Morgunblaðið - 25.08.1996, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996 51,
i:
I
I
I
I
I
I
I
I
1
I
I
!
í
(
i
(
(
1
Verö kr. 1 98.00 stgr.
Fegfurcíin á sér ótal form
KNATTSPYRNA
Suöurlandsbraut 54 - Sími: 568 2866
Bannað að tala í
„farsímann“
egar margir af frægustu
knattspyrnumönnum heims
hafa tyllt niður fæti á Englandi til
að láta ljós sitt skína þar í landi
skjóta óneitanlega upp kollinum
vandamál af ýmsu tagi og þar á
meðal tungumálaerfiðleikar þar
sem stjörnurnar koma frá mörgum
mismunandi þjóðlöndum og mæla
því ekki allar á enska tungu.
Eins og við er að búast eru
knattspyrnukapparnir misfljótir að
aðlaga sig þjóðtungu heimamanna
en einn er þó sá maður, sem á í
nokkrum erfiðleikum með að til-
einka sér engilsaxneskuna og heit-
ir hann Gianluca Vialli, leikmaður
hjá Chelsea.
Hollendingurinn Ruud Gullit,
knattspyrnustjóri Chelsea, hefur
því brugðið á það ráð að fá að-
stoðarmann sinn Graeme Rix, fyrr-
um landsliðsmann Englendinga og
leikmann Arsenal, til þess að að-
stoða Vialli við tungumálanámið
og fer hér á eftir brot úr samtali
þeirra þegar Rix var að reyna að
hugsa upp auðveldustu leiðina fyr-
ir Vialli til þess að læra ensku.
Rix: „Luca, það hefur enga þýð-
ingu fyrir þig að læra setningar
eins og „bíllinn minn er rauður“
eða „himinninn er blár“ því þú
þarft að læra setningar, sem þú
getur notað í daglegu lífí.“
Vialli samþykkir og Rix heldur
áfram: „Við skulum reyna að halda
uppi samræðum eins og við værum
að tala saman í síma,“ segir að-
stoðarþjálfarinn um leið og hann
styður litla fingri á efri vör og
þumalfingri á hægra eyra og þyk-
ist vera að tala í símtól. „Ring,
Ring,“ segir Rix og Vialli býr til
sitt eigið „símtól“ um leið og hann
svarar. Þetta æfa þeir félagar nú
í nokkra stund, sitjandi hlið við
hlið, og spjalla saman um knatt-
spyrnu, golf, bifreiðar og margt,
margt fleira.
Nokkrum dögum síðar eru svo
leikmenn Chelsea staddir í lang-
ferðabifreið félagsins á leið sinni
í norðurátt þar sem þeir eiga að
spila æfingaleik gegn ónefndu fé-
lagi úr 2. deild. Rix kemur þá auga
á Vialli aftarlega í bifreiðinni, ber
hönd upp að eyra og kallar: „Ring,
ring . . . ring, ring.“
En í stað þess að svara snýr
Vialli sér undan og þykist ekki sjá
Rix, sem heldur áfram að kalla:
„ring, ring“, en Vialli lætur sem
fyrr eins og Rix sé hvergi nálæg-
ur. Eftir nokkra stund gefst Rix
svo upp og öskrar á Vialli: „Hvað
er að þér maður, heyrir þú ekki
að síminn þinn er að hringja?"
Vialli lítur þá upp með hálfgerðan
sauðasvip á andlitinu og segir: „Eg
má ekki svara.“ „Hvers vegna
ekki?“ spyr Rix. „Því það er bann-
að að vera með farsíma í rútunni.“
Sögur sem þessi ganga nú fjöll-
unum hærra á Englandi um þessar
mundir en þótt Vialli hafi verið
bannað að tala í „farsímann" sinn
í langferðabifreiðinni var það ein-
mitt farsími, sem gerði Ruud Gul-
lit kleift að semja við félög á ítal-
íu og Frakklandi um kaup á þeim
Vialli, Roberto Di Matteo og Frank
Lebeouf.
Enskir leikmenn
allt of dýrir
„Enskir leikmenn eru allt of
dýrir og ef við tökum t.d. Di Matteo
sem dæmi mundi hann án efa kosta
mun meira væri hann Englending-
ur. Ég er ekki tilbúinn til þess að
greiða svimandi háar upphæðir
fyrir leikmenn einungis vegna þess
að þeir eru enskir þegar alveg jafn-
góðir leikmenn eru til sölu annars
staðar fyrir mun lægri upphæðir,“
sagði Gullit og bætti jafnframt við
að hann hafi hringt þr'vsvar sinn-
um úr farsímanum sínum í sumar,
einu sinni í Vialli, einu sinni í Di
Matteo og einu sinni í Lebeouf, og
þar með komist að því þeir myndu
allir grípa tækifærið fegins hendi
byðist þeim að leika á Englandi.
„Enginn vissi hver Lebeouf var
áður en hann var keyptur til
Chelsea og ég var mjög feginn að
hann lék ekki með franska
landsliðinu í Evrópukeppninni. Þá
var heldur enginn á höttunum á
eftir Di Matteo,“ sagði Gullit, sem
stefnir nú að því að gera Chelsea
að einu öflugasta liði í ensku úr-
valsdeildinni.
Aida sófi
Ný námskeiá aá Kefjast
- sniáin aá mannlegfum J)örfum
Við vitum að það er ekki hægt að móta alla líkama
og allra þarfir í eitt form.Við hjá Líkamsrækt JSB
höfum unnið með þúsundum kvenna við að byggja
upp hreysti og viðhalda góðri heilsu og útliti.
Til okkar leita konur með ýmsar væntingar. Við gerum
okkar besta til að hjálpa þeim, en árangurinn byggist
fyrst og fremst á þeim sjálfum.
ViS gerum ekki kraftaverk — en J>ú getur J>að!
TOPPITIL TÁAR
Námskeið sem Iiefur veitt ótalmörgfum
Uonum fráltæran árangur.
Þetta kerfi er eingöngu ætlað konum. sem berjast við
aukakílóln. Uppbyggilegt, lokað námskeið.
Fimm tímar í viku, -sjö vikur í senn.
Góður matarkúr sem fylgt er eftir daglegít með andlegum
stuðningi, einskaviðtölum og
fyrirlestrum um
KORTAKERFIÐ
Græn kort:
mataræði og hollar
lífsvenjur.
Heilsufundir þar sem
farið er yflr förðun,
klæðnað, hvernig á að
bera líkamann og efla
sjálfstraustið.
Frjáls niæting
6 daga vikunnar
fyrir konur
á öllum aldri.
AUir Jxnna JJokk
við sitt hœfi hjdJ.S.B.
Vetrartajla tekur gildi 4. sept.
TOPPITIL TÁAR - f„,nI„U
Námskeið fyrir þær sem vilja
lialcia áfram í aðlialdi.
Tírnar 3x í viku
Fundir lx í viku í 7 vikur.
Barnapössun fyrir hádegi
Lágmúla 9 • Sími 581 3730
MATTUPINM 6 DÝBÐIN