Morgunblaðið - 29.08.1996, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Alþjóðaráðstefna um kynferðislega misbeitingu barna í gróðaskyni haldin í Stokkhólmi
Mein sem breiðist út í
krafti alþjóðavæðingar
Stokkhólmi. Morgunblaðið.
SYLVÍ A Svíadrottning kemur til opnunarathafnar alþjóðaráð
stefnu um kynferðislega misbeitingu barna í gróðaskyni
í Stokkhólmi.
AÐ VIÐSTADDRI Silvíu Svía-
drottningu var alþjóðaráðstefna um
kynferðislega misbeitingu barna í
gróðaskyni opnuð í Stokkhólmi á
þriðjudag. Áhugi drottningar á efn-
inu er ósvikinn, því hún hefur áður
látið þessi mál til sín taka. Hún
ávarpaði ráðstefnuna óvænt og
utan dagskrár og óskaði gestum
alls hins besta í vinnu sinni, sem
hún fylgdist með af áhuga.
Ein milljón barna í vændi í Asíu
í ræðu sinni sagði Göran Pers-
son, forsætisráðherra Svía, að mis-
notkun barna væri viðurstyggileg-
asti glæpur sem hugsast gæti. Ron
O’Grady formaður ECPAT, End
Child Prostitution in Asian Tourism,
einn af frumkvöðlum ráðstefnunn-
ar, sagði að hér væri við að glíma
alþjóðlega glæpastarfsemi. Ekki
vantaði lagasetningu, heldur að lög-
unum væri framfylgt. Fulltrúar 130
landa sitja ráðstefnuna, en í þeim
hópi er enginn íslenskur fulltrúi.
Hjá utanríkisráðuneytinu fengust
þær upplýsingar að ekki væri
mannskapur til að taka þátt í öllum
ráðstefnum á vegum Sameinuðu
þjóðanna.
í ávarpi sínu sagði Ron O’Grady
að þegar hugmyndin að ráðstefn-
unni hefði vaknað í júní 1994 hefði
hún virst óhöndlanleg draumsýn,
því ráðstefna af þessu tagi hefði
ekki verið haldin áður. O’Grady
sagði að alþjóðavæðing hefði áhrif
á allt líf okkar.
Allt mælti með opnum mörkuðum
og óheftum viðskiptum og ferðalög
og símasamskipti af öllu tagi skap-
aði heim án landamæra. Þetta væri
uppörvandi og stuðlaði að friði og
betra lífí, en þessi þróun hefði líka
sínar svörtu hliðar og ein þeirra
væri verslun, þar sem böm væru
söluvaran. Ef við samþykktum slíkt
þegjandi og hljóðalaust ættum við
það ekki skilið að kallast siðmenntað
fólk.
Tölurnar tala sínu máli um þær
hörmungar, sem ráðstefnunni er
ætlað að beijast á móti, því O’Grady
sagði að á þeirri viku, sem ráðstefn-
an stendur yfir mætti búast við að
10-12 milljónir fullorðinna leiti eftir
kynferðismökum við börn gegn
greiðslu. ECPAT stefnir að því að
vinna að því næstu fimm árin að
stemma stigu við barnavændi, en
O’Grady sagðist síðan vona að að
þeim tíma liðnum yrði samtakanna
ekki lengur þörf.
Ognvekjandi áhif vændis
Carol Bellamy, framkvæmda-
stjóri UNICEF, Bamahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna, sagði við opnun-
ina að áhrif vændis á börn væm
ógnvekjandi. Það hefti andlegan
og líkamlegan þroska þeirra, gerði
þau fórnarlömb lögi’eglu, sem eltist
við krakkana en ekki þá sem skipu-
legðu vændið og ef þau hyrfu aft-
ur heim væru þau oft útskúfuð af
fjölskyldu sinni.
Hún sagði að í hópi þeirra sem
gerðu út á barnavændi væri alls
konar fólk, lögreglumenn, stjórn-
málamenn, prestar og kennarar. í
baráttunni gegn barnavændi væri
brýnt að beijast fyrir bættri stöðu
og menntun kvenna og beijast
gegn kynþáttamisrétti, því þetta
tvennt væri oft nokkurs konar rétt-
læting þeirra, sem leituðu sam-
neytis við börn. Engin ein lausn
væri á vandanum, en það hjálpaði
að beina börnunum inn á aðrar
brautir en vændi, mennta þau og
gefa þeim börnum er þegar hefðu
leiðst út í vændi kost á heilbrigðis-
þjónustu og félagslegri og sál-
fræðilegri aðstoð.
