Morgunblaðið - 15.10.1996, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1996 37 -
+ Sigrún Áskels-
dóttir fæddist
25. júlí 1914 í Banda-
gerði við Akureyri.
Hún lést á heimili
sínu, Víðilundi 20 á
Akureyri, 6. október
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Sigríður Jónsdóttir,
fædd 29. október
1883, dáin 31. ágúst
1956, og Áskell Sig-
urðsson, fæddur 14.
febrúar 1886, dáinn
25. desember 1968.
Þau bjuggu í Banda-
gerði, en fluttust síðar til Akur-
eyrar. Þau eignuðust fimm börn
og var Sigrún elst þeirra. Systk-
ini hennar: Jón, fæddur 31. októ-
ber 1915, dáinn 30. nóv. 1984.
Sigurður, fæddur 28. febrúar
1918, dáinn 28. júní 1955. Ás-
gerður, fædd 15. janúar 1923,
búsett í Svíþjóð. Unnur, fædd
Tengdamóðir mín er dáin! Ég er
varla búin að átta mig á því að hún
sé horfin. í þau 25 ár sem ég þekkti
hana var hún vön að segja, ég ætla
að gera þetta eða hitt, það er að
segja, ef ég verð á lífi. Fyrir tveimur
vikum vorum við í slátrum og þá
kom ein svona setning hjá henni,
þá hló dóttir mín og sagði við hana:
Þú verður ábyggilega 100 ára,
amma mín. Og svei mér þá, þá vor-
um við farin að trúa því. Þess vegna
kom þetta okkur svo á óvart þó svo
að hún væri orðin gömul kona, því
þetta var svo snöggt. Sigrún var
alltaf svo ung og létt í anda, en hún
hafði sínar skoðanir og ef henni
mislíkaði eitthvað, þá sagði hún sína
meiningu og svo var góða skapið
komið aftur. Alltaf var hún tilbúin
til að rétta hjálparhönd, en það
mátti helst ekkert gera fyrir hana í
staðinn. En þegar það kom fyrir að
hún var keyrð í búðina eða til lækn-
is þá vildi hún endilega fá að borga
fyrir það með einhveiju móti. Það
voru ófáar ferðirnar sem ég fór til
hennar, annaðhvort með buxur,
sokka eða annan fatnað af fjölskyldu
minni, til að láta hana gera við, því
hún gerði lystilega vel við. Sigrún
talaði oft um það hve nágrannar
sínir í Víðilundi 20 væru góðir og
umhyggjusamir við sig. Það fólk á
sérstakar þakkir skildar.
Með þessum fáu orðum, kveð ég
tengdamóður mína með þökk og
söknuð í huga.
Blessuð sé minning hennar.
Sigurbjörg.
Með þessum fátæklegu orðum
langar mig að kveðja tengdamóður
mína og þakka samfylgdina. Ég er
ekki búin að vera í fjölskyldunni
lengi, en tæp 5 ár eru síðan ég hitti
Sigrúnu fyrst. Við Siggi komum
norður í byijun desember og erindið
var að hitta fjölskylduna og ekki
síst móðurina Sigrúnu. Þá var slegið
upp veislu eins og Sigrúnu var lag-
ið. Ég undraðist orkuna og dugnað-
inn hjá henni en það veitti henni
greinilega mikla ánægju að vera
veitandi og gestrisni hennar var
ómæld.
Enga manneskju hef ég hitt já-
kvæðari um mína daga. Hún átti
líka mjög auðvelt með að gera létt
grín að sjálfri sér og hafði frekar
áhyggjur af afkomendunum heldur
en eigin líðan. Við Siggi vorum leyst
út með matargjöfum, en þannig
kveðjugjöfum gaukaði hún alltaf að
okkur síðan.
Sigrún og Þorsteinn bjuggu í 32
ár að Hvannavöllum 2 á Akureyri.
Árið 1990 flutti Sigrún í blokkina
að Víðilundi 20. Það sagði hún sjálf
að hefði verið mikið gæfuspor. Við
sáum það líka fjölskyldan hve vel
henni leið þar. Þar eiga íbúarnir
gott samfélag. Vil ég nota tækifær-
ið og þakka Ingileif, Sigríði Valdi-
mars, Huldu, Steingerði og Guðlaugi
fyrir alla þeirra umhyggju í garð
Sigrúnar.
