Morgunblaðið - 29.08.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 1996 15
LANDIÐ
Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Friðþjófur á Eskifirði
Starfsemi verð-
ur allt árið
Morgunblaðið/Helgi Þorsteinsson
UNNAR Björgólfsson, einn fyrri eigenda Friðþjófs, ræðir við
Sigrúnu Þorleifsdóttur, starfsmann fyrirtækisins.
ÚTGERÐAR- og fiskvinnslufyrir-
tækið Friðþjófur á Eskifírði, sem
Samherji á Akureyri keypti í síðustu
viku, hefur veitt 20-60 manns að
jafnaði atvinnu síðustu ár. Þorsteinn
Már Baldvinsson, einn framkvæmda-
stjóra Samheija, segir engar áætlan-
ir um að fækka starfsfólki. „Við erum
að kaupa Friðþjóf til a reka hann
og líkt og fyrri eigendur munum við
reyna að halda ákveðinni lágmarks-
starfsemi allt árið.“
Fyrrum eigendur munu starfa
áfram hjá Friðþjófi. Þorsteinn segir
að ekki hafi verið tiltekið í kaupsam-
komulagi hversu lengi það verði.
„Við tókum ákvörðun um það að
fara inn í landvinnslu á síld og leituð-
um að fyrirtæki sem væri vel stað-
sett með tilliti til loðnu og síldar-
miða, í rekstri og þar sem þekking
væri til staðar. Þetta á við um Frið-
þjóf,“ segir Þorsteinn.
Unnar Björgólfsson, einn fyrri eig-
enda, segist ekki hafa orðið var við
að starfsmenn hafi hug á að hætta
eftir eigendaskiptin. „Ég vona að
nýir eigendur taki á starfsmannamál-
um eins og hingað til. Fyrirtækið var
selt með öllu sem því fylgir, bæði
fjárhagslegum og siðferðislegum
skyldum.“
Viðræður um kaup Samhetja á
Friðþjófí hófust á vormánuðum. Að
sögn Unnars var það algerlega að
frumkvæði Samheijamanna.
Útgerðarfyrirtækið Friðþjófur var
stofnað árið 1968 af femum hjónum
á Eskifírði. Þau hafa öll starfað í
fyrirtækinu síðan. Unnar segir að
fyrirtækið hafi í upphafi aðeins verið
í útgerð. „Við áttum ekkert þegar
við byijuðum og við karlmennirnir
vorum allir á sjó á einum báti. Smám
saman fór þetta stækkandi og árið
1973 fórum við að verka físk og
byggja hús.“ Starfsmenn Friðþjófs
eru nú um tuttugu talsins utan há-
annatíma, en flestir á haustin á síld-
arvertíð. Fyrirtækið er með 749
þorskígilda kvóta og á einn 256
brúttólesta bát, Sæljónið.
Unnar segir það hafa verið erfíða
ákvörðun að selja Friðþjóf. „Við erum
á misjöfnum aldri og það hlaut að
koma að þessu. Börnin okkar eru
ekki hér til að taka við þessu. Þau
eru flest í Reykjavík og öll í öðrum
verkefnum. Ég vona að þetta hafí
verið rétt ákvörðun og ég held að
Samheijamenn geti gert góða hluti
hér. Þeir hafa alla burði til þess og
vilja og góðan kvóta. Það hefði í
raun verið eigingirni hjá okkar að
hanga í þessu lengur."
Sæljónið, bátur Friðþjófs, er með
um þijú hundruð tonna rækjukvóta.
Hann hefur hingað til lagt upp rækj-
una hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar
og meðal annars fengið kvóta á
móti. Fulltrúar Samheija hafa rætt
við Aðalstein Jónsson, forstjóra
Hraðfrystihússins, en að sögn Þor-
steins Más Baldvinssonar hefur eng-
in ákvörðun verið tekin varðandi
áframhaldandi samstarf.
ST-900
boðtækið frá
SMARTEK
á stærð við
eldspýtustokk.
• Eitt minnsta boðtækið á
markaðinum.
• 12 skilaboða minni.
• Pípir eða titrar.
• Innbyggð klukka með vekjara
• Næturljós
• Varar við þegar rafhlaöa
tæmist
• Öryggiskeðja með klemmu
• Hægt að hafa allt að eitt hundr-
að tæki á sama númerinu
• Verð kr. 10.900 með vsk.
RAFÖGN ehf.,
Ármúla 32, sími 588 5678
- kjarni málvins!
Styttri hringvegur o g betri
Húsavík - í sumar hefur verið unn-
ið að vegagerð á Hólsfjöllum og
nýr vegur lagður á rúmlega 13 km
vegarkafla frá Jökulsárbrúnni
(efri) á Fjöllum og austur á Bisk-
upsás. Nýja vegarstæðið liggur
ekki um hlaðið á Grímsstöðum eins
og nú því nýi vegurinn er töluvert
sunnar í beinni línu frá Jökulsár-
brúnni og að Biskupsási. Þegar
þessari vegagerð lýkur gæti orðið
aðeins eitt byggt ból, Víðidalur, við
veginn frá Reykjahlíð og í Skjöl-
dólfsstaði, sem nú er um 130 km
leið, en styttist eitthvað með nýjum
vegi.