Klaus Kinkel, utanríkisráðherra
Þýskalands, hélt tilfinninga-
þrungna ræðu um efnið. Á blaða-
mannafundi á eftir rifjaði Kinkel
upp að þegar hann var dómsmála-
ráðherra var efnt til blaðamanna-
fundar, þar sem barnaklámefni og
umfang þess var kynnt blaða-
mönnum með skelfilegu myndefni.
Kinkel sagðist aldrei hafa upplifað
annan eins fund, því bæði liann
og aðrir hefðu verið slegnir djúpum
óhug yfir því efni, sem þar var
kynnt og vart mátt mæla á eftir.
Rétt eins og O’Grady undirstrikaði
Kinkel að ekki vantaði lagasetn-
ingu, heldur að lögunum væri fylgt
eftir. Takmarkið væri að armur
laganna næði um allan heim.
Stokkhólmi. Morgunblaöið.
NÝSJÁLENDINGURINN Ron
O’Grady, formaður ECPAT, End Child
Prostitution in Asian Tourism, og frum-
kvöðull ráðstefnunnar um kynferðislega
misnotkun barna í gróðaskyni er glaður
yfir því að takast skyldi að hleypa ráð-
stefnunni af stokkunum. Og O’Grady hef-
ur margar ástæður til að gleðjast því að
umræða undanfarinna ára, sem gert hefur
lýðum Ijósa þörfína á að taka á barna-
vændi og skyldum málum, er ekki síst
honum og samtökum hans að þakka. I
opnunarræðu sinni sagist hann hafa elst
um mörg ár á þeim fimm árum, sem hann
hefur einbeitt sér að þessu dapurlega efni
og í samtali við Morgunblaðið segist hann
ætla að láta af störfum sem formaður
ECPAT á næsta ári. Það gangi of nærri
honum að sinna þessu lengur og betra sé
að aðrir taki við.
Þessi brosmildi, hlýlegi og
gráhærði maður hefur um ára-
bil unnið að mannréttindamál-
um og segist hafa snúið sér að
bamavændi og annarri kynferð-
islegri misnotkun barna 1991.
„Ég og fleiri tókum eftir rannsóknum, sem
sýndu að barnavændi og barnaklám var
alþjóðlegt fyrirbæri. Það varð til þess að
við stofnuðum ECPAT. Þó ýmiss konar
orðrómur hefði verið á kreiki um að til
Dóttir seld
fyrir siónvarp
í fyrstu lagði
enginn trúnað
á orð okkar
væri skipulagt barnavændi, sala á börnum
og barnaklám var enginn sem trúði okkur
í fyrstu. Það fór því mikil vinna í að safna
áreiðanlegum vísbendingum. En áhugi
fjölmiðla vaknaði og við gátum sagt blaða-
mönnum hvert þeir gætu farið til að sann-
færast um það sem við töluðum um. Þeir
fóru á staðina og smám saman
fór umfang þessara viðskipta að
renna upp fyrir ábyrgum aðil-
um.“
________ Þú nefndir í ræðu þinni að
barnaklám og barnavændi væri
hluti af alþjóðlegri glæpastarfsemi. Get-
urðu gefíð hugmynd um hve víðtæk hún
er?
„Það er erfitt, því þetta er neðanjarðar-
starfsemi, sem aðeins örsjaldan kemur
fram í dagsljósið. Barnamorðin í Belgíu
eru angi af þessum andstyggilega iðnaði,
sem að þvi er virðist hefur þrifist þar um
árabil. I Ástralíu er nú konungleg nefnd
að störfum til að kanna hlut lögreglunnar
í iðnaði af sama tagi. í ljós hefur komið að
í Sydney og nágrenni hefur starfað hring-
ur er fæst við þessa skuggaiðju.
Það eru ekki aðeins lögreglu-
menn, sem tengjast honum, held-
ur einnig stjórnmálamenn og
prestar. Þetta eru aðeins tvö ___________
dæmi úr tveimur heimshlutum,
en vísast má víða fínna það sama.“
Þeir sem vinna að málefnum barna í
Asíu og víðar rekast oft á að í einu þorpi
gera foreldrar allt til að halda börnum frá
vændi, meðan foreldrar í næsta þorpi selja
börn sín. Hvernig stendur á þessum mun?
„Þetta snertir einmitt einn mikilvæg-
asta þáttinn í fyrirbyggjandi starfi og
svarið við þessu er ólíkt gildismat. Fátækt
er ekki einasta skýringin á að foreldrar
selja börn til vændis, heldur einnig gildis-
mat. Neysluþjóðféiagið hefur víða breytt
gildismati fólks. Kona selur kannski dótt-
ur sína í vændi til að geta keypt sér sjón-
varp. Gildismat hefur áhrif á hegðun fólks,
er driffjöður í hegðun fólks og þess vegna
er mikilvægt að skilja hvaða gildismat
liggur til grundvallar að hegðun fólks.