23. júlí 1927, býr í
Skálpagerði, Eyja-
firði. Sigrún giftist
20. maí 1939 Þor-
steini Austmar Sig-
urðssyni, fæddur
28. ágúst 1917, dá-
inn 28. júlí 1984.
Þau eignuðust þrjú
börn: Aslaug María,
fædd 5. ágúst 1939,
gift Birni Olsen, þau
eignuðust fjögur
börn. Elías, fæddur
16. ágúst 1952,
kvæntur Sig-
urbjörgu Kristjáns-
dóttur, þau eiga fimm börn. Sig-
urður Áskell, fæddur 21. nóvem-
ber 1953, í sambúð með Sigríði
Ólafsdóttur og á hún þijú börn.
Barnabarnabörn Sigrúnar eru
fjögur.
Utför Sigrúnar fer fram frá
Akureyrarkirkju i dag, og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Börnum mínum tók hún strax sem
aðilum í eigin fjölskyldu, spurði um
þau og gerði ekki mun á Kristínu
Laufeyju og sínum eigin barnabörn-
um. Fermingarmynd hennar er á
stofuveggnum eins og hinna. Kristín
Laufey átti aðeins eina ömmu á lífi,
svo nýja amman Sigrún var kær-
komin viðbót fyrir hana, en henni
þótti mjög vænt um Sigrúnu og
sendir henni hér með þakkir sínar.
Ég vil að lokum endurtaka þakkir
til allra þeirra sem sýndu Sigrúnu
umhyggju og ræktarsemi. Hún sagð-
ist sjálf ekkert skilja í hve allir væru
góðir við sig, en ég veit að hún hafði
einnig mikið að gefa og var vinur
vina sinna.
Nú legg ég augun aftur.
Ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vðm í nótt.
Æ virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(S. Egilsson)
Ég votta fjölskyldunni samúð og
þakka Sigrúnu samfylgdina í þessu
lífi.
Sigríður Ólafsdóttir.
Elsku amma mín.
Nú er komið miðvikudagskvöld
og ég sit á rúminu mínu, hlusta á
fallega tónlist og horfi á myndir sem
ég tók af þér um jólin. Myndirnar
eru á spjaldi sem reist er upp þann-
ig að ég geti horft á þær þegar ég
sit eða ligg í rúminu mínu. Fyrir
framan myndirnar logar á kerti sem
ég kveikti á fyrir þig. Það gefur
mér frið og ró að horfa í logann og
hugsa til þín. Hugsa um allt það sem
þú hefur gefið mér með tilvist þinni
á Móður Jörð. Ég hef verið að rifja
upp ýmis ánægjuleg atvik og ég hlæ
og græt til skiptis. Ég finn það svo
vel þegar svona óskaplega langt er
heim hve minningarnar verða sterk-
ar og það er þér að þakka að ég á
þær margar, góðar og ánægjulegar
frá liðnum árum. Sérstaklega þykir
mér vænt um að hafa átt með þér
stund um jólin en við kvöddumst
með þeim orðum að við myndum
sennilega ekki hittast oftar í þessari
jarðvist. Mér þykir líka vænt um
bréfin sem ég fékk frá þér og vil
þakka þér fyrir þau. Þú sagðir mér
í síðasta bréfi að þig dreymdi um
að vera gróin sára þinna áður en
færi að snjóa. Elsku amma mín, ég
samgleðst þér af öllu hjarta að hafa
fengið ósk þína uppfyllta. Þú ert
búin að vera kvalin í mörg ár og
orðin þreytt eftir langa jarðvist. Það
er kominn tími til að kveðja.
Mig langar til að segja þér aðeins
af reynslu minni í sumar úr því mér
tókst ekki að skrifa þér bréf áður
en þú lokaðir augunum í hinsta sinn.
Ég hef heimsótt vini mína, indján-
ana, nokkrum sinnum í sumar. Þau
hafa boðið mér að taka þátt í bæna-
fundum með þeim. Þessir fundir
standa yfir frá sólarlagi til sólarupp-
rásar og þarna er beðist fyrir alla
nóttina. Þessir bænafundir hafa
styrkt mig í trúnni á Guð og hafa
kennt mér og sýnt mér fram á hve
bænin er sterk. Ég hef líka fundið
svo vel fyrir því að það er stöðugt
vakað yfir okkur. Þegar mamma
hringdi í mig síðla kvölds og flutti
mér þær fréttir að nú værir þú dáin
bað ég fyrir sálu þinni og sofnaði.
