Morgunblaðið - 25.08.1996, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
MARGIR þekktir leikarar eru félagar í Vísindaspekikirkjunni, þeirra á meðal
má nefna Tom Cruise, Nicole Kidman og John Travolta.
Vísindi, trú eoa
peningaplokk?
Vísindaspekikirkjan, sem upprunnin er í
Bandaríkjunum, hefur frá upphafí verið
umdeild og veldur nú miklum deilum í
Þýzkalandi. Auðunn Amórsson kynnti
sér deilur um starfsemi hennar og rekur
sögu þessa sértrúarhóps.
AUNDANFÖRNUM vik-
um hefur, einkum í
Þýzkalandi, spjótum
verið beint að „Vísinda-
speki-kirkjunni“ svokölluðu (The
Church of Scientology), sem gagn-
rýnendur telja vera viðsjárverðan
félagsskap, sem ekki skyldi líðast
að njóta réttarstöðu sértrúarhóps.
Vísindaspekikirkjan hefur á und-
anfömum árum og áratugum breitt
út starfsemi sína um flest lönd hins
vestræna heims. Starfseminni er
miðstýrt frá heimshöfuðstöðvum
„kirkjunnar" í Kaliforníu, nánar
tiltekið í Hollywood. Stofnandi og
andlegur leiðtogi hennar er Banda-
ríkjamaðurinn L. Ron Hubbard,
sem lézt árið 1986 (sumir segja
þó að hann hafi látist mun fyrr,
þar sem hann sást hvergi opinber-
lega frá árinu 1980).
Ekki eru allir á eitt sáttir um
það hvað „vísindaspeki" sé. Áhang-
endur hennar hafa á undanförnum
áratugum ávallt svarað þessari
spurningu á einn veg: Hún sé
kirkja. En að félagsskapurinn beri
heitið „vísindaspeki-kirkjan"
tryggir engan veginn að um raun-
veruiegt trúfélag sé að ræða. Notk-
un á orðinu kirkja er fijáls, hún
er ekki lögverndað vörumerki. Það
er heitið „scientology" hins vegar.
Þegar L. Ron Hubbard hleypti
fyrirtæki sínu af stað árið 1950
var fyrst um sinn hvergi minnzt á
trú. Hubbard, sem hafði skrifað
nokkrar vísindaskáldsögur sem
hlotið höfðu meðalgóðar viðtökur,
sannaði hins vegar fljótt hæfileika
sinn til árangursríkrar nýyrða-
smíði. „Fyrsta bók“ hreyfingar
„vísindaspekinnar“ ber heitið „Día-
netík. Nútímavísindi hinnar and-
legu heilsu". Enska orðið Dia-
netics, sem Hubbard fann upp,
hefur rétt eins og Scientology og
fleiri lykilorð hreyfingar hans yfir
sér vissan vísindalegan blæ.
Árið 1952 var félag nokkurt
fært inn í fyrirtækjaskrá í Arizona
undir heitinu „Hubbard Association
of Scientologists." 1954 var stofn-
uð „Vísindaspekikirkjan í Kalifor-
níu.“
Merkimiðasvindl
Þegar reynt er að afla félags-
skapnum nýrra meðlima er því hins
vegar oft sleppt að nefna „trú“ eða
„kirkju“. Miðstöð „vísindaspekinn-
ar“ í Þýzkalandi, sem er til húsa í
stórhýsi í Hamborg, hét fram yfir
miðjan níunda áratuginn „skóli fyr-
ir hagnýta heimspeki“.
I auglýsingasendingum, sem
kynna framleiðslu útgáfufyrirtæk-
isins New Era, er aðeins að fínna
mjög lítt áberandi tilvísun um, að
Hubbard hafi orðið þekktur fyrir
„vísindaspeki, trúarlega hagnýta
heimspeki". Agnið sem á að virka
á ginnkeypta er ókeypis „persónu-
leikapróf" með 200 spurningum,
sem kallað er Oxford Capacity
Analysis. Heitið Oxford er eins og
orðið kirkja ekki lögverndað heiti.
Einnig er mynd Alberts Einsteins
notuð til að auglýsa „persónuleika-
prófið" og bækur Hubbards, þótt
hann hafi hvergi komið nálægt fé-
lagsskap hans. Alls staðar, þar sem
„vísindaspeki" er á ferðinni, er um
merkimiðasvindl að ræða.
