Morgunblaðið - 25.08.1996, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996 35
MINNINGAR
JONAS
HALLGRÍMSSON
+ Jónas Hall-
grímsson vél-
virki fæddist í
Reykjavík 26. des-
ember 1908. Hann
fluttist með fjöl-
skyldu sinni til Pat-
reksfjarðar árs-
gamall og ólst þar
upp. Hann andaðist
í Oldrunardeild
Landspítalans Há-
túni lOa 13. ágúst
síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Hallgrímur
Guðmundsson, f.
1881, d. 1973, járnsmiður á
Patreksfirði, og Halldóra Guð-
brandsdóttir, f.1878, d.1937,
húsmóðir.
Systkini Jónasar voru Adolf,
f.1907, d.1992, hann var kvænt-
ur Helgu Guðmundsdóttur, d.
1994, Helgi, f. 1911, kvæntur
Svövu Vigfúsdóttur, Guðmund-
ur, f. 1914, d. 1969, kvæntur
Onnu Kjartansdóttur, Magnús,
f. 1917, d. 1939, Margrét, f.
1919, gift Óskari Guðmunds-
syni, Rikharð, f. 1922, d. 1943,
Kristbjörg, f. 1926, gift Josep
Kane.
Jónas kvæntist 27.5. 1944
Elínu Steinunni Árnadóttur, f.
31.12.1917, húsmóður. Hún er
dóttir Árna Þorsteinssonar, f.
1889, d. 1974, bónda og síðar
verslunarmanns í Reykjavík, og
Hallfríðar Ólafsdóttur húsmóð-
ur, f. 1887, d. 1968.
Jónas og Elín eignuðust sex
börn. Þau eru:l) Magnús, f.
20.1.1944, vélvirki i Reykjavík,
kvæntur Sigurbjörgu Sigurðar-
dóttur skrifstofumanni og eiga
þau tvö börn, Magnús Loga og
Önnu Eygló. 2) Arngrímur Jón-
asson, f. 24.2. 1945, vélfræðing-
ur við Sogsstöðvar, hann var
kvæntur Onnu Maríu Óladótt-
ur, þau slitu samvistir, börn
Næturafgreiðslu
eftir kl. 22 annast
Laugarnesapótek
þeirra eru Stefán
Jóhann, Árni
Hrannar, Margrét
og Jónas Haukur.
Fyrir átti hann son-
inn Tómas með
Bettý Gísladóttur 3)
Guðrún Björk
hjúkrunarfræðing-
ur, f. 26.2. 1947,
barnsfaðir hennar
er Atli Rafn Krist-
insson, dóttir þeirra
er Elín Birna Bjark-
ar. 4) Haildór húsa-
smiður, f. 28.3.
1948, hann var
kvæntur Erlu Friðriksdóttur,
þau slitu samvistir, börn þeirra
eru Jónas, Hlynur og Berglind
Huld. 5) Hallfríður banka-
starfsmaður, f. 15. 5. 1952, gift
Þórði Björnssyni, sölusljóra,
sonur þeirra er Tómas Auðunn,
fyrri maður hennar var Eiríkur
Þorláksson, börn þeirra eru
Elvar Daði og Steinunn, stjúp-
sonur Hallfríðar er Björn Lúð-
vík Þórðarson. 6) Árdís, hús-
móðir f. 24.8. 1953, gift Hirti
Sandholt, rafvirkja, börn þeirra
eru Anna Lísa, gift Rune Aar-
flot, dóttir þeirra er Anika
Karen, Fríða Björk, Jón Steinar
og Hjördís Lind.
Að loknu hefðbundnu námi
stundaði Jónas sjómennsku á
Patreksfirði þar til hann flutt-
ist til Reykjavíkur tuttugu og
fjögurra ára. Hann hóf sama
ár nám í vélvirkjun í Vélsmiðj-
unni Héðni, en þar starfaði
hann siðan í fimmtíu ár. Frá
árinu 1945 var Jónas trúnaðar-
maður á sínum vinnustað auk
þess sem hann gegndi ýmsum
öðrum trúnaðarstörfum fyrir
Félag járniðnaðarmanna.
Útför Jónasar fer fram frá
Fossvogskirkju mánudaginn
26. ágúst og hefst athöfnin kl.
13.30.
Mig langar til að minnast tengda-
föður míns, Jónasar Hallgrímsson-
ar, nokkrum orðum. Jónas ólst upp
á Patreksfirði frá því hann var á
öðru ári og taldi sig því alltaf Pat-
reksfirðing í húð og hár enda móð-
ir hans ættuð þaðan. Á Patreksfirði
lágu rætur Jónasar og þangað
hugsaði hann oft. Jónas hóf nám í
vélvirkjun og var alla tíð mikill
verkalýðssinni og vann mikið fyrir
stéttarfélag sitt jafnframt því að
samstarfsmenn hans kölluðu hann
til trúnaðarmannsstarfa fyrir sig.
