Morgunblaðið - 07.08.1996, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 35
er hægt annað en að minnast á
pönnukökurnar sem þú bakaðir á
tveimur pönnum. Enn hefur enginn
komist með tærnar þar sem þú
hafðir hælana í þeim efnum.
Við gnægtabrunn minninganna
streyma fram í hugann myndir af
þér frá liðinni tíð, alltaf var stutt í
stríðnina hjá þér og það var ósjald-
an að strákslegt bros breiddist yfir
andlit þitt þegar þú varst að segja
okkur frá ýmsum uppátækjum þín-
um í gegnum tíðina. Þú varst öku-
þór mikill og því ekkert undarlegt
að þú hafír haft það að ævistarfí
að aka bifreiðum og stundum þegar
tækifæri gafst til hafðir þú gaman
af að kitla pinnann í bíltúrum sem
þú bauðst okkur í, aldrei urðum við
þó bílhrædd, við vorum alltaf örugg
hjá þér.
Það varst líka þú sem veittir
okkur innsýn í hvemig var að alast
upp á öðrum tímum á íslandi við
önnur lífsskilyrði en við þekkjum í
dag. í gegnum frásagnir af lífi þínu
sem bóndadrengur og síðar ungur
maður á Núpi undir Vestur-Eyja-
fjöllum ferðuðumst við með þér í
gegnum liðna tíð, geystumst með
þér á hestbaki eða tókum hraust-
lega til við heyskapinn. í gegnum
árin fylgdist þú með okkur vaxa
úr grasi og verða að fullorðnum og
sjálfstæðum einstaklingum sem
tóku mismunandi stefnu í lífínu sem
þú sýndir alltaf mikinn áhuga og
hvattir okkur heilshugar áfram í
því sem við tókum okkur fyrir hend-
ur.
Elsku besti afí okkar, við munum
ylja okkur við eld minninganna um
ókomna framtíð. Minning þín mun
lifa í hjörtum okkar sem dýrmætur
fjársjóður. Elsku amma, megi guð
veita þér styrk í þessari miklu sorg.
Þröstur, Kolbrún og íris.
Elsku afí!
Það er svo erfítt að sætta sig við
gang lífsins og horfast í augu við
það að einhvern tíma þurfa allir
menn að fara, þar á meðal þú. Þeg-
ar þú fórst skildirðu eftir svo stórt
tómarúm í okkar hjarta að það er
sárt að hugsa til þess að við eigum
aldrei eftir að sjá þig aftur í þessu
lífí. Við minnumst þess með hlýju
þegar við komum til þín og ömmu
í Skriðustekk 1 og fengum að gægj-
ast í nammiskápinn eða fengum
glænýjar pönnsur sem þú bakaðir
oft. „Jahá, hann afí, hann kann líka
að baka,“ sögðum við þegar við
vorum minni á meðan félagarnir
göptu af undrun, „og svo steypir
hann líka heilu húsin með nærri
berum höndum.“ Já afí, aldrei höf-
um við vitað eins sterkan mann og
þig bæði á líkama og sál. Við viss-
um öll að þú værir mjög veikur þó
að það sæist aldrei á svip þínum.
Aldrei heyrðum við þig svo mikið
sem kvarta yfir þessum hræðilega
sjúkdómi sem var að reyna að yfír-
taka líkama þinn, heldur fengum
við ávallt glettin tilsvör og prakk-
araglampann sem blikaði í augum
þínum vantaði aldrei. Alltaf hafðir
þú áhuga á öllu því sem við tókum
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflngvelli
og Rábhústorginu
-kjarni málsins!
+
Okkar kæra systir og mágkona,
BRYNHILDUR STEINÞÓRSDÓTTIR
(Stella),
sem andaðist í Kaupmannahöfn 9. júlí,
verður kvödd frá Fossvogskapellu í dag,
miðvikudaginn 7. ágúst, kl. 13.30.
Birgir Steinþórsson, Kristfn Ingimundardóttir.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
RAGNAR FRÍMANNSSON,
Hátúni 10b,
er lést á heimili sínu 1. ágúst síðastlið-
inn, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kapellu föstudaginn 9. ágúst kl. 15.00.