„Spillt, óhugnanleg og
hættuleg“
Árið 1984 féllf Bretlandi dómur
í forsjárréttarmáli skilinna hjóna
yfir tveimur börnum þeirra. Faðir-
inn var virkur félagi í vísindaspeki-
kirkjunni en móðirin hafði yfirgefið
félagsskapinn. Dómarinn kynntist
í hinum þriggja vikna löngu réttar-
höldum starfsemi vísindaspekinga
í Bretlandi allítarlega. Hann dæmdi
yfirráðaréttinn yfir börnunum af
föðumum og færði hann móðurinni
einni. Úrskurður dómarans byggð-
ist á mati hans á starfsemi „vís-
indaspekinga" og afleiðingum
þessara fræða.
í dómnum er „vísindaspeki"
nefnd „hvort tveggja ósiðleg og
félagslega viðurstyggileg," sam-
kvæmt lýsingu dómarans, sem
bætti við: „Að mínu áliti er hún
spillt, óhugnanleg og hættuleg.
Hún er spillt vegna þess að hún
er byggð á lygum og prettum og
hefur sem sitt eina raunverulega
takmark peninga og völd til handa
herra Hubbard, eiginkonu hans og
öðrum í kring um hann efst í valda-
stiganum."
Þessi dómur, sem „kirkjan"
reyndi að fá ógiltan, var þó aðeins
sá fyrsti í langri röð dómsmála, sem
háð hafa verið gegn henni síðan.
Starfsaðferðir reglunnar, sem
dómarinn lýsir á svo neikvæðan
hátt, eru orðnar allkunnar í þeim
löndum sem hún er virkust. Þær
byggjast á kenningum Hubbards
um að mennirnir hefðu endurholdg-
azt allt frá upphafi tímans og í
hveijum manni búi svokallaður
„thetan" (e.k. andi, enn eitt nýyrði
Hubbards), sem reyndi að hjálpa
manninum að bæta sig. En svoköll-
uð „engröm" (engrams)hamla því
að „thetaninn" fái að njóta sín.
Þessi „engröm“ eru slæmar húgs-
anir eða fornar misgjörðir, sem
þarf að „hreinsa" út eftir leiðum
„vísindaspekinnar" sem kallast
„díanetík". Helzta verkfæri „día-
netíkur“ er „hlustun [auditing]með
e-mæli,“ sem er vél (e.k. „lygamæl-
ir“) sem innvígðir meðlimir regl-
unnar beita er þeir yfirheyra nýliða
um þeirra innstu hugsanir, kanna
hugarfylgsni þeirra í leit að
„engrömum". Samkvæmt kenning-
HÖFUÐSTÖÐVAR Vísindaspekikirkjunnar
í Hollywood í Kaliforníu.
unni eiga þessar yfirheyrslur að
gera meðlimum reglunnar kleift að
finna og yfirbuga hin skaðlegu
„engröm“. Að „hlustun“ lokinni er
nýliðinn orðinn „hreinsaður" (clea-
red) og tilbúinn til að vinna sig
áfram upp í virðingarstiganum,
m.a. með því að sækja rándýr nám-
skeið sem haldin eru í miðstöðvum
reglunnar.
Innan reglunnar er ríkjandi
strangur virðingarstigi; hátt í hon-
um eru hópar „siðferðisvarða" sem
vaka yfir því að enginn reglumeð-
limur víki af gefinni línu. Neikvæð-
ustu ímynd sína hefur reglan aflað
sér með þeim aðferðum sem hún
beitir gegn þeim sem yfirgefa fé-
lagsskapinn - og gerast svo bí-
ræfnir að gagnrýna hann opinber-
lega. Þeir eru lýstir óalandi og
ófeijandi og ofsóttir á ýmsan hátt.
Þjóðverjar skera upp herör
í Þýzkalandi féllu á síðastliðnu
ári tveir dómar, sem hafa sett starf-
semi „vísindaspeki-kirkjunnar"
verulegar skorður þar í landi.
Hæstiréttur Þýzkalands staðfesti
dóm stjórnsýsludómstóls í Ham-
borg frá árinu 1993, sem skil-
greindi megnið af starfsemi vís-
indaspekinga sem viðskiptastarf-
semi og ætti eftir því að vera skrán-
ingar- og skattskyld. í stuttu máli:
Sölu bóka, námskeiða, rafmagns-
tækja (e-mæla) og hina svokölluðu
„hlustun" (Auditing) beri ekki að
skilja sem guðsþjónustu.