Jónas var fastur fyrir í málum
sem hann tók að sér að vinna að
fyrir samstarfsmenn sína. Hann var
réttsýnn og ekkert þoldi hann verr
en óréttlæti og ef honum fannst á
einhvern hallað, tók hann gjarnan
upp málsvörn fyrir viðkomandi.
Spillingu og óheiðarleika vildi hann
alls_ ekki sjá.
Ég kynntist Jónasi fyrir hartnær
tuttugu og fimm árum, þegar ég
kynntist yngstu dóttur hans, Árdísi
LAUGARNES
APÓTEK
Kirkjuteigi 21
ÁRBÆJAR
APÓTEK
Hraunbæ 102 b
eru opin til kl. 22
konu minni. Fljótlega urðum við
Jónas mestu mátar, og í gegnum
tíðina höfum við átt margar góðar
stundir saman. Stundir sem ég tel
mig vera ríkari fyrir að hafa átt.
Við áttum sameiginlegt áhugamál,
þar sem var veiði. Jónas var mikill
veiðimaður, og hafði mikinn áhuga
á þeirri íþrótt. Hann leigði m.a. um
allnokkurn tíma ásamt Helga bróð-
ur sínum og fleirum Miðá í Dölum.
Margar krassandi veiðisögur úr
Miðá hef ég heyrt frá Jónasi í gegn-
um tíðina. Hann hafði sérstakt lag
á að segja frá, og ég naut þess oft
að heyra hann segja mér sögur,
ýmist af veiði eða sögur úr æsku
hans á Patreksfirði. Sagnagleðin
skein þá úr augum hans, og maður
sá hve stutt var í glettnina.
Vestur í Dölum átti Jónas sér
helgireit í gömlu veiðihúsi, sem
hann endurbyggði ásamt sonum
sínum og tengdasonum og breytti
í sumarbústað. Bústaðurinn var
nefndur Fagra-Grund, eftir kotinu
sem stóð þar áður, en það er í
Harrastaðalandi í Miðdölum. Ófáar
voru þær farnar ferðirnar í Dalina
og enginn var kátari né spenntari
en hann þegar leggja átti af stað
vestur. Oftar en ekki var hann tilbú-
inn löngu áður en fara átti og beið
óþolinmóður eftir því að samferða-
mennirnir yrðu loksins tilbúnir.
Jónas var einnig mikill áhuga-
maður um trjárækt, einkum seinni
árin, og nýtur nú umhverfi Fögru-
Grundar góðs af því. Hann var
óþreytandi að sá fyrir nýjum tijám,
planta ungplöntum og hlúa að
gróðrinum. Seinni árin voru langar
stöður í vélvirkjuninni farnar að
segja til sín, og Jónas átti bágt með
að standa lengi við garðyrkjuna.
Þá var það ósjaldan að hann lá við
trén sín og reytti illgresi frá þeim
til að hleypa að þeim lífsnæring-
unni.
Þannig maður var Jónas. Hann
lagði oft mikið á sig til að geta
hjálpað öðrum. Öll höfum við notið
góðs af þeim kærleik og hlýju, sem
hefur alla tíð einkennt heimili þeirra
Jónasar og Elínar í Skeiðarvogin-
um.
Ég þakka þér, Jónas minn, fyrir
allt sem þú hefur gert fyrir mig og
mína fjölskyldu. Ég er þakklátur
fyrir að hafa orðið þeirrar gæfu
aðnjótandi að fá að vera þér sam-
ferða hálfa ævi mína. Margt er það
sem þú hefur kennt mér og gefið
mér af örlæti þínu. Þó að þú sért
farinn yfir í aðra vídd, veit ég að
þú munt áfram vera hjá okkur í
anda. Ég mun lengi búa að sam-
verustundunum okkar vestur í Döl-
um, þegar þú varst að segja mér
sögurnar þínar við flöktandi ljósið
frá kolaeldavélinni og olíulömpun-
um. Ég minnist oft þess, sem þú
sagðir við mig einu sinni: „Hjörtur,
mundu að það er alveg sama á
+
Elskulegur sonur okkar og bróðir,
MAGNÚS ÖRLYGUR LÁRUSSON,
Kleppsvegi 14,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 27. ágúst kl. 15.00.
Lárus Kjartansson, Ragnhildur Jónsdóttir,
Jónína Osk Lárusdóttir,
Matthildur Lárusdóttir.
i
Bróðir okkar,
STEINDÓR FINNBOGASON
Öldugötu 7
verður jarðsunginn þriðjudaginn 27.
ágúst kl. 13.30 frá Fossvogskirkju.
Unnur Finnbogadóttir,
Guðbjörg Finnbogadóttir,
Jón Finnbogason,
Ólafur Finnbogason
og aðrir aðstandendur.
hvað maðurinn trúir, svo framar-
lega sem það er trúin á hið góða.“
Ég held að þetta sé einmitt það sem
þú lifðir eftir sjálfur. Hvíldu í friði,
kæri vinur.
Ég votta öllum aðstandendum
samúð mína, og bið algóðan Guð
að veita þeim líkn í sorg sinni.
