Morgunblaðið - 25.08.1996, Page 34
34 SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir minn,
tengdafaðir minn og afi,
Dr. Med. STEFÁN HARALDSSON,
fyrrverandi yfirlæknir,
Laufásvegi 63,
Reykjavík,
andaðist að heimili sínu
þann 18. ágúst. Útför fer fram í Dóm-
kirkjunni þann 29. ágúst kl. 13.30.
Sveinrún Árnadóttir,
Sigrún Stefánsdóttir, Hjörtur Sigvaldason,
Stefán Hjartarson,
Andri Hjartarson.
t
Okkar ástkæri
JÓNAS HALLGRÍMSSON
vélvirki,
Skeiðarvogi 149,
er andaðist á öldrunardeild Landspítal-
ans, Hátúni 10a, þann 13. ágúst sl.,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
mánudaginn 26. ágúst kl. 13.30.
Elín Steinunn Árnadóttir,
Magnús Jónasson, Sigurbjörg Sigurðardóttir,
Arngrfmur Jónasson,
Guðrún Björk Jónasdóttir,
Halldór Jónasson,
Hallfríður Jónasdóttir, Þórður Björnsson,
Árdís Jónasdóttir, Hjörtur Sandholt,
barnabörn og langafabarn.
t
Öllum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur
hlýhug sinn með blómum, minningar-
gjöfum og símtölum, vegna fráfails
elskulegrar dóttur minnar, móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
ÓLAFÍU GUÐNADÓTTUR,
Iðufelli 8,
Reykjavík.
færum við alúðarþakkir og biðjum Guðs
blessunar.
Ólafía Sigurðardóttir,
Þórður Erlendsson, Þia Luoto,
Guðlaug Erlendsdóttir, Vilhjálmur Wiium,
Maria Dröfn Erlendsdóttir, Ásgeir Ingólfsson,
Hjalti Reynir Ragnarsson, Jóna Guðmunda Ingadóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför móður okk-
ar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
JÓNÍNU JÓHANNESDÓTTUR,
Hlíðartúni 8,
Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir sendum við heima-
hjúkrun Mosfellsbæjar fyrir einstaka
umhyggju og hjúkrun.
Jóhannes Helgi Jónsson,
Björg Sigriður Jónsdóttir,
Helga Elsa Jónsdóttir,
Hrönn Jónsdóttir,
Matthildur Jónsdóttir,
Marsibil Jónsdóttir,
Ólafur Jónsson,
Ingibjörg Kristi'n Jónsdóttir,
Eli'n Jónsdóttir,
Matthi'as Jón Jónsson,
Margrét Guttormsdóttir,
Jón Guðmundsson.
Björn Stefán Bjartmarz,
Bolli Þ. Gústavsson,
Ferdinand Þ. Ferdinandsson,
Jóhanna Sigriður Einarsdóttir,
Ingólfur Þ. Hjartarson,
Elías B. Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+ Birgir Guð-
mundsson
fæddist á Bíldudal
26. ágúst 1925.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur í
Fossvogi 26. júní
síðastliðinn. Birgir
var sonur hjónanna
Guðmundar Ara-
sonar, verkamanns
frá Bjarmi í Gufu-
dalssveit og Þor-
bjargar Guðmunds-
dóttur, ljósmóður,
frá Skáleyjum í
Breiðafirði. Birgir
átti níu systkini og
eina uppeldissystur, tvö eru á
lífi og uppeldissystir þeirra.
Birgir kvæntist Guðrúnu
Helgu Finnbogadóttur frá Bol-
ungarvík, 17.1. 1953. Hún er
f. 25. júní 1929. Eignuðust þau
þijá syni. Þeir eru: Sturla Om-
ar, f. 23.3. ’52, giftur Sigríði
Björg Eiðsdóttur, f. 10.1. ’48.
