Morgunblaðið - 29.08.1996, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
UTAGAWA Kuniyoshi: “Við fyrstu sýn ógnvekj-
andi, en er í raun og veru fagur maður". Tré-
rista, gerð einhvern tímann á áninum 1847-1852.
UTAGAWA Yoshitora: Trérrista, gerð 1862,
ekki vitað um fæðingar- og dánardag lista-
mannsins. Nemandi Kuniyoshi.
Áhríf andartaksins
MYNPLIST
L i s t a s a fn Kópavogs
JAPANSKAR TRÉRISTUR
- UTAGAWA TÍMÁBILIÐ
Opið alla daga frá kl. 13-18. Lokað
mánudaga. Aðgangur 200 krónur.
Sýningarskrá 1200 krónur. Vegg-
spjald og eftir- prentanir 400 kr.
Til 8. september.
ÞAÐ telst ávallt mikilsháttar við-
burður þegar settar eru upp sýning-
ar á japönskum tréristum og mál-
verkum fyrri alda hvar sem er í
heiminum því þær hafa haft dijúg
áhrif á framþróun myndiistar á
seinni tímum. Og þrátt fyrir að þau
hafi verið mest ér impressjónistarn-
ir voru að koma fram hafa núlistir
dagsins sitthvað til þeirra að sækja
og þá helst fyrir einfaldleika og
skýra myndhugsun. Þessir eðlis-
þættir eru líka undirstaða frábærs
handverks, listiðnaðar og hönnunar
í landinu.
Á líkum tíma og listamenn
“manerismans“ leituðu viðfangs-
efna til hins háleita í fjarlægð og
trúarsögunnar voru Japanir upp-
teknir af hveradagslífinu og sam-
tímanum í myndlist sinni — hinni
síkviku veröld og lifunum augna-
bliksins allt um kring. Til frásagn-
ar er að þessi ferska þrykklist, sem
þeir nefndu Ukio-e, skyldi vera iðk-
uð í ýmsum tilbrigðum um 265 ára
skeið, eða frá 1603-1868 og hefði
slíkt þótt bera vott um stöðnun í
vestrinu. En hún var ferskari en
allt ferskt sem myndlistarmenn
Evrópu höfðu áður séð er þeir litu
fyrst þetta mikilfenglega dæmi list-
sköpunar úr lokaða landinu í austri.
Þrykktæknin hafði borist frá Kína
á sjöundu öld og þegar á tíundu
öld þrykktu Kínveijar bækur en
þó segir sagan að uppruni lit-tré-
ristunnar sé á huldu, hafí líklega
komið flótandi á fjöl langt aftur
úr grárri forneskju.
Það er erfitt fyrir nútímamann-
inn að meðtaka að Japan, land
tækniundranna, var harðlokað út-
lendingum allt til ársins 1853 og
hafði þá verið um 200 ára skeið.
Það var ekki af ótta við að landið
yrði fyrir árás að utan sem hafði
fengið Shoguninn, æðsta drottnara
Japans, til að loka landinu, heldur
öllu frekar hræðsla við átök innan
frá, og til að viðhalda stjórnmála-
legu og félagslegu öryggi meðal
þjóðarinnar.
LIST OG
HÖNNUN
Listasafn Kópavogs
BONSAITRÉ
Kristín ísleifsdóttir, Páll Krisljáns-
son. Opið alla daga frá 13-18.
Lokað mánudaga. Til 8. september.
Aðgangur 200 krónur.
Sýningarskrá 100 krónur.
ÁN NOKKURS vafa er það sér-
stök listgrein að rækta bonsaitré svo
vel fari og sýningar á þeim sem ég
hef séð eriendis hafa ekki síður vak-
ið viðbrögð hjá mér en mótaðir
skúlptúrar. Bonsaitré eru einstök; og
falleg dvergtré í potti sem eru ná-
kvæm eftirlíking tijáa í náttúrunni,
hvort heldur er birki, fura, greni, eða
víðir. Að þjappa þannig efnisfyrirferð
saman, er líkast því að taka beinan
þátt í sköpunarverki náttúrunnar,
sem má teljast inntakið í aliri mikilli
skúlptúrlist. Stakir tijástofnar leiða
oftar en ekki hugann að af manna
höndum mótuðum skúlptúrum, sem
verður greinilegast þegar þeir hafa
misst lauf sitt á haustin og standa
berir hiið við hlið. Ýmsum fínnst
skógurinn þá fegurstur, sem má vera
rétt formrænt séð, þótt flestir séu
sammála um að grænn og laufgaður
sé hann yndislegastur.