Hjörtur Sandholt.
Hann afi okkar er farinn. Þótt
hann hafi verið orðinn 87 ára gam-
all þá var hann ennþá ungur í anda
og því er söknuður okkur trúlega
enn meiri. Það er erfitt að segja frá
afa án þess að tala um ömmu sam-
tímis. Við frændsystkinin eyddum
öll miklum tima hjá afa og ömmu
í Skeiðó og því fór uppeldi okkar
að miklu leyti fram hjá þeim. Við
hefðum aldrei eytt jafnmiklum tíma
hjá þeim og við gerðum ef afi og
amma hefðu ekki elskað okkur og
notið þess að hafa okkur í kringum
sig. Það sama má segja um okkur.
Við höfum notið þess að vera hjá
þeim og þau hafa haft mikil áhrif
á það hver við erum í dag og amma
mun halda áfram að hafa áhrif á
okkur um ókomna tíð.
Það má segja að það sé sam-
heldni sem einkennir okkar hóp og
samskipti okkar eru líkust þeim sem
eru á milli náinna systkina sem
kunna bæði að elska og deila. Þetta
hefði aldrei orðið svona nema vegna
þess að heimili afa og ömmu stóð
okkur alltaf opið. Þaðan fór heldur
enginn svangur því afi var ekki
rólegur fyrr en við vorum búin að
„fá okkur eitthvað að drekka“ eins
og hann orðaði það. Hjá afa og
ömmu hafa allir verið velkomnir og
alltaf verið pláss fyrir einn í viðbót.
Því fleiri sem voru í heimsókn því
kátari var afi. Afi og amma hafa
aldrei gert upp á milli okkar þannig
að hverju okkar hefur fundist það
vera uppáhald þeirra.
Afi vildi að við þekktum uppruna
okkar og því var hann duglegur við
að rekja ættir okkur aftur í aldir
og segja okkur sögur af forfeðrum
okkar. Það var skemmtilegt að
hlusta á afa því bæði sagði hann
vel frá auk þess sem efnið fyllti
hann slíkum eldmóði að við óhjá-
kvæmilega smituðumst af áhuga
hans. Afi fylgdist með okkur öllum,
spurði alltaf hvað við værum að
gera á þeim og þeim tíma auk þess
sem hann þekkti marga vini okkar
vel. Þetta sýnir best hversu mikinn
áhuga afi hafði á unga fólkinu og
framtíðinni. Hann var alltaf að hlúa
að framtíðinni hvort sem það fólst
í að koma upp laxi í Miðá, rækta
skóg á Grundinni eða að móta okk-
ur með beinum og óbeinum hætti.
Elsku afi okkar, við viljum með
þessu þakka þér fyrir allar þær
stundir sem við höfum átt saman.
Minningarnar um þig eru margar
og sterkar og þær munum við varð-
veita alla tíð og deila með okkar
börnum og með þeim munt þú lifa.
„Þótt ég sé látinn, harmið mig
ekki með tárum, hugsið ekki um
dauðann með harmi og ótta. Ég er
svo nærri, að hvert eitt tár ykkar
snertir mig og kvelur, þótt látinn
þig mig haldið. En þegar þið hlæið
og syngið með glöðum hug, lyftist
sál mín upp í mót til ljóssins. Verið
glöð og þakklát fyrir allt sem lífið
gefur, og ég, þótt látinn sé, tek
þátt í gleði ykkar yfir lífinu."
(Höfundur ókunnur.)
Kveðja, þín
barnabörn.
Kæri langafi. Lítil kveðja frá
Aniku litlu sem með árunum fær
að kynnast þér í gegnum minningar
sem mamma geymir. Takk fyrir allt.
Anika Karen,
+
Sonur okkar og bróðir,
SKÚLI FRIÐRIKSSON,
Byggðarholti 11,
Mosfellsbæ,
verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju
þriðjudaginn 27. ágúst kl. 13.30.
Friðrik Friðriksson, Dodda Runólfsdóttir,
Friðrik Friðriksson yngri, Gísli Friðriksson.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSGERÐUR ÞORLEIFSDÓTTIR,
Ystaseli 19,
áður Óðinsgötu 16b,
er lést laugardaginn 17. ágúst verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudag-
inn 27. ágúst kl. 13.30
Þeim sem vilja minnast hennar er bent
á Blindrafélagið.
Ólöf Valdimarsdóttir, Valur Ásmundsson,
Þorleifur Kr. Valdimarsson, Theodóra Þórðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okk-
ur samúð og hlýhug við andlát og útför,
GUNNARS GUÐMUNDSSONAR
Nökkvavogi 42.
Guð blessi ykkur öll.
Sólveig Kristjánsdóttir,
Páll Gunnarsson, Esther Þorgrímsdóttir,
Guðmundur Gunnarsson, Bjarma Didriksen,
Sigurður D. Gunnarsson, Anna Gunnarsdóttir,
Oddur Gunnarsson, Áslaug Jónsdóttir
og barnabörn.