Vinnumarkaðsdómstóll Þýzka-
lands gekk einu skrefi lengra, og
svaraði spurningunni, hvort „vís-
indaspeki" geti yfirleitt borið fyrir
sig lögvernd trúarbragða einfald-
lega neitandi. 1 dómsúrskurðinum
(sem er 56 síður) segir m.a., að
stofnun, sem greiði þóknun fyrir
hvern unninn nýjan meðlim, væri
ekki hægt að flokka sem „trúar-
eða lífsskoðunarsamfélag" í skiln-
ingi stjórnarskrárinnar.
Þýzku dómárarnir vísa í úrskurði
sínum til „mannfyrirlitlegra skoð-
ana“ og „alræðistilburða" „vísinda-
speki“-reglunnar; þeir forðast liins
vegar að skera upp úr um, hvort
reglan sé trúflokkur eða fyrirtæki.
Menn hallast þó sífellt meir að
þeim skilningi, að hér sé hvorki um
að ræða trúarbrögð né gróðastarf-
semi til framdráttar einstaklingum,
heldur snúist starfsemin um yfirráð
yfir fólki, uin völd.
Þýzk-bandarískt
milliríkjamál
Andstæðingar „vísindaspek-
inga“ í Þýzkalandi nýttu sér frétta-
þurrð fjölmiðlanna um mitt sumar
til að vekja athygli á vafasamri
starfsemi þeirra. Ungliðahreyfing
Kristilegra demókrata, flokks
Kohls kanzlara, efndi til mótmæla-
aðgerða gegn sýningu kvikmyndar-
innar „Mission: Impossible", sem
Tom Cruise framleiðir og leikur
aðalhlutverkið í og hvöttu fólk til
að sniðganga myndina. Tilefni
mómælanna er, að Cruise er - eins
og reyndar fleiri bandarískar kvik-
myndastjörnur - meðlimur í vís-
indaspekikirkjunni.
Á sama tíma hefur stjórn Bæj-
aralands tilkynnt, að hún muni
ganga úr skugga um, hvort í þjón-
ustu sambandslandsins finnist
meðlimir reglunnar og við opinber
útboð er farið fram á að þau fyrir-
tæki sem leggi inn tilboð sanni að
þau tengist ekki reglunni.
„Vísindaspekingar" hafa brugð-
ist við þessum aðgerðum með því
að senda Sameinuðu þjóðunum
bréf, þar sem þeir kvarta undan
„ofsóknum" á hendur sér í Þýzka-
landi. Þrír bandarískir öldunga-
deildarþingmenn sendu Warren
Christopher utanríkisráðherra
áskorun um að hann setti ofan í
við stjórnvöld í Bonn vegna ofan-
greindra aðgerða. Þótt ekki hafi
komið til þess að Washington sendi
opinberar ávítur til Bonn, miðluðu
fulltrúar Bandaríkjastjórnar því til
þýzkra stjórnvalda, að Bandaríkja-
stjórn hefði fullan skilning á því
þegar vísindaspekingar segðu sínar
farir ekki sléttar í Þýzkalandi.
Þýzka stjómin segir hins vegar
vísindaspekinga reka ófrægingar-
herferð gegn Þýzkalandi, til að
sverta orðstír landsins erlendis. Það
er reyndar ekkert nýtt. Árið 1994
birtust heilsíðuauglýsingar í banda-
rískum dagblöðum, þar sem að-
gerðum þýzkra stjórnvalda gegn
starfsemi reglunnar var líkt við
gyðingaofsóknir Hitlers og Þriðja
ríkisins.
„Vísindaspeki“ á alnetinu
1 Bandaríkjunum, landi hinna
óheftu tækifæra og frelsis, gefur
að skilja að „vísindaspekingar"
nýti sér alnetið til að útbreiða boð-
skap sinn. En andstæðingar hennar
láta einnig að sér kveða þar. Ya-
hoo!, vinsælasta leitarhjálpin á Al-
netinu, býður upp á lista yfir fleiri
en 50 netföng „vísindaspeki“-
gagnrýnenda (http://www.yahoo.
com/Society-and-Culture/Religi-
on/Scientology).
• Heimildir: Die Zeit, Der Spiegel, The
Daily Telegraph, Forbes Magazine.
i
j