Fer í eyði
Að Víðidal búa systkinin Aðal-
björg Esther og Guðmundur Þor-
steinsbörn, sem þar eru fædd og
eru nú nokkuð við aldur og hafa
ætíð átt heima þar. Þau sögðu
fréttaritara blaðsins þegar hann
átti leið um, að þau teldu að þegar
þau yfírgefí jörðina muni hún fara
í eyði, enda séu húsakynnin það
léleg að vart sé við þau búandi.
En þau ætla að vera þarna á með-
an þau telja sér vært. Húsmóðirin,
Aðalbjörg Esther, segir að hún
muni hvergi kunna við sig annars
staðar en í einverunni á Fjöllunum.
Hún segir að hvinurinn, sem fylgdi
umferðinni um verslunarmanna-
helgina hafi verið verri en nokkur
veðrahamur.
Esther segir að oft hafi vegfar-
endur barið þar að dyrum af ýmsum
ástæðum; bíllinn bilaður eða fastur
í snjó, fólk hafi verið bensínlaust,
viljað komast í síma og jafnvel
aðeins til að spyija, hvar það sé
Morgunblaðið/Silli
VÍÐIDALSSYSTKININ við gamlan hverfistein sem Guðmundur
segist vera hættur að nota því nú sé lítið slegið með orfi og ljá.
statt og hvort það sé á réttri leið.
Þægindi eru ekki mikil. Sjón-
varp sést illa, vatn er sjálfrenn-
andi, rafmagn hafa þau frá mót-
orrafstöð sem Rafmagnsveitur rík-
isins reka og þau greiða fyrir raf-
magnsnot eftir niæli, eins og aðrir
notendur. En Esther segir þau
ekki láta rafstöðina ganga nema
þörf sé fyrir rafmagnið og ræsir
hún rafstöðina þegar hún fer að
hita kaffið handa gestkomandi.
Hún segir að alltof lítil hagsýni
sé viðhöfð hjá þjóðinni nú, það sé
eytt í vitleysu og mikið um efni
fram. Hún segir að þau fái póst
þrisvar í viku, en það væri nóg
að fá hann á föstudögum, því þá
fái þau með ferðinni mjólk og það
sem þau vantar úr versluninni.
Víðidalssystkinin eru nokkuð
við aldur, hún að komast á sjötugs-
aldurinn og hann að verða sjötíu
og fimm ára. Ekki er víst að þau
búi í Víðidal, þegar vegalagningu
verður lokið milli Norður- og
Austurlands. Það gæti þá orðið svo
að enginn byggð yrði við hringveg-
inn frá Reykjahlíð við Mývatn og
til Skjöldólfsstaða á Jökuldal.
ákostakjörain
Verðffáaðeins
Ixis Cactus 6. uóv. 31 dagur
39.365 kr.l
á rnann m.v. 2 fullorðna
og tvö böm á Los Cactus, ef greitt er fyrir 20. sept.
Ef grcitt er eftír 20. sepL 46.86 S kr. á mann,
m.v. 2 fullorðna ogtvöböm.
Verðfráaðeins
Jardin EI Atlantieo 6. uóv. 31 dagur
62.300 kr'
|á mann m.v. 2 fullorðna
á Jardin E1 Atíantíco í 31 dag, ef greitt er fyrir 20. sepL
Ef greittereftír 20.sept. 72.300 kr.
á mami m.v. 2 fullorðna.
Kolaports-
stemmning
í Ólafsvík
Ólafsvík - Nokkrar ungar og
hressar konur tóku sig saman til
að hressa upp á bæjarbraginn
og héldu sölumarkað í fiskverk-
uninni Valafelli hf.
Var marg^ á boðstólum; fatn-
aður, grænmeti og að sjálfsögðu
fiskur. Boðið var upp á smakk á
fiskréttum sem vakti mikla hrifn-
ingu gesta.
Sigríður Sigurðardóttir dans-
kennari sá um danssýningu þar
sem konur á ýmsum aldri döns-
uðu nýja kúrekadansinn. I>ótti
þessi markaður takast mjög vel
og taldist forráðamönnum hans
að hátt í 500 manns hafi koinið
og skemmt sér hið besta.
Morgunblaðið/Alfons
ÞAÐ voru konur á öllum aldri sem sýndu kúrekadans á
sölumarkaðinum í Ólafsvík.
las Camclias 7. desember, 14 dagar
Verðfrá
56.900 kr.
ámaimm.v.
2 fullorðna í 14 daga á Las Camelias.
Nýi Kíiiiaríeyjabæklingiirinn liggur frammi
á söluskrifstofuin Flugleiða í dag.
Betía úrval gististaða eu áður og þar á meðal tveir nýir gistísLiðir.
Las Camelias II, smáhýsi mcð góðum garöi og simdlaug,
og íbúðaliótelið Los Cactus.
Hafðu samband við söluskrifstofur okkar,
cða söludcild Fluglciöa í síma 50 50 100
(mánud. - föstud. kl. 8-19 og á laugard. kl. 8 -16).
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi
'Vjs/'in nvsotsvoiminnv nsnns)