Ég ætla að kveðja tengdaföður
minn og minnast hans í örfáum orð-
um og þakka honum samfylgdina í
þessu lífi. Það er svo skrítið að þeg-
ar maður fer að velta fyrir sér hvern-
ig maður kynnist fólki þá verður
maður oft hissa á hve misjafnan tíma
það tekur. Mér finnst eins og ég
hafi alltaf þekkt Birgi. Þegar ég
Eiga þau fjögur
börn og þijú barna-
börn. Finnbogi, f.
23.4. ’55, giftur
Þórunni Elínu Hall-
dórsdóttur, f. 23.4.
’57. Eiga þau þijú
börn. Guðmundur,
f. 19.11. ’69.
Þegar Birgir var
10 ára var hann
sendur í fóstur ð
Hvallátrum og var
hann þar tii 15 ára
aldurs. 16 ára gam-
all fór hann til sjós.
Eftir að hann stofn-
aði heimili vann
hann ýmis störf bæði til sjós
og lands. En frá 1968-1984 var
hann á skipum Eimskipafélags
íslands. Eftir það vann hann
hjá Pósti og síma við dyra-
vörslu þar til hann lét af störf-
um 1993.
Útför Birgis fór fram frá
Fossvogskirkju 5. júlí.
minnist hans kemur margt gott upp
í hugann. Birgir var alveg einstakur
maður, alltaf var mjög stutt í góða
skapið, ljúfur í umgengni. Hann var
fljótur að sjá spaugilegu hliðarnar,
en þó gat hann verið fastur fyrir og
þegar hann trúði á eitthvað þá gat
enginn fengið hann til að skipta um
skoðun. Einnig barðist hann fyrir
því sem hann trúði á og fannst skipta
máli. Birgir hafði sterka réttlætis-
kennd. Það var alveg aðdáunarvert
af hve miklu æðruleysi og þolin-
mæði hann tók öllu mótlæti og velti
sér ekki upp úr hvernig hlutirnir
hefðu orðið ef þetta eða hitt hefði
gerst heldur sætti hann sig við orð-
inn hlut. í veikindum hans kom það
berlega í ljós. Einnig var aðdáunar-
vert að fylgjast með hve hetjulega
hann barðist í veikindum sínum
meðan þrek leyfði. Ekki minnist ég
þess, að hafa nokkurn tíma heyrt
hann kvarta eða bera sig illa, hvern-
ig sem honum leið. í öllu hans lífi
komu fjölskyldan og heimiiið alltaf
fyrst og hafði hann sérstaklega gam-
an af þegar fjölskyldan safnaðist
saman í kringum hann. Hann hafði
ákaflega gaman af því að fá gesti
og veitti þeim alltaf af höfðings-
skap. Birgir var mikiil tónlistarunn-
andi og spilaði sjálfur á harmonikku.
Eftir að hann kom í land gat hann
sinnt harmonikkunni meira og á
tímabili fór hann reglulega og spil-
aði fyrir eldri borgara í Kópavogi
og hafði hann mjög gaman af því.
„Komið til mín allir þér sem erfiði
hafið og þungar byrðar, og ég mun
veita ykkur hvíld.“ (Matt. 11,28.)
Megi algóður faðir vernda Birgi
í kærleika sínum og hjálpa okkur,
sem syrgjum, að heiðra af alúð allt
það fagra og góða, sem bundið er
minningu hans.
„Jesús mælti: Ég er upprisan og
lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa,
þótt hann deyi. Og hver sem lifir
og trúir á mig, mun aldrei að eilífu
deyja. (Jóh. 11, 25-26.)
Hvíl í friði, elsku tengdafaðir, og
hafðu þökk fyrir allt.
Þórunn Elín Halldórsdóttir.
BIRGIR
GUÐMUNDSSON
Erfidrykkjur
Fjölbreytt úrval af
tertum 05 bakkelsi
á afar hagstaeðu verði.
Gotta kökugerð,
sími 565 8040.
