Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stjórnarfrumvarp um að Þróunarsjóður fjármagni nýtt hafrannsóknaskip
Sjóðnum lokað en þróunar-
sjóðsgjald innheimt til 2005
RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt
að leggja fram á Alþingi frumvarp
til laga sem gerir ráð fyrir að
Þróunarsjóður sjávarútvegsins taki
að sér að fjármagna að stærstum
hluta kaup á nýju og öflugu haf-
rannsóknaskipi. Starfsemi sjóðsins
verður að öðru leyti hætt og úreld-
ingarstyrkir sem hefðu komið til
útborgunar á næstu árum falla
niður, að sögn Þorsteins Pálssonar
sjávarútvegsráðherra.
„Þróunarsjóðnum er þar með í
raun og veru lokað og hann hefur
það verkefni á næstu árum að inn-
heimta þróunarsjóðsgjaldið, sem á
Breiðþota leigð til
áhafnaskipta á
Flæmska hattinum
Odýrar
ferðir seldar
almenningi
BREIÐÞOTA Atlanta flugfé-
lagsins, Tristar Lockheed,
hefur verið leigð undir
áhafnaskipti á fímm togurum
sem veiða á Flæmska hattin-
um. Flogið verður þann 11.
nóvember til St. John’s á
Nýfundnalandi þar sem
áhafnaskiptin fara fram en
með í för verða um 50 skip-
veijar af m.a. Dalborgu, Sval-
barða, Jöfra og Klöru Sveins-
dóttur. Flogið verður til baka
þremur dögum síðar.
Til að mæta kostnaði við
leigu á slíkri flugvél sem tek-
ur 360 farþega eru farmiðar
seldir almenningi á 19.000
kr. með flugvallarskatti og
gistingu í tvær nætur, að sögn
Snorra Snorrasonar útgerðar-
manns á Dalvík og leigutaka
breiðþotunnar.
Boeing-þotur Flugleiða
hafa undanfarna mánuði ver-
ið leigðar til slíkra verkefna
en að sögn Snorra var engin
flugvél á takteinum hjá Flug-
leiðum að þessu sinni þannig
að gripið var til þess ráðs að
leigja breiðþotu Atlanta.
að standa undir skuldbindingum
hans og er reiknað með að skuld-
bindingar sjóðsins verði endanlega
gerðar upp árið 2009,“ segir Þor-
steinn. Aðspurður segir Þorsteinn
að gert sé ráð fyrir að þróunar-
sjóðsgjaldið verði óbreytt á næstu
árum og það verði innheimt fram
til ársins 2005.
„Þegar þróunarsjóðslögin voru
sett á sínum tíma var við það
miðað, að um átak yrði að ræða
sem stæði yfir í nokkur ár. Meg-
inátakinu lýkur samkvæmt gild-
andi lögum um næstu áramót en
það var ráð fyrir því gert að til
EINS hreyfils Cessna 172 einka-
flugvél fór út af flugbrautinni
við Kirkjubæjarklaustur laust
fyrir klukkan 14 í gær þegar
hún var nýlent og skemmdist
töluvert. Þrír menn voru um
borð í vélinni sem er fjögurra
sæta, en þeir sluppu allir heilir
á húfi.
Vélin var að koma frá Höfn
í Homafirði. Stuttu eftir lend-
ingu fékk hún á sig öflugan hlið-
arvind og bar hana til hliðar og
út í snjóruðning í brautarkantin-
ráðstöfunar yrðu um 100 milljónir
á næstu árum til frekari úrelding-
ar á fiskiskipum. Átak það sem
staðið hefur yfir hefur gengið
mjög vel. Fiskiskipum hefur fækk-
að á tveimur árum um 300. í ljósi
mikillar þarfar á að fá nýtt og
öflugt hafrannsóknaskip þótti
eðlilegt að fella þessi verkefni nið-
ur og taka þetta upp í staðinn,“
segir Þorsteinn.
Áætlað verð skipsins
1,1-1,3 miiyarðar
Engin ákvörðun hefur enn verið
tekin um smíði skipsins, að sögn
Flugvél
hvolfdi í
lendingu
um. Skipti engum togum að hún
valt og endaði á hvolfi.
Reynir Ragnarsson lögreglu-
sjávarútvegsráðherra. Frumvarpið
var lagt fyrir þingflokka ríkis-
stjómarinnar í gær. „Fallist Al-
þingi á þessar tillögur ríkisstjóm-
arinnar verður unnið að þessu
verkefni eins hratt og tök era á,“
segir hann.
Áætlað er að skipið muni kosta
1,1-1,3 milljarða króna. Mun Þró-
unarsjóður standa undir einum
milljarði kaupverðsins, en að sögn
Þorsteins eru 265 milljónir kr. til
ráðstöfunar í byggingarsjóði nýs
hafrannsóknaskips, þannig að með
þessu móti væri fjármögnun skips-
ins tryggð.
maður í Vík segir, að í fyrstu
hafi verið óttast að mennirnir
um borð hefðu meiðst, en betur
fór en á horfðist.