Margrét Ragnarsdótir, Albert Sævar Guðmundsson,
Guðmundur Örn Ragnarsson, Ólína Erlendsdóttir,
Róbert Ragnarsson,
Ragnar Fr. Ragnarsson, Linda Björk Vilhjálmsdóttir,
og barnabörn.
+
Móðir mín,
SVEINBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR,
áðurtil heimilis
á Kleppsvegi 40,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 8. ágúst kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Þórunn Franz.
+
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, sonur
og bróðir,
JÓHANN FRIÐÞÓRSSON
bifvélavirki,
Álftamýri 54,
Reykjavík,
sem lést 28. júlí, verður jarðsunginn
frá Áskirkju fimmtudaginn 8. ágúst
kl. 13.30.
Eyjólfur Jóhannsson, Elfa Hrönn Guðmundsdóttir,
Fanney Jóhannsdóttir,
Jakob Friðþórsson.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk-
ar, tengdafaðir, bróðir, mágur og afi,
JÓHANN BJARMI SÍMONARSON
fyrrv. skrifstofustjóri,
Klettaborg 4,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 9. ágúst kl. 13.30.
Freygerður Magnúsdóttir,
Þorleifur Jóhannsson, Olga Ellen Einarsdóttir,
Símon Jón Jóhannsson, Hallfríður Helgadóttir,
Gígja Símonardóttir, Sverrir Sigurðsson
og barnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
SÓLVEIG FRIÐFINNSDÓTTIR,
Ásholti 10,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðar-
kirkju föstudaginn 9. ágúst kl. 13.30.
Þorsteinn Jónsson,
Andrés Úlfarsson, Steinunn M. Sigurðardóttir,
Elín Úlfarsdóttir, Þétur Vilhjálmsson,
Ólöf D. Úlfarsdóttir, Gunnar Th. Gunnarsson
og barnabörn.
+
Ástkær móðir, tengdamóðir og amma,
SESSEUA ANDRÉSDÓTTIR
frá Öxnafelli,
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
5. ágúst.
Ólafur A. Thorlacius, Fjóla Aðalsteinsdóttir
og synir.
+
Systir mín og mágkona,
MARGRÉT GUÐJÓNSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur
Bólstaðarhlíð 45,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 8. ágúst kl. 15.00.
Jón B. Guðjónsson, Geirþrúður Charlesdóttir.
+
Faðir okkar,
INGVAR ALFREÐ GEORGSSON,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
í dag, miðvikudaginn 7. ágúst, kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Helgi Ingvarsson,
Óskar Heimir Ingvarsson,
Sigrún Pálina Ingvarsdóttir.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Vesturgötu 71,
Akranesi,
sem lést 2. ágúst, verður jarðsungin frá
Háteigskirkju á morgun, fimmtudaginn
8. ágúst, kl. 15.00.
Jón Helgason, Súsanna Halla Magnúsdóttir,
Sigríður Jónsdóttir, Eysteinn Jónsson,
Jónfna Gróa Jónsdóttir, Loftur Hilmar Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum samúð og vináttu við andlát og útför
ÁSTU HELGADÓTTUR KOLBEINS,
f. 9.10.1902, d. 18.07.1996.
Lilja Kolbeins,
Þórey Kolbeins,
Halla Kolbeins, Pétur Pétursson,
Ásta Kolbeins, Andrés Pétursson,
Eyjólfur E. Kolbeins, Erna Kristinsdóttir
og fjölskyldur.
+
Þökkum af heilum hug það vinarþel sem
okkur var sýnt við andlát og útför ætt-
móður okkar,
ÞÓRU HELGADÓTTUR,
Kópavogsbraut 8.
Einnig þökkum við starfsfólki heima-
hlynningar Krabbameinsfélagsins ein-
staka umönnun í veikindum hennar.
Helgi Þórhallsson, Ingibjörg Pálsdóttir,
Þórunn Björnsdóttir, Marteinn Hunger Friðriksson,
Jón Björnsson,
Grímur Björnsson, Valgerður Benediktsdóttir,
Þórhildur Björnsdóttir, Sigrún Ólafsdóttir,
Páll Helgason, Þórhallur Helgason,
Kolbeinn Marteinsson, Þóra Marteinsdóttir,
María Marteinsdóttir, Marteinn Marteinsson,
Gunnar Grímsson, Sóley Grímsdóttir.