Einhver hefur vakað yfir mér þessa
nótt því ég svaf vært til morguns.
Ég hef ekki sofið svona vært í marg-
ar vikur. Þegar ég vaknaði kveikti
ég á kerti og fór með það að glugga-
num í herberginu mínu og bað Guð
að taka vel á móti þér. Þar sem ég
stóð við gluggann og horfði í logann
gegnum tárin, sá ég sýn. Loginn
skiptist í tvennt og það var bjartur
strengur á milli þeirra. Frá öðrum
loganum lá mjög skær, bjartur og
beinn strengur og ég þakkaði Skap-
aranum af öllu hjarta, fyrir að leiða
þig til betri og bjartari heima. Eftir
bænirnar settist ég á stól og hélt
enn á kertinu. Þarna sat ég og fann
tárin renna niður kinnarnar og aftur
sá ég sýn í loganum. í þetta skiptið
sá ég hljóðfæri, hörpu, og hjá henni
voru tvær verur. Ekki sá ég hvaða
sálir voru þarna en ég hafði mjög
sterka tilfinningu fyrir Birgi bróður
mínum og afa. Það er enginn vafi í
mínum huga að það hefur verið vel
tekið á móti þér, þess vegna finn
ég eingöngu fyrir gleði fyrir þína
hönd.
Elsku amma mín, söknuður okkar
allra er mikill en megi Guð hjálpa
okkur að gefa þér það frelsi sem
þú þarft til að komast þangað sem
þú verður leidd.
Nú kveð ég þig með samblandi
af söknuði og gleði og ég bið Skap-
arann um að vernda þig og vera
með þér um alla eilífð.
Með einlægri ástarkveðju,
Sigrún Vala.
Elsku amma, nú ert þú komin
heim eftir langa veru hér á jörðinni.
Við óskum þér alls hins besta og
biðjum Guð almáttugan að vera þér
við hlið. Við eigum eftir að hittast
aftur en þangað til, vertu sæl, elsku
amma, Guð geymi þig.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elva, Sigrún og Svala.
Islenskur efniviður
fslenskar steintegundir henta margar
afar vel í legsteina og hverskonar
minnismerki. Eigum jafnan til fyrir-
liggjandi margskonar íslenskt efni:
Grástein, Blágrýti, Líparít og Gabbró.
Áralöng reynsla.
Leitið
upplýsinga.
ai S. HELGAS0N HF
ISTEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48 * SÍMI 557 6677
SIGRÚN
ÁSKELSDÓTTIR
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
ANNA KRISTBJÖRG
KRISTINSDÓTTIR
frá Höfða,
Grýtubakkahreppi,
Víkurgötu 6,
Stykkishólmi,
verður jarðsungin frá Stykkishólmskirkju
laugardaginn 19. október kl. 11.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á St. Franciskusspítalann
í Stykkishólmi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðmundur Gunnarsson.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
MIKKELÍNA SIGURÐARDÓTTIR,
Aðallandi 1,
Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn
12. október.
Elín Johnson,
Sigurður Lyngdal,
Guðmundur Arason,
Þorgils Arason,
Ingi Arason,
Helga Aradóttir,
barnabörn og
Ralph E. Johnson,
Magnea Antonsdóttir,
Margrét Sigurðardóttir,
Auður Sveinsdóttir,
Þórunn Reynisdóttir,
Sverrir Hilmarsson,
barnabarnabörn.
t
Ástkær bróðir okkar,
SIGMUNDUR HJÁLMARSSON,
Gaukshólum 2,
andaðist á krabbameinsdeild Landspít
alans 12. október.
Fyrir hönd vandamanna,
Erla H. Hjálmarsdóttir,
Hjálmar Hjálmarsson.
t
Ástkær móðir okkar,
JÓHANNA K. KRISTJÁNSDÓTTIR,
Eiðismýri 30,
Seltjarnarnesi,
lést í Borgarspítalanum í Reykjavík laugardaginn 12. október sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Börn hinnar látnu.
A GOÐU VERÐI
Graníl
HELLUHRAUN 14
220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI: 565 2707
LEieirgpá
TIL ALLT AD 36 MÁNADA
mmm
i TtL. B*J (VlAlVAOA i
10% staðgreiðslu
afsláttur
Stuttur af g reiðsl uf restu r
Frágangur á legsteinum
í kirkjugarð á góðu verði