Morgunblaðið - 16.08.1996, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Bandaríkin
Frakkar
sakað-
ir um
njósnir
Washington. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Frakklandi
og ísrael taka virkan þátt í
iðnaðamjósnum í Bandaríkj-
unum, að því er fram kemur
í yfirlýsingu frá bandarísku
leyniþjónustunni (CIA). Hins
vegar er starfsemi Japana,
sem hafa löngum verið sakað-
ir um að stela bandarískum
iðnaðarleyndarmálum, að
„mestu lögleg," að því er seg-
ir í yfirlýsingunni.
Ásökunum
CIA neitað
Fram kemur, að einungis
em nefnd fáein ríki sem CIA
telur stunda iðnaðamjósnir í
Bandarlkjunum. Meðal þess-
ara ríkja em Frakkland, ísra-
el, Kína, Rússland, íran og
Kúba. Japan og nokkur önnur
ríki safna iðnaðampplýsing-
um, en að mati CIA er sú starf-
semi í flestum tilvikum lögleg
og felst í því að falast eftir
upplýsingum sem boðnar era
og hafa ráðgjafa á launum.
Talsmenn stjómvalda í
Frakklandi og ísrael bám
þessar ásakanir til baka og
sögðu ekkert hæft í fullyrðing-
um CLA.
Borís Jeltsín stokkar upp í ríkisstjórn Rússlands
Áhrif umbótaaflanna í
stjórninni talin aukast
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
stokkaði upp í stjórn sinni í gær og
skipaði tvo af nánustu ráðgjöfum
sínum og ungan bankamann, sem
hefur ekki reynslu af stjómmálum,
í valdamikil ráðherraembætti til að
hraða umbótum. Ráðherrar vamar-,
innanríkis- og þjóðemismála halda
hins vegar embættum sínum þrátt
fyrir ófarir rússnesku hersveitanna
í Tsjetsjníju.
Viktor Tsjemomyrdín forsætis-
ráðherra skýrði frá uppstokkuninni
og sagði að ráðuneytum yrði fækkað
til að gera stjórnina skilvirkari. Fyrri
stjórn sagði af sér eins og kveðið er
á um í stjómarskránni eftir endur-
kjör Jeltsíns en forsetinn og þingið
skipuðu Tsjemomyrdín aftur í for-
sætisráðherraembættið í vikunni
sem leið.
„Þetta er róttæk uppstokkun á
framkvæmdavaldinu í Rússlandi og
hún er í fullu samræmi við nýju
verkefnin sem við eigum fyrir hönd-
um,“ sagði Tsjernomyrdín á blaða-
mannafundi með ráðhermm stjórn-
arinnar.
„Kapítalistar í húð og hár“
Helsti ráðgjafi Jeltsíns, Viktor
Iljúshin, 59 ára, varð einn af þrem-
ur æðstu aðstoðarforsætisráðherr-
um stjómarinnar ásamt Vladímír
SANDGERÐISBÆR
Sandgerðisdagar
1996
Laugardagurinn 17. ágúst
09.00-16.00 Frítt í sund í íþróttamiðstöðinni.
10.00-12.00 Sigling með Hannesi Þ. Hafstein
um söguslóðir.
13.00 Setning Sandgerðisdaga í Fræðasetrinu.
13.00 Myndlistasýning listamanna frá
Sandgerði opnar í Fræðasetrinu.
13.00-17.00 Kynning á starfsemi
Fræðasetursins (erindi og sýningar).
13.00-17.00 Opið hús í Efra Sandgerði í boði Lions.
14.00 Dorgveiðikeppni við höfnina.
17.00 Tónlistarhátíð á Vitanum.
17.00-18.30 Smökkun sjávarrétta
af grillinu á Vitanum.
13.00-03.00 Hljóp á snærið á Vitanum.
Sunnudagurinn 18. ágúst
09.00-16.00 Frítt í sund í íþróttamiðstöðinni.
11.00 Séra Onundur Bjömsson sóknarprestur
messar í Hvalneskirkju.
13.00-17.00 Opið hús í Efra-Sandgerði í boði Lions.
13.00-17.00 Sýning opin í Fræðasetrinu.
13.30 Fjöruferð frá Fræðasetrinu.
15.00 Söguganga undir leiðsögn
Péturs Brynjarssonar sagnfræðings.
15.00-18.00 Kaffihlaðborð á Vitanum.
16.30 Klassísk tónlist á Vitanum.
íþrótta- og tómstundafulltrúi Sandgerðis.
Alexander Lívshíts,
fjármálaráðherra.
Vladímír Potanín,
aðstoðarf or sætis-
ráðherra.
Alexej Bolshakov,
æðsti aðstoðarfor-
sætisráðherrann.
Reuter
Viktor Iljúshin,
aðstoðarforsætis-
ráðherra.
Potanín, 35 ára bankamanni, og
Alexej Bolshakov, sem er 56 ára
og fór með tengslin við fyrrverandi
sovétlýðveldi í fyrri stjóm.
Bolshakov fer með iðnaðarmál og
verður æðstur þremenninganna.
Gert er ráð fyrir að Iljúshín fari
með félagsmál og Potanín tekur við
stjórn efnahagsmálanna.
Æðsti efnahagsráðgjafi Jeltsíns,
Alexander Lívshíts hagfræðipró-
fessor, verður fjármálaráðherra í
stað Vladímírs Panskovs, sem hafði
sætt mikilli gagnrýni fyrir störf sín.
Eins og Iljúshín hefur Lívshíts
verið meðal dyggustu stuðnings-
manna Jeltsíns og hann átti mikinn
þátt í skipulagningu kosningabar-
áttu forsetans. Þeir hafa hins vegar
aldrei áður gegnt pólitískum emb-
ættum.
