Morgunblaðið - 07.08.1996, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 31
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
EFTIR harða keppni í B-flokki gæðinga hömpuðu Kristinn Bjarni og Spá fyrstu verðlaununum og
skutu með því aftur fyrir sig Kjarnholta- og Torfastaðahrossunum sem voru mjög atkvæðamikil á
þessu móti. Næst koma Ogn og Agnes, Fannar og Randalín, Agni og Knútur og Lyfting og Eiríkur.
Kjarnholta- og Torfa-
staðahrossin áberandi
HESTAR
Hrísholt í
B i s k u p s t u n g u m
HESTAMÓT LOGA
Logamenn í Biskupstungum hafa
endurvakið þá gömlu hefð að halda
félagsmót sitt um verslunarmanna-
helgina. Auk hefðbundinna greina
var boðið upp á opna töltkeppni sem
þátt tóku í tuttugu og fimm keppend-
ur á mótinu í Hrísholti.
ÞRÁTT fyrir votan og vindasaman
fyrri dag mótsins lukkaðist samkoma
Loga prýðilega. Mót þeirra bar nú sem
áður fyrr nokkurn sveitabrag sem
margir þéttbýlisbúar sækja í af mikl-
um áhuga. Talsverður fjöldi kemur
ríðandi á mótið að gömlum sið, keppn-
isgleðin situr í fyrirrúmi og heyra
mátti lagið tekið. En það er ekki
bara notalegur blær á umgjörð móts-
ins því ekki fer milli mála að reið-
mennskan er á uppleið í Tungunum
eins og vfða annars staðar. Þá setja
atvinnumenn í auknum mæli svip sinn
á keppnina. Vissulega geta verið
skiptar skoðanir á því hvort um sé
að ræða breytingu til bóta eður ei,
en vafalaust gleðjast allir yfir fegurri
og betur sýndum hestum.
í B-flokki var þátttaka góð eða
tuttugu hestar, sem er ágætt hjá
ekki stærra félagi. Hrossin frá Torfa-
stöðum voru áberandi í keppninni en
þrjú hross þaðan voru í úrslitum.
Hryssan kunna Randalín var efst
eftir forkeppni með 8,20 en varð
ERLING og Feldur voru örugg-
ir með sigurinn í töltkeppninni.
STÓÐHESTURINN Kolskegg-
ur frá Kjarnholtum fékk helg-
arfrí frá hryssunum og brá sér
í 150 metra skeiðið og hafði
sigur. Eigandinn Magnús í
Kjarnholtum heldur í Kolskegg
en knapinn Logi Laxdal stend-
ur þar þjá.
undan að láta í úrslitum fyrir Spá
frá Einholti. Bróðir Randalínar, Ot-
urssonurinn Agni, var nokkuð líkleg-
ur til sigurs en missti skeifu þegar j
leikar stóðu sem hæst og var auk
þess ekki nógu tryggur á brokki og
hrapaði því í fjórða sætið.
Einkunnir voru lágar í öllum grein-
um sem skýrist að stærstum hluta
af afar slæmu veðri á laugardeginum
þegar forkeppnin fór fram. í A-flokki
stal Kjamveig frá Kjamholtum sigrin-
um í úrslitum en Grágás frá sama
stað hafði staðið efst eftir forkeppni.
Erling Sigurðsson mætti til leiks í
töltið með Feld frá Laugamesi en
þeir fóm yfir 90 stig í töltkeppninni
á Kaldármelum á dögunum. En nú
var annað uppi á teningnum. í for-
keppninni voru þeir efstir með 63,6
stig en 78 stig í úrslitunum. Þarna
eins og í öðrum greinum áttu veður-
guðimir stóra sök á stigafæðinni þótt
úrslitahestamir næðu sér þokkalega
á strik á sunnudeginum. Veðrið var
nú reyndar með þeim ósköpum á laug-
ardag að það eitt að halda mót var
útaf fýrir sig stórafrek þar sem bæði
starfsmenn inótsins og keppendur
sýndu af sér mikið harðfylgi.
Sú hugmynd að færa mótsdaginn
aftur á verslunamannahelgina er góð
og ekki ástæða að láta veðrið nú
hafa áhrif á framhaldið því varla
verður svona veður þessa helgi um
ókomin ár. Þótt aðsókn hafi ekki
verið góð að þessu sinni eðli málsins
samkvæmt eiga hin notalegu Hrís-
holtsmót vaxandi vinsældum að
fagna. Mikill fjöldi hestamanna úr
þéttbýli hefur sumaraðstöðu fyrir
hross sín í Tungunum og næsta ná-
grenni og dvelur gjarnan með þeim
þessa miklu ferðahelgi. Þykir mörg-
um tilvalið að gera sér ferð í Hrís-
holt í góða stemmningu.
Valdimar Kristinsson
hefur péttu lausnina fypip þig!
///'
Einar Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28 - Sími S62 2901 og S62 2900
BLOMBERG EXCELLENT
fynin þá sem vilja
aöeins þaö besta.
5 geröir sem henta öllum heimilum,
ótrúlega hljóölátan. meö sparnaðar-
kerfum, flaeöiöryggjum, sjálfhreinsandi
mikrósíum og öðrum kostum
sem prýöa 1 . flokks úppþvottavél.
Verð frá aðeins
T □ppunnn
í uppþvottavélum frá
Blomberq
56.905
BlQmtiera
kr.
stgr.
Hestamót Loga
A-flokkur
1. Kjamveig frá Kjarnholtum, eigandi
Magnús Einarsson, knapi Eiríkur Guð-
mundsson, 8,11.
2. Grágás frá Kjarnholtum, eigandi Gísli
Einarsson, knapi María Þórarinsdóttir,
8,22.
