sjónarvotta, færeyskur
áhugamaður um svifflug, telur að
vélin hafí flogið of hægt og verður
það ásamt hugsanlegri vélarbilun
meðal þeirra atriða, sem rannsóknar-
nefndin mun kanna.
Erfiðar aðstæður
Slysið átti sér stað rétt eftir há-
degi á laugardag en þá var skyggni
slæmt og stóð vindurinn þvert á
brautina. Hafði gengið á með skúrum
og miklum rokhviðum annað slagið.
Er það haft eftir dönskum flugmönn-
um, að í Vogum verði skyggnið að
vera þrír km til að þar sé unnt að
lenda en til samanburðar má nefna,
að lent er í Kastrup þótt skyggni þar
sé aðeins 200 metrar.
Slysstaðurinn sést ekki frá Vogum
eða flugturninum þar en svo vildi til,
að danska eftirlitsskipið Vædderen lá
við bryggju í Sorvági. Fóru 30-50
menn úr áhöfn þess strax á vettvang
og þegar þeir komu að mátti heita
að fíallshlíðin iogaði. Var strax ljóst,
að enginn hefði komist lífs af.
Brakið úr vélinni dreifðist yfír um
300 metra langt svæði frá þeim stað,
sem hún kom niður, og er haft eftir
Kastaðist til og
hvolfdi í lofti
Morgunblaðið/Dimmalætting
BRAKIÐ úr flugvélinni dreifðist yfír stórt svæði.
/ w ■ 'ái'-v r ■
Morgunblaðið/PPJ
GULFSTREAM III-þota danska flughersins á Reykjavíkurflugvelli.
kynningarferð hans
vegna embættistökunn-
ar. Með honum fórust
kona hans, Anne Garde;
tveir nánustu samstarfs-
menn hans, Ole Jorgen-
sen ofursti og Jens
Blæhr majór; Hans Hen-
rik Spohr kapteinn og
fjórir flugmenn. Var einn
þeirra færeyskur,
Tummas Askham, og frá
Sorvági.
Faðir Tummas,.
Tryggvi Askham, er
flugumsjónarmaður í
aðmíráll var skipaður yf- Hans J. Garde Vogum og var hann á
irmaður danska hersins vakt sl. laugardag.
í apríl sl. og var heimsóknin til Græn- Ræddust þeir feðgar við þegar vélin
lands, islands og Færeyja síðasta var að koma inn til lendingar, örfáum
sjónarvottum, að fáir
hlutir séu stærri en svo,
að þeim megi ekki koma
fyrir í poka. Var byijað
á að flytja lík hinna
látnu, Gardes og eig-
inkonu hans, þriggja
háttsettra manna í
danska hernum og fjög-
urra flugliða, út í Vædd-
eren og var svæðinu síð-
an lokað.
Síðasta
kynningarferðin
Hans Jorgen Garde
andartökum áður en hún hrapaði til
jarðar.
Áður en Hans Jergen Garde var
skipaður yfirmaður danska hersins
var hann yfírmaður herráðsins og við
því starfí hans tók Christian Hvidt
hershöfðingi. Telja fjölmiðlar í Dan-
mörku líklegt, að Hvidt muni nú taka
við embætti Gardes. Flaggað var í
hálfa stöng í öllum stöðvum danska
hersins í fyrradag og haldnar voru
minningarathafnir um þá látnu.
29 manns hafa farist frá 1970
Mesta slys í eða við Voga áður
átti sér stað 1970 þegar Fokker-flug-
vél frá Flugfélagi íslands flaug inn í
fjallshlíð á Mykinesi með þeim afleið-
ingum, að átta manns týndu lífi. Frá
1970 hafa alls 29 manns misst lífið
í flugslysum í Færeyjum.
Ákveðið hefur verið, að Jan Trej-
borg, samgönguráðherra Danmerkur,
komi til Færeyja 13. þessa mánaðar
og verður þá rætt um til hvaða ráða
megi grípa til að auka öryggi flugvall-
arins í Vogum. Reunar telja Færey-
ingar, að því sé í sjálfu sér í litlu
ábótavant, það séu aðflugsskilyrðin,
sem séu erflð, og úr þeim verði ekki
auðvelt að bæta. Til bóta sé þó að
lengja flugbrautina eða jafnvel að
leggja nýjan flugvöll annars staðar.
(Heimildir; Reuter, Berlingske
Tidende, Jyttands-Posteh)
+
Straumurinn var til Akureyrar um verslunarmannahelgina
Allt að 6.000 manns á tjald-
svæðunum þegar mest var
IVAR Sigmundsson forstöðumaður Tjaldstæðisins
á Akureyri segir ómögulegt að segja til um
hversu margir hafi verið þar um verslunar-
mannahelgina. Þegar búið hafí verið að rukka
tæplega 1.500 manns um miðjan dag á laugardag
hafi tjaldverðir hætt að innheimta gjald, enda ölvun
þá mikil á svæðinu. Flestir þeir sem dvöldu á tjaldsvæð-
inu voru á aldrinum 15 til 25 ára og var ölvun mikil
og almenn.