Potanín hefur ekki heldur reynslu
af stjómmálum, en hann hefur stutt
Anatolí Tsjúbajs, róttækan umbóta-
sinna sem hóf einkavæðingu rúss-
nesku stjórnarinnar eftir hmn
kommúnismans.
Hagfræðingar í Moskvu segja lík-
legt að Potanín, Iljúshín og Lívshíts
auki áhrif umbótaaflanna í stjóm-
inni og knýi fram aðgerðir til
stemma stigu við skattsvikum og
minnka fjáriagahallann, sem em
meðal brýnustu verkefna stjórnar-
innar.
„Þetta eru kapítalistar í húð og
hár,“ sagði Robert Devane, deildar-
stjóri í bankanum Trojka-Dialog.
„Segja má að þetta séu réttu menn-
imir á réttum stað á réttum tíma
og þeir séu iíklegir til að gera réttu
hlutina á næstu áram.“
Fjárfestingar gætu stóraukist
Potanín, sem tekur við stjórn
efnahagsmálanna, gerði viðskipta-
bankann Uneximbank að fjórða
stærsta banka landsins. „Potanín
er óháður bankamaður sem byggði
upp eina af öflugustu fjármálastofn-
un Rússlands," sagði fréttaskýrand-
inn Andrej Kortúnov. „Spurningin
er hvort hann getur sett hagsmuni
alls landsins ofar hagsmunum bank-
anna sem hann starfaði fyrir.“
Potanín lofaði í gær að starfa í
þágu rússneskra fyrirtækja „í víð-
ustu merkingunni" og gæta ekki
aðeins hagsmuna bankanna. Hann
sagði að fjárfestingar í Rússlandi
gætu stóraukist
á næstu mánuð-
um ef stjórnin
sýndi fjárfestum
fram á að réttur
þeirra yrði virt-
ur.
Erlend fyrir-
tæki hafa verið
treg til að fjár-
festa í Rúss-
landi, sum
vegna tíðra
lagabreytinga
og önnur vegna
óvissunnar í
stjórnmálum
landsins, sterkr-
ar stöðu
kommúnista á
þingi og stríðs-
ins í Tsjetsjníju.
Stjórnarandstæðingum
boðin embætti?
Jeltsín hafði áður vikið nokkmm
ráðherrum frá, þeirra á meðal Pavel
Gratsjov vamarmálaráðherra og
Oleg Soskovets, sem var á meðal
þriggja æðstu aðstoðarforsætisráð-
herranna.
Tveir af æðstu aðstoðarforsætis-
ráðherrum fyrri stjómar misstu
embætti sín I gær. Annar þeirra,
Vladímír Kadanníkov, verður ekki í
stjórninni og hinn, Oleg Lobov, var
lækkaður í tign.
Ekki hefur enn verið skipað í níu
af 24 ráðherraembættum og talið
er að stjórnarandstæðingum verði
boðin nokkur þeírra.
Vjatsjeslav Míkhaílov þjóðernis-
málaráðherra, Anatolí Kúlíkov inn-
anríkisráðherra og ígor Rodíonov,
nýskipaður vamarmálaráðherra,
halda embættum sínum eftir upp-
stokkunina þótt þeir hafi sætt gagn-
rýni vegna ófara rússnesku her-
sveitanna í Tsjetsjníju. Jevgení
Prímakov hélt einnig embætti utan-
ríkisráðherra.
Miðausturlönd
Vill aðstoð
Bandaríkja-
stjórnar
Jerúsalem. Reuter.
TALSMENN ísraelsstjórnar gerðu
í gær lítið úr tilmælum Yassers
Arafats, leiðtoga Palestínumanna,
um að Bandaríkjastjórn veitti aðstoð
við friðarumleitanir í Miðaust-
uriöndum, sögðu að um áróðurs-
bragð væri að ræða. Arafat sendi
Bilí Clinton Bandaríkjaforseta bréf
á miðvikudag og bað hann um að
að þrýsta á Benjamin Netanyahu,
forsætisráðherra Israels, og fá hann
til að halda gerða samninga.
Israelar og Palestínumenn segja,
að fyrstu viðræður þeirra um borg-
araleg málefni I sex mánuði hafí
gengið vel á miðvikudag en þeir
síðamefndu tóku fram, að sú stefna
Netanyahus að greiða fyrir ný-
byggðum gyðinga á hernumdu
svæðunum hefði skyggt á þær.
Fundurinn fjallaði um valdayfir-
færslu til Palestínumanna, til dæm-
is hvað varðar palestínsk vegabréf,
landamæragæslu og stjómun vatns-
mála. Israelar vildu þó ekki ræða
mesta áhyggjuefni Palestínumanna,
þá ákvörðun Netanyahus að nema
úr gildi fjögurra ára gamalt bann
við nýbyggðum gyðinga á hemumdu
svæðunum.
Christopher
í Sarajevó
Reuter
WARREN Christopher, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, kom
til Sarajevó í Bosníu í gær og á
ferð um gamla hluta borgarinn-
ar heilsaði hann upp á fólk og
hitti þá meðal annarra Sedin
Skoro, sem er fimm ára snáði
og er hér í fangi utanríkisráð-
herrans, og Faruk, bróður Sed-
ins, sem er þriggja ára.
Christopher kom til Sarajevó
frá Genf, þar sem hann átti á
miðvikudag fundi með
forsetum Bosníu, Króatíu og
Serbíu. Lagði Christopher þar
áherslu á nauðsyn úrbóta í
Bosníu til þess að kosningar,
sem þar eiga að fara fram eftir
mánuð, gætu gengið snurðu-
laust.