Morgunblaðið - 25.08.1996, Side 30

Morgunblaðið - 25.08.1996, Side 30
30 SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ Neydd til að taka við j örðinni Norður í Hjaltadal býr Svanhildur Steinsdótt- * * ir á Neðra-Asi, þar sem Asbimingar em upp mnnir og byggð var fyrir kristni fyrsta kirkja --^-------------------------- á Islandi. Svanhildur sjálf var annars konar fmmheiji. Sem kennari fylgdi hún þróuninni í skólamálum allt frá farkennslu til gmnn- skóla á Hólum. Elín Pálmadóttir sótti hana heim og fékk að heyra um reynslu bóndans og kennarans á ömm breytingatímum. ÞEGAR ekið er upp Hjaltadalinn vekur athygli minnisvarði ofan vegar. Ef betur er að gáð stendur þar: „Þor- varður Spak-Böðvarsson lét gera kirkju á bæ sínum í Ási. En kirkja sú var ger sextán vetrum áður kristni var í lög tekin á íslandi - KRISTNI SAGA.“ Frá minnisvarðanum blasir við bærinn á Neðra-Ási, eins og Ás heitir núna. Þar býr Svanhildur Steinsdóttir, sem hafði hönd í bagga þegar varð- inn var reistur 1984, þúsund árum eftir að kirkja var þarna reist 16 árum áður en kristni var hér lögtekin, svo sem lýst er í Kristni sögu og í Þorvalds þætti víðförla. Og er það því fyrsta vígða kirkjan á landinu. Það kemur því af sjálfu sér að spyija Svanhildi fyrst um tildrög þess að ráðist var í að reisa þennan minnisvarða um viðburði fomaldar, þegar hún kemur út á tröppur og býður ti! stofu, hressileg kona hátt á áttræðisaldri og ekki grátt hár á hennar höfði þrátt fyrir barnakennslu langa ævi, sem nútíminn segir að geti gert hvern mann gráhærðan. Amma hennar og afí, Svan- hildur Björnsdóttir og Jón Zophoníasson, fluttu frá Bakka í Svarfaðardal að Neðra-Ási 1904, er móðir hennar Soffía var 16 ára göm- ul. Á undan þeim höfðu búið þar foreldrar séra Sigurbjörns Á. Gíslasonar á Elliheimilinu Grund, þau Gísli og Kristín. Þess vegna gekkst Gísli sonur hans Sigurbjörnsson fyrir því að reisa minnisvarðann þegar 1000 ár voru liðin frá kirkjubygg- ingunni og naut við það aðstoðar Svanhildar, sem m.a. samdi textann. Þeir feðgar áttu því rætur sínar í Neðra-Ási og þaðan fluttu þeir með sér nafnið á hús sitt Ás við Sólvallagötu og Dvalarheimilið Ás í Hveragerði. Segir Svanhildur að séra Sigurbjörn hafi alltaf komið þangað norður með bömin og systir hennar þjónaði í húsinu hjá þeim í Reykjavík. Sambandið milli fjöl- skyldna þeirra og hennar hélst. Sjálf MINNISVARÐINN um kirkju Þor- varðar Spak-Böðvarssonar, sem byggð var 16 árum fyrir kristni á Islandi. Fjær sést bærinn á Neðra-Ási. bjó Svanhildur þar í húsinu í tvo vetur er hún var í Kennaraskól- anum. Kom þangað veturinn eftir bílslysið hörmulega 20. ágúst 1938, þegar Guðrún Lárusdóttir alþingis- maður og dætur hennar tvær, Guð- rún Valgerður og Sigrún, drukkn- uðu í Brúará, en maður hennar Sig- urbjörn Á. Gíslason og bílstjórinn björguðust úr ánni. Það hefur verið dapurlegt fyrir unga stúlku norðan úr landi að búa á siíku sorgarheimili. „Það var ákaflega mikil sorg í - Morgunblaðið/Epá SVANHILDUR Steinsdóttir, bóndi og kennari á Neðra-Ási í Hjaltadal, húsinu. Ég fékk herbergið hennar Sigrúnar sem dó. Bækurnar hennar voru á skrifborðinu og allt í sömu skorðum. Þegar slysið varð var Guðrún komin að því að fæða. Ein- ar maður hennar deildi svefnher- bergi þeirra hjóna með tengdaföður sínum. Þeir áttu oft óskaplega erf- itt, heyrði ég. Lára, dóttir séra Sig- urbjörns og Guðrúnar Lárusdóttur, sem var skólastýra á Hallormstað, kom með manni sínum Ásgeiri dýra- lækni Einarssyni til að vera hjá föð- ur sínum. En það fór vel um mig hjá þeim. Ég mátti alltaf koma til séra Sigurbjörns ef ég gat ekki leyst verkefni fyrir skólann og hann hjálpaði mér. Af því nutu góðs bekkjarsystkini mín, sem vissu að ég gat fengið hjálp við að reikna heimadæmin okkar.“ Ætlaði aldrei að búa Svanhildur ólst upp á Neðra-Ási með tveimur bræðrum, yngst fjög- urra systra. Þegar hún fæddist varð ömmu hennar að orði „ein stelpan enn!“ En hún átti samt eftir að verða sú sem gamla konan setti allt sitt traust á. Móðir hennar Soffía hafði gifst Steini Stefánssyni og hófu þau búskap þar á móti Jóni og Svanhildi 1911. 