„Þarna fengu Akureyringar að sjá útihátíð eins
og hún verður í sinni næstverstu mynd og hugsa sig
kannski tvisvar um áður en þeir senda böm sín á
útihátíð um næstu verslunarmannahelgi," sagði ívar.
Akureyrskir unglingar voru einnig í hópum á tjald-
stæðinu, svo þar var margt um manninn.
Þurfti að taka 500 ólátabelgi úr umferð
Að sögn ívars voru miklar skemmdir unnar á svæð-
inu, en um 25 manna hópur vann við lagfæringar
bæði á mánudag og í gær. „Það voru mörg þúsund
manns í bænum sem voru til mikils sóma og skemmtu
sér hið besta, þeir sem voru hér á tjaldstæðinu eru
aðeins lítið brot af gestunum en umræðan snýst öll
um þann hóp.“
Tíu manns voru við störf á hverri vakt auk þess
sem félagar úr hjálparsveit skáta voru á svæðinu
yfír daginn og lögregla á næturnar, en ívar sagði
það hefði sjálfsagt litlu breytt þó 110 manns hefðu
verið að störfum á tjaldstæðinu. „Ef koma hefði átt
einhveiju skikki á hlutina hefði þurft að taka svona
500 ólátabelgi úr umferð," sagði ívar.
„Það sem gerðist hér um helgina undirstrikar enn
frekar þá skoðun mína að það á að loka þessu tjald-
svæði. Það á að hætta að reka tjaldsvæði inni á
opnu svæði inni í miðjum bæ, það getur hver sem
er farið inn á svæðið hvar sem er, þannig að það
er vonlaust fyrir starfsfólkið að veija svæðið."
Fimm plástrar í Kjarnaskógi
Um 3.000 manns gistu í Kjamaskógi við Akur-
eyri þegar mest var og sagði Tryggvi Marinósson,
sem hafði umsjón með tjaldsvæðinu fyrir hönd skáta-
félagsins Klakks, að svæðið hefði einkum verið ætlað
UMGENGNIN á tjaldsfíeðunu var ekki til fyrirmyndar. Morgvnblaðið/Knstján
fjölskyldufólki. Töluverður íjöldi unglinga gisti þó í
skóginum, en margir fluttu sig af aðaltjaldsvæði
bæjarins og á fjölskyldutjaldsvæðin í Kjarnaskógi og
á svæði íþróttafélagsiris Þórs. „Unglingarnir sem hér
dvöldu voru til sóma, það vom engin vandræði hér,“
sagði Tryggvi. Til marks um það nefndi hann m.a.
að gestum hefðu verið gefnir fímm plástrar, annað
hefði ekki komið upp. Aldrei hefði þurft að leita eft-
ir aðstoð lögreglunnar og í rauri hefði eina vandamál-
ið verið að erfitt var að stjóma umferðinni, fólk hefði
viljað fara á bflum sínum helst alveg heim að tjaldi.
Andri Gylfason hjá Þór sagði að um 800 manns
hefðu verið á tjaldsvæði félagsins þegar mest var um
ALGENG sjón að morgni dags. helgina og þar hefði ekki komið til neinna vandræða.
FRÁ MÍNUM bæjardyrum séð eru
skemmdir í bænum ótrúlega litlar,
miðað við það sem ég bjóst við.
Hins vegar var víða mikið um rusl
og það var nokkuð mikið álag á
blómabeðum á miðbæjarsvæði en
alls ekkert meira en við var að
búast og ég átti von á,“ segir Árni
Steinar Jóhannsson, umhverfis-
sljóri Akureyrarbæjar.
„Eins og bæjarbúar fengu líka
að sjá þegar þeir mættu til vinnu
í morgun [gærmorgun] leit bærinn
mjög vel út. Þannig að það tók nú
ekki nema daginn að koma hlutun-
um í samt lag aftur eftir helgina
og það er nú varla hægt að kvarta
yfir því.“
Menn þrífisitt
nánasta. umhverfi
Árni Steinar segist þó óánægð-
astur með þá aðila sem séu að
þéna hvað mesta peninga á þessum
dögum, en hafi gert allt of lítið
Árni S. Jóhannsson,
umhverfissljóri
Hátíðin
tókst vel
í heild
af því að þrífa sitt nánasta um-
hverfi. „Það er alveg óþolandi fyr-
ir okkur opinbera starfsmenn að
verða vitni að því að menn geti
ekki einu sinni sópað fyrir utan
dyrnar hjá sér að loknum vinnu-
degi. í öllum öðrum löndum er það
talinn sjálfsagður hlutur í lok
vinnudags að skola gangstéttina
fyrir framan fyrirtæki sitt. Menn
eru kannski of góðu vanir hér á
Akureyri."