Hér skiptir einkum máli að einbeita sér
að mannlegum samskiptum og þá kyn-
hegðun, en einnig að afstöðu til barna.“
Þú sagðir í ræðu þinni að þú hefðir
elst um mörg ár þau fimm ár, sem þú
hefur sinnt þessum málum. Hvernig ætl-
arðu að halda áfram?
„Það er ekki hægt að sinna þessum
--------- málum án þess að verða fyrir
miklum áhrifum af því að sjá
og heyra af ólýsanlegri neyð
barnanna. Því eru þess vegna
_________ takmörk sett hve lengi maður
getur sinnt þessum málum. Ég
ætla að vinna út næsta ár og láta það
þá gott heita. Það er ekki hægt að gera
það að ævistarfi að sinna þessum málum.
Ég sé árangur og nú er komið að öðrum
að taka við.“
Ólíkt gildis-
mat ein helsta
skýringin
Lögfræð ingrir Dutroux
neitar að veija hann
Jumet, Bratislava. Reuter.
Sólhattur - Propolis
Steinefiiaríkar jurtir
styrkjandi og
.. stuðla að
betri líðan.
Önnur heilsu-
efni frá Natur
Drogerict.
BIO-SILICA
fyrir hárið,
neglumar,
húðina, bandvefi
og beinin.
JÁRN í melassa
og sojaolíu
virkar vel.
SKALLIN PLIJS
vinur magans, hreinsandi og grennandi
Fræhýði af Ispaghúla náttúrulegur fiber.
Fæst í mörgum heilsubúðum,
apótekum og mörkuðum.
BÍÓ-SELEN UMB., SÍMI557 6610
FJÖLMIÐLAR í Belgíu sögðu í gær
að lögreglan kynni að finna lík fímm
stúlkna við hús Belgans Marcs
Dutroux, sem hefur játað að hafa
rænt ungum stúlkum og er grunaður
um að hafa myrt þær. Alþjóðalög-
reglan Interpol sagði að Dutroux
væri grunaður um að hafa myrt slóv-
akíska stúlku og að hafa lagt á ráð-
in um að ræna að minnsta kosti einni
slóvakískri konu. Lögfræðingur
mannsins hefur neitað að verja hann
af siðferðilegum ástæðum.
Lögreglan hélt áfram uppgreftri
við hús Dutroux í bænum Jumet í
suðurhluta Belgíu og fjölmiðlar
sögðu hugsanlegt að lík fímm
stúlkna fyndust þar. Dutroux hefur
játað að hafa rænt tveimur þeirra,
Ee§e Lambrecks og An Marchal.
Áður höfðu lík tveggja átta ára
stúlkna fundist við annað hús í eigu
Dutroux en tveimur stúlkum var
bjargað úr þriðja húsinu af alls sex
í eigu Dutroux. í húsunum hafa
ennfremur fundist klámmyndir þar
sem börnum er misþyrmt gróflega.
Belgar eru slegnir miklum óhug
vegna málsins og lögfræðingur
Dutroux, Didier de Quevy, kvaðst í
gær ekki vilja veija hann. „Ég á
dóttur á sama aldri og fórnarlömbin
[átta ára]. Hún er miður sín vegna
þessa máls og ég tel ekki að hún
gæti skilið hvers vegna ég verði
þennan mann,“ sagði hann.
Grunaður um morð í Slóvakíu
Lögreglan notaði vélgröfu við
uppgröftinn í gær í garði hússins í
Jumet og gróf einnig undir geymslu-
skýli á lóðinni. Hundum og fullkomn-
um tæknibúnaði var beitt til að
ákveða hvar grafíð yrði. Lögreglan
tæmdi einnig kjallara hússins til að
undirbúa leit undir honum.
Að minnsta kosti 15 börn hafa
horfið í Belgíu á síðustu sex árum,
sjö þeirra hafa fundist látin, tveimur
hefur verið bjargað og sex er enn
saknað.
Rudolf Gajdos, yfírmaður útibús
Interpol í Bratislava, sagði að Dutro-
ux væri grunaður um að hafa myrt
unga sígaunakonu í Topolcany í
vesturhluta Slóvakíu. Vitað væri að
hann hefði verið í Topolcany þegar
konan var myrt og lýsingar vitna
bentu til þess að hann hefði framið
morðið.
„Belgíska lögreglan hefur enn-
fremur skýrt okkur frá því að Dutro-
ux hafi ásamt öðrum manni lagt á
ráðin um að ræna að minnsta kosti
einni slóvakískri konu,“ sagði Gaj-
dos. „Svo virðist sem þetta hafi ekki
tekist þar sem þeim reyndist erfitt
að komast yfír landamærin.”