Þetta er í þeim mæli séijapönsk
listgrein, að maður hafði enga hug-
mynd um að hún væri iðkuð hér á
Og ekki var það af fúsum og
fijálsum vilja, sem þeir opnuðu
landið, heldur voru þeir beinlínis
neyddir til þess, um leið og skyn-
semin sagði þeim að það væri hið
eina rétta í ljósi stöðunnar, ef ekki
ætti að fara fyrir þeim eins og
Kínveijum í ópíumstríðinu
1840-42. Með því héldu þeir sjálf-
stæði sínu þótt þeir væru neyddir
til að skrifa undir auðmýkjandi
sáttmála við fulltrúa Bandaríkj-
anna, sem opnuðu þeim leiðir til
viðskipta og arðráns.
Það var floti fjögurra herskipa,
þar af tveggja gufuskipa, sem
lagðist við ankeri utan við Edo,
núverandi Tokyo, 8. júlí 1853, og
slík tækniundur höfðu Japanir
aldrei séð fyrr og gerðu sér strax
ljósa grein fyrir yfirburðum gest-
anna í hernaði. Arið eftir, í febr-
landi, en í raun hefur Páll Kristjáns-
son ræktað bonsaitré síðan 1975, og
veitir jafnframt ráðgjöf og upplýs-
ingar um bonsai.
• Þá vaknaði áhugi Kristínar ísleifs-
dóttur leirlistarkonu á bonsai á
námsárum hennar í Japan, þótt stutt
sé síðan hún fór að rækta þau sjálf.
Þau Páll og Kristín hafa tekið sig
saman um sýningu á þessari iðju sinni
á neðri hæð listasafnsins og er hún
með þeim óvenjulegustu og um leið
markverðustu sem hafa ratað á stað-
inn. Um leið er hún iistrænt séð ein
af þeim svipmestu, því að sjálf inn-
setningin er afar hrifmikil, og þá
ekki síst fyrir brotinn malarfeming
sem gengur út frá glugga og langt
fram á gólf, setur ríkjandi svip á alla
framkvæmdina, þótt svo hann standi
einn sér. Þá má nefna að leirker Krist-
ínar eru mörg hver fögur og listileg
mótun, og gerir hún sér oftar en
ekki far um að laga þau eftir sérkenn-
um og grunnformum plantnanna, eins
og hún sjálf orðar það, svo til samans
myndi þau góða heild. Á stundum
ræður tréð ferðinni á kostnað ieirkers-
ins eða öfugt, en í stöku tilvikum
keppa þau um athyglina.
Þetta er afar menningarleg og
mikiisverð framkvæmd og ber sér-
staklega að hvetja fólk til að kynna
sér þessa heillandi listgrein í tijá-
rækt. Vissa mín er, að margur getur
haft af iðkun hennar mikinn unað
um leið og hún örvar og losar um
sköpunarferlið.
Lífskeðjan og maðurinn geta ekki
úar 1854, komu Bandaríkjamenn
aftur og nú voru skipin níu og
sýndi flotaforinginn, sem var hinn
sami og áður, þeim myndir af árás-
artríðinu við mexíkana, sem þeir
gersigruðu, og þá sáu Japanir sitt
óvænna.
Það er mikilvægt að líta til baka
og gera sér grein fyrir að þessar
myndir eru gerðar í landi friðar og
hagsældar og að hér voru menn
að eigin frumkvæði að þróa alda-
gamlar hefðir, er höfðu lítið sem
ekkert með ófrið að gera.
Tæknin hefur fært Japönum
þægindi og velmegnun, en eins og
alltaf eru tvær hliðar á hveiju
máli, og það er mikið til í þeirri
kenningu að mannkynið standi á
heljarþröm vegna vísindanna og
þeirrar mengunar sem tæknin hef-
ur í för með sér.
verið án þessa súrefnisgjafa, sem að
auki ræður veðri og vindum og líf-
keðjunni á jörðinni. „Goðsögnin um
iífstréð birtist í mörgum myndum í
flestum trúarbrögðum. Hjá Grikkjum
tóku guðir sér bólfestu í tijám. I
kristinni trú er skilningstré góðs og
iils, lífstréð sem stóð í aldingarðinum
Menn njóta hlutanna um stund,
svo úreldast þeir og þeim er hent,
en halda margir hveijir áfram að
eitra út frá sér.
Þá er eðlilegt að menn leiti aftur
í tímann er mannkynið lifði mikið
til í sátt og samlyndi við náttúruna
og hér er listin hinn sjónræni sagn-
fræðingur og fréttamiðill, er opnar
okkur svið sem verður stöðugt
ókennilegra og furðulegra eftir því
sem mynd þess skýrist, einnig og
vel að merkja með hjálp ofurtækn-
innar. Líkast fjarlægum fyrirburði
og skyldi hið liðna þá vera nokkuð
annað en draumur. í öllu falli er
sjóndeildarhringurinn víðast hvar
horfinn í mengunarský og landslag-
ið allt annað og dapurlegra og þá
verða menn auðveldlega gripnir
sterkri fortíðarþrá.