1913 fluttu þau að Stórholti í Fljótum og bjuggu þar í tvö ár, en móðir hennar undi ekki þar út frá og þau komu til baka að Neðra- Ási, þar sem þau bjuggu uns þau hættu búskap 1942. Svanhildur seg- ir að pabbi sinn hafí verið maður framfara, sem girti og ræktaði, en hann fékk ekki jörðina keypta. Hann missti svo heilsuna og varð að hætta búskap. Hann hafði verið við nám á Möðruvöllum og Hólum og var víðlesinn og góður stjórnandi. Hann var bamakennari í mörg ár og vann hug barnanna. Oft tók hann heim til sín börn, sem aðrir áttu í erfiðleik- um með og kom þeim til einhvers þroska. Svanhildur líktist föður sin- um í allri skapgerð og var mjög kært með þeim. Frá honum hefur hún sjálfsagt erft einlæga löngun til að kenna og hæfileikana til að ná til barna, þótt örlögin gripu harkalega í taumana. Svanhildur ætlaði aldrei að verða bóndi, hugðist læra sálarfræði og uppeldisfræði í Noregi þegar hún hafði útskrifast úr Kennaraskólan- um. Tvær skólasystur voru á förum til náms í Noregi eftir að þær út- skrifuðust 1940, en þá skall stríðið á. „Ég var svo bundin hér heima,“ útskýrir hún. „Ekkert systkina minna vildi búa þar. Amma mín, Svanhildur Björnsdóttir, átti jörðina. Amma var dálítið ákveðin og vildi ekki láta hana fara úr ættinni. Okk- ar skipti vom meiri en annarra vegna nafnsins. Hún vildi ekki yfir- gefa jörðina sína, þar lágu hennar rætur. Svo ég keypti jörðina af ömmu til að þóknast henni. Sonur hennar hafði búið með henni fram til 1942 og átti fjórðung, en hann var á fömm. Ég ætlaði aldrei að búa, langt frá því. Pabbi og mamma vom hér og hann var heilsulítill, svo ég keypti alla jörðina 1942 til að bjarga því í bráð. Það var enginn vafí á að alltaf væri hægt að selja Neðri-Ás. Engin hætta á öðm. Amma dó svo skömmu síðar. Þá ætlaði ég heldur betur að selja. Ég var búin að fá kaupanda, búin að semja um kaupin við bónda munn- lega, en ekki skriflega. Gagnvart ömmu fannst mér ég hafa einhveij- um skyldum að gegna, en þeim væri lokið þegar hún væri komin yfir móðuna miklu. En hennar mat var annað þegar þar að kom. Út yfír gröf og dauða náði tryggð henn- ar gagnvart jörð sinni. Þar skyldu hennar afkomendur sitja hvað sem sem tautaði. Og gamla konan tók til sinna ráða“. Var hún ekki dáin? „Jú, jú, en hún réð út yfir líf og dauða," svarar Svanhildur og ætlar að láta þar við sitja. En'þetta er of merkilegt til að liggja í þagnargildi. Þegar Svan- hildur var næstum búin að selja kom gamla konan látna á hverri nóttu til nöfnu sinnar, sem nóttina langa barðist í draumi við að koma henni út úr bænum. En þótt hún færi í hvert sinn heldur lengra, út á bæjar- þröskuldinn, aðra nóttina út á varp- ann, þriðju nóttina út á vagn í kistu, varð henni ekki bifað lengra. Svan- hildur varð ávallt að gefast upp. Eftir þijár strangar draumanætur gekk amman með sigur af hólmi. Þegar svo var farið að reisa nýtt hús í „Gerðinu", þar sem ljárhús afa hennar og ömmu höfðu staðið, þá kom sú gamla til hennar hress í bragði og sagði: „Nú er ég flutt í Gerðið.“ Svanhildur bjó því áfram. Hún giftist 1948 Garðari Björnssyni frá Viðvík, þarna skammt frá í Skaga- firðinum. Og þau bjuggu á Neðra- Ási í 30 ár, þar til Garðar dó 1978. Þátttakandi í skólaþróuninni En Svanhildur hafði ekki gefið frá sér drauminn um að kenna. Þegar hún komst ekki í framhalds- námið vegna stríðsins hafði hún komið heim og farið að kenna börn- um í Hólahreppi og síðar líka Viðvík- urhreppi. Þá var farkennsla í sveit- inni, kennt heima á bæjunum á víxl. Svanhildur kenndi í Saurbæ, Una- stöðum, Neðra-Ási, í Efra-Ási, Brekkukoti, Kálfsstöðum, Hrafnhól- um, Hofi 1 og Viðvík „Skipt var um stað hálfsmánað- arlega. Bömin komu í hálfan mán- uð. Síðan var þeim sett fyrir og þau fóru heim. Þá fór ég á annan stað. Þegar þau að hálfum mánuði liðnum komu aftur, fór ég yfir það sem þau höfðu lært heima. Þau lærðu ein- kennilega mikið á þessu. Heima var fylgst með því að þau lærðu það sem lagt var fyrir þau. Það þótti skipta máli, þó auðvitað væru undantekn- ingar. Svo var ég á Hólum, kenndi Hólabörnunum og börnum sem gátu gengið þangað frá öðrum bæjum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.