Alltaf ólátabelgir innan um
Árni Steinar segir jafnframt að
það gefi auga leið að þar sem safn-
ist saman um 10 þúsund manns, séu
alltaf einhveijir ólátabelgir innan
um sem geri eitthvað af sér. „Eg
hefði þó viljað sjá meiri umfjöllun
um Kjarnaskóg og félagssvæði
Þórs, þar sem hlutirnir voru tii
fyrirmyndar hjá því fjölskyldufólki
sem þar gisti. Þannig að í heildina
fannst mér þessi hátið hafa tekist
vel. Það er þó [jóst að við þurfum
að setjast niður, ræða málin og
fara yfir þau atriði sem betur mega
fara. Einnig er Ijóst að hvort sem
verður hér hátið sem nefnist Halló
Akureyri eða ekki að ári, munu
fleiri þúsund manns sækja okkur
heim og þvi er nauðsynlegt að
koma málum í réttan farveg,“ sagði
Árni Steinar.
Jakob Björnsson,
bæjarsljóri
Þurfum að
gera betur
næst
JAKOB Björnsson, bæjarstjóri á
Akureyri segir enga ástæðu til að
gefast upp við hátíðahöld í bænum
um verslunarmannahelgina, þótt
vissulega sé margt sem betur
megi fara. „Það er ekkert laun-
ungarmál að það fór ýmsilegt úr
böndunum eins og t.d. á tjaldstæð-
inu og vissulega hefðu menn þurft
að bregðast við þvi. En það eina
sem menn gera af viti nú er að
fara yfir málin, meta stöðuna,
kanna hvað fór úrskeiðis og reyna
að gera betur næst.“
Jakob segir að mun fleira fólk
hafi komið til bæjarins en hann
átti von á og því hefði á ýmsum *
sviðum þurft að hafa betri viðbún-
að þegar ijóst var hvert stefndi.
Eins hafi það komið honum á
óvart hversu margir ungir krakk-
ar komu til bæjarins og jafnvel
langt að.
Ýmisiegt niá beturfara
„Það er nauðsynlegt að svona
hátíð raski sem minnst daglegu
lífi bæjarbúa og því er spurning
hvort staðsetning tjaldstæðisins
sé rétt þegar svo mikið er um að
vera. Þessu fylgja bæði jákvæðar
og neikvæðar hliðar. Hingað kom
mikill fjöldi fólks og þótt ýmsilegt
megi betur fara er ekki ástæða
til að gefast upp og Akureyri hef-
ur hér eftir sem hingað til alla
burði til að taka á móti töluverð-
um fjölda gesta um verslunar-
mannahelgina eða í kringum aðra
viðburði.“
Magnús Már Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Halló Akureyri
Engin ástæða til að leggia niður skottið
MAGNÚS Már Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri fjölskylduhátíðar-
innar Halló Akureyri, segir að
vissulega hafi ýmislegt mátt betur
fara um helgina en hins vegar sé
sú dökka mynd sem dregin var upp
í fjölmiðlun ansi bjöguð. „Ég skal
fúslega viðurkenna það að ein
nauðgun eða ein hnífstunga er
einni nauðgun eða einni hnífstungu
of mikið en það að gera hátíðinni
skil með þessum hætti er dónaskap-
ur við aðra gesti sem hingað komu
og þeir voru um 10.000 talsins.“
Magnús Már segir að hátíðin
hafi að mestu leyti tekist mjög vel
en þó hafi áfengisdrykiqa verið of
mikil. „Það er tvennt sem þarf að
laga, fyrir það fyrsta sprungu tjald-
stæðin þar sem unglingarnir voru
og eins þarf að herða eftirlitið í
miðbænum. Við buðum upp á ungl-
ingadansleiki í Skemmunni en þeir
voru vægast sagt illa sóttir. Bæði
fannst unglingunum of dýrt inn og
eins var of langt fyrir þau að fara
úr miðbænum."
Hlutimir víða til fyrirmyndar
Magnús Már bendir á að mikið
af fólki hafi gist á tjaldsvæðunum
í Kjarnaskógi, á félagssvæði Þórs
og í Húsabrekku og þar hafi hlut-
irnir verið hreint til fyrirmyndar.
„Það gleymist líka að við buðum
upp á skipulagða dagskrá í mið-
bænum, fjölskyldugarðurinn við
sundlaugina var opinn alla helg-
ina, og dagskrá var í Kjarnaskógi
en það er ekki á það minnst að
þessi atriði hafi farið vel fram.“
Aðspurður sagði Magnús Már
að vissulega hefði mátt fjölga
starfsfólki á tjaldsvæðinu við Þór-
unnarstræti þegar fíóst var hvert
stefndi strax á föstudagsmorgun.
Eins hefði mátt senda hreinsunar-
deildir inn á svæðið alla dagana
og þá hefði svæðið ekki litið eins
illa út á mánudag og raun bar vitni.
Stærstahátíðin á íslandi
Þeir aðilar sem að hátíðinni
stóðu, héldu fund í gærmorgun, þar
sem farið var yfir stöðuna. „Við
látum engan bilbug á okkur finna,
ekki síst vegna þess að við höfum
fengið mikla hvatningu viðs vegar
að. Við þurfum að endurskoða
ýmis atriði en það er engin ástæða
til þess að leggja niður skottið og
þvert á móti munu menn, í samráði
við bæjaryfirvöld, kanna mögu-
leika á því að halda hátið hér að
ári,“ segir Magnús Már.