Þessi kristalstæri heimur sem
Eden og í múhameðstrú er skylt tré,
allsnægtatréð. Enn má nefna askinn
Yggdrasil, í norrænni goðafræði seg-
ir að deyi hann muni heimurinn líða
undir iok.“
Hið síðasttalda hafa nútímavísindi
staðfest...
Bragi Ásgeirsson
myndverk fortíðarinnar opinbera
okkur og þá ekki síst japanska tré-
ristan kennir okkur vonandi að til
eru önnur og dýpri gildi en hag-
vöxtur, einneigin að án náttúrunn-
ar líður mannkynið undir lok.
Það var margt að gerast í Evr-
ópu er japanska tréristan kom fyrst
þangað, Goethe hafði gefið út lita-
fræði sína, sem hafði einkum sterk
og sýnileg áhrif á Englendinginn
Turner, og marga fleiri. Efnafræð-
in opnaði mönnum greiðari aðgang
að litum en áður hafði þekkst og
mikil geijun átti sér stað í menning-
arlífinu.
Japanska tréristan breytti svo
viðhorfinu til myndefna og skyn-
hrif andartaksins og hvunndagur-
inn varð í vaxandi mæli viðfangs-
efni framsækinna myndlistar-
manna. Klárleiki vinnubragðanna í
framsetningu, myndbyggingu og
kristalstærir litir höfðu ómæld
áhrif.
I myndunum á listasafni Kópa-
vogs gefst mönnum einstakt tæki-
færi til að sjá margt af því sem
einkenndi japanska tréristu á
blómaskeiði hennar en þó er þetta
full stór skammtur af keimlíkum
myndum fyrir hinn óþreyjufulla
vesturálfubúa og hefði verið æski-
legra að hafa fleiri þætti með t.d.
stríðsmanna- og ástarlífsmyndir.
En það er vel þess virði að sökkva
sér niður í þessar svipmyndir
andartaksins frá löngum horfnu
tímaskeiði og hlýtur að gera hvetj-
um opnum huga gott.
Ástæða er til að vekja athygli á
upprunalega markaðssetningu tré-
ristnanna, sem að öllu jöfnu voru
gefnar út í 400 eintökum, og jafn-
framt að borgarastéttin var öðru
fremur viðskiptavinurinn. Gengi
salan illa þurfti listamaðurinn og
vinnustofan ekki að gera sér vonir
um frekari pantanir frá viðkomandi
framleiðanda. Þetta segir okkur
öðru fremur að myndþroski kaup-
endanna, hefur verið drjúgur og
skýrir um leið margt á seinni tímum
er borgarastéttin er orðin að hug-
taki einu.
Vegleg og myndskreytt sýning-
arskrá/bók á ensku er afar skilvirk
og jafnframt vönduð hönnun. Úr-
dráttur á íslensku fylgir henni með
ítarlegum faglegum upplýsingum
sem sérstaklega skai vísað til og
rýnirinn kaus að forðast að endur-
taka í skrifi sínu.
Bragi Ásgeirsson
Norðmenn
tónelskastir
NORÐMENN eru tónelskasta þjóð
heims, ef marka má kaup þeirra
á geisladiskum, að því er segir í
The Economist.
Þar kemur fram að á síðasta
ári keyptu Norðmenn að jafnaði
geisladiska, plötur og hljóðsnæld-
ur fyrir sem svarar til 4.490 ísl.
kr. Hefur salan aukist um 147%
á síðustu fimm árum þar í landi.
Svipaða sögu er að segja í Jap-
an en þar hefur salan aukist um
148% á sama tíma. Kaupa Japanir
diska og snældur fyrir 4.085 kr.
á ári. Þrátt fyrir að tónlistariðnað-
urinn sé hvergi öflugri en í Banda-
ríkjunum, kaupa þarlendir tónlist
aðeins fyrir sem svarar til 3.216
kr. og skýringin að hluta sögð
lægra verð á geisladiskum. Einna
minnst er keypt af tónlist í Suður-
Evrópu, salan á Spáni hefur aðeins
aukist um 7% á fimm árum og
alls ekkert á Ítalíu.
-----».♦ ♦-----
Fundin ljóð
SÍÐUSTU 66 mínútur úr Fundn-
um ljóðum Páls Ólafssonr heitir
ljóðadagskrá sem leikararnir
Hjalti Rögnvaldsson og Halldóra
Björnsdóttir flytja á Kaffi Austur-
stræti, í kvöld, fimmtudagskvöld,
kl. 22.
„Planta í potti“
BONSAITRÉ eru einstök; lítil og formsterk dvergsmá tré í potti
og nákvæm eftirlíking trjáa í náttúrunni, hvort sem er birki,
fura, greni eða víðir.