3. Blesi frá Hólum, eigandi og knapi
Jóhann B. Guðmundsson, 7,79.
4. Ellisif frá Torfastöðum, eigendur
Ólafur og Drífa, Torfastöðum, knapi
Óiafur Einarsson, 8,11.
5. Hekla frá Gunnarsholti, eigandi Krist-
inn Antonsson, knapi Böðvar Stefáns-
son, 7,84.
B-flokkur
1. Spá frá Einholti, eigandi og knapi
Kristinn Bjami Þorvaldsson, 8,13.
2. Ögn, eigendur Ólafur og Drífa, knapi
Agnes Helgadóttir, 8,14.
3. Randalín frá Torfastöðum, eigandi
Drífa Kristjánsdóttir, knapi Ólafur Ein-
arsson, knapi f úrslitum Fannar Ólafs-
son, 8,20.
4. Agni frá Torfastöðum, eigandi Drífa
Kristjánsdóttir, knapi Knútur Ármann,
8,19.
5. Lyfting frá Kjarnholtum I, eigandi
Magnús Einarsson, knapi Eiríkur Guð-
mundsson, 8,04.
Ungmenni
1. Fannar Ólafsson á Eldjárni frá Hól-
um, 8,04.
2. Bryndís Kristjánsdóttir á Feng frá
Traðarholti, 7,56.
3. Þórey Helgadóttir á Sóleyju frá
Hrosshaga, 7,15.
Unglingar
1. Böðvar Stefánsson á Högna frá Ás-
landi, 8,08.
2. Ólafur L. Ragnarsson á Kvási frá
Gýgjarhóli, 7,34.
Börn
1. Björt Ólafsdóttir á Alreki frá Torfa-
stöðum, 7,85.
2. Eldur Ólafsson á Frama frá Árgerði,
7,83.
3. Ragnheiður Kjartansdóttir á Blesa
frá Felli, 7,26.
4. Fríða Helgadóttir á Spennu, 6,88.
Tölt
1. Erling Sigurðsson á Feldi frá Laugar-
nesi, 78 stig.
2. Theodór Ómarsson á Rúbín frá Ög-
mundarstöðum, 73,2.
3. Páil Bragi Hólmarsson á Hrammi frá
Þóreyjamúpi, 76,8.
4. Eiríkur Guðmundsson á Tvisti frá
Vogsósum, 72.
5. Hjördís Ágústsdóttir á Spaða frá
Gunnarsholti, 67,2.
6. Drífa Kristjánsdóttir á Hildisif frá
Torfastöðum, 61,2.
Tölt barna og unglinga
1. Hinrik Þór Sigurðsson á Hugi frá
Skarði, 43,60.
2. Björt Ólafsdóttir á Alreki frá Torfa-
stöðum, 34,72.
3. Böðvar Stefánsson á Takti frá Hemlu,
36,20.
4. Eldur Ólafsson á Framari frá Ár-
gerði, 28,32.
Skeið 150 m
1. Kolskeggur frá Kjamholtum, eigend-
ur Magnús Einarsson og Kristín Þor-
steinsdóttir, knapi Logi Laxdal, 15,18.
2. Prinsessa frá Minni-Borg, eigandi
Logi Laxdal, knapi Eiríkur Guðmunds-
son, 15,36.
3. Neisti frá Strönd, eigandi Bergur
Óskarsson, knapi Fannar Ólafsson,
19,24.
Skeið 250 m
1. Viljar frá Möðruvöllum, eigandi og
knapi Páll Bragi Hólmarsson, 24,61.
2. Órvar frá Ási, eigandi Tómas Ragn-
arsson, knapi Eiríkur Guðmundsson,
24,99.
3. Tvistur frá Minni-Borg, eigandi og
knapi Logi Laxdal, 25,44.
Brokk
1. Fröken Jóhanna frá Kflhrauni, eig-
endur Valur og Helga Gýgjar, knapi
Ólafur Lýður, 49,62.
2. Óðinn frá Ásgerði, eigendur Guð-
mundur Grétarsson og Ingibjörg Sigur-
jónsdóttir, knapi Ingibjörg Siguijónsd.
1,01,16.
Stökk 300 m
1. Kári frá Vatnsenda, knapi Halldór
Vilhjálmsson, 24,82.
2. Pegasus frá Lækjarskógi, eigandi
Kristinn Einarsson, knapi Stígur Sæ-
land, 26,43.
3. Glói frá Torfastöðum, eigandi og
knapi Böðvar Stefánsson, 27,07.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
PÉTUR Ó. JOHNSON,
1029 Charity Drive,
Virginia Beach, VA. 23455,
andaðist 2. ágúst síðastliðinn.
Margrét Þorbjörg Johnson,
Thor Ólafur Johnson, Nicki Johnson,
Guðrún Johnson,
Pétur P. Johnson, Sigurborg Sigurbjarnadóttir
og barnabörn.
t
Hjartkaer eiginmaður minn, faöir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HERMANN MAGNÚSSON,
fyrrv. stöðvarstjóri
Pósts og sima,
Hvolsvelli,
lést í Landspítalanum 4. ágúst.
Gyða Arnórsdóttir,
Jónas Hermannsson,
Helgi Hermannsson,
Hermann Ingi Hermannsson,
Arnór Hermannsson,
Magnús Hermannsson,
tengdadaetur og barnabörn.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
langafi,
JÓNS. ÞORLEIFSSON
fyrrv. verkstjóri,
Grandavegi 47,
lést aðfaranótt 5. ágúst.
Jarðarförin auglýst síðar.
Emilía Jónsdóttir,
Jón Hákon Jónsson,
Guðlaug Jónsdóttir,
Anna Ágústa Jónsdóttir, Guðlaugur Long,
Haukur Jónsson, Guðlaug Árnadóttir,
Helga Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.