Fersk blóm og
5 skreytingar
við öll tækifæri
I
O
I
Opið til kl.10 öll kvöld
Persónuleg þjónusta
Fákafeni 11, sími 568 9120
o
1
fyrir leiði. Minnismerki
og hefðbundnir legsteinar
úr marmara, graníti og kalksteini
Við bjóðum sérstakt
tilboðsverð á 'óllum
granítsteinum í þessum
rnánuði.
Verkin eru öll hönnuð
af myndhóggvaranum
Þóri Barðdal.
S ÓLSTEINAR
Opið milli kl. 13 og 18.
Nýbýlavegi 30
(Dalbrekkumegin), 200 Kópavogi.
Sími: 564 3555. Fax: 564 3556
BÁRA
BALD URSDÓTTIR
+ Bára Baldursdóttir fæddist
í Reykjavík 4. október 1963.
Hún Iést á heimili sínu í Jörfa-
bakka 10, Reykjavík, 1. ágúst
síðastliðinn og fór útför hennar
fram frá Bústaðakirkju 9. ág-
úst.
Fyrr í þessum mánuði, nú þegar
sumri er tekið að halla og fagrir
haustlitirnir fara að birtast, kvödd-
um við hinstu kveðju elskulega vin-
konu mína, Báru Baldursdóttur
hárgreiðslukonu, er lést langt um
aldur fram eftir baráttu við sjúk-
dóm sem svo margan leggur að
velli.
Vinátta okkar Báru hófst á ungl-
ingsárunum en báðar ólumst við
upp á Hvammstanga og stunduðum
síðan nám saman um skeið að
Reykjaskóla í Hrútafirði, hún í 9.
bekk en ég í 8. bekk. Eins og geng-
ur skildu leiðir en vináttubönd okk-
ar voru það sterk að þau slitnuðu
aldrei, jafnvel þegar ég flutti af
landi brott að loknu námi í Mennta-
skólanum á Akureyri og settist að
í Noregi. Við fylgdumst vel hvor
Btónuptofa
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík * Sími 553 1099
Opið öll kvöld
til kl. 22 - cinnig um helgar.
með annarri, samglöddumst þegar
börnin okkar fæddust og skiptumst
á frásögnum um þroskaferli þeirra
eftir því sem þau uxu og döfnuðu.
Við fráfall vinar leita minning-
arnar á hugann, minningar sem
ylja um hjartarætur og gefa svo
bjarta og fallega mynd af vinkonu
minni sem nú er farin til nýrra
heimkynna. Fögnuður æskuár-
anna, leitandi hugir unglingsár-
anna og hamingja fullorðinsár-
anna. Allt eru þetta skeið sem við
Bára deildum þótt haf skildi okkur
síðan að. Eftir að fullorðinsárum
var náð hittumst við sjaldnar en
þegar við vorum unglingar, en
hvert sinn sem við töluðum saman
í síma eða hittumst heima á Fróni
var eins og enginn tími hefði liðið
á milli samverustundanna. Það var
eins og við hefðum hist í gær. Fas
Báru einkenndist af hlýju, trygg-
lyndi og jákvæðu viðhorfi. Aldrei
heyrði ég hana halla orði á neinn
og tók hún upp hanskann fyrir
þann sem átti í vök að veijast.
Erfitt er að skilja þau örlög sem
kalla unga konu á brott frá elsk-
andi eiginmanni og sonum og erfítt
er að sætta sig við slíkt. Þótt Bára
hafí átt við alvarleg veikindi að
stríða um eins árs skeið var vonin
um bata hennar ætíð í hjarta mínu.
Um leið og ég kveð Báru vin-
konu mína með söknuði og þakk-
læti fyrir vináttu hennar, óska ég
Gunnari, sonum þeirra ungu og
fjölskyldunni allri Guðs blessunar
og verndar í sorg þeirra.
Guðríður Þorsteinsdóttir,
Os, Noregi.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski-
legt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðra
ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár.
Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru
einnig auðveld f úrvinnslu. Senda má
greinar til blaðsins á netfang þess
Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar
þar um má lesa á heimasíðum. Það eru
vinsamleg tilmæli að lengd greina fari
ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu-
bil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.