Flugvélin er hins vegar tals-
vert mikið skemmd og brotnaði
m.a. ofan af stélinu og væng-
enda, auk þess sem skrúfublaðið
bognaði. Skýrsla var tekin af
mönnunum en þeir héldu síðan
áfram ferð sinni landleiðis.
Stefnt var að því að flytja flug-
vélina á vörubifreið til Reykja-
víkur í gærkvöldi.
Kíló af hassi
íBjörgúlfiEA
Stærsti
fíkniefna-
fundurinn
nyrðra
Akureyri. Morgunblaðið.
EITT kíló af hassi fannst um
borð í togaranum Björgúlfi
EA frá Dalvík þegar skipið
kom úr siglingu til Bremer-
haven í Þýskalandi um helg-
ina. Þetta er mesta magn
fíkniefna sem fundist hefur í
beinum innflutningi á Eyja-
fjarðarsvæðinu. Söluverðmæti
fíkniefnanna er talið vera á
bilinu 1,8 til 2 milljónir króna.
Fannst fyrir tilviljun
Daníel Snorrason, fulltrúi
í rannsóknardeild lögregl-
unnar á Akureyri, sagði að
skipveijar um borð í Björg-
úlfi hefðu fyrir tilviljun fund-
ið pakkann skömmu áður en
skipið kom að landi. Þeir
komu honum í hendur skip-
stjórans sem framvísaði hon-
um við tollyfirvöld við tollaf-
greiðslu skipsins.
Skipveijar hafa verið yfir-
heyrðir en enginn þeirra
kannast við að eiga fíkniefnin.
Vakt var við skipið í tvo sólar-
hringa, en pakkans var ekki
vitjað.
Sigurður Pálsson, yfirtoll-
vörður í Tollgæslunni á Akur-
eyri, sagði að menn hefði
lengi grunað að þessi leið
væri notuð við að koma fíkni-
efnum til landsins. Fundurinn
um helgina hefði staðfest að
fíkniefni kæmu inn á Eyja-
fjarðarsvæðið eftir þessari
leið, en þetta væri í fyrsta
sinn sem svo mikið magn
hefði fundist.
Eftirlit hert
Daníel sagði þennan atburð
gefa tilefni til að efla eftirlit
með skipum sem koma úr
söluferðum frá útlöndum.
Undir það tekur Sigurður.
„Það er ekki vanþörf á að
bæta þetta eftirlit og við
munum skoða það í kjölfar
þessa atburðar.“ Hann sagði
að þó svo eigandinn hefði enn
ekki fundist hefði hálfur sigur
unnist í málinu þar sem fíkni-
efnin hefðu ekki komist á
götuna.
Morgunblaðið/Hjálmar Jónsson
Morgunblaðið/Kristinn
50 unglingar ofur-
seldir fíkniefnum
ATVINNU- og kjaramál, verð-
lagning á fiski og fiskveiðisljórn-
un eru aðalmálin á 20. þingi Sjó-
mannasambands íslands, sem
hófst í gær og Iýkur á morgun.
Sjómenn þinga
Sjómenn ræða einnig á þinginu
margvísleg önnur hagsmunarnál
sín eins og öryggismál, aðbúnað
um borð í skipum og trygginga-
mál.
■ AIlurafIi/14
OFMÆLT mun hafa verið, að 200
unglingar undir 16 ára aldri á höfuð-
borgarsvæðinu séu „ofurseldir"
neyzlu fíkniefna, eins og haldið var
fram í fréttaþætti í Sjónvarpinu fyr-
ir tæpum mánuði. Nær lagi sé að
ætla að fjöldinn sé um 50.
Þetta kemur fram í upplýsingum,
sem Barnaverndarstofa safnaði í
tilefni af fyrirspurn Rannveigar
Guðmundsdóttur um fíkniefna-
neyzlu barna, og Páll Pétursson
lagði fram er hann svaraði fyrir-
spurninni á Alþingi í gær.
Barnavemdarstofa leitaði til sex
aðila um upplýsingar; lögreglunnar
í Reykjavík, Rannsóknarstofnunar
uppeldis- og menntamála, Félags-
málastofnunar Reykjavíkurborgar,
Bama- og unglingageðdeildar,
Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur,
Rauðakrosshússins og SÁÁ. Niður-
stöðumar vom allar á þann veg, að
talan 200 væri stórlega ýkt, en
vandinn væri engu að síður alvarleg-
ur þó erfitt væri að vita nákvæm-
lega hver væri fjöldi þeirra unglinga
á þessum aldri sem svo illa væri
komið fyrir.
TaJan 50 nær lagi
Gögn Rannsóknarstofnunar upp-
eldis- og menntamála, sem byggjast
á upplýsingum um allan árgang
nemenda í 10. bekk grunnskóla,
benda til að þessi tala geti verið
nærri 50. Þó er bent á, að þar sem
skýra skilgreiningu skorti á því hvað
felist í því að unglingur sé „ofurseld-
ur fíkniefnum," megi endalaust
deila um hvort unglingar í vemleg-
um vanda séu 25, 50 eða 75, en
síðastnefnd tala sé algert hámark.
I gögnum lögreglunnar kemur
fram, að í fíkniefnamálum á árinU
1995 komu 15 unglingar undir 16
ára aldri við sögu og auk þess 6
það sem af er þessu ári.